Nýja dagblaðið - 21.04.1934, Blaðsíða 4
4
N Ý 3 A
DAGBLAÐIÐ
Annáll
Skipafréttir. Gullfoss fór frá
Kaupm.höfn í gœr á leið til Leith.
Goðafoss kom til Siglufjarðar í
gœr um hádegi. Brúarfoss fór til
útlanda í gærkvöldi kl. 10. Detti-
loss kom til Hamborgar í fyrri-
nótt. Lagarfoss er í Leith. Selfoss
er á leið til Vestm.eyja frá Leith.
Súðin kom til pingeyrar kl. 12 í
gœrkvöidi.
Vel væri, að þeir sem eiga fána-
stengur, dragi ísl. fánann að
hún á morgun.
Mélverkasýning Finns Jónsson-
ar er opin daglega í Austurstr.
10 (yfir Braunsverzlun).
Nýlétin er Ólöf Jónsdóttir hús-
íreyja að Hrísbrú í Mosfellssveit,
kona Andrésar Ólafssonar bónda
þar. Banamein hennar varlungna-
bóiga. Ólöf var góð kona og vel
látin af öllum, er kynntust henni.
Hún verður jarðsett í dag að
Mosfelli, hinum forna kirkjustað
Mosfellinga.
Franskur togarí kom inn í gær
til að fá sér kol og salt.
Suðurland kom frá Breiðafirði í
fyrrakvöld. Fór áleiðis til Borgar-
ness kl. 8 í gærmorgun.
Kolasklp til Kol & Salt og fleiri
félaga, kom í gær.
Franskur tooari, sem rakst á
grunn á Bæjarskipseyri (út af
Sandgerði), fyrir nokkru síðan,
var tekin upp í Slippinn á sum-
ardaginn fyrsta til viðgerðar.
Mun það vera stærsta skipið, sem
enn hefir verið tekið þar upp.
Af veiðum komu í gær togar-
amir Geir, Skallagrimur og Gull-
toppur.
Hjónaefni, Á sumardaginn fyrsta
opinberuðu trúlofun sína ungfrú
Stefanía þorsteinsdóttir Mímisveg
ö og Halldór Halldórsson gjald-
keri í Brunabótafélagi íslands, tii
heimilis á Ljósvallagötu 32.
Stjóm íslenzku vikunnar vill
minna framleiðendur og verzlanir
hér í bænum á islenzku vikuna,
er hefst á morgun, og er þess
vænst, að hver og einn geri sitt
til að gera hana á sem fjölbreyttr
astan og myndarlegastan hátt úr
garði.
Fró Akureyrl 17./4. Fyrir fundi
bæjarstjómar á Akureyri, nú
nýiega, lá erindi frá Akureyrar-
úeild A. S. V., með áskorun um
að hún iáti í vor gera leikvöll
lianda börnum á Eiðsvelli á Odd-
eyri. Málið fékk góðar undirtekt-
ir og var því vísað til skólanefnd-
ar og barnaverndarnefndar til
undirbúnings. Á sama fundi voru
kosin í bamaverndamefnd: Krist-
björg Jónatansdóttir, kennari for-
maður, Snorri Sigfússon, skólastj.,
sr. Friðrik Rafnar, Hannes Magn-
ússon kennari og frú Helga Sig-
iusdóttir. Til vara voru kosin Stein-
grímur Matthíasson læknir og fni
Álfheiður Einarsdóttir. Draugalest-
in var leikin um miðjan mánuðinn
í 5. og síðasta sinn. Leikurinn hef-
ir þótt takast vel og fékk góðar
viðtökur. Framkvæmdarstjóri, leik-
sviðsstjóri og leiktjaldamálari var
Freymóður Jóhannsson.
Sýslufundur Eyfirðinga stendur
yfir hér þessa dagana. Sýslunefnd-
armennirnir, 12 að tölu, héldu
oddvita sínum, Steingrími sýslu-
manni Jónssyni og fjölskyldu hans
samsæti síðastliðið laugardags-
kvöld, með því að hann lætur nú
af embætti. Samsætið var haldið
að Hótel Akureyri og stóð fram á
nótt. Aðalræður fyrir sýslumanní
fluttu þórarinn hreppstjóri Eldjám
að Tjöm og Páll hreppstjóri Bergs
son í Hrísey, en Davíð hreppstjóri
Jónsson á Kroppi flutti honum
kvæði. Ýmsir aðrir tóku til máls,
auk sýslumanns sjálfs, og var sam-
sætið hið ánægjulegasta. — FÚ.
Úr verstöðvunum. í Keflavík hef-
ir verið tregur afli síðustu daga.
Bátar, sem bezt hafa aflað, hafa
fengið 25—30 skpd. á dag, en með-
al afli hefir verið 14—16 skpd.
Frá Keflavík ganga rúmlega 20
bátar til fiskjar. — í Höfnum hefir
afli ‘verið mjög mikill og bátar
tví- og þríróið flesta daga. Fiskur
mjög skammt sóttur. Er afli orð-
inn hálft annað hundrað skpd. á
bát síðan á skírdag, en rúm 200
skpd. siðan byrjað var að róa. Frá
Höfnum ganga 12 trillubátar og
einn vélbátur. — í Grindavfk hafa
vorið mjög góðai- gænir síðan á
skírdag og mokafli daglega, og er
afli orðinn frá 100—250 skpd. Síð-
ustu daga er mikill síldarafli (Skv.
útvarpsfréttum).
Frá Siylufirði. — Á bæjar-
stjórnarfundi 14. þ. m. var samþ.
að „Anleggið" svonefnda skyldi
leigt Kristjáni Ásgrímssyni til 3ja
ára gegn 4640 króna ársleigu, og að
Helga Hafliðasyni skyldi leigð
bryggjan norðan við Ríkisverk-
smiðjuna til eins árs gegn 1800
króna leigu. Samþykkt var að
leita láns til fjósbyggingar á Hóli.
Samþykkt var að félagar Sjúkra-
samlagsins fái ljóslækningar ódýr-
ar en aðrir, afsláttur nemur 10 af
hundraði. Kosnir voru 5 menn inn-
an bæjarstjómar til þess að at-
huga skilyrði til Ráðhúsbyggingar.
Skattanefnd á Siglufirði hefir
lokið störfum. Skattgreiðendur eru
600. Skattskyldar tekjur 937.800 kr.
Tekjuskattur 15.786 kr. Skuldlaus-
ar eignir 2.247.400 kr. Eignaskatt-
ur 2878 kr. og skattur samtals
18663 kr. — FÚ.
Frá Hafnarfirði 17/4. Tii Hafn-
erfjarðar komu af veiðum í morg-
un og í dag togararnir Sviði með
109 föt lifrar, Kópur með 70 föt, og
Júní með 43. Júní kom aðallega
vegna bilunar; hafði gálgi brotnað.
Línuveiðarinn Örn kom af veiðum
með 80 skippund fiskjar. þá kom
vélbáturinri Víkingur frá Akranesi
til að sækja salt, og norska flutn-
ingaskipið Mímir, til að sækja salt
sem það svo iór með áleiðis til
Yestmannaeyja. — FÚ.
Fré Sauðárkrókl 15/4. Fimmtán-
hundruð krónur veitti aðalfundur
Sparisjóðs Sauðárkróks í gær til
þess að stofna sjóð til minningar
um Kristján Blöndal, og 1200 kr.
heiðurslaun til síra Hálfdáns Guð-
jiínssonar, sem gekk úr stjórninni
á fundinum. Báðar þessar veiting-
ar voru af varasjóði, og ennfremur
voru veittar 5000 kr. til hafnar-
gerðar á Sauðárkróki.
Rekstursógóði Sparisjóðsins sið-
astliðið ár, var kr. 7.904.67. Vara-
sjóður var kr. 115.016.35 við árslok
og innstæða kr. 510.790.45.
1 Skagafirði hefir orðið fiskvart
aðeins út af Sauðárkróki og Hofs-
ósi.
Framboð. Alþýðublaðið skýrir
frá því, að þessir frambjóðendur
lia.fi verið ákveðnir af hálfu Al-
þýðuflokksins: Sigfús Sigurhjart-
arson, stórtemplar, í Gullbringu-
og Kjósarsýslu, Vilmundur Jóns-
son landlæknir, í Norður-ísafjarð-
arsýslu, sr. Eiríkur Helgason, í
Austur-Skaftafellssýslu, Haraldur
Guðmundsson bankastjóri, á Seyð-
isfirði og í Ámessýslu sr. Ingimar
Jónsson og Jón Guðlaugsson bif-
reiðarstjóri.
Kennaraskóllnn. Próf standa nú
yfir í Kennaraskólanum og eru
þeir með allra flesta móti, er
undir prófin ganga. Aukadeild
hefir starfað í skólanum í vetur
fyrir próflausa farkennara og
aðra, er fengizt hafa við kennslu,
og ganga nú undir kennarapróf.
Nýja reiðhjólaverkstæðið
Laugaveg 79
gerir við reiðhjól. grammófóna og- barnavagna.
Öll vinna unnin aí tagmanni.
Vfðavangshlaupið
Vatnajðkulsfttrin
Framh. af 1. síðu.
Framh. af 1. síðu.
sem varð 5. maður að marki,
hljóp allmikinn krók er þeir
hlupu yfir túnin, og hefði að
dómi ýmsra orðið sigurvegar-
anum hættulegur ef ekki hefði
tekizt svo óheppilega til.
Til fróðleiks skal hér getið
um hraða nokkurra þeirra
manna er hlaupið hafa skeið
þetta á undanfömum árum:
1922: Guðjón Júlíusson (A.
og D.) 13 mín. 19,5 sek.
1923: Guðjón Júlíusson (A.
og D) 12 mín. 59,4 sek.
1925: Hallgrímur Jónsson
(Á.) 13 mín. 35,8 sek.
1926: Geir Gígja (K. R.)
12 mín. 44,0 sek.
1927: Geir Gígja (K. R.) 18
mín. 3,0 sek.
1929: Jón Þórðarson (K. R.)
13 mín. 28,5 sek.
1933: Bjarni Bjarnason (I.
B.) 13 mín. 26,6 sek.
1934: Bjarni Bjarnason (í.
B.) 13 mín. 35,2 sek.
Alls taka 60 menn kennarapróf,
cn bekkjarpróf 44. Auk þess ganga
6 stúdentar undir kennarapróf.
Sýslufundi Árncsinga er nýlega
lokiö. Helztu fjárveitingar voru:
Tii viöhalds og lagningu nýrra
vega 20 þús. kr. Til heilbrigðis-
niála 15 þús. kr. Til styrktar bætt-
um búnaðarháttum 1500 kr. Víða
í Arnessýslu eru nú byrjuð vor-
yrkjustörf. Flóaáveitan hefir verið
opnuð. Fénaðarhöld eru góð og
miklu minna um veikindi í sauð-
fé mi en í fyrra. — FÚ.
Stjórn Dýraverndunarfélags ís-
lands hefir ákveðið að stofna sex
bamadcildir iiér í liænum og um-
iiverfi: 1. fyrir Laugarnesveg og
umliverfi, 2. Sogamýri, 3, Skild-
inganes og Grímsstaðaholt, 4. Sel-
tjarnarnes, 5. Austurbæjarskólann
og 6. Miðbæjarskólann. Ætlast er
til að yfir hverri deild verði 1—2
gæzlumenn úr kennarastétt, eftir
atvikum, og 1—2 utan þeirrar stétt
ar. Stjórn hverrar deildar skipa
börnin sjálf. — Sennilega verður
Miðbæjar- og Austurbæjarskóia-
deildunum skift í sveitir eftir um-
hverfum í bænum. — Tilgangurinn
er að vekja áhuga barnanna fyrir
dýraverndunarmálum o. s. frv.
Skólastj. barnaskólanna og kenn-
arar hafa heitið stuðningi sín-
um.
Hópur svissneskra vísindamanna
er i þann veginn að leggja upp í
6 mánaða rannsóknarferð til
Himalayafjallanna. Ætlun þeirra
er að gera landfræðilegar athug-
anir og uppdrætti af nokkrum
hluta þessa mikla fjallabálks, sem
enn er lítt kannaður.
Bílslys aukast. Eftir nýútkomn-
um skýrslum frá ensku stjórninni
létust síðastliðið ár 7202 menn af
völdum bílslysa í Englandi, og er
það 535 mönnum fleira en árið
áður. Á sama tíma slösuðust 216
þús. 328 menn og er það 978
mönnum fleira en árið 1932.
glöggleg-a af Lómagnúp. —
Stjömubjart var um nóttina
og blæjalogn, og var lagt af
stað til eldstöðvanna í birtingu
næsta dag.
A b«trmi eldgíguins
Þann dag (hinn 13.) varð
sleðunum ekki komið nema 4
stunda ferð sökum ösku og
vikurs á jöklinum. Voru þeir
þá skildir eftir og haldið áfram
með vistir til dagsins og geng-
ið hratt til eldstöðvanna. Veð-
ur var þá að breytast og leit
út fyrir austan byl. Eftir því
sem nær dró gígnum, varð
vikurruðningurinn stórfelldari
og var á að líta sem herfað
flag. Óttuðust menn þá sprung-
ur og tóku það ráð, að ganga
með línu á milli sín. Kl. 14
voru leiðangursmennirnir
komnir alveg á gígbarminn
vestanverðan, en þar var ekki
við vært sökum ösku og vik-
urs er dreif upp úr gígnum og
gosfýlu. Var því haldið suð-
austur méð gígbarminum 2—3
km., en þá var komið á þær
stöðvar, er mestan gufumökk
bar upp úr gígnum. Gosstrók-
arnir voru 3, mismunandi að
stærð, og þeyttust beint upp í
loft, þrátt fyrir vaxandi aust-
anstorm. Eldar sáust engir, en
sog og dynkir heyrðust annað
kastið. — Þar sem komist varð
tæpast á gígbrúnina var snjó-
hengja svo langt er sá niður í
gíginn eða á að gizka 20—80
metra. Lengra varð ekki séð
vegna gufu. Gosmekkirnir voru
að jafnaði um 500 metra á
hæð, en miðgosið komst þó
í allt að 1000 metra hæð, en
það er um það bil einn sext-
ándi hluti af hæð gosmökks-
ins eins og hann mældist hæst-
ur fyrstu gosdagana.
Erfitt er að lýsa þeim regin-
öflum, sem þama voru að
verki eða ummerkjum þeim,
sem þarna höfðu orðið á jökl-
inum. En Jóhannes Áskellsson
mun síðar segja frá jarðfræði-
legum athugunum þar á staðn-
um.
Eftir stutta viðdvöl á gíg-
barminum héldu leiðangurs-
mennirnir til baka og þegar
var eftir klukkustundarganga
til farangursins skall á stór-
hríð, svo að næsta erfitt var
að finna hann. Þegar búið var
að tjalda, var hlaðinn tvöfald-
ur snjógarður í kring um
tjaldið og hann styrktur með
sleðum og skíðum.
Næsta dag, þann 14., var
roflaus stórhríð, og stóð
stormurinn af eldsstöðvunum,
og buldi vikur og sandur á
tjaldinu. Var þá svo mikil veð-
urharka, að ekki varð komizt
• Ódýru m
auglýsingarnar.
íi
Kaup og sala
Lítið býli utan við bæimi
óskast keypt. Tilboð merkt
„Býli“ sendist á afgr. blaðsins
fyrir 25. þ. m.
rJfil sölu borð, stóll og har-
monikubeddi, með tækifæris-
verði. Uppl. Framnesveg 26 A
uppi.
SPAÐKJÖT
af úrvalsdilkum alltaf fyrir-
liggjandi. S. 1. S. — Sími 1080.
Dmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
_______Kaupfélagi Reykjavikur.
Hús og aðrar fasteignir tD
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Aðalstræti 9 B
opin kl. 11—12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
Nýtt eikarborð og fjórir
stólar til sölu með tækifæris-
vefði á Lindargötu 8 E.
Essexbifreið til sölu. A. v. á.
Sel heimfluttan húsdýraá-
burð. Valdemar Jónsson Hverf-
isgötu 41.
Húsuæði
Herbergi, helzt með hús-
gögnum og aðgangi að síma,
óskast nú þegar. Tilboð merkt
garðyrkjumaður, sendist Nýja
dagblaðinu.
Herbergi til leigu nú þegar
eða 14. maí fyrir einhleypa.
Uppl. í síma 2898 milli 7—8.
Lítil íbúð með öllum þægind-
um, óskast helzt strax eða 14.
maí í nýju húsi. Tilboð merkt
„50“ leggist inn á afgreiðslu
þessa blaðs.
Maður í fastri stöðu óskar
eftir tveim herbergjum og eld-
húsi í suður- eða vesturhluta
bæjarins. Tvennt í heimili.
Uppl. í síma 2211.
Tilkynningar
Tek að mér að búa til garða.
Sanngjarnt verð. — Alfred
Sehneider, Grafarholti (Land-
sími)
Menn teknir í þpónustu. Upp-
á Laugav. 64 uppi.
Lauritz Jörgensen málara-
meistari Vesturvallagötu 7 tek-
ur að sér allsk. skiltavinnu,
utan- og innanhúss málningar.
út úr tjaldinu, til þess að
sækja snjó í pottinn. Varð því
að skera gat á tjaldbotninn,
svo að innangengt yrði í vatns-
bólið. Um nóttina heyrðustgos-
dynkir og brennisteinsfýlan
var næstum óþolandi. Að
morgni þess 15. var vægara
veður, en þó nokkur snjógang-
ur. Lögðu leiðangursmennimir
þá á stað til byggða, og höfðu
vindinn í bakið. Færðin hafði
versnað að vestanverðu á jökl-
inum sökum öskudrifs, en þó
náðu leiðangursmenn til tjalds-
ins í Djúpárbotnum um kvöld-
ið, og heim til Núpstaðar
næsta dag“. — FÚ.