Nýja dagblaðið - 24.02.1934, Page 4

Nýja dagblaðið - 24.02.1934, Page 4
H t i A DA OBLAÐID Anná.11. Skipaíréttir. Gullfoss á leið frá ísafirði til Reykjavikur. Goðafoss fór frá Hull í fyrradag á leið til Hamborgar. Brúarfoss er á leið til Leith frá Kaupm.höfn. Dettifoss fer í hraðferð vestur og norður á morgun. Lagarfoss er í Kaupm.- höín. Selfoss er í Reykjavík. Frá höfninni. Kolaskip, sem verið hefir að losa kol hér und- anfama daga, fór í gœr. Fisktöku- skipið Varoy fór í gœr. Skalla- grímur og pórólfur fóru á veiðar. Gyllir og „Gullfoss" fóm á veiðar. „Guilfoss" hét áður Gustaf Mayer, en var skírður upp þegar hann var keyptur hér. — þór fór til Vestmannaeyja í gœr. Spánsk- ur togari kom hingað í gœr til viðgerðar. Hafði hann brotnað mikið í óveðrinu. Hjónaband. Gefin vom saman í borgaralegt hjónaband nýlega ungfrú Berta Albertsdóttir og Kon- ráð Gíslason áttavitasmiður. MeSal farþega með Drottning- unni i gœr var Magni'is Sigurðsson liankastjóri. Hvítárbrúin skemmist. f vatns- flóðinu sem varð fyrra fimmtudag og föstudag skemmdist Hvítár- brúin hjá Brúarhlöðum allmikið. Brotnaði nokkur liluti hennar og veguppfyllingin við brúna beggja vegu sópaðist burt. Brú þe3si var nýleg járnbrú 30 metra löng og stóð á 5 stöplum. Var hún mjög hátt frá vatnsborðinu, svo flóðið hlýtur að hafa verið geysilega mikið. Raunar eru þrengsli rétt fyrir neðan brúna, svo vatnið befir stöðvast dálítið af því, og mun því hafa gengið svo hátt. Pálmi Einarsson ráðunautur og kona hans hafa orðið fyrir þeirri sorg að missa yngsta bam sitt, telpu á 1. ári. Tregur afli er hjá bátunum þá sjaldan gefur á sjó. Fiska þeir ekki nema 3000—4000 kg. í róðri. Bókagjöf til bamabókasafns Austurbæjarskólans. Steingrímur Arason kennari hefir fært bama- bókasafni skólans, að gjöf, 30 ein- tók af nýjustu útgáfu af landa- fræði sinni og önnur 30 eintök af nýjustu útgáfu af reikningsbók sinni. Sýnir Steingrímur í þessu lofsverða rausn, og þó engu síður Irábæra velvild og umhyggju fyrir liörnunum. Kemur þetta sér mjög vel fyrir skólann, sérstakiega fyr- ir fyrir börn í neðstu bekkjum, sem ekki eru látin kaupa bækur við námið. Á Steingrímur þakkir skildar íyrir gjöfina, og væri ósk- andi að þetta yrði öðrum bókaút- gefendum fordæmi til að gera eitt- iivað sllkt fyrir börnin. Frá Keflavik 22. febr.: Hér réru engir til fiskjar i dag, en 2 bátar í gær og öfluðu dável, en undan- farið hefir ekki verið róið hér vegna ógæfta. — Peningakassi sá, er stolið var á dögunum frá Guð- mundi Kristjánssyni fannst i gær í sjógeyminum hér. Kassinn hafði verið brotinn upp og tæmdur. Ekk- ert hefir vilnast í málinu svo kunnugt sé. — Skarlatssóttin stingur sér enn niður hér, en fer hægt yfir. Varnir eru ekki aðrar en þær að sýkt börn fá ekki að sækja skóla fyr en það er talið hættulaust. — í barnaskólanum hér eru nú 96 börn á skólaskyldu- aldri og um 50 böm innan skóla- skyldualdurs. — Unglingaskóli er nú starfræktur hér í vetur annan hvern dag. Síra Eiríkur Brynjólfs- son að Útskálum kennir við skól- ann. — FÚ. Prá aeyðistirðí 22. íebr.: Hjáím ar Villijálmsson hefir verið endur- kosinn bæjarstjóri hér með öllum atkvæðum. — Atvinnulausir voru í byrjun þessa mánaðar 82 menn, með 178 menn á framfæri sínu. Ársfjórðungstekjur þeirra voru samtals 7349 kr. Daglega vinna nú um 20 menn í atvinnubótavinnu, við uppfyllingu hafnarlóðar, en að öðru leyti er atvinnulítið. — FÚ. Frá Vestmannaeyjum 22. febr.: Hér var almennt róið í dag. Afli var um 400—900 fiskar á bát hjá þeim, sem komnir vðoru að um kl. iVz e. h. Enskur og belgiskur botn- vörpungur hafa legið hér undan- larið og hafa þeir keypt bátafisk, þeir fóru báðir heimleiðis í gær, með nokkuð á annað hundrað smálestir af fiski. Annar enskur vörpungar hafa legið hér unadan- dag. Georg Gíslason kaupmaður sér um kaupin .Flutningaskipið Fantoft liggur í dag hér og fermir um 1000 pakka fiskjar frá Fisk- sölusambandinu. — FÚ. Lögreglan í Wien hefir nú fund- ið miklar vopnabirgðir þar í borg- inni, og eignar þær félagsskap jafnaðarmanna. Vopnin hafa verið gerð upptrek, og er nú verið að rannsaka málið. — FÚ. 34 milj. simar. í heiminum eru nú i notkun 34 miljónir síma og er talsímasambandið milli iand- anna sífellt að aukast og víkka. Frá Frakklandi er nú hægt að tala til Canada, Bandaríkja, Suður- Ameríku, Indlands, Ástralíu, Nýja Sjálands og Suður-Afríku, auk þess sem símasamband er við flest Evrópulönd. — FÚ. Landbúnaðarráðstafanir i Eng- landi. Enska stjómin ber nú fram á þingi frumvarp um mjólkuriðn- að i Englandi, og ráðstafanir til þess að auka mjólkurneyzlu, í því skyni að gera þenna atvinnuveg tryggari en nú er. — Mælti Elliot landbúnaðarráðlierra fyrir frum- varpinu á þingi í dag, og skýrði frá því, að mjólkurframleiðsla 1 Englandi hefði mjög aukizt, en neyzla ekki að sama skapi, og væri nú yfirvofandi verðfall, sem orðið gæti þessum atvinnuvegi itl óbretanlegs tjóns, ef ekkert yrði að- gert áður en við bættist sá mjólk- urauki, sem vænta má með vor- inu. Einn liður þessara laga er á þá leið, að ríkið ábyrgist bændun- um lágmarksverð á mjólk og mjólkurafurðum um tveggja ára bil, og greiðist sá kostnaður af ríkisfé auk þess, sem ríkið leggur til allmikla fjárhæð, til þess að reka með útbreiðslustarfsemi. þessi styrktarákvæði eru þó ýmsum skilyrðum bundin t. d., að hrepps- og bæjarfélög kaupi og veiti skóla- börnum ókeypis mjólk, eftir því sem þurfa þykir. — FÚ. Hungurgöngur Innanríkisráð- herrann brezki var spurður þess á þingi hvaða ráðstafanir stjórnin mundi gera til þess að koma í veg fvrir hungurgöngur þær, sem nú eru á leið til London. Hann svar- aði á þá leið, að hann teldi hvorki hyggilegt eða réttmætt að hindra slíkar göngur, að svo miklu leyti, sem ekki væri brotnar reglur um frið og ró á almannafæri. — FÚ. Rússneski ísbrjóturinn, sem fast- ur hefir verið norður í íshafi und- anfarið, er ennþá tepptur, og hefir rekið 28 km. með ísnum. Isinn er nú eitthvað að losna, en ennþá er skipið þó ósjálfbjarga, en skips- höfnin segist vera ókvíðin. Tvrer flugvélar voru sendar skipinu til hjálpar, en þær hafa ekki getað lent í ísnum hjá því. Tveir is- brjótar, sem einnig voru sendir til aðstoðar hafa heldur ekki komizt að skipinu. — FÚ, Japauar oy Atnerikumonn. Saito, sendiherra Japana í Washington hefir farið fram á það við Banda- ríkjastjórn að hún hlutaðist til um að sjö Japanar, sem hafa verið teknir fastir í Manila fyrir njósnir, en eru að áliti sendiherrans sak- lausir, yrðu látnir iausir. Yfir- völdin hafa ekki getað orðið við þessari málaleitun, og mun Japön- unum sjö verða haldið föstum uns dómur er genginn í máli þeirra. Hjúskaparstyrkurinn. í auglýs- ingu frá þýzku stjórninni, sem birtist á miðvikudaginn var er þvi lýst yfir, að styrkur til karla og kvenna, sem vilja giftast, verði ekki greiddur frá 21. febr. til 31. marz nœstk., þar sem þessi liður hefði farið langt fram úr fjárhags- áætlun og fé því ekki fyrir hendi að -sinni. Frá áramótupi hefir 31 þús. nýgiítum hjónum verið veitt- ur þessi styrkur, en þar sem liver hjón hljóta 1000 marka styrk, hafa útgjöld í þessu augnamiði numið 31 miljón marka þar sem af er þessu ári. StavlskimáliS. Franski utanríkis- málaráðherrann hefir birt opin- bera tilkynningu í sambandi við Staviski-málið, þar sem hann lýsir því vfir, að hann hafi nú sjálfur . sett sig inn í öll gögn málsins, og að það sé enganveginn réttmætt, að skella áb.vrgðinni af tjóni því, sem fjái'svik Staviski hafa bakað almenningi, á yfirvöldin, með því að hann sé þess fulviss, að það sé einmitt fyrirhyggju og árvekni yfirvaldanna að þakka, að spari- fjáreigendum í Frakklandi var forðað við tjóni, sem nema myndi mörg hundruð miljónum franka, ef Staviski hefði komizt lengra á braut sinni. Prinslnn ætlar að „taka niður fyrir sig“. það vekur nú mikla at- hygli og umtal í Svíþjóð, að Sig- vard prins ætlar að ganga að eiga þýzka stúlku af borgaraiegum rett- um. Konungsættin hefir gert ýms- ar tilraunir til þess að hindra hjónabandið, en prinsinn situr við sinn keip, og ætlar að giftast stúlk- unni, og setjast að í Stokkhólmi í vor. — FÚ. Móti konnm. Norska lögþingið ræddi í dag frumvarp það, sem kom frá Óðalsþinginu um það, að veita konum jafnan embættarétt og körlum. Að lokum var frumvarpið fellt með 19 atkvreðum á móti 18. Með því voru jafnaðarmenn og nokkurir hægri menn. — FÚ. Meiri skatt á oliufélög. A Banda- rikjaþingi er nú verið að ræða írumvarp um hækkun tekjuskatts, einkum á hátekjum, og er sagt að fmmvarpinu sé m. a. beint að nokkrum stórum olíufélögum, sem talið sé að skattleggja megi meira en nú er gert. — F.Ú. Dæmalausir svardagar. Svardagar af sama tægi og framdir hafa verið í ljúgvitna- málinu munu ekki þekkjast í réttarsögunni. Þegar dómarinn hafði sann- reynt að Gústav Karlsson gat ekki þekkt menn á 300 metra færi — og Oddgeir því síður á enn lengra færi — hikar hann við svardagana. — Eftir 4 daga lætur hann þá sverja það, sem ómögulegt var að þeir gætu hafa skynjað. Stefán og Egill eru látnir sverja að snjór og hríðarel hafi verið um kl. 2, 1. desember 1930 — eins og stóð í Mbl. 2. des það ár — eftir að það hef- ir verið upplýst fyrir vitnun- LJúgvitnamálið Ihaldsmönnum líður illa út af ljúgvitnamálinu. Þeir þykj- ast hafa hætt sér of langt og finna andúðina í bænum. Sjálf- sagt myndu þeir kjósa nú að hafa aldrei á málinu byrjað. En Mbl. er nú einu sinni farið að verja ljúgvitnin og hefir þannig lýst yfir því, að flokk- urinn sé samábyrgur um ósóm- ann. Grein, sem birtist í Mbl. í gær og bersýnilega er eftir „moðhausinn“, sýnir, að téður ritstjóri heldur áfram að bera nafn sitt með rentu. Hér er eitt dæmi: Það er sannað í málinu, enda ómótmælt í Mbl., að Hermann Jónasson hafi verið staddur uppi í Amarhvoli á sama tíma sem hann á að hafa verið að skjóta „kollu“ úti í eyju. Þetta álítur „moðhausinn“ allt gott og blessað. En hann segir að þetta, að H. J. var uppi í Arn- arhvoli, skipti engu máli, því að tíminn, sem sannað sé að hann hafi verið þar, sé svo stuttur! Niðurstaðan af hugsanagangi vitringsins við Mbl. verður þá eitthvað á þessa leið: Það er hægt að vera stutta stund á tveim stöðum í einu, en lengi er það ekki hægtl M. ö. o., Jón Kjartansson gæti verið heyranlegur og sjáanlegur í einu bæði á skrifstofu Mbl. og austur í Vík í Mýrdal — segjum 5 mínútur, en í 10 mín- útur gæti hann það ekki! Fleiri „fjólur“ eru í þessu greinarkorni. T. d. er það ekki talið undarlegt, að eitt vitni geti munað eftir einhverju, sem annað man ekki eftir. Látum svo vera. En ef eitt vitni „man“, að „eyjan“ var full af fólki, og annað vitni „man“ að enginn maður var í eyjunni? Eða ef eitt vitni „man“, að kollan var úti í sjó og annað vitni „man“, að hún var uppi á þurru landi? — Og ef Jón Kjartansson álítur að svona vitni séu samhljóða — hvemig fara þá vitni að vera ósamhljóða? Mbl. forðast greinilega að minnast á, hverskonar menn það eru, sem látnir hafa verið bera vitni í þessu máli. Ber það vott um sómatilfinningu, þó seint sé. En það á eftir að skýra frá, hversvegna M. G. er að láta borga þeim Odd- geiri Bárðarsyni og Jakob vitna leitarmanni peninga úr ríkis- sjóði. Almenningur mun ekki álíta að þokkapiltar þessir eða önnur ginningarfífl íhaldsins í ljúgvitnamálinu eigi nein verð- laun skilið af opinberu fé. um í réttinum, að það hafi ver- ið rigning og engin snjór fyrri en kl. 9 um kvöldið. Hvaða dæmi þekkjast til þess í réttarsögunni að vitni séu látin sverja þannig ofan í staðreyndir, sem þau vita um? Mbl. þarf ekki að vera neitt undrandi yfir því þótt almenn- ingur líti á þessar aðfarir með viðbjóði. H Ódýru # auglýsingarnar. || | Kaup og sala ||| Hreinar og gallalausar hálf- tunnur og kvartil undan salt- kjöti verða keyptar í Garna- stöðinni, Rauðarárstíg næstu daga. Sími 4241. íslenzka Leikfangagerðin Elfar, Laugaveg 19. Heildsala, smásala. Munið lága vömverðið á TÝSGÖTU 3 Útungimarvél fæst með tæki- færisverði. Sími 4326. Kjarnabrauðin. Hafið þið reynt hið holla og Ijúffenga kjarnabrauð frá Brauðgerð Kaupfélags Reykja- víkur? III Tilkynniugar | Gísli Ólafsson skáld frá Ei- ríksstöðum tekur að sér að yrkja eftirmæli og margskonar tækifæriskvæði. Til viðtals á Njarðargötu 7 kl. 10—12 f. h. Sími 4863. Munið gullsmíðavinnustof- una Þingholtsstræti 3. Guðl. Magnússon. Tek að mér vélritun og fjöl- ritun skjala, einnig allskonar lögfræðilega skjalagerð. Pétur Jakobsson Kárastíg 12. Gott ódýrt fæði fæst í K.-R- húsinu. Einnig einstakar mál- tíðir. Hef síma 2497. Sigurvin Einarsson kennari, Egilsg. 18. Sá sem auglýsti húsnæði um daginn í blaðinu og lét merkja tilboð „140“, vitji tilboða sem borizt hafa á afgreiðsluna. || Húsnæði || 3 herbergi og eldhús óskast strax. Ábyggileg greiðsla. Til- boð merkt „100“ leggist inn á .v.fgr. þessa blaðs. Herbergi óskast til leigu nú þegar. Upplýsingar í síma 2385 kl. 1—5 e. h. Kennda Kennum að taka mál og sníða eftir nýjustu tízku. Nán- ari uppl. í síma 2211. Kenni á píanó. Ámi Björns- son, Ingólfsstræti 9, sími 2442. Tek að mér að spila á dans- leikjum og samkvæmum. Vinnudeila í Færeyjum? Oslo kl. 17,15, 23/2. FÚ. Á Færeyjum er nú sögð Ö- venjulega umfangsmikil vinnu- deila í aðsigi, milli útgerðar- manna og sjómanna. Er talið að 60% sjómanna hafi þegar bundizt samtökum um verkfall, ef ekki gengur saman.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.