Nýja dagblaðið - 25.02.1934, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 25.02.1934, Blaðsíða 3
N Ý J A DAOBLADIB | NÝJA DAGBLAÐIÐ | Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“ | Ritstjóri: Dr. phil. porkell Jóhannesson. | Ritstjómarskrifstofur: Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. j Afgr. og auglýsingaskrifstofa: | áusturstrœti 12. Sími 2323. Framkv.stjóri: | Vigfús Guðmundsson. Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuði. j í lausasölu 10 aura eint. | Prentsmiðjan Acta. Albert I Fyrra laugardag fórst af völdum slysfara einn af merk- ustu og mestmetnu þjóðhöfð- ingjum Norðurálfunnar, Albert I. Belgíukonungur. Hrapaði hann til bana í fjallgöngu. Hafði hann farið frá Briissel um morguninn, ásamt einum þjóni, og óku þeir til kletta- beltis nokkurs í Ardennafjöll- um. Konungur lagði þá í göng- una og bað þjóninn að bíða sín í tvær klukkustundir. Þegar sá tími leið og konungur kom ekki, fór þjónninn að óróast og fékk menn til að leita konungs- ins. Fannst hann um sunnu- dagsnóttina og var þá látinn. Sýndu verksummerki, að hann hafði hrapað úr 40 m. hæð. Líkið var mikið laskað og var höfuðkúpan mölbrotin. Albert I. var fæddur 1875. Þegar hann fæddist var hann þriðji í röðinni af þeim, sem rétt áttu til ríkiserfða. En hin- ir tveir dóu ungir og þegar Leopold II. föðurbróðir hans lézt, var hann réttkjörinn til konungs. Hann var þá lítið þekktur, enda hafði föðurbróð- ir hans, sem var illa þokkaður, haft horn í síðu hans og óttast hversu vel honum tókst að hæna að sér menn. En það sýndi sig fljótlega, að Albert I. var bæði röggsamur og góð- ur stjórnandi. Framkoma hans í heims- styrjöldinni verður alltaf fræg í sögunni. Þjóðverjar fóru fram á það, að mega fara með hersveitir sínar yfir Belgíu til Frakklands. Þessu neitaði Al- bert konungur, enda var hann bundinn um það með samning- um. Þjóðverjar hófu þá æðis- gengna árás og ekkert land fékk eins harða útreið í heims- styrjöldinni og Bfelgía. Konung- urinn hafði tekið þessa ábyrgð yfir á herðar þjóðarinnar og hann vildi líka taka þátt í raun- um hennar. Hann barðist sjálf- ur í skotgröfunum og um- gekkst hermennina eins og óbreyttur liðsmaður. Hann ferðaðist af einum stað á ann- an, þar sem mest reyndi á, eggjaði' menn sína og fór þá oft svo ógætilega, að orð var á gert. Honum bar það fyllilega, að kallast mesti herkonungur þessarar aldar. Fyrir hina djörfu og ötulu framgöngu sína hlaut hann þökk og hylli þjóðarinnar. Drottning hans var honum líka góður föru- nautur. Hún hafði áður lagt sig eftir læknisfræði og veitti Framh. á 4. síðu. Þrjú fólskuyerk Ljúgvitnamálið er í einu hlægilegt og alvarlegt. Það er hlægilegt, að dómsmálastjórn, sem eins og bent var á í blað- inu í gær, hefir sýnt víta- vert hirðuleysi um mik- ilsverðustu mál, skuli hefja mikla lögreglurannsókn út af 3 ára gamalli lygasögu Björns Gíslasonar um að einn æðar- fugl hafi verið drepinn út með sjó. Ekki bætir það málstaðinn að öll þessi rekistefna Bjöms Gíslasonar var ónýt, þar sem „sökin“ hefði ekki orðið tekin fyrir að lögum, jafnvel þó að hér hefði ekki verið um lyga- sögu að ræða, eins og allir vita að er. Þetta er hlægilega hlið máls- ins. En alvarlega hliðin er sú, sem gefur málinu sitt viður- kennda nafn. Það er sú byrjun, sem fram að þessu var óþekkt hér á landi, að gera viður- kenndar lygasögur að árásar- efni á einstaka menn og rök- styðja það með vitnum, sem sverja eið hvert ofan í annað, og móti vísindalegum stað- reyndum, eins og opinberum veðurskýrslum. I ljúgvitnamálinu kemur fram ný og áður óþekkt réttar- farsspilling. Það er þriðja nýj- ungin um siðleysi í opinberu lífi, sem nánustu aðstandendur verstu afturhaldsklíkunnar í Reykjavík hafa beitt. Ég vil gefa stutt yfirlit um þessi þrjú mál. Fram að 1930 hafði aldrei þekkzt áður hér á landi, að hópur læknislærðra manna starfaði í leynifélagi að því að ljúga upp sögum uxh heilsufar pólitískra andstæðinga, að ganga um með hótanir um að gefa út vottorð um að heii- brigður maður væri hættulega veikur, og ætti þessvegna að sviftast atvinnufrelsi og borg- aralegri tiltrú. Leynifélag hinna læknislærðu manna gekk svo langt að senda sinn Odd- geir Bárðarson inn á heimili þess, sem átti að eyðileggja, til þess að rjúfa frið heimilisins, og reyna að brjóta niður þrótt og þrek fjölskyldunnar. Hver var ástæðan? Menn vita glöggt um hana. Hér átti í hlut stjómmálamaður, sem ekki vildi hylma yfir vaxtaþjófnað frá munaðarleysingjum, ekki hafa Einar Jónasson sem dóm- ara og löggæzlumann, ekki hafa svikna landhelgisgæzlu, ekki hylma yfir fjársvik eyðslu- mannanna, sem orsökuðu gjald- þrot Islandsbanka. Undir áhrif- um pólitískra fjandmanna var gerð hin fyrsta tilraun á ísl., til að ryðja úr vegi stjómmála- manni með upplognum sögum um vanheilsu. Hópur manna er fenginn til að starfa að því að útbreiða hina „vísindalegu lýgi“. Einn af þessum læknum viðurkenndi nokkrum mánuð- um mánuðum! síðar við þann, sem þetta ritar, að hann gæti ekki gert sér grein fyrir þeirri „leiðslu", sem hann hefði verið í. Ég hygg, að málið sé ljóst. Mennimir, sem notaðir voru sem verkfæri, voru almennt 1 talað mjög óþroskaðir. Þeir voru undir sálarlegum áhrifum æstra afturhaldsmanna, sem 1 töldu sig hafa hagsmuni af að " ryðja þessum manni úr vegi. Vinir og þjónustusamir andai- afturhaldsins bergmáluðu „vís- indi“ samsærismanna út um land. Pétur 'Ottesen gerði það í vélrituðum einkabréfum til kjósenda sinna. Jón á Reyni- stað símaði liið sama sínum kjósendum, og sýslumaðurinn á Sauðárkróki útbreiddi fagn- aðarboðskap þeirra skriftlærðu eins vel og hann gat til kjós- enda Magnúsar Guðmundsson- ar. Það stóð ekki á kyrstöðu- mönnunum að nota sér flokkslega ávexti þeirra ný- stárlegu vísinda. Afturhaldið, sem setti á stað „vísindin“ um hin tilbúnu veik- indi, hafði vonast eftir að trú- in á andlegan mátt þeirra væri svo sterk, að allt léki í lyndi, að þeir gætu á fáum dögum svift manninn borgaralegri til- trú, lífsstarfi, brotið niður þrek hans, eyðilagt heimili hans og væntanlega komið hon- um andlega og líkamlega ó- sjálfbjarga fyrir í einskonar gröf fyrir lifandi merm. En þetta mistókst. Maður- inn, sem átti að eyðileggja, gaf skýrslu um málið opinberlega, og þjóðin hrökk við er hún sá hver hætta var búin friði heimilanna, frelsi, lífi og mann- orði borgaranna, ef þessi spill- ingaralda yrði ekki stöðvuð. Þjóðin fann, að hér var hætta á ferðum. Þúsundir manna lýstu skriflega yfir andstyggð sinni og fyrirlitningu á þessum nýstárlegu vísindum. Engir heiðarlegir menn tóku svari ó- lánsgarmanna, sem gerðir höfðu verið að verkfæri afturhalds- ins. Brotsjór rótgróinnar fyrir- litningar heillar þjóðar skall yfir þá brjóstumkennanlegu vesalinga, sem hér höfðu verið að verki. Bletturinn af frum- hlaupi þeirra féll á þann hóp manna, sem á einn eða annan hátt stóðu að því að innleiða þessa bardagaaðferð í opinberu lífi á Islandi. Ef tekizt hefði að sigra þann sem átti að eyðileggja, myndi fleiri slíkar „vísindalegar“ af- tökur hafa átt sér stað í land- inu. En heilbrigð dómgreind almennings bjargaði þjóðinni frá þessari tegund af eiturgas- hernaði. Síðan 1930 hefir eng- um afturhaldsmörmum dottið í hug að reyna að eyðileggja nokkum þjóðmálamann með 'l „vísindalegum“ ljúgvitnafram- burði um heilsufar hans. Svo líður eitt ár, og nokkr- ar vikur. Það er komið fram á vor 1931. Þá ætla íhaldsmenn að gera laumulega tilraun til að breyta stjómarskrá landsins að þjóðinni óviðbúinni. Forsætis- ráðherrann leggur til að Al- þingi sé rofið, og efnt til nýrra kosninga. Kjósendur eiga að skera úr á frjálsmannlegan hátt, hvort þeir vilji hið nýja skipulag. Þeir eiga að breyta því vitandi vits, ef þeir gera það. Það á ekki að svíkjast að þeim. Kosningar áttu að fara fram eftir nokkrar vikur. Mál- ið var lagt í hendur þjóðarinn- ar sjálfrar. Allir óhlutdrægir fræðimenn erlendir og innlend- ir viðurkexma, að hér var farið að lögum og rétti út í yztu æsar. En hvað gerist? Ihaldið í Reykjavlk þolir ekki að farið sé að lögum. Það vill ekki bíða eftir dómi kosninganna. Það afræður að beita ofbeldi og skrílsæði. Foringjar íhalds- manna halda æsingarræður yfir múg manna kvöld eftir kvöld. Þeir bíða eftir kvöldinu og myrkrinu til að gefa tilfinn- ingum drukkinna og illa sið- aðra manna sem bezt tækifæri. Þá stefna þeir liðsaukanum að húsi forsætisráðherra. Þeir draga saman þúsundir manna, umkringja húsið, æpa þar og orga eins og villidýr fram eftir nótt. Forsprakkarnir vissu, að um enga vörn var að ræða móti skrílræðinu, að í húsinu voru ein hjón með mörg lítil börn, og fóstrur þeirra. Hver var tilgangurinn ? Eng- inn annar en sá, að brj*óta niður fjölskylduna, þrek henn- ar og heilsu. Árið 1930 átti að brjóta niður heimili stjóm- málamanns með vísindalegum ljúgvitnum. Nú átti að brjóta niður annað heimili með skríl- æsingum, ógnunum yfir varn- arlausu bamaheimili, af dreggj- um mannfélagsins, sem búið var að æsa til blindrar reiði. Jón Baldvinsson og Jón Þorláksson komu eitt þetta skrílkvöld frá forsætisráðherra, hvor til síns þingflokks í Alþingishúsinu. Jón Baldvinsson bar drengilega söguna. Hann kvað ráðherrann halda fast við sitt strik, og alls ófúsan að breyta um stefnu. Jón Þorláksson sagði sínum mönnum að ráðherrann væri að brotna undan átökun- um. Það væri aðeins tímaspurs- mál hvenær umsátrið og æs- ingarnar hefðu rutt honum úr vegi. Hér sást hvert Jón Þorl. stefndi, hver var von hans og draumur, hversvegna liðsöfnuð- inum var beint að ráðherrabú- staðnum til að orga þar í nátt- myrkrinu kvöld eftir kvöld. Þjóðin tók hér í taumana eins og áður. Hugur borgar- anna fylltist af andstyggð yfir því að nú ætti að beita ofbeldi en ekki lögum og rétti í land- inu. Skrílvikan var fordæmd um land allt. Frambjóðendur íhaldsins féllu eins og flugur. Þjóðin þvemeitaði að hún vildi innleiða ofbeldið, sem æðsta dómstól í þjóðmálum. Almenn fyrirlitning var lögð á þá leiðtoga íhaldsins, sem höfðu viljað þoka áfram flokksmál- um sínum með því að espa ó- menntaðan skríl til að orga yfir vöggum lítilla bama, til að knýja fram úrslit í þjóðmáli. Og nú er byrjuð þriðja orra- hríðin með I j úgvitnamálinu. Það er undirbúin herferð gegn lögreglustjóranum í Reykjavík. Með ósönnum tyllisökum á að skaða álit hahs. Málið er byrj- 1 að af Birni Gíslasyni, sem sjálfsvöm, er lögreglustjórinn * lét ganga réttláta rannsókn og I dóm í fjársvikamáli hans. Næst ' er málið tekið upp sem venju- i legt íhaldsrógsmál í kosning- j um. Síðan er því haldið áfram af vitnum, sem eru boðleg mál- staðnum og sitja föst í neti svardaga, sem sýna, að ekki er eitt orð satt í árásinni allri. Ihaldsbroddar Rvíkur hata , Hermann Jónasson. Hann hef- ir endurskapað lögreglu bæjar- ins, gert hana sterka, glæsi- lega, vel mennta og virta. Hann , hefir sett á bæinn merki menn- ingar og þroska, að því er nær , til löggæzlumálanna. Hann hefir látið lögin ganga jafnt yfir alla. Og það er í augum fjársvikara, smyglara og glæframanna fullkomin dauða- synd. Hermann Jónasson hefir eyðilagt með rökum og þekk- ingu tillögu íhaldsins um ótak- markaðan her. Hann hefir und- irbúið það af lögunum um lög- gæzlu, sem nýtilegt er, svo sem um sterka bæjarlög- reglu og takmarkaða varalög- | reglu. Hermann Jónasson hefir látið aðhald laga og réttar 1 ná jafnt til allra, smælingjans 1 í kjallaraíbúðinni, og skjala- ' falsarans, vínsmyglarans eða i fjársvikarans í heddri manna 1 götu bæjarins. | Erlendis hefir það nýlega i komið fyrir, að bófar hafa á | dularfullan hátt drepið dómara, sem rannsakaði fjársvikamál, sem margt „fínt“ fólk var rið- ið við. Hvernig halda menn að á- standið verði hér á landi, ef sá siður er tekinn upp, að ljúga 1 sakargiftum á pólitíska and- stæðinga, fá sérstök vitni til j að bera ósannindi, æfa þau eins , og leikara í sjónleik, til að I reyna að láta þeim bera saman, , láta þau vixma eiða að því sem vottorð opinbexra stofn- 1 ana sanna að er rangt? Hveraig halda menn að lífið yrði í landinu, fyrir kjarklitlu i fólki, óvönu rannsóknum og vitnaframburði, ef farið yrði að beita þessari aðferð? Hugs- um okkur ríka menn, sem ætti að reyna að svifta auðæfurn á þennan hátt? Hugsum okkur venjulega friðsama borgara, j sem ættu yfir höfði sér vel , undirbúna ljúgvitnaherferð frá . fólld, sem kynni að hata þá af j persónulegum ástæðum? | Þjóðin hefir kveðið niður að- i ferðina, að ryðja möimum úr vegi með „vísindalegum“ lyga- 1 framburði. Hún hefir líka foi> dæmt skrílsæði við lausn þýð- j ingarmikilla þjóðmála. Og hve- nær sem að því kemur, að reynt kaxm að verða að ryðja mönnum úr vegi með lognum sakargiftum, þá mun dóm- greind almennings dæma til varanlegrar útlegðar úr félagi siðaðra manna, þá, sem standa að slíku verki. Sé það ekki .gert þegar í upphafi, getur enginn heiðarlegur maður ver- ið óhultur í landinu um líf, eignir og mannorð, J. J.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.