Nýja dagblaðið - 19.01.1934, Blaðsíða 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
| NÝJA DAGBLAÐIÐ j
$ Utgefandi: „Blaðaútgáfan h.f." j
Ritstjóri:
j| Dr. phil. porkell .Tóhannesson. |
5R i tstj órn arskri fstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. j
| Afgr. og auglýsingaskrifstofa: |
IAusturstræti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
ÍVigfús Guðmundsson.
Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuði. j
í lausasölu 10 aura eint. I
Prentsmiðjan Acta.
Nannaþefur
í heflinum.
Það lítur út fyrir, að íhaldið
hérna í bænura sé orðið skelk-
að við nazistalistann. Það
kom glöggt fram í ræðu Thors
Thors í útvarpinu í fyrra-
kvöld, þar sem hann eyddi
talsverðum tíma í að skamma
nazistana, en áður hafði í-
haldið ekki á þá minnst. Það
kemur líka greinilega fram 1
Mbl. í gær, því að þar er talað
um E-lista-fólkið í sama tón
og Thor gerði í útvarpinu.
Það er von að íhaldinu
gremjist. Það er sjálft búið að
brennimerkja sig með haka-
krossinum með því að taka
nazista, Jóhann Ólafsson, í
nokkuniveginn öruggt sæti á
listanum. Enginn vafi er á því,
að þessi opinbera þjónusta við
„ofbeldisstéfnuna“ fælir margt
af gætnari kjósendum frá í-
haldinu. Og svo bætist það of-
an á samt, að nazistarnir
bjóða líka fram sérstakan lista.
Þeir láta gamla íhaldið koma
Jóhanni Ólafssyni að og kjósa
sjálfir sinn lista.
Hinir gömlu „forráðamenn“
íhaldsins hafa verið ginntir
eins og þursari Og nú eru þeir
ekki farnir að þola „manna-
þefinn í hellinum“, þefinn af
Gísla Bjarnasyni, Óskari Hall-
'dórssyni og Helga S. Jónssyni.
Nú vita allir það, að ekki
éru til svartari íhaldsmenn en
nazistamir. Engir myndu
verða fjandsamlegri umbótum
í bænum en einmitt þeir. Þar
að auki sitja þeir á svikráð-
um við þjóðskipulagið og vilja
koma á einræði í anda Hitlers,
hvenær sem tækifæri gæfizt.
íhaldið hefir með því að taka
nazista á lista sinn, játað, að
það vilji gera slíkt hið sama.
Það er ekki fyrsta einsdæmið
um afturhaldsflokkinn hér.
Enginn borgaraflokkur í víðri
veröld hefir áður leyft sér að
hafa yfirlýstan nazista í kjöri.
En ágreiningurinn og tog-
streitan milli C-listans og E-
listans nú, er eingöngu persónu-
legur. Jóni Þorlákssyni, Guðm.
Ásbjömssyni og Pétri Hall-
dórssyni „þykir það hart“, að
„þessir strákar“ skuli ekki
vilja spyrja þá ráða. Þeir sitja
nú í sorgum, gömlu uppgjafa-
dátarnir, með brennimark
hakakrossins á enninu, en sam-
herjar þeirra, hinir upprenn-
andi stríðsmenn hins vonda
málstaðar, gefa þeim langt nef,
svo að allur bærinn horfir á!
Munið D-listafundinn í Kaup-
þingssalnum í kvtild.
Þú átt að velja.
Ihaldsmenn hafa stjórnað
þessum bæ undanfarin ár.
Þeir hafa ráðið einir, nær |
alltaf, án minnsta tillits til !
þeirra þúsunda af kjósendum, |
sem hafa skipað sér í fulla j
andstöðu við íhaldið, stefnumál j
þess og óstjórn.
Allt það kjörtímabil, sem nú j
er á enda, hafa 8 fulltrúar í- I
haldsins i'áðið málefnum
Rvíkur gagnstætt því, er 7 full-
trúar umbótaflokkanna álitu
réttmætt og heillavænlegast al-
menningi.
Efsti maður á lista íhaldsins
telur húsnæði fólks í bænum !
gott.
Finnst ykkur, sem búið í
kjallaraholunum, dimmum, rök-
77
113
skuldaaukning
af því okurfé, sem heimt er
inn fyrir gas og rafmagn, til
beinnar eyðslu, svo sem til
stjórnar bæjarmálanna, í stað
þess að endurbæta fyrir það
fé framleiðslu þessara nauð-
synjavara og gera þær ódýr-
ari. En tilgangurinn er auð-
sær: Auk þess að sýna falska
fjárhagsútkomu, geldur — með
þessu lagi — sá fátækasti
jafnmikið inn í bæjarsjóðinn
og hinn rikasti. Með þessu
hækkun útsvara.
um og rándýrum, það sæmi-
legt húsnæði? Þið unnið börn-
um ykkar ekki síður en íhalds-
fólkið sínum bömum. En yfir
ykkar bömum vofir sjúkdóma,
hætta, hætta þeirra sjúkdóma,
sem jafnan fylgja óheilnæmum
íbúðum. Af öllu böli, sem leiðir
af sérdrægri íhaldsstjórn, er
það ægilegast og samvizku-
lausast, að fórna hreysti og
heilsu æskunnar til framdrátt-
ar klíkuhagsmunum, er hugsa
um það mest, að raka í sinn
sjóð arðinum af annara striti
og þjáningum.
Framsóknarfl. berst fyrir
umbótum í húsnæðismálunum,
eins og ítarlega hefir verið
gerð grein fyrir í blaðinu.
Viljið þið fylgja honum að
málum? Hundruð heimila víðs-
vegar um sveitir landsins eiga
þeim flokki að þakka gagn-
breytt húsakynni.
Viljið þið ganga til fulltingis
við hann um ykkar eigin
brýnu umbótamál, húsnæðis-
málin í Reykjavík, eða þjóna
undir íhaldið og láta ráðast,
hvernig fer um heilsu og
hreysti æskunnar í kjöllurun-
um?
Síðasta úrræði íhaldsins í
bæjarstjói-ninni er að verja (á
fjárhagsáætlun þ. á.) miklu
hverfur íhaldið frá þeirri
grundvallarreglu, að leggja á
gjöld til opinberra þarfa eftir
efnum og ástæðum. Með þessu
tiltæki er sveigt í þá átt, að
láta fátæklinginn í heilsuspill-
andi neðanjarðaríbúð, sem fær
með ítrustu viðleitni unnið sér
22 flskisklp
vantar í bæinn.
og sínum inn 100 kr. á mánuði,
borga jafnt í bæjarkassann
og t. d. þann Thorsbróðurinn,
sem skammtar sjálfum sér
2000 kr. á mánuði fyrir að
selja lífsbjörg fátækra fiski-
manna á íslandi.
Finnst ykkur þetta réttlátt?
Viljið þið viðhalda þessu ó-
sæmilega okri með gas og raf-
magn og leggja þar með meir
og meir — af ykkar fátækt —
fram fé í bæjarsjóðinn til
jafns við hæstlaunuðu em-
bættismennina?
Ef þið viljið afnema þetta
ástand, þá kjósið þið ekki í-
haldið. Þá kjósið þið Fram-
sóknarflokkinn.
Fátt hefir meiri áhrif á
æskulýðinn en kvikmyndahús-
in. Hér eru þau rekin af ein-
stökum íhaldsmönnum sem
gróðafyrirtæki.
Framsóknarmenn vilja reka
þau sem menningartæki, en í-
Ein milfón
íátækratramíæri 1934.
haldsmenn mega ekki heyra
það nefnt. Þeir vernda „fram-
tak einstaklingsins“, en fórna
hagsmunum fjöldans. Gildir
ykkur einu um það?
Finnst ykkur ekki mikið
undir því komið, að- börnin ykk-
ar, sem fá aura til að „fara í
Bíó“, sæki þangað holl áhrif
og göfgandi í stað þess að
horfa á „spennandi“ sýningar
á glæpamannalífi, sem festa
oft æfilöng áhrif í bamssál-
inni.
Viljið þið styðja að hollum,
menningarríkum áhrifum kvik-
myndahúsanna með lágum að-
gangseyri ?
Sé svo, þá kjósið þið ekki í-
haldið, heldur Framsóknar-
flokkinn.
íhaldið er sinnulaust um
skóla- og íþróttamál almenn-
ings. Mannmörg úthverfi borg-
arinnar eru skólahússlaus með
öllu. Kennsluplássin þar eru
um margt ver útbúin en lé-
legir farskólar í fátækum sveit-
um.
Sama hættan, er vofir yfir
æsku Rvíkur, sem býr í kjöll-
urum og á hanabjálkaloftum,
bíður ef til vill líka innan dyra
í óhæfilegum skólavistum í
Skildinganesi, Sogamýri og við
Lauganessveg.
Tillögur Framsóknarmanna í
bæjarstjórn um 75 þús. kr.
tillag til skólabygginga í út-
hverfunum, reyndi íhaldið að
eyðileggja. Því og læknunum,
sem raða sér á lista þess sýn-
ist skifta litlu, þótt tæringar-
hættan liggi í launsátri fyrir
sonum ykkar og dætrum, líka
innan skólaveggjanna, sökum
hirðuleysis og auðnuleysis í-
haldsins um þessi velferðarmál
almennings.
Sættið þið ykkur — íbúar
úthverfanna — við forsjá og
einræði þessa flokks? Undir
stjórn íhaldsmanna er engin
von um lagfæringu fyr en
komið er í fullkomið óefni.
Um skeytingarleysið í mál-
efnum íþróttamanna er ölluin
kunnugt. Framsóknarfl. hratt
af stað sundhallarmálinu, i-
haldið stöðvaði það og tafði
eftir megni.
Það er um þessi efni eins
og önnur undir ykkur komið,
i hvort hér ræður hrörnandi í-
í hald eða framsæknir umbóta-
menn.
I Ihaldið berst fyrir háum
, launum sinna manna, en lágum
; launum almennings. Finnst
ykkur réttmætt að Knútur
j Zimsen fái 5 þús. kr. árlega frá
| Albingia og 10 þús. kr. eftir-
. laun af almenningsfé fyrir að
hafa þjónað sjálfs síns hags-
munum og íhaldsflokksins í
mörg ár? Viljið þið hafa borg-
arstj. á 17 þús. kr. árslaunum,
hafnarstjóra á 18 þús. og raf-
magnsstj. með 22 þús. kr„
meðan allur almenningur berst
í bökkum fyrir einföldustu og
brýnustu lífsnauðsynjum?
Ef ekki, þá kjósið þið ekki
íhaldið og fyrirlítið blekkingar
þess.
Ailir kannast við ástand at-
vinnumálanna í bænum, hvern-
ig íhaldið krafsar þeim til
hruns og eyðingar, hvernig
einstaklingsframtákið sveigir
þau hraðar og örar út á háska-
samlegan glötunarveg, hvernig
íhaldsmenn standa yfir rústum
atvinnulífsins í sinni eigin
frjálsu samkeppni, ráðlausir og
viljavana, líkt og hugstola
afglapi yfir frömdum, óbætan-
legum skemmdarverkum. ,
Getið þið horft á slíkt að-
gerðalausir? Viljið þið taka
höndum saman við Framsókn-
arflokkinn, sem hefir bent á
leiðir út úr þessum ófarnaði
andstæðinganna ? Sem byggja
vilja upp atvinnuvegi bæjarins
í verzlun og útgerð á samtök-
um og samstarfi hinna vinn-
andi stétta. Ef svo er, greiðið
þið honum atkvæði við kosn-
ingarnar.
Viljið þið áframhaldandi ó-
reiðu í fjármálum og atvinnu-
lífi bæjarins? Fallist þið á að
brýnustu og þýðingarmestu
menningarmál ykkar og æsku
þessa bæjar séu vanrækt
(skólahússleysi) eða notuð til
gróða einstökum mönnum
(kvikmyndahúsin) ?
Viljið þið síngjarnt, hug-
sjónasnautt íhald eða djarf-
huga en gætinn framsóknar-
flokk ?
Þið eigið að velja.
Kjósið Ð-listann!
Vesturbæjarklúbburinn
Grímudansleikur
verður á morgun í K.-R.-húsinu. Aðgöngumiðar seldir á
sama stað í kvöld kl. 8-9 og á morgun kl. 4-7.
Írshátíð Kennareskólans
verður haldin í Oddfellov-höllinni föstudaginn 19. janúar
klukkan 9 e. h.
Aðgöngumiðar fást í Kennaraskólanum til kl. 6 e.
h. Sími 3721 og á afgr. Nýja dagblaðsins. Sími 2323.
DVOL
fylgirit Nýja dagblaðsins kemur út á hverjum
sunnudegi, 16 síður á góðum pappír í fallegri lit-
prentaðri kápu.
Dvöl verður stærsta íslenzka tímaritið, um 800
blaðsíður á ári og að efni til það langfjölbreytt-
asta og skemmtilegasta. Hún flytur smásögur eft-
ir beztu höfunda, frásagnir og ritgerðir ýmiskonar,
sagnafróðleik, skrítlur o. fl.
Þeir, sem gerast nýir áskrifendur Nýja dagblaðs-
ins nú, fá Dvöl frá byrjun og blaðið ókeypis til
1. febrúar.
1 næsta hefti skrifa um unga fólkið í Reykjavík,
þeir Sigurður Nordal prófessor og Pálmi Hannes-
son rektor.