Nýja dagblaðið - 21.04.1934, Blaðsíða 1
IDAG
Sólaruppkoma kl. 4.40.
Sólarlag kl. 8.16.
Flóð árdegis kl. 10,25.
Flóð síðdegis kl. 10.55.
19. víðavanéshlaup
Iþróttafélags Reykjavíkur
Leiðangursmennirnir dönsku,
Dr. Nielsen og Milthers og Jó-
hannes Áskelsson náttúrufrœð-
ingur, fóru frá Vik I Mýrdal
á sumardaginn fyrsta áleiðis
austur i Fljótshverfi.
Veðurspá: Stinningskaldi á norð-
an og bjartviðri.
Söfn, Bkrlfstofux o. IL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
Alþýðubókasafnið ...... opið 10-10
Landsbankinn .... opinn kl. 10-1
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-1
Útvegsbankinn .... opinn kl. 10-1
Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7V£
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan ...... opin 10-5
Landssíminn ........... opinn 8-9
Skriístofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél..... Skrifst.t 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufél 9-12 og 1-6
Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda
opið 10—12 og 1—4
Skipaútg. ríkisin» opin 9-12 og 1-4
Eimskipafélagið ............opið 9-4
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Skrifst. bæjarins .... opnar 10-12
Skrifst. lögreglustj.....opin 10-12
Skrifst. iögmanns .... opin 10-12
Skrifst. tolistjóra .... opin 10-12
Tryggingnrst. ríkisins 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Ríkisféhirðir ........... opiö 10-2
Skipaskoðunar og skráningast.
ríkisins 10-12 og 1-6
Baðhús Reykjavíkur .... opið 8-8
Lögregluvarðst opin allan sólarhr.
Heimsóknartiml sjúkrahúaa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugamesspítali ....... kl. Yiy^l
Vífilstaðaliælið 12^2-1% og 3%-4y%
Kieppur ................. kl. 1-5
Fæðingarh., Eirlksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar..................kl. 3-5
Sjúkrahús Hvitabandsins .... 2-4
Næturvörður í Laugavegs- og Ing-
ólfs-apóteki.
Næturlæknir Kristinn Björnsson,
Stýrimannastíg 7. Sími 4604.
Skemmtanir og samkomnr:
G.-T.-húsið: S. G. T. Eldri dans-
arnir.
Iðnó: Skemmtun í. V. kl. 8%.
Samgöngur og póstferðir:
Island frá útlöndum.
Ðagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
18,45 Barnatími (Steingr. Arason).
19,10 Veðurfrcgnir. Tillcynningar.
19,25 Tónleikar (Útvarpstríóið).
19,50 Tónleikar. Auglýsingar. 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Upp-
lestur (Guðmundur Kamban). 21,00
Einsöngur Gunnar Pálsson. —
Danslög til ki. 24.
Sfuiar Nýja dagblaðsfns:
Ritstjóri: 4873
Fréttaritari: 2353
Áfgr. og augl.: 2823
Borgfirðingar vinna glæsilegan sigur. — Bjarni Bjarna-
son verður fyrstur að markinu. Hleypur hann vegalengd-
ina á 13 mín. 35,2 sek. — íþróttafélag Borgfirðinga hlýt-
ur 19 stig, K. R. 41 stig og í. K. 68 stlg.
Á sumardaginn fyrsta var
háð 19. víðavangshlaup í-
þróttafélags Reykjavíkur. Hef-
ir það jafnan þótt merkilegur
viðburður í íþróttalífi bæjar-
ins, og þykir hlýða að skýra
þróttafélagi Borgfirðinga (7
menn), Knattspymufél. Rvíkur
(10 menn) og Iþróttafélagi
Kjósarsýslu (5 menn).
Er þetta annað árið, sem í-
þróttafélag Borgfirðinga tekur
Keppendur í víðavangshlaupinu frá íþróttafélagi Borgfirðinga.
Talið frá vinstri til hægri: Jón Guðmundsson, Snartastöðum, Ingi-
mundur Jónsson, Fossatúni, Björn Ólafsson, Sarpi, Bjarni Bjarna-
son, Múlastöðum, Gísli Albertsson, Hesti, Hjörleifur Vilhjálmsson,
Tungufelli, Sveinbjöm þorsteinsson, Hurðarbaki.
frá hinum fyrri hlaupum nokk-
uð, um leið og sagt er frá
þeim niðurstöðum er urðu á
þessu síðasta hlaupi.
Fyrst var hlaupið árið 1916,
og voru þátttakendur aðeins úr
Iþróttafélagi Reykjavíkur, og
svo var það fyrstu 4 árin. Ár-
ið 1920 bættist Glímufélagið
Ármann við og ungmennafé-
lögin „Drengur“ og „Aftureld-
ing“ úr Kjósarsýslu og síðar-
meir bættust fleiri félög í hóp-
inn. — Þessi ár var hlaupin
sama leið og nú var hlaupin, í
öllum aðalatriðum. Árin 1924
til 1925 var breytt um hlaup-
leiðina á þann hátt, að líiaup-
ið var niður Hverfisgötu, og
endað á Lækjartorgi, og árið
eftir endaði hlaupið við dyr Is-
landsbanka.
Árið 1927 var hlaupið þreytt
á nýjum skeiðvelli. Þá var
hlaupið hafið frá Iþróttavellin-
um, og var hlaupið inn á hann
aftur, — sást þá gerla til
hlauparanna alla leið þaðan
af vellinum. Var öllum kepp-
endum leiðin ókunnug og því
ekki hægt að segja að einn
stæði betur að vígi en annar-
Að þessu sinni voru kepp-
endur frá þremur félögum: 1-
þátt í hlaupinu sem sjálfstætt
félag. Áður kepptu Borgfirðing-
ar af liálfu íþróttafélaga hér í
Reykjavík, er þeir tóku þátt í
hlaupinu og voru oft í fremstu
röð.
Hlaupið var hafið frá dyi’um
Alþingishússins kl. rúmlega
tvö, og er hlauparamir voru
horfnir sjónum manna suður
Laufásveginn, þyrptist mann-
fjöldinn yfir í Austurstræti og
Bankastræti, og fylltist allt þar
á svipstundu nema braut sú,
er haldið var opinni fyrir
hlauparana.
Fyrstur að marki var Bjarni
Bjarnason frá í. B.; hraði
13 mín. 35,2 sek. Næstur var
Sverrir Jóhannesson frá 1. R.,
hraði 13 mín. 38,9 sek. og
þriðji í röðinni Jón Guðmunds-
son frá 1. B., hraði 13 mín.
50,3 sek. Voru þessir þrír
sæmdir verðlaunapeningum. —
Þá voru 4., 5. og 6. maður að
marki úr I. B. og vann það því
silfurbikar þann, er keppt var
um, með 19 stigum. K. R. átti
2., 7., 9., 11. og 12. mann og
fékk 41 stig, en í. K. átti 8.,
10., 15., 17. og 18 mann og
fékk 68 stig.
Gísli Albertsson frá í. B.,
Framh. á 4. síðu.
Yatnajökulsförin
Frásögn Guðmundar Einarssonar frá Miðdal
Guðmundur Einarsson frá
Miðdal og förunautar hans, að
undanteknum Jóhannesi Ás-
kellssyni, komu í fyrrakvöld til
Reykjavíkur úr leiðangrinum
til eldstöðvanna. Jóhannes
snéri við í Vík í Mýrdal, en
]>ai' mættu þeir félagar leiðang-
ursmönnunum dönsku, og fór
hann með þeim í nýjan leið-
angur til eldstöðvanna, eftir
beiðni þeirra.
Útvarpið hefir átt viðtal við
Guðmund og skýrir hann þann-
ig frá:
„Leiðangursmenn lögðu af
stað héðan úr Reykjavík und-
ir eins og þeir álitu fært að
komast í námunda við gos-
stöðvarnar. Leit þá út fyrir
staðviðri og vegurinn austur
var orðinn bílfær, að undan-
teknum nokkrum hluta Mýr-
dalssands.
Leiðangursmenn höfðu átt
tal við Hannes bónda á Núps-
stað og hafði hann heitið að
lána þeim menn og hesta til
þess að flytja farangur þeirra
upp að jöklinum.
Þegar austur að Núpstað
kom 10. þ. m., var allt undir-
búið fyrir jökulförina og lagt
af stað snemma að morgni þess
11. Var þá haldið inn að jökl-
inum meðfram Djúpá. Snjór
var í giljum og víða umbrota-
færð. í ferð þessa réðust þeir
Eyjólfur sonur Hannesar og
Jón Jónsson frá Rauðabergi-
I Djúpárbotnum
Um nónbil voru leiðangurs-
mennirnir staddir á að gizka 1
20 km. frá jökulröndinni, en
þar var búist við að ráðast til
uppgöngu, skammt vestan við
Hágöngui'. Þar sneri Hannes
aftur með hestana, en hin sex
héldu áfram með farangurinn á
tveim skíðasleðum. Gengu leið-
angursmenn á skíðum og mið-
aði vel, því skíðafæri var gott.
Um kveldið voru leiðangurs-
mennirnir við Djúpárbotna við
vesturenda Langaskers, alveg
upp við jökulbrún, og höfðu þá
verið 12 stundir á ferðinni. Þar
var tjaldað stóru tjaldi og bú-
ið um það sem bezt mátti, því
þar átti að geyma þann far-
angur, sem ekki yrði fluttur á
jökulinn. Við Djúpárbotna er
með afbrigðum fagurt landslag,
fellur Djúpá þar í hrikalegum
giljum og mörgum fossum
meðfram Langaskeri og jökul-
brúninni, en Hágöngur gnæfa í
norðri upp úr jöklinum, og er
hann þar mjög' úfinn og
sprunginn.
Lag’t á jökulinn
Að morgni þess 12. var enn
búið á sleðana og var á hvor-
um þeirra 60—70 kg. af far-
angri.
Veður var hið bezta, hæg
norðaustanátt og bjartviðri og
8 stiga frost. Var nú leiðin
upp á jökulinn valin og haldið
norðvestan við Hágöngur. Þeg-
ar kom í hæð við Hágöngur,
bar gosmökkinn hátt á loft
norðaustan við svonefndar
Geirvörtur, sem standa innar
upp úr jöklinum. Engin töf
varð að jökulsprungum við
uppgönguna á jökulinn, en þeg-
ar á daginn leið varð hiti nær
óþolandi og gengu menn fá-
klæddir.
Norðanvert við Geii*vörtur
snéru þeir Jón og Eyjólfur
aftur til aðaltjaldsins, en hin
fjögur, Guðmundur, Jóliannes,
Sveinn bróðir Guðmundar og
Lydie Zeitner héldu áfram. Kl.
19 <4 um kvöldið var tjaldað
á jöklinum norðaustanvert við
Geirvörtur. Var gosmokkurinn
þá allgreinilegur og virtist eigi
allfjarri.
Gengið á Búrfell
Alllangt norðaustur af Geir-
vörtum stendur fjallsgnýpa
upp úr jöklinum. Ber hana all-
hátt yfir jökulinn, og var til-
valið að ganga á hana, til þess
að athuga leiðina fyrir næsta
dag. Gekk Guðmundur á gnýpu
þessa um kvöldið og sá inn til
gosstöðvanna, og bar þó mikla
jökulbungu á milli. Var jökul-
bungan þakin vikri og sandi og
kolsvört að sjá. Suðaustan við
gnýpuna virðist vera gamall
gígur og standa rendur hans
upp úr jöklinum að vestan og
norðan, en að austan hefir
hann fyllst af jökli. Síðar, er
þetta var fært í tal við Hann-
es á Núpstað, fullyrti hann að
gosið 1903 hefði verið þar
undir gnýpunni. Sá hann það
Framhald á 4. síðu.