Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 03.05.1934, Qupperneq 1

Nýja dagblaðið - 03.05.1934, Qupperneq 1
MihIí Iwra l.i Ný og veiðisæl fiskislóð. Hvar eru Suðurkautar ? Vetrarvertíðin var ógæfta. söm og aflatreg allt fram að páskum. Þá brá til batnaðar um gæftir og aíli varð þá mjög mikill, einkum á vélbáta og línuveiðara. En það vár ekki fyr en í síðustu viku, að tog- araflotinn tók að veiða vel, og hefir veiði þeirra upp á síð- kastið verið með afbrigðum mikil. Uppgrip þessi hafa verið á svonefndum Suðurköntum, 35— 40 sjómílur*) vestur af Höfn- um og Miðnesi. Er þessi fiski- slóð mitt á milli tveggja gam- alla fiskimiða, svonefndra Norðurkanta og Eldeyjar- banka. Hafdýpið liggur þama eins og breiður fjörður til norðausturs í stefnu inn í norðanverðan Faxaflóa. Norð- urkantar eru allbreið jafn- slétta innst að sunnan við þennan djúphafsfjörð, þá taka við Suðurkantar en yzt við „íjörðinn“ sunnanverðan er svo Eldeyjarbanki. Hvar eru Suðurkantar? Vegalengdin frá Reykjavík til Suðurkanta er álíka og vest- ur undir Jökul. Frá Reykja- nesi er jafnlangt á Suður- kanta eins og austur á miðjan Selvogsbanka. Hið fræga fiskimið Halinn, (Djúpálsrif) er beint í norður frá Suðurköntum, og ber Lát- rabjarg í milli, en frá Látra- bjargi er að kalla jafnlangt á bæði þessi fiskimið, um 80 sjómílur. Hvenær hófst veiSi á Suð- urköntum? Það var ekki fyr en 1932 að íslenzkir togarar tóku að veiða á Suðurköntum. I fyrravor var aðeins aflað þar skamma stund og ekki fyr en í maí. En um fiskimergðina þar að þessu sinni má t. d. geta þess, að togarinn Skallagrímúr fékk 11- skiftan poka eftir 8 mínútna tog, en í öðrurh drætti sprengdi fiskþunginn vörpuna eftir aðeins 3 mínútna tog. Aflinn var þama mest vænn þorskur í hrygningu. Hvað er „poki“? — Hvað „lifrartunna1*? Venjulega munu vera í „poka“ 200 af vænum þorski og nemur það smálest af flött- * 1 km. = 0.52 sjómilur. Sjó- míla því tæpir 2 km. um fiski, en lifrin 1 tuxmu, þegar fiskur er lifrarmikill. Að þessu sinni þurfti Skalla- grimur 2(4 poka í hverja tunnu lifrar. Hvað er talinn góður afli á togara? Afli er talinn góður, þótt draga þurfi vörpu í hálfa til heila klukkustund. • Á venj ulegum botnvörpung- um, þar sem skipshöfnin er ekki því fjö.lmennari, mun þurfa allt að 12 kl.st. til þess að gera að sem nemur afla úr 16 pokum. Fer þetta þó eftir fiskstærð. Þarf lengri tíma þegar fiskur er smár, svo sem einatt er á vorin. Hvað geta togarar aflað á miklu dýpi? Dýpið á Suðurköntum er 60 til 80 faðmar, en smáeykst út á brúnina, þar sem það er allt að 100 faðmar. Þá dýpkar snögglega niður á 120—150 íaðma. Togarar fiska sjaldan á meira dýpi en 150 föðmum, en munu þó fyrir víst hafa togað á 180 föðmum eða jafn- vel nokkru dýpri sjó. Hver er fiskimergðin vlð botn? Dr. Bjarni Sæmundsson hefir í skýrslu sinni til stjómar- ráðsins, sem birt er í Andvara 1933, komizt að þeirri niður- stöðu, að miðað við toghraða Skallagríms og klukkustundar- tog, sem gefi 1 ppka, þ. e. 200 af stórþorski, eða 500 af vor- fiski, þá sé mergð þess fiskjar . sem veiðist, 1 þorskur á hverja 300 ferfaðma, sem varp_ an fer yfir, en 1 vorfiskur á hverja 120 ferfaðma. En þetta sé hið fæsta af fiski, sem um geti verið að ræða í þessu til- felli, því gera megi ráð fyrir, að meira eða minna sleppi af fiski þeim, sem í byrjun lendi á milli hleranna í vörpuopinu. Þá segir höf. frá því í þess- ari sömu skýrslu, að Guðm. Jónsson skipstj. á Skalagrími hafi eitt sinn fengið 8 poka í drætti á 3—4 mínútum við Hraunið á Selvogsbanka, það svari til, að verið hafi 1—IV2 fiskur á ferfaðm. Eftir þessu hefir fiskmergðin verið enn meiri að þessu sinni á Suður- köntum, þegar varpan sprakk af fiskþunganum eftir 3 mín., en í vörpu munu geta veiðst Framh. á 4. síðu. Heimwehr gegn Nazistum Er von stærri tíðínda? Framboð í Norður Þingeyjarsýslu Á Framsóknarfélagsfundi í Norður-Þingeyjarsýslu, sem haldinn var nokkru fyrir flokksþing í vetur, skýrði Björn Kristjánsson alþm. frá því, að hann sökum annríkis gæti ékki verið í framboði fyrir Framsóknarflokkinn á- fram þar í kjördæminu, og ósk- aði eftir, að flokksmenn í hér- aðinu veldu annan frambjóð- anda í sinn stað. í gær barst miðstjóminni skeyti um það, að Gísli Guð- mundsson ritstjóri hefði með prófkosningu verið ákveðinn frambjóðandi Framsóknar- flokksins í kjördæminu. He&tt blóð! London kl. 18, 2/5. FÚ. í gærkvöldi olli það miklum æsingum í París, að upphlaup mikið varð og bardagar á göt- um, sem byrjuðu með þeim hætti, að ráðizt var á nokkra vagnstjóra, sem voru að taka vagna sína út úr vagnaskýlun- um. Þegar einn af ökumönnun- um særðist, kölluðu félagar hans á lögregluna, og byrjuðu þá óeirðirnar fyrir alvöru. London kl. 18, 2/5. FÚ. Atvik konl íyrir í Insbruck í Austurríki í gær í sambandi við 1. maí hátíðahöldin, sem talið er líklegt að leitt geti til ágreinings milli ríkja. Hópur þýzkra nazista, sem staddir voru í Insbruck höfðu sam- komu á gildaskála einum í Ins- bruck, og fór hún fram með leyfi yfirvaida í bænum. Þýzki aðalkonsúllinn í borginni var meðal viðstaddra gesta og Stéttarhellur voru rifnar upp og notaðar sem skeyti. Óeirðar- mennirnir leituðu hælis í verkamannabústöðum nokkr- um, og rigndi þaðan grjóti, eldhúsáhöldum og blómapottum yfir höfuð hermannanna og lögreglumannanna. Því næst hófst skothríð með rifflum og skambyssum og særðist einn lögreglumaður. Var þá vara- varðlið kallað á vettvang, og með 2000 manna vopnaðri sveit tókst lögreglunni að lokum að hreinsa götumar og koma á umsát á byggingar þar sem ó- eirðarmennirnir höfðust við. Leitarljós voru notuð og alls- konar hernaðartæki, en þó leið allt til morguns áður en sumir óeirðamiennirnir gáfust upp. Voru þá húsakynni öll að lok- um rannsökuð og 20 rrienn handteknir. Verkamenn eru nú í dag að gera við byggingar þær, er skemmdust í bardög- unum. þátttakenda. Samkvæmi þetta var rofið af flokki austurrískra Heimwehrmanna, sem kröfðust þess, að tekin yrði niður flögg þau, er í hátíðasalnum voru og mynd af Hitler. Kallað var á lögregluna og neyddi hún Iieim- wehrmennina til þess að hvrefa á brott. Aðalkonsúll Þjóðverja hafði flöggin á burt með sér til í'æðismannsskrifstofunnar þýzku og lagði síðan fram mót- mælaskjal á þýzku sendiráðs- skrifstofunni í Wien. Nýtt ofsóknarsði í Þýzkaíandi London kl. 18, 2/5. FÚ. Þýzka stjórnin hefir gefið út tilskipun um það, að settur skuli á stofn dómstóll, og á- kveðnar þungar refsingar í því skyni, að yfirvinna „kommún- istahættuna“. Er dómstóll þessi gæddur valdi til þess, að kveða upp dauðadóma og fangelsis- vist með þrælkunarvinnu fyrir föðurlandssvik, og ber samkv. tilskipuninni að skilja orðið föðurlandssvik samkv1. áður út- gefinni tilskipun um það, að það skuli teljast föðurlands- svik, að aðhyllast Marxistiska stjórnmálastefnu eða lífsskoð- un og útbreiða slíkt. Þessi dórri- stóll verður rétthærri hæsta- rétti ríkisins í Leipzig og verð- ur dómsúrskurðum hans ekki áfrýjað til neins annars dóm- stóls. „Skaftfellingur" stöðvaður í gærkveldi Alþýðnsambandið leggnr bann á flutcing á brú- aretni íyrir hið opinbera, af því að atvinnumála- ráðherra hefír ekki samið við Alþýðusambandið um vegavinnukaup. Viðtal við Pálma Loftsson forstjóra, ‘Jón Baldvinsson forseta Alþýðusambands Islands og Þorstein Briem at- vinnumálaráðherra. Það hafði verið ákveðið að v/s. Skaftfellingur tæki í gær til flutnings austur til Víkur ca. 10 tonn af brúarefni, er ætlað var til brúarbyggingar á Kerlingardalsá. En í gær barst Pálma Lofts- syni framkv.stjóra Skipaút- gerðar ríkisins orð um það að Alþýðusambandið hefði lagt bann á framskipun áðumefndr- ar vöru. Hafði framkv.stjórinn tal af Jóni Baldvinssyni, sem er for- maður Alþýðusambandsins, og fékk frá honum skriflega yfir- lýsingu er staðfesti það er áð- ur hafði sagt verið urn þetta. ; Nýja dagblaðið hafði tal af Jóni Baldvinssyni og sagði hann svo frá, að í seinni hluta marzmánaðai' síðastliðinn, hefði nefnd manna úr Alþýðusam- bandinu, skipuð möimum víðs- vegar að af landinu, farið á . fund atvinnumálaráðherra með kröfur þær er sambandið vildi gera, og viljað fá atvinnumála- ráðherra til að semja um kauphæð þá, er gilda skyldi við opinbera vinnu, og annað fleira í sambandi við það. En ráð- herrann hafi enga samninga viljað gera. Hefði hann sagt, að samninga um þessi mál sæi hann ekki ástæðu til að gera fyr en hann hefði fengið frá sýslunefndum víðsvegar um land, samþykktir er þær kynnu að gera um kaupgjald við vegavinnu hver í sínu héraði, en slíkt gæti vitanlega ekki orðið fyr en langt væri komið fram á vor. Sagðist Jón Bald- vinsson hafa hringt til ráð- herrans í gærmorgun, áður en ákvörðun þessi var tekin, og sagt honum, að til þessara hluta yrði að taka úr því ekki fengizt gerðir samningar um kaupið. Nýja dagblaðið hafði síðan tal af Þorsteini Briem ráð- herra og var lítið á því að græða framyfir það sem upp- lýst hafði verið, nema helzt það, að skilja mátti á ráðherr- anum, að honum þætti krafa sú, er gerð hafði verið um 1 kr. og 20 aura kaup á kl.st. við vegavinnu og aðra opinbera vinnu, vera há. Sagði hann hið sarna og áður er getið um, að hann sæi ekki ástæðu til að gera samninga um þessi mál fyr en sýslunefndir hefðu gert sínar samþykktir í þessu efni. Virðist hér vera um mjög alvarlegan árekstur að ræða, hvemig svo sem atvinnumála- ráðherra tekst að greiða úr honum. 1

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.