Nýja dagblaðið - 17.11.1933, Page 1

Nýja dagblaðið - 17.11.1933, Page 1
NYJA 1. ár. Reykjavik, föstudaginn 17. nóv. 1933. 18. blað ÍDAG Sólaruppkoma kl. 9.05. Sólarlag kl. 3.20. Háflóð árdegis kl. 4.45. Háflóð síðdegis kl. 5.05. Veðurspá: Sunnan kuldi, þýðviðii og dálítil rigning. Ljósatimi lijóla og bifreiða 3.55 e. m. til 8.25 árd. Söfn, skrifstofur o. fL: Landsbókasaliiið opið kl. 1-7 og 8-10 pjóðskjalasaínið ......... bpið 1-4 pjóðminjasafnið .......... kl. 1-3 Náttúrugripasai'nið ....... kl. 2-3 Alþýðubókasaínið .... opið 10-10 Landsbankinn .... opinn kl. 10-3 Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3 IJtvegsbankinn .. opinn kl. 10-4 Útibú Landsbankans á Klappar- stíg ...........,...... opið 2-7 Sparisjóður Rvíkur og nágrennis opinn kl. 10-12 og 5-7V2 Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn ............. opinn 8-9 Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4 Fiskilél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5 Samband isl. samvinnufélaga opið ............... 9-12 og 1-6 Sölusamband isl. fiskframleiðenda 10-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. ísiands .... opið 9-6 Skrifst. bœjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Hafnarskrifstoían opin 9-12 og 1-6 Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10-12 og 1-4 Tryggingarstofnanir ríkisins opnar kl. 10-12 og 1-5. Baðhú« Reykjavíkur opið kl. 8-8 lvlœðrastyrksnefndin í pingholts- stræti 18 .............. kl. 8-10 Heimsóknartími sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspitalinn ............ 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. 12^-2 Vífilstaðahælið 12^1^4 og 3^2-4% Kleppur .................... kl. 1-5 Næturlæknir: Bei'gsveinn Ólafsson Suðurgötu 4. Sími 3677. Næturvörður í Ingólfsapóteki og Laugavegsapóteki. Skemmtanir og samkomur: Gamla bíó: Nótt eftir nótt kl. 9. Amerísk talmynd. Nýja bíó: Ólán fylgir auði kl. 9. Alþingi: Fundur í báðum deildum kl. 1. Hæstiréttur kl. 10. Samgöngur og póstferðir: Póstbíll til Garðsauka og Eyrar- bakka og Stokkseyrar. Suðurland frá Borgarnesi. Dagskrá útvarpsins. Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. Endurtekning frétta o. fl. ping- fréttir. 19.00 tónleikar. 19.10 veð- urfregnir. 19.20 tilkynningar, tón- leikar. 19,35 Erindi Búnaðarfélags- ins: Teódór Arnbjarnarson. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Kvöld- v aka. Bæjarstjórnarfundur í gær Byggingarsamvinnufélagið. Reikuingar bæjarins 1932. Kosning niðurjöfnunar- nefndar. Lögreglumálin. Bæjarstjórnarfundur hófst í Kaupþingssalnum kl. 5 sd. í gær, og var margt áheyrenda. 14 mál voru á dagskrá. Lesnar voru og samþykktar rúml. 40 brunabótavirðingar. Samþykkt var að bærinn noti forkaupsrétt sinn, að erfðafestulöndunum Norður- mýrarblettur V og VII, sem H/f. Xol og Salt býður til sölu fyrir 27 þús. kr. 7 þús. borg- ist við afsal, en eftirstöðvar með jöfnum afb. á 20 árum með 6% vöxtum. Landið er um 4 ha. að stærð — og var leigt á erfðafestu um 1890, en erfðafestubréfið er týnt, segir borgarstjóri. Fyrir fundinum lá afgreiðsla byggingarnefndar viðvíkjandi byggingarleyfum til Bygging- arsamvinnufélags Reykjavíkur. Nefndin hafði mælt með, að leyft yrði að byggja 10 stein- hús 67,5 ferm., 10 timburhús 67,5 ferm., 7 timburhús 74,88 ferm. En 6 tvíbýlishús 100,44 ferm. að stærð, skift í tvennt með eldvarnarvegg, hafði nefndin synjað um leyfi fyrir. Tillaga um að leyfa einnig þessi 6 tvíbýlishús, var samþ. með 7:5 atkv. í bæjarstjórn- inni. Þá voru teknar fyrir og samþykktar nokkrar fundar- gerðir nefnda. En því næst voru teknir til meðferðar Bæjarreikníngarn' ir 1932 Einn af bæjarfullirúun* um: Bæjarreikningarnir eru ekki rétiir, óná* kvæmir og gefa sára* litla h.ugmynd um það, sem þeir eiga að skýra frá. Jón Þorláksson borgar- stjóri: Það er ekki mér að kenna. Pétur Halldórsson: Það er of dýrt að hafa bæjarreikning- ] ana rétta. ! Út af bæjarreikningnum I urðu langar umræður, og var ' af ýmsum bæjarfulltrúunum ! deilt fast á reikningsfærsluna. Framh. á 3. síðu. Skuggamynd úr bæjarlifinu 1 fyrrinótt gerðist atburður hér í bænum, óglæsilegur að vísu, en þó svo vaxinn, að rétt þykir að skýra frá honum. Er það gert í því skyni að Reyk- vískir borgarar viti hvað langt er komið — líka í því sem miður fer — og er þá hægara við að sjá. Á White Star. Ungur sjómaður úr ná- granna-verstöð kom hingað til bæjarins í fyrradag. Um kvöld- ið hugðist hann að gera sér glaðan dag. Lenti haxm inn á veitingastaðinn „White Star“ og mun þá hafa verið orðinn eitthvað ölvaður. Var þar all- margt fólk fyrir, einkum ungt kvenfólk. Tóku nú stúlkumar að keppast um að ná hylli hans og settust þær, sem að- gangsfrekastar voru, í fangið á honum. Þar var og maður nokkur rúmlega þrítugur, sem gaf sig að sjómanninum og settist við borðið hjá honum. Stúlka sú, sem í lokin varð hlutskörpust í samkepjpninni um aðkomumanninn er á þrí- tugsaldri og nokkuð kunn hjá lögreglunni. Sitja þessi þrjú við sama borð, en sjómaðurinn leggur fram fé fyrir veiting- um. Peningum stolið. Þegar liðið er á kvöld ræðst það, að sjómaðurinn fari með stúlkunni, en hinn maðurinn fylgist með, að tilmælum stúlk- unnar, og að því er sjómann- inum skilst, til þess að útvega húsnæði. Fæst herbergið hjá trésmið nokkrum uppi á Berg- staðastræti. Þegar þangað er komið, er húsráðandi sendur eftir áfengisflösku, sem sjó- maðurinn borgar. Er nú setið að sumbli. í herberginu var rúm og legubekkur og semst svo um, að sjómaðurinn og stúlkan fái næturgistingu í rúminu, en húsbóndinn ætlar sér að sofa á legubekknum. Eru nú þessar fjórar mann- 1 eskjur þarna inni, þegar það verður að ráði, að sjómaður- Framh. á 3. síðu. Stjórnarskíptín Konungur veitir ráðuneytí Ásgeirs Asgeirssonar lausn en íelur því að annast stjórn- arstörf fyrst um sinn. Svohljóðandi skeyti barst forsætisráðhérra frá konungi í gær: Eftir að Vér höfum meðtek- ið skeyti yðar frá 15. þ. m. og af þeim ástæðum er þér takið þar fram, veitist hérmeð yður sem forsætis- og fjármálaráð- herra, dómsmálaráðherra Magnúsi Guðmundssyni og at- vinnu- og samgöngumálaráð- berra Þorsteini Briem lausn frá ráðherraembættum, og óskum Vér jafnframt að þér og þeir annizt embættisstörf ráðherranna eins og hingað til þar til önnur skipun verður gerð. Christian R. Þjóðverjar semja við Pólverja. Berlin kl. 11.45 16/11. FU. Þýzkaland og Pólland hafa gert með sér samning um að hvorugt skuli ráðast á hitt með ofbeldi. Hefir pólski sendi- herrann í Berlín, Lipsky, stað- ið fyrir samningaumleitunum um þessi mál, og var samning- urinn undirskrifaður í gær. Telja pólsk blöð, að þessi samn- ingur muni leiða til nánara sambands milli Þýzkalands og Póllands^ og að honum muni ef til vill síðar verða breytt í fullkominn hlutleysissamning. Þessi samningagerð vekur allmikla eftirtekt um allan heim, því að menn hafði ekki grunað að neitt slíkt væri á döfinni, og undanfarið hefir verið heldur grunnt á því góða milli Þjóðverja og Pólverja. Sérílagi virðast Frakkar hafa orðið fyrir vonbrigðum út af samningnum, og deila frönsku blöðin allhart á pólsku stjórn- ina fyrir að hafa gert þetta á, bak við Frakka. Blaðið Ere Nouvelle telur að nú sé kom- inn tími fyrir Frakka að semja sjálfir við Þjóðverja !um hlut- leysi, en önnur blöð telja að það sé ekki heppilegt að svo stöddu, að minnsta kosti ekki án þess að bandaþjóðir Frakka hafi hönd í bagga með. Flughafnir á Atianzhafi. London kl. 17 16/11. FU. Ráðuneyti opinberra verka í Bandaríkjunum hefir nú á- kveðið að láta smíða til reynslu fljótandi stöð fyrir flugvélar, og á að setja hana á Atlantz- hafið. Ef hún reynist vel, hafa Bandaríkjamenn í hyggju að koma slíkum fljótandi flug- höfnum fyrir í Atlantzhafinu i með svo sem 500 mílna milli- ! bili, á flugleiðinni milli Ame- á að reyna hana til þrautar áður en fleiri verða smíðaðar. Þessi tilraun Bandaríkja- manna fer í sömu átt og til- raun sem Þjóðverjar hafa gert í sumar á flugleiðinni milli Afríku og Suður-Ameríku, en þar hafa þeir haft sérstakt flugvélasldp, Westphalen, sem tvær flugvélar hafa lent í. Þetta hefir þótt gefast vel. ríku og Evrópu. Gert er ráð j fyrir því, að sú flughöfn sem j nú á að smíða, rnuni kosta 1 hálfa aðra milljón dollara, og Slys á Sígiuftrði. Maöur tellur út- byrðis og drukkn- ar. Siglufirði 16. nóv. Vilhjálmur Sveinsson af Siglúfirði, ættaður úr Kaup- angssveit, reri í gær einn á báti frá Sigiufirði og hefir ekki komið fram. — Nánari atvik eru þessi: 1 morgun fannst á Siglufirði mannlaus smábátur liggjandi við akkeri, en færi var úti og bundið við bátinn. Síðar vitnaðist, að Vil- hjálmur, sem áður er getið, hafði íengið bátinn lánaðan, ' og róið á honum einn til fiskj- I ar um kl. 5 í gærdag. Síðan hefir ekki til Vilhjálms spurzt, og ætla menn, að hann hafi fallið útbyrðis. Lögreglan á Siglufirði slæddi í firðinum í dag. Um kl. 17 í dag hafði það engan árangur borið. — FÚ. Innflutningur Gyð- inga tii landsins helga. Berlin kl. 11.45 16/11. FU. Við landamæri Palestínu hafa nú verið settar brezkar og Arabiskar herdeildir, til þess að gæta þess að Gyðingar kom- izt ekki inn i landið í óleyfi. Upp á síðkastið hefir mjög mikið borið á því, að Gyðing- ar hafi ferðazt um Palestínu án þess að hafa innfararleyfi, og verða nú öll farartæki, sem fara inn í landið, rannsökuð, til þess að koma í veg fyrir slíkt.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.