Nýja dagblaðið - 04.05.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 04.05.1934, Blaðsíða 2
8 H ♦ J A DASBlaABIB Nú er kominn tími til þess að bera á Trollamjöl 1 Hljóiiisveit Reykjaviknr Illleyja- skemman sýnd í Iðnó í kvöld kl. 8. Sfðasta sinn Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag eftir kl. 1 Lokadansleikur laugardaginn 5. maí í Iðnó. Hefst kl. 9l/». Hljómsveit Aage Lorange. Bezta tækifæri til að skemmta sér vel. Aðgöngumiðar á Café Royal og í Iðnó á morgun kl. 4—9 e. h. St j órnin Kvennadeild Slysavarnarfélagsins Dax&sleik / heldur kvennadeild Slysavarnarfólags Islands að Hótel Borg kl. 9 i kvöld. Látið það ekki dragast lengur. Það drepur mosann og eykur sprettuna S.G.T. Aðgöngumiðar fást hjá Sigf. Eymundssyni, Veiðarfæra- verzluninni Geysir og við innganginn og kosta kr. 2,50 Skemmtinefndin H.f.Hamar, útibú Hafnarfirði Vesturgötu 22 & 24 — Sími 9141 framkvæmir 1. flokks vinnu við vélar og skip. Styðjið íslenzkan iðnað og menn! Eldri dansarnfr annaðkvöld, laugard. 5. maí. Bernburgsfl. spilar. 5 menn. Áskriftarlisti í G. T. húsinu. — Sími 3355. Valið spaðkjöt fyrirliggjandi hjá Aðg'öngum. verða að sækjast fvrir kl. 8 annaðkvöld. Síðasti dansleikurínn. Sambandi ísl. samvinnuf élaga Sími 1080 Skrif stoiur vorar verða fluttar 1 dag og á morgun 1 Hafnarhúsið við Geirsgötu (inngang- ur að norðanverðu). Vegna flutnínganna verða skrifstof' urnar ekki opnar frá hádegi 1 dag til mánudagsmorguns. Skipaútgerð rikisins. Beztu rakblöðin Þunn, flug- bíta. Raka hina skegg- sáru tilfinn- ingarlaust. - Kosta að- eins 25 aura Fást í nær öllúm verzlunum bæjarins. — Lagersími 2628. Pósthólf 373. Bæjarstjórnar- fundurinn Framh. af 1. síðu. það betri borgurum og auka enn á lóðabraskið í bænum'. Bæjarstjórnar meirihlutinn mun ætla að verja þesa ráða- breytni með því, að bærinn hagnist um lóðaverðið, því land- ið var tekið endurgjaldslaust. En því er til að svara, að til þess, að hægt sé að kom!a lóð- unum í verð, þarf bærinn að kosta til ýmsumi umþótum!, gatnagerð o. fl., svo allar líkur benda til, að gróðinn veröi minni en enginn. Þess má geta, að það Verður að teljast mjög vafasamt, hvort bæjarfélag getur hagnýtt sér eignarnámsheimild, þegar til þess liggja þær hvatir einftr, að útvega vissum mönnum lóð- ir með góðum skilyrðum1, en ekki hagsmunir eignamáms- taka. Jafnaðarmenn munu ekki hafa gert neinn ágreining um þetta í bæjarráðinu. En Fram- sóknarmenn eiga þar, eins og kunnugt er, engan fulitrúa. RAUÐA HÚSii). (Mark Ablett er eigandi Rauða hússins. Hann hefir alið upp frænda sinn, Cayley, og gert hann að ráðsmanni sínum og lögfræðilegum ráðunaut. Mark kveðst hafa feng ið bréf frá bróður sínum, Robert, sem dvalið hefir 15árí Astralíu, um að hann muni heimsækja hann um þrjú- leytið tiltekinn dag. En á þessum tíma finnst Robert myrtur á vinnustofu Marks, en sjálfur er Mark horfinn. Antony Gillingham kemur á sama tíma til Rauða hússins og hann ásetur sér ásamt öðrum manni, Bill Beverley, að komast fyrir þessa dularfullu atburði. Sagan lýsir eft- irgrennslunum þeirra, ýmsum æfintýrum, sem fyrir þá koma og hvers þeir verða vísari. Nú ræða þeir m. a. um fund á tösku, sem látin höfðu verið í föt þau, sem Mark hafði verið í umræddan dag. þeir höfðu séð Cayley fleygja töskunni i síki rétt hjá húsinu, að næturlagi. Mrs Norbury er ekkja. Mark hefir haft í hyggju að ganga að eiga dóttur hennar). þá ekki við slík tækifæri, kæri Watson, að skipta einnig um flibba? — Flibba, sagði Bill alveg steinhissa. — Flibba, sagði ég, minn kæri Watson. — Ég skil þetta ekki. — Þegar allt kemur til alls ert þú alltaf jafn ein- faldur, sagði Antony. — Afsakaðu Tony, ég meinti það ekki. — Hvernig • er það með flibbann? — Jú, taktu nú eftir! Það var enginn flibbi í tösk- unni. Skyrta, sokkar, bindi, — allt nema flibbi. Hvers- vegna? — Var það hann, sem þú varst að leita að í skápn- um, spurði Bill ákafur. — Það er rétt. „Hversvegna enginn flibbi“, spurði ég sjálfan mig. Af einni eða annari ástæðu hefir Cay- lay þótt nauðsynlegt að geyma allan fatnað Marks, ekki aðeins brúnu fötin, heldur líka allt sem hann hefir verið í og haft á sér um það leyti, sem morðið gerðist. En hann hafi ekki geymt flibbann. Hvers- vegna? Hafði hann kannske ekki tekið hann með vegna einhvers misgánings? Þessvegna leitaði ég í skápnum. Hann var ekki þar. Hafði hann látið hann vera kyrran af ásettu ráði? í slíku tilfelli — hvers- vegna — og hvar var hægt að finna hann? Auð- vitað byrjaði ég að spyrja sjálfan mig: „Hvar hefi ég nýlega séð flibba? Alveg einstakan flibba?“ Og mér kom til hugar — hvað heldurðu, Bill? Bill strauk ennið í ákafa og hristi höfuðið. — Spurðu mig ekki, Tony. Ég get ekki — æ, sjá- um til. Hann vatt höfðinu snögglega til. í körfunni þarna inni í herberginu, á neðra botninum. — Jú, einmitt. — En er það hann? — Sá sem heyrir til öðrum fötunum? Það veit ég ekki. Hvar annarsstaðar ætti hann að finnast? En ef svo væri, því þá að fleygja honum í þvott- inn eins og vengjulega og gera sér svo mikið erfiði við að fela allt hitt? Hversvegna? Hversvegna? Ilversvegna? Bill beit í munnstykkið á pípunni, en gat ekki fundið við þessu neina skýringu. En hvað sem öðru líður, er ég viss um eitt, sagði Antony og stóð skyndilega upp. Mark vissi á mánu- daginn að bróðir hans myndi koma hingað. Yfirheyrslan. Eftir að rannsóknardómarinn hafði fullnægt hin- um venjulegu formsatriðum í þessum þætti harmi- Jeiksins, ætlaði hann að taka nákvæmari skýrslu um! málið, er leggjast skyldi fyrir kviðdómínn. Vitnin áttu aftur að mæta fyrir réttinum og staðfesta að sá dauði væri Robert Ablett, bróðir eiganda Rauða hússins, Mark Ablett. Það hafði sýnt sig, að hann var mjög misheppnaður náungi, sem! dvaldi mikinn hluta æfi sinnar í Ástralíu og að hann með tilkynn- ingu, sem helzt mátti nefna hótunarbréf, hefði látið í ljós þá fyrirætlun sína, að heimsækja bróður sinn fyrgreindan dag. Það átti að staðfestast með vitnaframburði, hvernig honum var vísað inn á leik- svið þessa harmleiks — herbergi í Rauða húsinu, sem venjulega var nefnt „vinnustofan“ — og hvem- ig bróðir hans hafði líka komið inn í herbergið. Dómurinn varð síðan að mynda sér sína eigin skoð- un um það, sem gerðist þar inni. Þegar Mark Ablett hafði verið þar inni örfáar mínútur, samkvæmt vitnaframburðinum, hafði heyrzt skot, og þegar glugginn var brotinn upp — á að gizka fimm mSn- útum seinna — fannst dauður líkami Roberts Ablett liggjandi á gólfinu. Hvað Mark sjálfum við kom, hafði enginn séð hann frá þeirri stundu, sem hann gekk inn í herbergið, en samkvæmt vitnaframburð- inum var það upplýst, að Mark hafði á sama tíma nægilega mikla peninga á sér, til að fara hvert á land sem var og að maður, sem svaraði mjög til lýsingar á honum hafði sést á pallstéttinni við Stantons-járnbrautarstöðina, auðsjáanlega að bíða eftir 3,35-lestinni til London. Eins og dómurinn gat

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.