Nýja dagblaðið - 31.12.1933, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 31.12.1933, Blaðsíða 2
t a Ý 3 A DA6BX.A&IS flokksins meira vald heldur en nokkur þjóð í Evrópu hefir fengið stjóm í hendur á síð- ustu öldum. Hitler hafði vopn- að flokk sinn og fengið til þess fjárstyrk frá auðhringum landsins. Eftir að Hitler kom til valda, gerði hann óþjóðar- lýð sinn að viðbótarlögreglu. Kom sú varalögregla fram ým- ist fyrir stjómina, þegar þess þurfti með, eða framdi of- beldisverk fyrir eigin reikning. Nazistar drápu og misþyrmdu tugum þúsunda af andstæðing- um sínum, en flæmdu í útlegð mikinn fjölda af beztu mönn- um landsins, aðeins af því að þeir voru frjálslyndir og vildu lifa menningarlífi í landinu. Þannig er nú í útlegð og land- flótta um 1000 af frægustu vís- indamönnum, rithöfundum og skáldum þjóðarinnar. Nazistar hafa brennt á báli eins og mið- aldamenn megnið af hinum engu orðið. Vopnaðir nazistar 1 geta vaðið inn á heimili raun- verulegra eða ímyndaðra and- stæðinga. Það er tilgangslaust ! að leita vemdar hjá lögregl- unni. Stjórnin hefir sagt, að lögreglan hafi annað að gera ' en vernda „glæpamenn“, þ. e. i þá, sem ekki hugsa eins og i valdhafamir. Nazistar hafa eina afsökun ! i og ekki nema eina, það sem hún nær. Þeir segjast hafa orðið fyrri til en kommúnistar. 1 Þeir segjast hafa lært kúgun- araðferðir sínar af kommúnist- um. Og það má með nokkrum rétti kenna kommúnistum um hina blindu og siðlausu kúgun efnastéttanna í nokkrum lönd- um Evrópu. Þar sem byltingar- stefna svokallaðra öreiga byrj- ar til muna að gera vart við sig í lýðstjórnarlöndum, notar íhaldið fávísleg orð og athafn ir kommúnista, sem skálkaskjól EWCIANO . . 0ei£íe;m . . SCHWEiTZ . TVSKlAND. - QSTRiG . . -TRANKRUr. mi . 1 1932 1 1933 s bt í x j a sr I t- i xsasBSBSSssssssmsz^ Pssssswbsze^ss spBfissöasgsaszfE ITALiEN .... NtDERL-.... £WkMARK.., IRIAND.... NÖR<?S . . .. S#œSÖSa*S2CSlSSSSa -gaaaBBBgggg'v. SSSSPSSSÍS)SS8ægS2B ssssssssssíbsíbsez) !S@»BS!aSi«3gKSÍK21 -Tímiaup ... æssssassaBeKs^^i fburo....... ssassia558asasssEs£3SZ!l K'J MÆN i fc'U .. Vt'6o.r<A,vfEM - - jgag^ajgBESiaesg^iggiigTiiig!— O- S-Á- - - • CANAVA . ■ 'AésennNA 'N.CMEN* ÁvjrnaAL t &n .. a^ssajaaassigagrv^ ^í£0U2CS®SSSiK5SSS! Myndin táknar yfir- lit um kreppuástandið og breytingar þess til betra eða verra í ýms- um löndum frá þvi í júlí 1931 þangað til í júli 1933. Hvítu reit- irnir þýða góða af- komu, en svörtu reit- imir slæma. Strik, sem liggja upp á við (frá vinstri til hægri) þýða batnandi afkomu, en strik, sem liggja niður á við versnandi. Lárétt strik þýða 6- breytt ástand á viðkom- andi ársfjórðungi. Staf- imir L. S. þýða verk- bönn eða verkföll. Yf- irlit þetta er byggt á rannsóknum þjóða- bandalagsins og birt i timariti þess „World conomic survey“. En myndamótið er danskt eins og sjá má. Kreppan í ýmsum löndum. leik á borði, að beita samskon- ar frekju í Geneve, eins og þeir höfðu áður beitt heima fyrir við aðra þingflokka. Gengu þeir nú úr Þjóðabandalaginu og þóttust menn að meiri. Töldu þeir sig bera úrsögnina undir þjóðaratkvæði, en yfir því vöktu vopnaðir menn, og andstæðingar Hitlers höfðu hvorki ritfrelsi né málfrelsi. Var stjórninni því auðunninn sigur, enda var svo látið, að ná- lega allir kjósendur hefðu fylgt Hitler í þessum málum. Um hitt fer færri sögum, hve margir dönsuðu nauðugir. Italir létu nú allófriðlega við Þjóðabandalagið, og reyndi stjórn þeirra að rjúfa það með því að koma á einskon- ar stórveldasamtökum, þar sem smáþjóðirnar væru ekki kvadd- ar til mála. Hefir nú svo skip- ast, að einræðisþjóðirnar reyna að eyðileggja Þjóðabandalagið, en þær tvær lýðræðisþjóðir, sem líka eru stórveldi, Eng- land og Frakkland, standa fast með Þjóðabandalaginu og hug- sjón þess, og fylgja þeim að málum smáþjóðir, sem unna lýðræði og persónufrelsi, svo sem Norðurlandabúar, Hollend- ingar, Belgir og Svisslending- ar. íslendingar standa enn utan við Þjóðabandalagið, og má um það kenna íhaldinu ís- lenzka. Virðist það hafa fund- ið á sér, að sú stefnan myndi ekki verða vinsæl, nema hjá lýðræðisþjóðum. Norræn kreppupólitík. Ihaldsflokkamir láta minna á sér bera í Noregi, Svíþjóð og Danmörku heldur en hér á landi. Veldur því meiri pólitísk- ur þroski þeirra þjóð, sem hafa lengri sjálfstjómarsögu að baki. Er þar komin sú reynsla á stjórn íhaldsins, að því er trúað fyrir litlu. I Svíþjóð og Danmörku sitja að hækka í verði einstakar inn- lendar matvörur, til að hjálpa bændum, en hafa aftur fengið bætta aðstöðu í öðrum efnum. Ný stórvelda- samtök. Rússar hafa fram til síðasta árs staðið mjög einangraðir. Hafa þeir neitað að greiða skuldir frá keisaratímunum, og átti það mikinn þátt í að gera veldi þeirra óvinsælt hjá þeim þjóðum, sem áttu þar fjár- muni, svo sem Frakkar, Eng- lendingar og Bandaríkjamenn. En á þessu ári, sem liðið er, hefir svo skipast, að allmikil vinátta hefir tekizt með Frökk- um og Russum. Herriot, einn hinn mesti athafnamaður, fór í sumar sem leið til Rússlands, sem nokkurskonar sendiboði | þjóðar sinnar. Var honum tek- ’ ig með kostum og kynjum, og hafa síðan verið mikil vinmæli með þeim þjóðum. Litlu síðar viðurkenndi Roosevelt forseti ráðstjórnarveldi Rússa. Þykjast menn sjá í þessu sameiginleg- an ugg Bandaríkjamanna, Rússa og Fralcka við ofbeldi og árásarstefnu Þjóðverja og Jap- 1 ana. Á sama hátt má skilja viðleitni þingræðisþj óðanna að viðhalda Þjóðabandalaginu eins og sameiginlega sjálfsvörn þeirra gegn ofbeldisríkjunum, sem gera allt sem þau geta til að brjóta niður veldi Þjóða- bandalagsins. Markaðslöndín við Miðjarðarhaf Verðmesta framleiðsla Is- lendinga, saltfiskurinn, er seld- ur í fjórum ríkjum við Mið- jarðarhaf: Á Spáni, Ítalíu, Portúgal og Grikklandi. Fram að þessu hefir lítið verið flutt inn frá löndum þessum, nema salt. Hafa þessar þjóðir lítið um það fengizt, með því að þær vissu, að íslenzka þjóðin markaðslöndunum muni hafa dregið upp bliku, sem úr geti líomið áfelli í íslenzka verzlun og þjóðarhagi. Grikkir hafa riðið á vaðið, og telja sig ekki vilja kaupa af neinni erlendri þjóð, nema hún kaupi grískar vörur fyrir jafnmikla upphæð. Ef allar Suðurlandaþjóðirnar gerðu slíka kröfu, þá væri ís- landi voði búinn, því að þjóðin þarf svo margt að kaupa og borga, sem ekki fæst bezt í þessum löndum. Sem betur fer, mun stærstu þjóðunum, sem við eigum mest undir í þessum efnum, engin ósanngirni í hug komin í þessum efnum, en lít- ill vafi virðist á því, að þetta vandamál þjóðanna fari að ná til skiptanna við ísland, eins og til stóru landanna. Nýja árið. Árið 1934 byrjar þannig, að margar hinar stærstu þjóðir vígbúast í ákafa. Nálega öll ríki liggja í verzlunarstríði inn- byrðis, og hvert land reynir eftir föngum að vera sjálfu sér nóg í sem flestum efnum. Þessi stefna er mjög óhagstæð ís- lenzku þjóðinni með sína fá- breyttu framleiðslu. Einræðis- aldan leggur undir sig fleirí og fleiri lönd, og sumstaðar á þann hátt að menningarbarátta margra alda er að mestu þurk- uð burtu, og siðieysi vilii- mennskunnar sett í hásælið. En í þessu stormflóði standa eftir Norðurlönd, England og Frakkland og nokkur önnur smáríki með vel menntum borgurum. Þessi ríki slá skjald- borg um hugsjón Þjóðabandá- lagsins. I málefnum frelsisins er nú lífið eftir trú Forn- Persa: Tvö andstæð öfl berjast um heiminn birtan og myrkr- ið. I byrjun hins nýja árs verður flestum að óska mann- kyninu þess, að birtan verði myrkrinu yfirsterkari. J. J. beztu og frægustu bókum, sem til voru í söfnum í landinu. Þeir hafa í fangaherbúðum við fullkomið réttleysí þúsundir manna, sem ekki hafa annað til saka unnið en að vera frjálslyndir og hafa óbeit á skrílræði nazista. Stjómin kúg- ar allt og alla. Hún bannar konum þátttöku í störfum ut- an heimilis, og undirbýr að svifta konur menntunarskilyrð- um á sama hátt. Stjórnin kúg- ar presta og snýr guðsþjónust- unni upp í tilbeiðslu á Hitler. öllum eignum verkamannafél., húsum þeirra og bókum hef- ir verið rænt. Kaupfélögin hafa verið eyðilögð, forkólfar þeirra seldir í fangabúðir, en verzlun- ir gefin gæðingum nazista, sem einkaeign þeirra og hinum gömlu félagsmönnum hótað af- arkostum, lífláti og misþyrm- ingum, ef þeir ekki haldi áfram að verzla við eftirmennina. Hálf þjóðin gengur með skammbyssu við beltið, reiðu- búin til að skjóta niður hinn helming íbúanna. Allt frelsi er horfið, ritfrelsi, prentfrelsi, trúfrelsi og hugsunarfrelsi. Friðhelgi heimilanna er að til að stofnsetja álíka kúgun og þá, sem kommúnistar hafa boðað mesta. Þjóðabandalagið og einræðið. Þegar Japanar óttuðust að- hald Þjóðabandalagsins út af yfirgangi þeirra við Kínverja, gegnu þeir úr bandalaginu. Kom þá í ljós, að Þjóðabanda- lagið var ekki nógu sterkt og nógu starfhæft til að leysa öll alþjóðleg vandamál, en hinu má ekki gleyma, þó að því sé lítt haldið á lofti, að það hefir til þessa dags leyst úr fjöl- mörgum deilumálum, i og látið réttlæti en ekki vald ráða. En japönsk-kínversku málin urðu Þjóðabandalaginu álitshnekkir hinn mesti, er það hafði orðið fyrir. Nú liðu enn nokkrir mánuðir. Ofbeldisstjórn Hitlers tók við völdum í Þýzkalandi. Vissu nazistar, að öllum ofbeld- isþjóðum var illa við Þjóða- bandalagið, og þann tilgang þess, að láta réttlæti en ekki vald ráða í alþjóðaskiptum. Þóttust þýzkir nazistar sjá sér Stauning forsætisráðherra Dana. að völdum verkamannastjórnir, en í hvorugu landinu hafa þær meirihluta nema með tilstyrk samvinnubænda. Bæði í Dan- mörku og Svíþjóð hefir tekizt samvinna við bændur um gagn- kvæma hjálp fyrir báðar und- irstöðustéttir landanna, bændur og verkamenn. Hefir verka- mönnum verið tryggð aukin at- vinna, en bændum hærra verð, og tryggara fyrir smjör, og korn og fleiri framleiðsluvörur. Hafa verkamenn gengið inn á var fámenn og lítils að .vænta um sölu hingað til lands. En eftir því sem verzlunarkrepp- an harðnaði og einkum eftir að Bretaveldi hafði hafnað frí- verzlunarstefnunni, tóku þessi ríki við Miðjarðarhaf að gera kröfur um gagnkvæm viðskipti og kom þá röðin að okkur líka, því að við erum talsvert mikl- ir innflytjendur til þessara landa, en litlir kaupendur. Virðist nú svo horfa um þessar mundir, að 1 þrem af fjórum Fiokkar og ríki í Þýzkalandi. Ráðuneytið þýzka sam- þykkti 1. des. lög, er eiga að tryggja einingu flokks og ríkis þar í landi. Eftir þessum lög- um verður Naziflokkurinn , sjálfstæður þátttakandi um I meðferð réttarfarsmálanna í Þýzkalandi. Með því hefir ! flokkurinn fengið fullkomlega sömu aðstöðu í þýzka ríkinu og fascistaflokkurinn í Italíu . og fengið opinberlega lögform- legt embætti í þágu ríkisins, dómsvaldið yfir sínum eigin | mönnum. Heíir verið um þetta I sagt í opinberri tilkynningu: ' ,.með því að fá sitt eigið dóms- vald hefir flokkurinn fengið slíka aðstöðu innan ríkisins, | ■ sem enginn flokkur eða nokk- urt félag annað hefir áður ! haft“. Til þess svo að tryggja ! sem innilegast samstarf milli | flokksins og áhlaupaliðsins | annarsvegar og ríkisstjórnar- innar hinsvegar, hefir fulltrúi | ,,foringjans“ (Hitlers), Rudolf Hess og yfirforingi áhlaupa- I liðsins Ernst Röhm verið i kvaddir inn í ráðuneytið.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.