Nýja dagblaðið - 18.04.1934, Side 3
II Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
I
NÝJADAGBLAÐIÐ|
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“ |
Ritstjóri:
Dr. phil. Jtorkell Jóhannesson. |
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4073 og 2353. j
Afgr. og auglýsingaskrifstofa: |
Austurstræti 12. Sími 2323. |
Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuði. |
í lausasölu 10 aura eint. j
Prentsmiðjan Acta.
,Sendiherra‘
Magnúsar Guðmundssonar
Oreíðumaður. sprútt-
sali á Reykjavíkur
Bar og handbendi
Björns Gíslasonar.
Ekki er nú um annað meira
talað en hið síðasta hneykslis-
mál íhaldsráðherrans Magnúsar
Guðmundssonar, þegar hann
sendir alkunnan óreiðumann og
vesaling suður í lönd til þess
að reka þar trúnaðarstörf ekki
aðeins fyrir ríkisstjórnina,
heldui' einnig störf, sem jafn-
hliða snerta beinlínis íslenzka
síldarútflytjendur á síðasta ári
og haft getur fyrir þá alvarleg-
ar, fj árhagslegar afleiðingar.
Og þetta gerir Magnús Guð-
mundsson án þess að leita um-
sagnar sildarútflytj enda eða
Fiskifélagsins um val sitt á
„sendiherranum“ Gunnlaugi
Jónssyni.
En annað virðist upplýst i
þessu máli.
Maðurinn fer fleiri erinda.
Guimlaugur á jafnframt að
reka erindi Björns nokkurs
Gíslasonar.
Áætlun Gunnlaugs er um
Þýzkaland, Pólland og fleiri
lönd í Mið-Evrópu.
Fjárframlög ríkisins til ferð-
arinnar munu ekki eiga að fara
fram úr 1500—2000 krónum.
Nú vita það allir, að slík
ferð. kostar meira og þá einlc-
um manns sem ferðast á veg-
um erlends ríkis, og þessvegna
verður að halda sig sæmilega.
Björn Gíslason á að borga
það, sem á skortir farareyrir-
mn.
En þá er sú alvarlega spurn-
ir.g:
ílvao kemur til að Magnús
Guðmundsson ráðherra velur
slíkan mann til þvílíkra verka?
Er eitthvert sögulegt sam-
band milli þessara tveggja
manna, Magnúsar og Gunnn-
laugs.
Engum kemur í hug, að
Gunnlaugur hafi verið að selja
landa á Reykjavíkurbar í þágu
sjálfs dómsmálaráðherrans.
Er Björn Gíslason skýringin?
En hvað er það þá, sem kem-
ur Magnúsi Guðmundssyni til
þess að vera svona eftirlátur
Birni Gíslasyni ?
Hverskonar tök hefir Björn
á Magnúsi?
Og er ekki Magnús búinn að
fórna of miklu fyrir Björn?
Var Birni ekki „náðunin"
nóg?
Verður að treysta því, að al-
menningi þyki nú nóg komið
af svo góðu.
Svíður ekki nógsamlega und-
að hreinsa til?
Stjói'n Landsbankans hefir ,
nú um sinn tekið með festu j
og alvöru á hverskyns óreiðu,
sem vart hefir orðið hjá starfs-
mannaliði bankans.
Þrír menn, sem verið liafa í
þjónustu bankans, og sem
gjörst hafa sekir um fjárdrátt,
hafa þegar verið dæmdir á
skömmum tíma og rannsókn er
hafin gegn fleirum út af fjár-
málaóreiðu.
Nú hefir verið frá því skýrt
í opinberu blaði, að í einu úti-
búi Landsbankans, útibúinu á
ísafirði, séu starfandi tveir
menn, sem uppvísir hafa orð- '
ið að þjófnaði áður en þeir
voru teknir í þjónustu bankans. !
Er hér um svo einstætt at- !
ferli að ræða, ef rétt reynist,
að krefjast verður að stjórn og
bankaráð þjóðbankans sjái svo
um, að opinber rannsókn fari ,
þegar fram á því, hvort hér er
rétt með farið.
í sjálfu sér er ekkert um
það að segja, að þjófar leiti sér
atvinnu. Hitt er alvarlegra, að
stjórn og mannaforráð banka-
stofnana sé í höndum manns,
sem ekki gerir hærri kröfur en
það, að þessi tegund afbrota-
manna sé sérstaklega til þess
fallin, að annazt trúnaðarstörf
í bankastofnunum.
Leiði rannsókn það í ljós, að
í Landsbankaútibúinu á Isa-
firði sé svo högum háttað, sem
að framan greinir, verða ekki
aðeins hinir brotlegu starfs-
menn að verða á burt þaðan,
heldur einnig og þá fyrst og
fremst sjálíur útibússtjórinn,
sem ábyrgðina ber á því, að
þeir hafi verið ráðnir í bank-
ann. Annað væri í fullkomnu
ósamræmi við þá viðleitni, sem
nú er hafin um að hreinsa til.
Aihugasemd
Ot af ummælum, sem komið
hafa fram í útvarpsumræðun-
um síðustu og í blöðum, um
nauðsyn á stj órnmálahlutleysi
útvarpsstjóra, vildi ég vinsam-
legast biðja blöðin um að birta
eftirfarandi athugasemd.
Kröfurnar um það, að
útvarpsstjóri, sem umsjónar-
maður daglegs fréttaflutnings,
tæki ekki virkan þátt i stjórn-
málum, hafa verið skýnsamleg-
ar og réttmætar. Hefir það og
með vexti útvarpsins orðið ó-
kleyft að sameina starfi við út-
varpið þriggja mánaða þing-
setu. — Fullkomið hlutleysi og
réttlæti í ílutningi útvarps-
fregna er ekki einungis höfuð-
skilyrði fyrir þrifum og almenn
ingsvinsældum stofnunarinnar,
heldur og fyrir því, að hér
verði framvegis rekið útvarp,
sem talið verði samboðið menn-
ingarþjóð.
an því, að þessi alkunni maður,
sem dæmdur hafði verið fyrir
að kalla allar hegningarlaga-
greinar svikakapitulans, skuli
hafa verið „náðaður" af dóms-
málaráðherranum Magnúsi
Guðmundssyni ?
Þótt ekki bætist ofan á, að
legátum hans út í lönd sé af-
hentur opinber stimpill ís-
lenzka ríkisins, og fengið
„sendiherrabréf“ upp á vasann
til þess að tekinn verði hátíð-
legri en ella af erlendum verzl-
unarfirmum. Og ekki horft í að
stofna í voða viðkvæmu hags-
munamáli þriðja stærsta at-
vinnuvegarins í landinu til þess
að slíkum aðgerðum verði kom.
ið við.
Menn fagna því, að ekki
dregst lengur en til 24. júní, að
þjóðin fær að svara því, hvort
hún kýs að þeir flokkar fari
með völd í landinu, sem hér
bera ábyrgð á.
En um leið og þessi krafa
er gerð og henni fullnægt, virð-
ist lítt skiljanleg sú krafa, að
leggja í hendur útvarpsráðs
daglega gæzlu hlutleysis á
fréttastofu. Útvarpsráð á, sam-
kvæmt lögum, að skipa á
tveggja ára fresti. Formaður
þess ,og ef til vill annar maður
til, verða jafnan skipaðir af
pólitískri stjórn. Og þar sem
kjósa á einn mann í útvarps-
ráð með almennri kosningu út-
varpsnotenda, er mikil hætta á,
að sú kosning kunni að verða
pólitísk. Virðist því allmiklar
líkur til að þessari hlutleysis-
gæzlu í daglegum fréttaflutn-
ingi yrði siður vel borgið, ef
starfsmannaval á fréttastofu
og daglegir úrskurðir um frétt-
ir ætti að vera háðir ákvörð-
unum útvarpsráðs.
Við afgreiðslu tillögu þeirrar
í útvarpsráði, sem lýst var í
útvarpsumræðunum um breyt-
ingar á skipun fréttastarfsins,
hefi ég á fundi útvarpsráðs
látið bóka andmæli mín í fjór-
um liðum, svohljóðandi:
„Útvarpsstjóri lýsir yfir
því, að hann muni leggja á
móti þessari tillögu við ráðu.
neytið, af þeim ástæðum, er
hér segir:
1. Að tillagan fer í bága við
niðurlagsmálsgrein 5. gr.
laga pr. 69, 19. maí 19301).
2. Að hann teldi hlutleysi út-
varpsins og öryggi í starfi
fréttastofunnar hættu búna,
ef ráðning fréttamanna ætti
að vera háð ákvörðunum yf-
irstjómar, sem er skipuð á
tveggja ára fresti og sem
telja má líklegt, að yrði
meira og minna háð pólitísk-
‘) Málsgreinin hl.jóðar svo: „At-
\i n numó 1 aráö I i.e rra skipar cnn-
frcmur aðra starfsmcnn (aðra en
yiirstjórnina, sem rætt er um sér-
staklega) við útvarpsstöðina, eftir
því sem þörf krefur og ákveður
laun þeirra að fengnum tillögum
út varpsstjóra“.
um umskiftum í landinu.
3. Að hann telur manni
þeim, útvarpsstjóra, sem
samkvæmt ákvæðum 5. gr.
varpslaganna er falið að ann-
ast allt, er lýtur að umsjón
og rekstri útvarpsins, beri
eðlilegur og sjálfsagður rétt-
ur til þess, að gera tillögur
um það, hverjir skuli vinna
á hans ágyrgð dagleg störf
við útvarpið.
4. Að reynsla sú, er fæst og
reglur þær, er skapast um
fréttastarfið, verði því aðeins
til fulls hagnýtar, að starfs-
mannaval á fréttastofu og
dagleg umsjón með frétta-
starfinu sé ekki háð tíðum
umskiftum í yfirstjórn stofn.
unarinnar.
í umræðum þeim, sem orðið
hafa um þessi mál, hefir komið
fram það álit allra flokka, að
útvarpinu, og ekki sízt frétta-
stofunni, beri að starfa hlut-
laust. Sá skilningur þarf að
verða rótgróinn hjá öllum mönn
um í landinu. Af öllu því, sem
horfir til þrifnaðar og- íarsæld-
ar fyrir stofnunina, verður
einskis fremur óskað en þess,
að allir flokkar verði sammála
um að leita í einlægni þeirra
úrræða, sem skapa Ríkisútvarp-
inu þá sérstöðu, að það verði
ávalt óháð pólitískum átökum
og stj órnmálaumskiftum í land-
mu..
Reykjavík, 10. apríl 1934.
Jónas Þorbergsson.
KEL VIN-DIESEL
\ -
er öruggur, sparneytinn, þögull, sterkur, ávalt viss í gang, andófið öruggt,
og skiftingin endist 20—30 ár, eins og mótorinn.
Skifting
“ISI?
í-eykir aldrei
trygging fyrir
orku og
sparnaði.
\ gangráður og eldsneytisdæla
„Kelvin" gangsetning
Kelvin-Diesel brennir hráolíu, 170 gr. á ha. á klst. og reykir aldrei. Ein (1)
tunna smurolía dugar á meðan mótorinn brennir 100 tunnum af hráolíu og er ekki
blandað saman.
Kelvin-Diesel hefir tiltölulega lítinn snúningshraða, sveifarásinn er mjög sver
og í fullkomnu jafnvægi.
Kelvin-Diesel veldur ekki „fumi“ eða áhyggjum; enginn titringur; enginn
hávaði. —
Kelvin-Diesel er notaður alstaðar þar, sem raest á reynir, svo sem í hafn-
sögubáta og fiskibáta við hinar hættulegu strendur Skotlands.
ÓLAFUR EINARSSON
Vesturgötu 53 B
REYKJA VI K
Símar: 4340, 4940