Nýja dagblaðið - 20.03.1934, Page 1
2. ár.
ÍDAG
Sólaruppkoma kl. 8.11.
Sólarlag kl. 5.14.
Flóð árdegis kl. 9.35.
Flóð síðdegis kl. 10.00.
Veðarspá: Allhvass austan. Ur-
komulaust.
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ........ opið 1-4
pjóðminjasafnið ......... opið 1-3
Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3
Alþýðubókasafnið .. . .opið 10-10
Landsbankinn ......... opinn 10-3
Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3
Útvegsbanbinn opinn 10—12 og 1—4
Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og ð-7^/2
Pósthúsið: Bréfapóstst, .. opin 10-6
Bögglapóststofan ..... opin 10-5
Landssíminn ............ opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 14
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda
opið 10—12 og 1—6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið .......... opið 9-6
Stjómarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögpuanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Ríkisféhirðir ............... 10-3
Baðbús Reykjavíkur .... opið 8-8
Heimsóknartfml sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12^2-2
Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2
Kleppur ................. kl. 1-5
Fæðingarh;, Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar...................kl. 3-5
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4
Elliheimilið ................. 1-4
Næturvðrður í Laugavegsapóteki
og Ingólfsapóteki.
Næturlæknir: Jón Norland
Laugav. 17. Sími 4348.
Skemmtavtr otj samkomnr:
Nýja Bíó: Bláa Paradísin kl. 9.
Gamla Bíó: Bros gegnum tár kl. 9.
Iðnó: María Markan, kveðjusöng-
ur kl. 8y2.
Varðarhúsið: Fyrirlestur Kvenrétt-
indafél. (Laufey Valdimarsdótt-
ir) kl. 8y2.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
Tilkynningar. 19,25 Enskukennsla.
19,50 Tónleikar. — Auglýsingar.
20,00 Klulckusláttur. Fréttir. 20,30
Erindi: Sæmundur fróði og Svarti-
skóli (Gaðm. Thoroddsen próf.).
21,00 Celló-sóló (þórhallur Árna-
son). 21,20 Upplestur (þóra Borg).
21,35 Grammófónn: a) íslenzk lög.
b) Danslög.
Símar Nýja dagblaSsins:
Ritstjóri ........................ 4373
Fréttaritari ..................... 2353
Afgr. og augl, ................... 2323
Reykjavík, þriðjudaginn 20. marz 1934.
67. falað.
Frétíitafflokksþingi
ÞriveldasaxuninguriDn
sem undirritaður var í Róm í
fyrradag hefir vakið mikla athygli
og er talið. að honum sé stefnt
gegn þýzkalandi, sem nú standi
einangrað.
Ænv í s a, n a. m. á, 1 i d
i Landsbankanum
Eyjólfur Jóhannsson játar að haia
g-efið út ávisanir á engar inustæður.
Flokksþingið hófst kl. 10
árdegis í fyrradag. Voru þá
þegar komnir á annað hundrað
fulltrúar, en þó margir ókomn-
ir, Norðlendingar alhr austan
Stóra-Vatnsskarðs. Flokksþing
þetta verður mjög fjölsótt. Er
það fyrsta flokksþingið, sem
aðeins kjörnir fulltrúar fyrir
flokksfélög sitja. Er það þeg-
ar sýnt, að mikill meiri hluti
þeirra fulltrúa mætir, og er þó
ekki annað hægt að segja, en
að margir eigi erfiða sókn.
Virðist svo, að flokksmenn telji
það nú mikilsvert að treysta
fylkingar sínar sem bezt. Enda
munu þeir ráðnir að ganga
skeleggir til kosningabaráttunn
ar í vor.
Flokksþingið setti Sigurður
Kristinnsson forstjóri, með
ræðu. Bauð hann alla velkomna
og kvað sér gleðiefni að sjá
flokksþingið svo vel sótt. Gerði
hann síðan grein fyrir hvaða
ástæður hefðu valdið því, að
flokksþing er kvatt saman að
þessu sinni og hvaða verkefni
lægju fyrir því. Kvað hann oft
hafa verið þörf á að umbóta-
mennirnir í landinu stæðu vel
að sínum málum, en þó hefði
ef til vill aldrei verið jafn brýn
þörf á því sem nú, þar sem
hvorttveggja þyrfti að halda
vörð um margt það, sem byggt
hefði verið upp á síðustu árum
og svo kæmu alltaf ný og ný
vandasöm úrlausnarefni á þess-
um miklu umrótstímum.
Þá var tilnefndur fundar-
stjóri fyrsta dags Þórir Stein-
þórsson í Reykholti, og skrif-
arar flokksþingsins þeir Egg-
ert Guðmundsson, bóndi, Vatns
horni, Emil Jónsson, bóndi,
Gröf og Þórólfur Sigurðsson
bóndi, Baldursheimi.
Þar á eftir fór fram kosning
kjörbréfanefndar, til að rann-
saka kjörbréf manna. Síðan var
fundi frestað til kl. 4 síðd.
KI. 4 síðd. var fundur aftur
settur og skilaði þá kjörbréfa-
nefnd áliti. Síðan gaf Sigurður
Kristinnsson, formaður mið-
stjórnar flokksins skýrslu um
störf miðstjórnarinnar á árinu
og gerði grein fyrir flokks-
starfinu.
Síðan voru lögð fram skipu-
lagslög flokksins til umræðu.
Hafði Hannes Jónsson dýra-
læknir framsögu og flutti langt
erindi um skipulag flokksins og
þá vörn, er hann taldi í því
gegn illum kosningalögum.
Hannes Pálsson bóndi á Undir-
felli kvaddi sér og hljóðs og
bar fram tillögu um breytingu
á því hvernig væri kosið í mið-
stjórn flokksins. Síðan var kos-
in nefnd í málið, 1 fulltrúi
fyrir hvert kjördæmisfélag, og
var mönnum vísað til þeirrar
nefndar, ef þeir hefðu ein-
hverjar tillögur um breytingar
á flokkslögunum. Þar á eftir
var kosin blaðnefnd og allsherj-
arnefnd á sama hátt. Eiga 25
menn sæti í hverri nefndinni.
Eftir að kosningu þessara
nefnda var lolcið, var fundi
slitið.
Kl. 8 síðdegis var enn komið
saman til að hlýða á erindi
þeirra Eysteins Jónssonar um
fjármál þjóðarinnar og Krist-
jáns Jónssonar um sjávar-
útveginn. Verður væntanlega
birtur útdráttur úr þeim erind-
um síðar hér í blaðinu.
Eftir að þessum erindum var
lokið, var tilnefndur fundar-
stjóri næsta fundardags, Bjarni
Bjarnason á Laugarvatni.
I gær var fundur settur kl.
1 e. h. Voru þá Norðlending-
ar flestir komnir og höfðu kom-
ið með e.s. íslandi um nóttina.
Voru þá mættir 167 fulltrúar.
Ókomnir eru þó enn nokkrir
menn, sem koma með Goða-
fossi í dag.
Fyrstur hóf máls Hermann
Jónasson og flutti mikið erindi
um dómsmál og réttarfar.
Lýsti hann því á hvem hátt
réttarfari þjóðarinnar væri á-
fátt. Taldi hann nauðsynlegt,
að öll meðferð réttarfarsmála
væri á opinberum vettvangi og
myndi slíkt bæði verða til þess,
að þroska réttarvitund þjóðar-
innar og skapa nauðsynlegt að-
hald um alla meðferð mála. Þá
lýsti hann því ástandi, sem nú
væri í réttarfarsmálunum og
taldi þar mikilla umbóta þörf.
Aðrar umræður umræður urðu
ekki um málið.
Þá var rætt um kosninga-
undirbúninginn og hafði þar
framsögu Jónas Jónsson. —
Ræddi hann um hvað kosning-
amar næstu mundu einkum
snúast um og bað Framsóknar-
menn að ganga örugga til
kosninganna. Að ræðu hans
lokinni voru kosnar tvær 25
manna nefndir, önnur til að
ræða um skipulag kosninga-
undirbúningsins, en hin til að
semja kosningaávarp. Síðan
var fundarhlé til kl. 8.
Berlin kl. 10, 19/3. FÚ.
Frönsku blöðin ræða nú eðli-
lega mest um orðsendingarnar,
sem sendar voru í fyrradag,
bæði orðsendingu Þjóðverja til
Frakka, og Frakka til Breta.
Um frönsku orðsendinguna
Nýja dagblaðið' náði 1 gær
tali af fulltrúa lögreglustj óra,
Ragnari Jónssyni, er skýrði frá
því sem frekar hefði komið í
ljós við yfirheyrslu Eyjólfs
Jóhannssonar.
Eyjólfur Jóhannsson kom
seint á sunnudagskvöldið utan-
lands frá með Gullfossi. Kom
hann strax í land með tollbátn-
um. Var hann þá yfirheyrður
út af ávísanamáli Mjólkurfé-
lagsins, sem áður hefir verið
sagt frá hér í blaðinu og stóðu
yfirheyrslurnar lengi nætur. E.
J. viðurkenndi að hafa gefið út
ávísanir á bankann, án þess að
eiga inneign fyrir upphæðinni,
þegar hann hefði þurft á því
að halda og hefði aðalgjaldker-
inn Guðmundur Guðmundsson
! tekið þær og greitt. Stundum
hefðu þessar ávísanir aftur
verið innleystar, en stundum
endurnýjaðar, eftir því hvernig
á hefði staðið. Hefir þessi
„láns“-aðferð verið viðhöfð
undanfarin 2 ár, en mest þó
verið gert að þessu í haust sem
leið. Ekki er ennþá uppvíst
um hve upphæðir þessar eru
háar.
Fréttastofa Reuter’s hefir
undanfarið kynnt sér álit ýmsra
stj órnmálamanna í höfuðborg-
um Evrópu, á því, hverjar
horfur þeir álitu á því, að Sov-
ét-Rússland gangi í Þjóða-
bandalagið. Frönsk blöð telja,
afstöðu leiðtoga Sovét-Rúss-
lands undanfarið sýna vaxandi
hneigð í þá átt, þótt málið
hafi enn ekki komizt á það
stig, að um það væru hafnar
stjómmálaumræður. Frakk-
land myndi fagna inngöngu
kemst blaðið Le Matin svo að
orði, að hún tákni endir hug-
sjónatímabils, og byíjun veru-
leikatímabils. Telur Le Peuple
að það sé komið í ljós enn
greinilegar, að franska stjórn-
in vilji enga afvopnun.
Framburði þeirra Guðmund-
ar og Eyjólfs bar alveg saman.
Eins um þessa 5000 kr. ávís-
un, sem Mjólkurfélagið hafði
gefið út og lánað G. G.
Þar eð framburði þeirra
Guðmundar og Eyjólfs bar
saman í öllum aðalatriðum, á-
leizt málið að mestu upplýst
og þótti því ekki ástæða til
þess að setja Eyjólf í gæzlu-
varðhald.
Guðmundi Guðmundssyni var
í gærmorgun sleppt úr gæzlu-
varðhaldi, þar sem hann hafði
játað brot sitt, og framburður
hans staðfestur með samliljóða
framburði E. J.
Eftir nokkra daga, þegar
fullnaðarskýrslu endurskoðend-
anna á ávísanareikningi Mjólk-
urfélagsins er lokið, mun málið
sent til dómsmálaráðuneytis-
ins, og ákveður það hvort
höfða skuli mál gegn Guð-
mundi Guðmundssyni og Eyj-
ólfi Jóhannssyni
Munu brot þessi falla undir
þá kafla liegningarlaganna,
sem fjalla um embættisafbrot
og svindl.
Sovét-Rússlands í Þjóðabanda-
lagið, en meðal þeirra sem
kunnugastir eru málum, er tal-
ið, að málið komi ekki til um-
ræðu fyr en þá á september-
fundum Þjóðabandalagsins í
haust.
I Róm fékk fréttastofan það
svar, að stjórnin hefði engar
sönnur fyrir því, að samningar
væru hafnir um þetta mál.
Moskva lýsir yfir því, að
fregnir um væntanlega inn-
göngu Sovét-Rússlands í Þjóða-
bandalagið hafi vakið mikla at-
hygli hvervetna erlendis, þrátt
fyrir þá staðreynd, að fyrri
afstaða Sovét-Rússlands gagn-
vart Þjóðabandalaginu hefir
hingað til borið vott um full-
komið vantraust, en að vax-
andi áhugi Rússlands fyrir því,
að taka virkan þátt í stjórn-
málum álfunnar, kunni að leiða
til þess, að það 'breyti afstöðu
sinni.
örðsendingarnar um afvopnunarmálin
Gengur Sovét-Rússland
í Þióða'bandalag'ið ?
LRP kl. 17.00, 19/3. FÚ.