Vísir Sunnudagsblað - 01.10.1944, Síða 8

Vísir Sunnudagsblað - 01.10.1944, Síða 8
SÍÐAN Það er í aímæíi, að Þorlákur prestur Þórarinsson, skáldíð (1711—73), íiafi löngú áður éii það kom fram, Sagt fyrir að hann mundi tina lífi í HÖrga, og að hann hafi enda tilgreint vað- ið á ánni, þar sem slíkt mundi að bera. Eitt sinn, er hann hafði lokið embættisgjörð í kirkjunni á Möðruvollum um sumar, er margt utansóknarfólk var við kirkju, gekk hann eftir bæjar- hlaðinu, og í kringum marga h’esta, er stóðu bundnir við stjaka, litaðist þegjandi eftir hestunum, en eigi var sú venja hans. Menn stóðu nærri og sáu að hann gekk að rauðum fall- egum fola, klappaði á brjóst honum og mæltí: „Hérna kem- ur þú.“ Eigi vissu þeir, er nærri voru, hvort hann mælti svo til folans eða ekki. Prófastur vék sér svo til þeirra og spyr, hver eigi folann. Þeir gáfu eigi frætt hann á því. Bað hann þá hafa upp á eigandanum, og biðja hann að koma til tals við sig. Þeir gerðu svo. En er eigandinn, sem var úr annari sókn og langt að, kom, bað prófastur hann að selja sér folann. Hann gerði kost á því, og hafði prófastur folann heim með sér og hafði hann fyrir reiðhest sinn. Af . þessum sama hesti drukknaði hann í Hörgá. Fhá þeim atburði er svo sagt: Þá er prófastur fór af stað heiman frá sér frá Ósi, kvaddi hann vandlegar en venja hans var til, konu sína og dóttur og allt heimilisfólkið. Fylgdar- mann hafði hann með sér, en reið á undan honum í Möðru- vallanes allt að ánni. Eigi er þess getið, að hann mælti neitt við manninn á leiðinni. En er að ánni kom, bað hann að staldra við, og lagðist niður á bakkann og gjörði þar bæn sína stutta stund. Síðan stóð hann upp, þerrði tár af augum sér og sagði síðan við fylgdarmann- inn, að nú skyldu þeir ríða á ána. Nokkrir segja að hann hafi fleira mæll við hann, beðið hann að skila kveðjum til \-msra manna, ef hann skyldi tinast i ánni, og segja djáknanum á Möðruvöllum fyrstum lát sitt; en að líkindum er það ofhermt, því maðurinn hefði þá §kkj yíð- VISIR SUNNUDAGSBLAÐ I Kcykjavík Það er hver síðastur með að njóta fegurðar í görðum bæjarins, en það ber flestum saman um, að þeir hafi aldrei verið fegurri eða skrautlegri en einmitt í sumar. Efri myndin sýnir Austurvöll, með blómabeðin í kringum gangstígana og styttu Jóns Sigurðssonar, en neðri myndin er tekin úr einkagarði við Tjarnargötu. — ið á ána á undan eins athuga- laust og hann gjörði. Ain var ekki mikil, vart í kvið á hestunum. En er maðurinn var kominn nær því úr ánni, varð honum litið aftur. Stóð þá Ilauður í miðri ánni með hnakk- inn Undir kviði, en prófastur fíaut á ánni. Nokkrir segja að fóttir hans værí fastur í ístað- ínU, Og því hæri straumurinn hann eigi frá hestinum. Maðui'- inn sneri aftUr og náði líki pró- fasts úr ánni, og kenndi einskis lífsmarks með því. Það höfðu menn fyrir satt, að hvorki hefði hesturinn dottið eða hi’asað, heldur mundi ómegin hafa svifið á prófast, og hann svo liðið niður af hestinum. Nokkr- ir ætla, að hnakkurinn hafi ver- ið lausgirtur og aftarlega á lagður, og fyrir því hafi hann snarazt svo auðveldlega. ★ 1 bæ einum bjó smiður, sem var sterkur. Og er hann var í veitingahúsinu, sem oft kom fyrii’, varð hann jafnan ós'áttur við einhvern þar. Einhverju sinni barði hann mótstöðumann sinn svo mildð högg, að hann féll þegar dauður til jarðar. Var nú smiðurinn settur 1 fangelsi og dæmdur til dauða. En er bæj- arbúar fréttu það, héldu þeir til dómarans og sárbændu liann um að lofa smiðnum að lifa, þar sem hann væri eini smiður bæjai’ins og án hans gætu þeir ekki látið járna hestana sína. Dómarinn kvaðst ekki geta sleppt svo vondum manni refs- ingarlaust, en þá sagði bóndi nokkur: „Herra dómari! Við höfum tvo bakara; annar dygði okkur eflaust — látið þá bara hengja hann i stað smiðsins, sem við getum ómögulega án verið.“ Þetta þótti dómaranum þjóðráð og sagði: „Þii ert ekki eins vitlaus og þú virðist vera; við skulum þá láta bannsettan smiðinn lifa, en þið skuluð hengja þann bakarann, sem er eldri.“ ★ Elisabet drottning hafði hirð- fífl, sem einu sinni liafði fengið 9000 krónur að láni hjá henni, og skuldin var löngu fallin í gjalddaga. Drottning vildi fá fé sitt, og hafði oft krafið hann um það. Einu sinni var honíim sagt, að drottningin ætlaði að fara fram hjá húsi hans, og datt hon- um þá í hug að reyna að beita brögðum, til þess að losna við skuldina. Hann lagðist því í lík- kistu, og er drottning kom, lét hann nokkra vini sina bera hana út. „Hver er látinn hér?“ spurði drottning, er hún sá kistuna koma útf „Það er hið trygga hirðfífl yðar hátignar“, var svarað. „Hvað þá!“ sagði drottning, „eg hef alls ekki heyrt að hann væri veikur. Hann skuldaði mér 9000 krón- ur. Sú skuld verður nú aldrei goldin, og eg vildi fúslega greiða annað eins þeim, er lífg- aði hann aftur.“ „Eg þakka yð- ur innilega,“ sagði fíflið, óg reis upp úr kistunni. „Velvildin, sem þér sýnið mér, er svo mikil, að gleðin hefir uppvakið mig frá dauðum.“ Drottningin hló að uppátæki hans og efndi orð sín. ★ Hjón kveðast á. Vera snauður, vont er það varla nauð fá bifað; — ætti’ eg sauði’ og gjarðaglað gæti’ eg ótrauður lifað. Konan svaraði: Þegar dauði að dyrum ber á döpru nauðakveldi hjálpar auður* enginu þér eða sauðafjöldi. * Lítil stfdka, sem var að læra fræðin, sagði að það væri ekki ekki alt að marka sem þar stæði. „Þó að eg,“ sagði hún, — „hlýði fjórða boðorðinu og heiðri hann pabba og hana mömmu, þá verða dagar mínir í landinu ekkert lengri fyrir það; eg er látin hátta kl. 7 eftir sem áður.“ ★ Leiðrétting. 1 Gangnavísum, sem birtust í 29. tbl. Sunnudagsblaðsins, urðu því miður allmargar villur. I fyrstu hendingu fyrstu vísunn- ar á t. d. að standa hulduheims, í stað hulduheima og í þriðju línu sömu vísu á að standa eims, í stað eima. I 3. hendingu 2. vísu á að standa rúnum, í stað runnum, og í 1. hendingu 5. visu blóma, í stað bláma. I 3. hendingu sömu vísu stendur breiðir, en á að vera breiðri. Þá sendui’ í 9. vísu furðusnið, en á að vera ferðasnið. I 10. vísu , stendur unz af, en á að vera j unz að, og loks í síðustu vís'-j: unni á að vera loga drifin, ítí. stað laga drifin, 'l\|

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.