Nýja dagblaðið - 20.05.1934, Page 3

Nýja dagblaðið - 20.05.1934, Page 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 8 NÝJADAGBLAÐIÐ ITtgefandi: „Blaöaútgáfan h.f.“ Ritstjóri: Gísli Guðmundsson, Tjarnargötu 39 Sími 4245. Ritstjómarskrifstofur: Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. Aígr. og auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 12. Sími ?32.3, Áskriftargj. kr. 2,00 á mániiöi. í lausasölu 10 aura oint. Prentsmiöjan Acta. Vorinu seinkar Einhverjir verstu og sárustu ókostirnir við íslenzka veður- áttu eru vorkuldarnir. Og ein- i v er tilfinnanlegustu vonbrigð- i: eftir langan, dimman vetur, o. u sóllítil og nepjusvöl vor. Það er eðlilegt að vetrartím- íi.n sé kaldur og ömurlegur. Mönnum fimist það nær sjálf- sagt, og búa sig undir þvílíka veðuráttu. En um leið er litið hlakkandi hug til vors og sum- ardaga, til hlýrra tíma og bjartra, þegar mannssálin jafnt og lífræn náttúra vaknar til endumýjaðrar orku, frjó. magns og fjörs. Og enda þótt dutlungafullt tíðarfar sé ein- kenni nyrsta hluta tempraða beltisins í Atlantshafi, þá i'innst íbúum þessara svæða að með hækkandi sól og komnu sumri hljóti að fara hiti og gróður. I dag er hvítasunnudagur og mánuður af sumri. Enn er tíðin lík því sem oft er á ein- mánuði. Hvar sem græn strá stinga lágum kollum upp úr grassverðinum, anda svalir dagar og frostbitrar nætur á þau nepju dauðans. Brum- knappar trjánna, sem sýndu fyrstu merki vaxtar og lífs eru að verða dökkir af kali og kyrkingi. Suður í Danmörku baðar æska höfuðstaðarins sig í sól- hituðum öldum Eyrarsunds. Svo misjafnt skiptir nú móðir náttúra gæðum sínum á þessu vori. En á slíkum vorum sem þessu verður okkur kaupstað- arbúum tíðhugsað upp í sveitir og dali Islands. Kalt vor og gróðurlaust er einhver ískyggi- legasti vágestur íbúanna þar, manna og dýra. Undir hlýju þess eða hörku er komin líðan þeirra, afkoma og líf. Aldrei er bóndanum eins mikil þörf á nærgætni náttúrunnar eins og á vorin. Aldrei er bústofni hans baráttan við hungur og kulda eins erfið og þá. Og sjaldan sækja þunglyndi og áhyggjur eins fast á fátækt sveitaheimili sem þá, er allt leikur á óvissu um það, hvem- ig ræðst um líðan og líf fén- aðarins, sem ekki er einungis grundvöllur undir líðan þess og kjörum heldur líka bundinn f'ólkinu þelhlýjum böndum dag- legrar umönnunar og vináttu. En þrátt fyrir tvísýnu þá, um hag allan og framtíðar- horfur, sem úfin vorveðurátta og köld veldur, eru vonir mannshugsans sjaldan örari né áleitnari en á vorin. Gróðrinum Orímsvötn og Skeiðará Framh. af 2. síðu. Vatnajökli frá 15. jan. og fram á haust. Er talið að gosstaður- inn hafi verið 64° 24’ N og 17.5° W. eða á svipuðum stað og 1873. 13. marz byrjaði Skeiðará að vaxa og 21. s. m. var allur sandurinn frá Sandfelli í öræf- um og vestur að Lómagnúp í einu flóði svo aðeins örlaði á tvo malarhryggi, en síðan þvarr flóðið aftur án þess að jökullinn springi fram. 3. Árið 1892 varð hinsvegar stórkostlegt jökulhlaup án þess að vart yrði eldsumbrota. 4. 13. jan. 1897 hljóp vöxtur í Skeiðará og flæddi austan- verðan sandinn. Þá sprakk jök- ullinn og ruddist jakaröst fram farveg Skeiðarár út í sjó. 17. jan. var póstur frá Núpstað á leið austur yfir sandinn. Þegar kom austur undir Háöldu, heyr- ir hann dynk mikinn og sér hvar vatnsflóð ryðst fram und- an jöklinum og steypist fram yfir sandinn með feiknajaka- burði. Sneri hann við hið skjót- asta og komst með naumindum aftur yfir Núpsvötn. Viku síð- ar hættu tveir menn sér aftur austur á sandinn, og sáu vegs- ummerki. Hafði hlaupið skilið eftir jakahrönn 25 km. langa og 5—6 km. breiða fram eftir sandinum á Hörðuskriðu. Sum- ir jakarnir voru 20—25 m. há- ir.Á milli þessarar jakahrannar og Skeiðarár voru ekki færri en 6 minni jakahrannir. Ekki varð vart eldsumbrota í sambandi við hlaupið, en um haustið varð nokkurt öskufall á Suður- landi. 5. Árið 1903 varð stórfellt Skeiðarárhlaup. Hófst það 25. maí og eins og venjulega með vexti í Skeiðará. Var hún vax- andi í þrjá daga, en nóttina milli 27. og 28. sprakk jökull- inn fram og samtímis gaus upp eldmökkur úr Vatnajökli. Þegar jökullinn var að springa iek allt á reiðiskjálfi í öræfum, rúður sprungu og dunurnar heyrðust austur í Hornafjörð. Fram eftir farvegi Skeiðarár ruddust 10— 20 m. háir ísjakar. Fleiri jaka- hrannir ruddust fram yfir sandinn vestar — sú vestasta í'ram Sigurðarfitjaál. Bylgjugangur frá hlaupinu barst vestur með ströndjnni og hafði nær grandað stórum báti í Vík í Mýrdal. Aska frá gosi þessu barst um allt land að heita mátti og jafnvel til Noregs. 31. maí gekk Hannes á Núpsstað upp á Björninn og sá þá reykjar- mökk mikinn upp úr jöklinum norðvestur af Grænafjalli en og veðursældinni seinkar, en hvorttveggja kemur þó um síð- ir og vonandi nógu snemma til að firra stórvandræðum og tjóni. Og á vorin er sú trú sterkust, að hamingjudraumar mannanna um hin ýmsu hugð- arefni, nái að vaxa fram til veruleika undir sólaryl ókom- inna daga. H. J. norðaustur af Hágöngum, hjá hnúk einum, sem stendur þar upp úr jökli. — Hágöngur eru að sögn Hannesar tveir hnúkar h. u. b. vestur af Grænafjalli í krika uppi í jöklinum og er jökullaust að þeim að vestan. Á Islandskortum eru Hágöngur settar langt inn á jökul! 6. Árið 1910 var gos í Vatna- jökli en Skeiðará hljóp ekki. 1913 varð hinsvegar talsvert hlaup. 7. Síðasta hlaup Skeiðarár var svo 1922 um haustið sam- ! fara gosi og allmiklu öskufalli. ; Bar gosmökkinn þá yfir Þumal j frá Skaptafelli en við brún á ! Svínaf'ellsfjalli frá Sandfelli '■ séð. Bendir það til að gosið hafi orðið miklu austar heldur j en 1903 eða í Svíagíg eða | Grímsvötnum. T. d. um, hve ! stórvirkt þetta hlaup var, skál ■ ég geta þess, að frá ómunatíð hafði staðið grjóthæð, sem Há- alda nefndist uppi undir jökli austanhalt á sandinum. Var hún úr samlímdu hnullunga- grjóti og ca. 30 m. hærri held- ur en sandurinn umhverfis. Sunnan undir Háöldu hafði ver- ið reist sæluhús og töldu flestir því óhætt 1 skjóli hennar. En eftir þetta hlaup var Háalda gersamlega horfin og vottar nú ekki fyrir mishæð á sandinum þar sem hún var. Sumarið 1929 kom mikið vatn undan jöklinum nokkru austar þeim stað, sem Háalda var fyr. Jökullinn var ókyr eða ,,gangur“ í lionum eins og Skaptfellingar segja. Það sumar var símalína lögð yfir sandinn skammt frá jökli. Á Hörðu- skriðu var línan sett um 100 m. frá jökli um miðjan júlí, en 20. ágúst hafði jökulsporðurinn gengið fram á hana og brotið þrjá stólpa. Varð þá að færa línuna framar á þeim stað. Síð- an hafði jökullinn aftur færzt til baka um 20—30 m. sumarið 1932. Um haustið hjaðnaði ár- vöxturinn án þess að hlaup yrði. Á milli hlaupa smáhækkar jökullinn, en lækkar þegar þau brjótast fram. Ágætt mið á þykkt jökulsins er það, að eftir hlaupin sést Lómagnúpur langt niður í hlíðar frá Skaptafells- bæjunum, en þegar líður að hlaupi verður jökulbungan svo há, að varla yddir á gnúpinn, þar sem hann er hæstur. Sum- arið 1932 sást vel varðan á Lómagnúp yfir jökulinn, en að- eins yddi á fremsta kambinn frá Seli og Hæðum í Skapta- felli. Jökullinn er því búinn til hlaups hvenær sem vera skal, enda berast nú þær fregnir úr Öræfum, að Skeiðará sé orðin eins vatnsmikil og í mestu sumarhitum og getur því högg- ið riðið á hverju augnabliki. Ég get ekki lokið þessu er- indi án þess að bregða mér í anda austur yfir Skeiðará og heilsa upp á öræfinga og ör- æfasveitina. Frá Skaftafelli horfi ég vest- ur yfir Skeiðarársand. Allur austurjaðar sandsins er í flóði 8vo aðeins sóst á hábunguna og 4. frædslukvöld verður í Fríkirkjunni á annan í Hvítasunnu kl. 81/* EPNI: 1. Sigurður ísólfs leikur á orgel. 2. Kvennakór syngur undir stjórn Hallgr. Þorsteinssonar. 3. Síra Árni Sigurðsson: Erindi. 4. Sigurður ísólfs leikur á orgel. ft. Kvennakórinn syngur. Kort og' einstakir aðgöngumiðar fást við innganginn. B F. R. Getum selt iiffkkrar tómar trétunnur undan víni. Afengisverzlun ríkísins Nýtízku matarstellin falleg og úr ekta postulíni, eru komin aftur. Sama lága verðið. Seld í heilum stellum eða einstök stykki eftir vild. K, Einarsson & Björnsson llörðuskriðu fyrir vestan. Áin er úlfgrá af jökulleir, en smájakar sigla í hrönnum nið- ur farveginn. Allt í einu verð- ur vábrestur svo jörðin titrar og rúðurnar nötra. Stór spilda hefir rifnað framan af jöklin- um. Nú lyftist hún upp af óg'- urlegum vatnaflaumi, steypist fram yfir sig' og brotnar í hundruð mola. Isjakar á stærð við Hótel Borg steypast stömp- um í straumröstinni, taka dýf- ur, rekast saman og hoppa eins og leiksoppar í vatnsaganum. Fleiri brestir fylgja. Nýjar spildur losna úr jöklinum og ryðjast fram eftir sandinum. Brátt er allur sandurinn fram á fjörur þakinn jakahrönnum. Þar taka þeir niður og festast, nýir jakar skella á þeim, brotna og hrúgast saman en um jakahrannimar beljar straumurinn í fossföllum. Ég lít til norðurs. Kolsvart- ur reykjarmökkur þeytist upp í loftið norðan við Miðfell. Þar hafa Grímsvötn kastað af sér oki jökulsins. Það er ósk mín að byggðir þeirra Fljótshverfinga og ör- æfinga blómgist og fái staðið af sér hvert áhlaup af ísum og eldum. Án þeirra sveita væri raknaður sterkur og merkur þáttur úr þjóðlífi voru. Jón Eyþórsson.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.