Nýja dagblaðið - 03.05.1934, Qupperneq 4
4
H Ý J A
DAOBLABIÐ
1 DAG
Sólaruppkoma kl. 3,58.
Sólarlag kl. 8.54.
Flóð árdegis kl. 8,05.
Flóð síðdegis kL 8,30.
Veðurspá: Allhvass suðvestan. —
Skúraveöur.
Ljósatími hjóla og bifreiða 9,15—
3,40.
Sðtn, skrifstoíur o. íL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
pjóðminjasafnið ........ opið 1-3
Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3
pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
Alþýðubókasafnið opið 10-12 og 1-10
Landsb&nkinn ........ opinn 10-3
Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn opinn 10—12ogl—4
Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7*4
Pósthúsið: Bréfapóstst. . . opin 10-6
Bögglapóststofan ..... opin Í0-5
Landssíminn .......... opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél..... Skrifst.t 10-12 og 1-5
Samb. ísl. seunvinnufél, 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið .......... opið 9-6
Stjómarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Sölusamb. íal. fiskframleiðenda
opið 10—12 og 1—6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst lög'uanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Tryggingarst ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Bæjarþing kl. 10 í Bæjarþingsaln-
um.
Helmsóknartimi sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
Landakotsspítalinn ........ kl. 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12^-2
Vifilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2
Kleppur ................ kl. 1-5
Fæðingarh., Eiriksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar...................kl. 3-ð
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4
Næturvörður í Laugavegs- og Ing-
ólfs-apóteki.
Næturlæknir: Ólafur Helgason,
Ingólfsstr. 6. Sími 2128.
Samgöngur og póstferðir:
Drotning Alexandrine frá Færeyj-
nm og K.höfn.
Lyra til Færeyja og Bergen.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
Lesin dagskrá næstu viku. 19,25
Óákveðið. 19,50 Tónleikar. Auglýs-
ingar. 20,00 Klukkusláttur Fréttir.
20,30 Erindi: Um myndlist (Ami
Ólafsson cand. phil.). 21,05 Tón-
leikar: a) Útvarpshljómsveitin b)
Grammófónn: Lög eftir Joh.
Straus. c) Danslög.
Símar Nýja dagblaðsins:
Ritstjóri: 4373.
Fréttaritari: 2353.
Aigr. og augL: 2323.
Yerzlið
að öðru jötnu við þá
sem auglýsa í
Nýja dagblaðinu
Annáll
Skipafréttir. Gullfoss kom til
Önundaríjarðar í gærmorgun. —
Goðafoss fór frá Hull í gær á leið
til Hamborgar. Brúarfoss fór frá
K.höfn í íyrradag á leið til Leith.
Dettifoss fór frá Huli í fyrrakvöld
á leið til Vestm.eyja. Lagarfoss
er á Akureyri. Selfoss fór til út-
landa í gær. — Súðin lá í gær-
morgun veðurteppt á Gjögri, en
var ki. 3 á leið til Borðeyrar frá
Hólmavik. — Esja fór íramhjá
Hornafirði í gærmorgun. Gat ekki
íengið afgreiðslu sökum óveðurs.
Skaftfellingur fór í gærkvöldi á-
leiðis til Víkur og Vestmanna-
eyja með vörur.
Aí veiðurn kom togarinn Otur í
gær með 35 föt lifrar.
Frá jökulförunum. Eftir samtali
við Ilannes bónda á Núpstað í
gær, fréttist að engar fregnir
hefðu borizt frá jökulförunum
ennþá, og voru þeir þrír menn,
er þeir fengu til fylgdar við sig
upp að jöklinum, ókomnir. Veður
hefir án efa verið slæmt og má
því vænta að fylgdarmennimir
hafi fylgt þeim lengra en áætlað
var, og hafi þeir því orðið veður-
tepptir. En ekki þykir ástæða til
að óttast um þá, því allir voru
þeir mjög vel útbúnir.
Glímufélagið Ármann biður
drengi í 1. flokki að mæta á fim-
leikaæfingu i kvöld kl. 7 í mennta-
skólanum.
porsteinn í Laufási, sá er fyrst-
ur veiddi fisk í net í Vestmanna-
eyjum 1910, svo sem skýrt er frá
annarsstaðar í blaðinu, á heiður-
inn af tveim öðrum framkvæmd-
um, sem einnig mega kallast
hyrningarsteinar undir. vexti og
afkomu Eyjarskeggja. Hann lagði
þar fyrstur manna fiskilóð árið
1898, og útvegaði íyrstu hreyfi-
vélina í fiskibát í Vestm-eyjum.
Framsóknarmenn i Reykjavík
eru minntir á að gæta þess, að
nöfn þeirra standi á kjörskrá, sem
gildir fyrir næstk. alþingiskosn-
ingar og nú iiggur frammi á skrif-
stofu bæjarins.
Frá HæstaréttL í Hæstarétti á
moz'gun verða kveðnir upp dómar
í málunum: Réttvísin gegn Frið-
birni porkelssyni, og valdstjórnin
gegn Martin Muller. pessi mál
verða tekin til meðferðar: Kom-
múnistamálið. Hlutafélagið Sand-
gerði gegn Áma Einarssyni og
réttvisin og valdstjómin gegn
Verniiarði Eggertssyni.
Farþegar með Gullfossi í fyrra-
kvöld vestur og norður: Friðfinn-
ur Guðjónsson og frú, Lára Kol-
beins, Ragnh. Finnsdóttir, Ásgerð-
ur þorleifsdóttir, Ólína Vigfús-
dóttir, Guðjóna Guðjónsdóttir,
Gunnar Kristjánsson, pórhallur
Björnsson, Eysteinn Bjamason,
Margeir Jónsson, Sigurgeir Daní-
elsson, Haraldur Júlíusson, Stefán
Stefánsson, Hannes Jónasson, Jón
Sigtryggsson, Haraldur porvarðs-
son, Einar Kristjánsson, Jón Gísla-
son, Einar Olgeirsson, Gísli Frið-
linnsson Steingr. Einarsson, Lárus
Böðvarsson, Jón Bjamason, Sól-
veig Ásmundsdóttir, Sigríður Ax-
elsdóttir, Björn Sigtryggsson, Lár-
us Arnórsson, Stefán Vagnsson,
Ámi Jóhannsson, Gísli Gottskálks-
] son, Anna Stefánsdóttir, pórdís
porvarðsdóttir, Sig. Eggerz, Jón
Sigurðsson, Jón Sveinsson Gunnarl
Schram, Daníel Daníelsson, Torfi
Hjartarson, Stefán Stefánsson frá
Fagraskógi o. fl.
Frá Englandi. Fyrir skömmu
hófu 600 menn vinnu við hið
mikla skip Cunard-skipafélagsins,
sem verið hefir í smíðum í Clyde-
bank. Hefir ekkert verið unnið að
Uppgrípa-afli
á Suðurköntum
Framh. af 1. síðu.
allt að 20 pokar. Enda er það
haft eftir sjómönnum, „að
þarna þurfi ekki annað en
rétt að dýfa vörpunni í“. Og
einn togaraskipstjórinn gerði
þá athugun, að hann hefði
fengið sem nam einni lifrar-
tunnu fyrir hverja kl.st. frá
þvi er hann fór frá hafnar-
bakkanum og þar til er hann
kom þangað aftur utan af Suð-
urköntum. Er það mikill afli,
þegar þess er gætt, hve fiskur
er nú orðinn lifrarlítill.
Hver er viSátta landgnums-
ins?
Dr. Bjarni Sæmundsson skýr-
ir frá því í hinni merku bók
sinni, Fiskarnir, að landgrunn-
ið út að 100 faðma dýpi sé á-
móta mikið að víðáttu og land-
ið sjálft. Lögun þessa land-
grunns er merkilega lík lögun
landsins sjálfs, undantekning
helzt sú, að inn í það, út af
Skaptafellss., skerast nokkrir
„firðir“. Og ekki er dýpið
botnvörpunni til fyrirstöðu,
þótt farið sé út fyrir þessi
takmörk, svo sem áður er sagt,
þar eð toga má á 150 faðma
dýpi og jafnvel enn dýpri sjó.
En mælingum er það skammt
komið, að ekkert verður sagt
um það, hver sú víðátta er,
sem nútímaveiðitækni gæti
bjargast á fyrir dýptar sakir.
Hugmyndir um Uinaðar-
háttu og „náttúrur" nytja-
iiska til skamms tíma.
Fyrir tæpum mannsaldri boð-
aði gáfaður alþýðumaður þá
kenningu, að allur íslenzkur
þorskur væri gotinn og vaxinn
upp í þörunum umhverfis
Reykj anesskagann.
Um líkt leyti var því al-
mennt trúað af fiskimönnum,
að netafiskurinn við Faxaflóa
væri sérstakt kyn, sem ekki
væri annarsstaðar að finna.
Skúli Magnússon landfógeti
kom Hafnfirðingum á að nota
þorskanet árið 1720, það hafði
áður verið reynt með árangri
á Skagafirði. En það er ekki
fyr en 1910, að Þorsteinn
Jónsson útgerðarbóndi og nafn-
kunnur formaður í Laufási í
Vestmannaeyjum ríður á vaðið
og tekur að nota þorskanet
með árangri í Vestmannaeyj-
um.
Og ekki eru menn enn leidd
ir í allan sannleika.
Er það notaleg tilhugsun, að
við skulurn ekki aðeins eiga
lítt numið land, heldur einnig
lítt numið fiskisælt haf um-
hverfis landið.
Og engir skilja betur heldur
en einmitt þeir menn, sem 1
mest hafa unnið að því, að afla '
landsmönnum vísindalegrar |
þekkingar á þessu merkilega
byggingu skipsins síðan í desem-
ber 1931. Strax eftir að vinnan vai'
hafin, var bætt við nokkrum
hundruðum manna, svo nú vinna
yfir 1000 manns að skipsbygging-
unni. Mun það verða stærsta
skip í heimi. Lengd þess er 1018
fet.
Utgerð og veltufé
Framh. af S. síðu.
vegsmanna, og ekki sízt að því,
að ráð þeirra yfir framleiðslu-
tækjunum á sjó og landi verði
til frambúðar.
íhaldið vill skapa sjómanna-
stéttinni „forsjón", en ekki
brauð.
Verði íhaldsmönnum falið að
fara með völdin á Alþingi verð-
ur ekkert gert til þess að
tryggja yfirráð sjómannanna
sjálfra yfir framleiðslutækjum
og fisksölunni. Þvert á móti er
það alveg ljóst, að þá eiga þeir
sjómenn, sem nú hafa yfirráð
framleiðslutækja yfir höfði sér
margskonar ráðstafanir frá
hálfu íhaldsmanna, til þess að
hlutur þeirra verði rýrður og
ráðum þeirra yfir tækjunum
hnekkt, einkum ef batnar í ári
og gróðavænlegt reynist ,að
reka smáútgerð. Þótt lítið sé
um það rætt, vita kunnugir, að
eitt heitasta áhugamál íhalds-
manna er að fela á ný nokkr-
um útvöldum „forsjá“ í sjávar-
þorpum landsins.
í baráttunni fyrir bættri af-
komu og öryggi eiga sjó-
menn, smáútvegsmenn og
bændur eitt sameiginiegt
vígi — Framsóknarflokkinn.
Sjómenn og smáútvegsmenn
verða því að ganga í fylkingu
með bændum landsins og öðr-
um vinnandi mönnum og
tr.vggja sigur Framsóknar-
flokksins í kosningunum í vor.
Þá verður unnið að vemdun
þeirra réttinda og umbóta, sem
þegar eru fengnar og hiklaust
sótt fram til þess að bæta at-
vinnuskilyrði þeirra, sem að
framleiðslunni vinna.
Eysteinn Jónsson.
Húlsaumur
Tek að mér húlsaum í
mismunandi breiddum.
Alla Stefáns
Vesturg. 3 (2. hæðLiverpool)
Es. Suðurland
fer til Breiðafjarðar laugar-
daginn 5. þ. m. Viðkomu-
staðir samkvæmt áætlun.
Flutningi veitt móttaka
á föstudaginn 4. þ. m.
auðuga hafi, hve bagalega
skammt er komið þekkingunni
um lögmál þau, sem fiskigöng-
ur lúta og úrræðum þeim, sem
hafa mætti um að færa sér auð-
æfi hafsins í nyt, og hversu
um of eru skorin við nögl
framlög til þessara mikilsverðu
rannsókna, jafnvel í hlutfalli
við ýmsan annan tilkostnað.
Blaðið hefir átt tal við dr.
Bjarna Sæmundsson og Krist-
ján Bergsson forseta Fiskifé-
lagsins um ýms atriði sem vik-
ið er að hér að framan.
• Ódýrn £
auglýsingarnar.
Nýlegur bamavagn til sölu.
Uppl. á Njálsg. 39 B. Sími 2595.
Taða til sölu á 11 aura kg.
A. v. á.
Nokkrir klæðaskápar seljast
• fyrir 14. maí með sérstaylega
góðu verði. Uppl, í síma 2773.
HANGIKJÖT.
Úrvals hangikjöt af vænum
sauðum af Hólsfjöllum alltaf
fyrirliggjandi.
S. í. S. — Sími 1080.
Nýtt eikarborð og fjórir
stólar til sölu með tækifæris-
verði á Lindargötu 8 E.
Nitrophoska IG, algildur á-
burður, handhægasti áburður-
inn við alla nýrækt, garðrækt
og að auka sprettu. Kaupfélag
Reykjavíkur.
Saltfiskbúðin er vel birg af
nýjum fiski. Sími 2098.
Tilkynningar
Lauritz Jörgensen málara-
meistari Vesturvallagötu 7 tek-
ur að sér allsk. skiltavinnu,
utan- og innanhúss málningar.
Munið
lága vöruverðið á
TÝSGÖTU 3
Húsnæði
Til leigu 14. maí skemmti-
leg forstofustofa á Grundar-
stíg 8. Sími 4399.
Ódýrt lítið herbergi óskast
til að geyma í húsmuni. Tilboð
leggist á afgr. blaðsins, merkt
„Ódýrt“.
Herbergi til leigu á allra
skemmtilegasta stað í Miðbæn-
um. A. v. á.
. .Áður en þér flytjið í nýja
húsnæðið, skuluð þér láta
hreinsa eða lita dyra_ og
gluggatjöld, fatnað yðar eða
annað, sem þarf þess með, hjá
Nýju Efnalauginni. Sími 4263.
Þægileg og sólrík tveggja
herbergja íbúð er til leigu ut-
anvert í bænum, nú strax eða
14. maí. Tilboð óskast sent á
afgr. blaðsins, sem fyrst,
merkt „íbúð“.
Tapað-Fundið
Lopakembupoki og merktur
skíðasleði í óskilum á Skóla-
vörðustíg 9.
Það ráð hefir fundizt, og
skal almenningi gefið, að bezt
og öruggast sé að senda fatn-
að og annað til hreinsunar og
litunar í Nýju Efnalaugina.
Atyinna
Telpa óskast til að líta eftir
2ja ára gömlum dreng. Uppl. á
Freyjugötu 44, efri hæð.
Unglingur óskast til Hafnar-
fjarðar til að gæta barns á
þriðja ári. Uppl. gefur Lilja
Einarsdóttir Brunnstíg 8 Hafn-
arfirði eða Sig. Einarsson
Grundarst. 11 Rvík. Sími 2766.