Nýja dagblaðið - 28.11.1933, Síða 4
4
K T J A
DAGBLABIB
Anuáll.
Aöalfundur í Framsóknarfélagi
Reykjavíkur var haldinn í gær-
kvöldi. Verður nánar skýrt frá
honum í blaðinu á morgun.
Tryogvi Jóhannesson á tirettis-
götu 20 B, er tekinn var fyrir
brugg um daginn, var a laugar-
daginn dæmdur í 500 kr. sekt.
munu verða fluttir fyrirlestrar um
ýms önnur efni, sem gð búnaði
iýtur.
Dr. Gunnl. . Claessen flytur í
kvöld erindi í útvarpið um heil-
brigðismál skólabarna. Er það
alþýðufræðsla Rauðakrossins.
U. M. F. Velvakandi heldur
íund í Kaupþingssalnum í kvöld
kl. 9.
urinn, sem þar er settur, Guð-
mundur Benediktsson öll atkvæð-
in.
Mjólkurneyzla skólabarna. Mjólk-
ursala og mjólkurgjafir byrja i
barnaskólum bæjarins innan fárra
daga. Öllum heimilum, sem eiga
börn í skólunum eru sendar fyrir-
spurnir um það, hvort þau viiji
að börn þeirra fái mjólk í skólan-
um og hvort þau vilji fá hana
keypta eða gefins. það er ætlazt
til þess að þeir borgi sem geta,
en hinsvegar einnig ætlazt til þess
að allir sem ekki treysta sér til
að borga mjólkina, óski eftir að
börn þeirra fái hana gefins, og
telst það ekki sveitastyrkur. það
hefir komið fyrir undanfarið, að
börn, sem ekki hafa fengið mjólk
í skólanum, hafa horft tárvotum
augum á félaga sína drekka
mjólkina. Foreldrar! Látið það
ekki koma fyrir í vetur, hugsið
aðeins um vellíðan og heilsu
barna yðar, þegar þér svarið fyrir-
spurninni um mjólkurkaup eða
mjólkrugjafir í skólanum. S.
Verklýðsfélag Bolungarvíkur
hefir samþykkt áskorun þess efn-
is til Alþ.sambands Vestfirðinga-
fjórðungs, að það vinna öfluglega
á móti því, að áfengissala verði
leyfð á sambandssvæðinu eða að
nokkur bruggun eða sm.vglun geti
þriíizt þar. — F.Ú.
Kristján Kristjánsson fulltrúi
lögmanns var í gær af dómsmála-
ráðuneytinu skipaður setulögreglu-
stjóri i rannsókninni út aí hót-
anabréfunum, með því að lög-
reglustjórinn i Reykjavík hafði
úrskurðað sig úr málinu eins og
skýrt hefir verið frá hér í blað-
inu.
í Manchester Guardian 10. þ. m.
er sagt fpá deilu þeirri, sem risið
hefir milli ráðuneytisins , á Malta
og brezka landstjórans þar og
endaði með því, að iandstjórinn
setti ráðuneytið af og tók stjórn-
ina alveg í sínar hendur. Deilan
reis út af breytingu á stjórnar-
skrá eyjarinnar, þar sem ákveðið
var, að enska og mál eyjabúa
skyldu kennd í bamaskólum, en
ítalska í æðri skólum. Stjórnin,
sem búið er að setja af, vildi hafa
ítölsku í barnaskólunum líka. En
Manchester Guardian segir, að
aðeins 10% af eyjabúum tali
ítölsku.
í Englandi eru nú samkvæmt
nýjustu hagskýrslum % miljón
fleiri bifreiðar í umferð en á sama
tima í íyrra. Mikið af þessari
aukningu eru nýjar bifreiðar, sem
ekki hafa verið í notkun undan-
farið — vegna fjárhagsörðugleika.
Biíreiðarslys. Milli kl. 2 og 3 á
sunnudaginn vildi slys til skammt
frá sandgryíjunni við Suðurlands-
veginn. Maður að nafni Guðmund-
ur Sigurðsson Sogabletti 6 fékk
að sitja aftan á flutningabifreið-
inni RE 786, frá gatnamótum
Langholtsvegs og Suðurlands-
vegs, niður að sandgrýfju. þar
stanzaði bifreiðin og fór Guðmund-
ur aí henni, aftur af pallinum.
í sama bili kom önnur bifreið að
neðan úr bænum og ók framhjá
og ienti hún á manninum, sem
féll við og missti meðvitundina.
Var hann fluttur á Landsspítal-
ann og sýndi sig við læknisskoð-
un, að liann hafði íótbrotnað. Ekki
er ennþá fyllilega kunnugt með
hverjum hætti þetta hefir atvikazt
því réttarhöldum er ennþá ekki
lokið. Bifreiðin, sem ók á mann-
inn, var RE 999.
NámsskeiS Helgu Thorlacius í
matreiðslu úr kjöti, fiski og æti-
jurtum, byrjar í dag á Bárugötu
13.
Börn meiSa slg á dynamit.
í gær voru drengir að leika sér
ini við Pípuverksmiðju, höfðu
þeir náð í dynamithvellettu og
sprengdu hana á steini. Hljóp
skotið i höndina á 5 ára dreng,
og mun hafa brotnað bein í hend-
inni.
Fisksalan. Tryggvi gamli seldi i
Grímsby í gær 2200 körfur fyrir
896 sterlingspund. Andri seldi
einnig í gær á sama stað 2300
körfur fyrir 948 sterlingspund.
Timburskip, sem heitir Ophir,
kom í gær til Völundar.
Selioss fór i gærkvöldi áleiðis til
Leith og Antwerpen.
Hvítabandið hefir fengið leyfi
hjá stjómarráðinu til þess að
starfrækja sjúkrahús hér í bæn-
um, með því móti að taka ekki
berklasjúklinga eða aðra, sem
hafa næma sjúkdóma.
Námskeið fyrir eftirlitsmenn
nautgriparæktarfélaga og íorða-
gæzlumenn, byrjaði hér í Rvík í
gær. Kennt verður að útfylla
skýrsiur, færa búreikninga, og að
mæla fitu og mjólk. Auk þess
Gullverð isl. krónunnar er nú
54.86 gullaurar, miðað við fransk-
an franka.
Skipafregnir. Esja var á Vopna-
firði um hádegi í gær. Gullfoss
ej' í Kaupmannahöfn. Goðafoss fer
til Hull og Hamborgar í kvpld.
Biúaifoss fór frá Leith 25. þ. m. á
leið til: Vestm.eyja. Dettifoss ei' í
Hamboi'g og fer þaðan í dag.
Lagarfoss er á Akureyri. Selfoss
fór til Leith og Antwerpen í gær-
kvöldi kl. 6.
Gestir i bænum: Jón Sigui-ðsson
hreppstjóri á Haukagiii, Guðbjart-
ur Kristjánsson bóndi á Hjarðar-
felli. Helgi Ilannesson kaupfélags-
stjóri frá Sumarliðabæ, B.jarni
Kolbeinsson bóndi Mástungu, Jó-
lmnn Kolbeinsson bóndi Hamars-
heiði, Ágúst Sveinsson bóndi Ás-
um, Jóhann Sigurðsson bóndi
Núpum.
Bifreiðarslys. Á sunnudagskvöld-
ið vildi það slys til á móts við
húsið nr. 140 á Laugavegi, að
flutningabifreið ók á 2 drengi,
annan 15 ára en hinn nokkuð
yngri, báðir til heimilis á Frakka-
stíg 2. Meidust báðir drengirnir
töluvert, en þó ekki hættulega.
Bifreiðin ók áfram án þess að
sinna um drengina og hefir ekki
ennþá liafst upp á hvaða bifreið
þetta hefir verið. Eftirgrenslanir
um liver bifreiðarstjórinn hefir
verið, halda áfram.
Reglugerð um barnavernd var
auglýst í Lögbirtingablaðinu nú
fyrir heigina og staðfest af kirkju-
málaráðuneytinu. Er þar bannað
í umdæmi barnavémdamefndar
Reykjavíkur að selja unglingum
innan 16 ára aldurs tóbak, hverju
nafni sem nefnist. Sömuleiðis er
bönnuð sala á spýtubrjóstsykri
og öðrum sætindum, sem barna-
verndarnefnd telur beinlínis eða
óbeinlínis hættulegt. Sjónleika og
aðrar skemmtanir mega böm ekki
sækja nema barnaverndarnefnd
samþykki skemmtunina, og blöð
og bækur mega börn ekki seija
nema rneð leyfi nefndarinnar.
Prestskosning fór fram að Barði
í Fljótum 10. þ. m. og hlaut prest-
Nýtt ráðuneyti
í Frakkiandi.
London kl. 17 27/11. FÚ.
í frönsku stjórninni, sem
Chautemps hefir myndað, eru
allir sömu ráðhei'rar og- í fyrra
ráðuneyti, að tveim undan-
teknum. Bonnet er fjármála-
ráðherra áfram, Paul-Boncour
utanríkismálaráðherra, Dela-
dier hermálaráðherra og’ Sar-
raut flotamálaráðherra. Chau-
temps heldur áfram að gegna
innanríkisráðherraembætti auk
embættis forsætisráðherra. —
Herriot færðist undan að taka
sæti í ráðuneytinu, og bar við
heilsubresti, en hinsvegar hefir
hann fallizt á að verða full-
trúi frönsku stjórnarinnar á
Þ j óðabandalagsf undi.
# Ódým 0
auglýsinga rnar.
Kennsla
ÖKUKENNSLA.
Steingr. Gunnarsson Bergst.
stræti 65, heima. Sími 3973
eða á Aðalstöðinni. Sími 1383.
Handlagin stúlka getur kom-
izt að við kjólasaum strax. —
Saumastofan Tízkan, Austur-
stræti 12.
Ódýrastar og beztar vörur á
Vesturgötu 16. Sími 3749.
VERZLUNIN BRÚARFOSS
Allsherjarverkfall
London kl. 19.50 26/11. F0.
Arabar í Palestínu hafa í
hyggju að stofna til allsherj-
arverkfalls í landinu á þriðju-
dag og miðvikudag, sem and-
mæli gegn því, að helztu leið-
togar Araba hafa verið dregn-
ir fyrir lög og dóm út af ó-
eirðunum, sem þeir stofnuðu
til 13. og 27. október sl.
Tyrkir gera hlut-
leysissamninga.
Normandie kl. 0.10 27/11. FÚ.
Utanríkisráðherra Tyrkja
lagði af stað í gær til Belgrad
og er þess getið til, að 1 vænd-
um sé að Tyrkland og Jugo-
Slavia geri með sér samskonar
hlutleysis-samning og Tyrkir
og Grikkir gerðu nýlega.
A.
Greinar þær sem merktar
eru með A í Nýja dagbl. hef
ég ritað. Sumar þeirra hafa
verið teknar upp í Tímann. En
þar hafa einnig aðrar greinar
komið, sem eins eru merktar,
t. d. Skáldskapur um vega-
vinnukaup, og hef ég ekki rit-
að þær.
Amór Sigurjónsson.
Dönsku ríkisjámbrautimar hafa
í ár haft þriggja miljón króna
tekjuafgang, en i fyrra var fjögra
miljóna króna tekjuhalli á relcstri
þeirra. — FÚ.
Umvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Sími 1245.
Ef yður vantftr góð og ódýr
húsgögn, þá munið Trésmiðj-
una á Frakkastíg 10, sími
4378.
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssöln.
Skrifstofan í Aðalstræti 9 B
opin ld. 11—12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
Tilkynningar |
Gerið svo vel að hringja upp
2266 eða 4262, þegar ykktir
vantar nýjan fisk.
Reiðhjólaverkstæðið „Óðinn“
Bankastræti 2.
Allar reiðhjólaviðgerðir fljótt
og vel af hendí leystar. Tök-
um hjól til ge.vmslu yfir vet-
urinn.
Atvinna
Vetrarmann vantar í sveit.
Uppl. hjá Friðjóni Jónssyni,
Njarðargötu 39, kl. 8—9 í
kvöld og 10—12 f. h. á morguh.
Þingeyingur, vanur sveitá-
vinnu, einkum fjármennsku,
óskar eftir atvinnu. Úppl. í
síma 2950 kl. 12—1 og 7—“8.
Ungur maður óskar eftir at-
vinnu í bænum. Kaupódýr. Til-
boð merkt „12“ sendist Nýja
dagblaðinu.
RAUÐA HUSIÐ.
stæða fyrir hann að draga á langinn. Þvert á móti
hlaut hann að finna það, að á því reið að komast
svo fljótt sem unnt var inn í stofuna til þess að
handsama fantinn Robert. En svo fer hann lengstu
leiðina. Hvers vegna? Og svo — hversvegna að
h 1 a u p a — þetta er einmitt spurningin, sagði Ant-
ony við sjálfan sig, og fékk sér nú í pípu sína, og
skrattinn hafi það ef ég get svarað henni. Það
getur reyndar verið, að Cayley sé bara huglaus
bjálfi. Hann var ekkert að flýta sér til þess að
verða fyrir byssu Roberts og svo vildi hann í
þokkabót láta mig halda, að hann væri að rifna af
ákafa. Þetta gæti verið skýring, en þá verður Cay-
ley að vera raggeit, er hann það? Ja, minnsta
kosti var hann ekki smeykur að horfa inn um
gluggann. Nei, ég vil fá betra svar.
Þarna sat hann með ótendraða pípuna í hend-
inni og braut heilann. Langt inni í hugskoti hans
leyndust nokkrar staðreyndir og biðu þess að þær
væri kallaðar fram og grannskoðaðar. 1 bili hróflaði
hann ekkert við þeim. Þær myndu koma fram
seinna, þegar hann þyrfti þeirra við.
Hann hló við og kveikti nú í pípunni.
— Ég vildi fá mér nýtt viðfangsefni, og það
hefi ég nú fundið. Antony Gillingham, einkaspæjari.
Ég byrja í dag.
Það skal nú fyrst um sinn ósagt látið, hvaða hæfi-
leika Antony Gillingham hafði til þessa nýja starfs,
en eitt var víst, að hann hafði heila, sem var skarp-
ur og skjótur til starfs. Og þessi skarpi heili hafði
þegar sagt honum, að á þessu augnabliki var hann
eini maðurinn í þessu húsi, sem gat óhindraður leit-
að sannleikans í málinu. Lögreglufulltrúinn var kom-
inn og hann hafði fundið hér dauðan mann og feng-
ið að vita, að annar maður var horfinn. Það var mjög
sennilegt, að sá, sem horfinn var, hefði skotið hinn,
sem dauður lá. En það var meira en sennilegt, það
var næstum því áreiðanlegt, áð lögreglufulltrúinn
myndi hefja starf sitt með því, að álíta þessa mjög
sennilegu lausn málsins óyggjanlega og hana eina
rétta. En af því leiddi að hann myndi lítinn hug á
því hafa að taka til íhugunar fordómalaust nokkra
aðra lausn. Og allir hinir — Cayley, gestirnir og
þjónustufólkið — höfðu myndað sér ákveðnar skoð-
anir á málinu fyrir fram; Mark í vil (eða ef til vill
— þótt hann vissi það ekki, á móti Mark) ;; vilhallt
hver öðrum eða andstætt hver öðrum. Gangandi út
frá því, sem talað hafði verið í morgun, höfðu þau
myndað sér skoðun um það fyrirfram hverskonar
maður Robert væri. Ekkert þeirra gat litið á málið
hlutdrægnislaust.
En það gat Antony. Hann þekkti Mark ekki nokk-
urn hlut; hann vissi ekkert um Robert. Hann sá
þann, sem dauður var, áður en hann vissi hver
hann var. Hann hafði vitað, að eitthvað sorglegt
hafði hent, áður en hann fékk hugmynd. um það, að
maður hefði horfið. Fyrstu áhrifin, sem eru svo
afar þýðingarmikil, voru hér í heild sinni aðeins til
góðs; þau stöfuðu frá athugunargáfu sjálfs hans,
ekki tilfinningum hans eða athugunargáfu annara.
Hann hafði miklu betri skilyrði til þess að komast
að sannleikanum í málinu heldur en lögreglufulltrú-
inn.
Vera má, að Antony gerði Birch lögreglufulltrúa
dálítið rangt til í þessu. Að vísu trúði Birch því
áreiðanlega, að Mark hefði skotið bróður sinn. Ro-
bert hafði verið vísað inn í vinnuherbergið (vottur
Audrey). Mark hafði farið inn til Roberts (vottur
Cayley); heyrzt hafði, að þeir Mark og Robert töl-
uðu saman (vottur Elsie) ; skot heyrðist (vottar
öll saman) ; þegar komið var að lá Robert dauður
(vottar Cayley og Gillingham). Og Mark var horf-
inn. Það var því augljóst, að Mark hafði drepið
bróður sinn, annaðhvort af slysi, eins og Cayley