Nýja dagblaðið - 13.06.1934, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár Rejrkjavík, miðvikudaginn 13. júní 1934. 136. blað
Sauðánkróksfundupinn
Magnús Guðmundsson skríðup á bak við Oddgeip í Ijúgvifna-
málinu, hæslaréll í Behrensmálinu og bankasljópa Lands-
bankans i Islandsbankamálinu.
Að lokum gefur hann upp vörnina og nolar ekki
ræðuh'mann.
Kennaranámskeiðið
í Austurbæjarskólanum
Þátttakendar eru um 90 viðsvegftr að ai landinu
Aðalkennarinn er sænskur, Sverker Stibelius
Eins og kunnugt er, hafði
Hermann Jónasson boðað til
fundar á Sauðárkróki 11. þ.
m- og skorað á Magnús Guð-
mundsson að mæta. Höfðu þeir
áður verið saman á fundi á
Hofsós, eins og sagt var í
blaðinu í gær.
Fundurinn á Sauðárkróki
var afarfjölmennur, um 400
manns og voru þar kominir
menn víða að úr Skagafirði.
Var auðséð, að menn höfðu
mikinn áhuga fyrir þessum
fundahöldum, enda eru þau
nýmæli.
Hermann Jónasson ræddi
dómsmálastjórn Magnúsar
Guðmundssonar ítarlega í
frumræðu sinni, sýndi fram á
hina stórkostlegu ágalla henn-
ar og deildi fast á Magnús.
Magnús reyndi að verjast með
ýmsum vífilengjum og útúr-
snúningum og var hann orð-
inn það þrekaður er á leið
fundinn, að hann notaði ekki
nærri því allan ræðutíma sinn
í seinustu umferðunum.
íhaldsmenn þeir í Skaga-
firði, sem hvöttu Magnús til
að sækja fundina, ásaka sig
nú harðlega fyrir að hafa
fengið hann norður, og þykj-
ast nú komnir að raun um, að
þótt hann hefði tapað miklu
við það að hopa af hólmi, þá
verði fylgistap hans nú enn
meira en af því hefði hlotizt.
í sumum málum! gaf hann
upp alla vörn. Ljúgvitnamálið
sagði hann að væri sér alger-
lega óviðkomandi, hann bæri á
því enga ábyrgð. Öll ábyrgðin
væri á Oddgeiri og hinum
vitnunum. Var auðheyrt, að
Magnús fann glöggt til þess
ósóma, sem íhaldið hafði haft
af því máli og vildi sem
minnst um það tala.
1 Behrensmálinu varði hann
sig með því, að hann hefði
verið sýknaður í hæstarétti og
ekki fallið við seinustu kosn-
ingar í Skagafirði. Um málið
sjálft og einstök atriði þess
vildi hann ekki ræða. Og eng-
ar skýringar gaf hann á því,
livers vegna hann hefði valið
íhaldsþingmann til að verða
hæstaréttardómari, og að sá
maður dæmdi í hans eigin
máli. Sá maður hafði gildar
ástæður til að vilja sýkna
Magnús. Hermann sýndi
fram á, að af þessum ástæð-
um væri dómur hæstaréttar
ekki haldgóð vörn, og þess
vegna ætti fyrst og fremst að
ræða um málið sjálft, en ekki
dómsúrslitin.
I íslandsbankamálinu varði
Magnús sig með því, að hefði
verið rétt að ákæra íslands-
banlíastjórana. þá hefði það
sama átt að gilda við banka-
stjóra Landsbankans. Þeir
hefðu lánað fé eins ógætilega
og hinir og líka gefið út ávís-
anir á enga innistæðu. Er hér
um hina glæpsamlegustu að-
dróttun að ræða í garð banka-
stjóra Landsbankans og má
mikið vera, ef það mál verður
ekki athugað betur.
Frh. A 4. síðu.
Sanngirnin I kaup-
greiðslum i opin-
berri vinnu
Sigurþór Ólafsson oddviti í
Kollabæ hefir sent blaðinu
þessar upplýsingar um sam-
ræmið í kaupgreiðslum ríkis-
ins, þegar komið er upp í
sveit.
Við Markarfljót.
Vikan 18.—29. apríl 1933:
Sigurður Sigurðsson frá
Hornafirði, daglaun kr. 16.00.
Bárður Bergsson bóndi Duf-
þekju Hvolhreppi kr. 8.50.
Báðir eru þessir menn lærð-
ir trésmiðir, tóku sveinsbréf
hjá sama manni, og sama dag.
Vikan 30. apríl til 13. maí:
Bjarni Jónsson frá Hvamms-
tanga, daglaun kr. 12.00.
Helgi Pálsson bóndi Ey
Vestur-Landeyjum, daglaun
kr. 6.50.
Metúsalem Stefánsson mál-
ari Reykjavík, daglaun kr.
11.50.
Bárður Bergsson smiðui
Dufþekju, daglaun kr. 8.50.
Við Affallsbrú.
18. sept. til 20. okt.:
Snorri Ólafsson stúdent
Reykjavík, daglaun kr. 7.00.
Þorkell Jóhannsson Mið-
krika, daglaun kr. 6.50.
Við Markarfljót 9.—22. júlí:
Andrés Auðunnsson Hól,
Eyjafj., daglaun kr. 7.50.
Við Þverá á sama tíma:
Bergvin Kristjánsson Ey-
vindarmúla, dagl. kr. 5.50.
1 samanburði þessum eru
dæmi tekin af jafnkomnum
mönnum í hverju tilfelli.
Ægilegar náttúrii'
hamíarir í Miö-
Ameríku
London kl. 16, 12/6. FÚ.
Fregnir frá Mið-Ameríku
segja næstum því ótrúlegar
sögur af skelfingum og eyði-
leggingum. I nokkra daga hafa
fellibyljir geysað yfir ríkin
San Salvador og Honduras, og
hafa verið þessu samfara á-
kafjega mikil flóð, og loks hef-
ir það aukið á hætturnar og
hörmungarnar, að miklar
skriður hafa fallið úr fjöllun-
um. Vatnið í tveimur stórum
stöðuvötnum hefir lækkað um
30 fet (ensk), og flætt yfir
víðáttumikil svæði. í Hondu-
ras gekk geysimikil flóðalda á
ströndina, og er kunnugt um
það, að í einu þorpi drukknuðu
500 manns af völdum hennar.
Flugmenn, sem gerðir hafa
verið út, til þess að rannsaka
landið í flug’vélum, segja að j
uppi í landi hafi heil þorp !
og smábæir horfið eða sokkið. j
A einum stað lyfti fárviðrið I
farþegalest af teinunum, og í
lienti henni niður á hvolfi j
kippkorn þar frá. Allar' járn- I
brautir, sem liggja til strand-
ar, hafa fokið upp eða burtu
og getur þetta haft þau áhrif,
að öll kaffiverzlun þessai’a hér-
aða fari út um þúfur í ár.
Skólpræsi hafa víða farið úr
skorðum, og menn óttast það,
að pestir kunni að gjósa upp.
Stjórnarráðið í Panama og í
Bandaríkjunum vinna saman
að hjálparstárfsemi eins og
auðið er.
Landskjálftar
í Argentínu
London kl. 16, 12/6. FÚ.
Frá Cordoba í Argentínu
berast fregnir um alvarlega
landsskjálfta. Sjötíu kippir
fundust á 6 kl.st. — Ekkert
manntjón varð, en talsvert
mikið eignatjón.
íhaldinu hefir löngum þótt
Jónas frá Hriflu erfiður í
viðskiftum, en ekki virðast
sveitungar hans, Ljósvetning-
ar, vera eftirlátari þessum
flokki. í fyrradag ætlaði fram-
bjóðandi íhaldsins, Kárí Sigur-
jónsson, með þrem meðhjálp-
urum frá kommúnistum,
,,bændavinum“ og socialistum,
að halda mikinn framboðsfund
á Ljósavatni. Áttu um 250
kjósendur að geta sótt þangað.
Veður var hið blíðasta, og
engar sérlegar annir. En á
í gær kl. 1 var kennaranám-
skeiðið sett í Austurbæjar-
skólanum.
Þátttaka er geysimikil, miklu
meiri en nokkru sinni fyr.
Skrásettir þátttakendur- eru
um 90 og úr öllum fjórðungum
landsins.
Námskeiðið er aðallega verk-
legt. Sú nýjung um aukin líf-
ræn og hagnýtt stört', sem á
síðustu árum hefir rutt sér til
Sverker Siibelius.
rúms meðal menningarþjóð-
anna„ hefir einnig náð inn á
starfssvið íslenzkra kkóla og
látið dauðan þululærdóm og
ósamræmt fræðastagl þoka úr
öndvegi.
Aðalkennari á náskeiðinu er
sænskur maður, Sverker Stibe-
lius, kennari við kennaraskóla
í Gautaborg. Hann er kunnur
maður þar í landi fyrir
kennslustörf sín, bækur um
þau efni, er eftir hann liggja
og ágæta forstöðu fyrir kenn-
fundinn komu 6 menn. Hinir
4 áðurtöldu frambjóðendur,
Jón í Yztafelli, sem umboðs-
maður Framsóknarflokksins í
sýslunni, og einn áheyrandi.
Það var íhaldsmaður, ef til
vill sá eini, sem til var í
byggðinni.
Þess má geta, að þegar Jón-
as Jónsson hélt sinn framboðs-
fund í nokkrum hluta gamla
Ljósavatnshrepps seint í apríl
í vor, þá komu um 80 manns
á þann fund.
aranámskeiðum víðsvegar um
Svíþjóð.
Hann kennir hér aðallega
ýmsiskonar pappavinnu, og
notkun vinnubóka við nám.
Auk hans kenna á nám-
skeiðinu Unnur Briem, leður-
vinnu ýmiskonar, og Björn
Bj örnsson teiknikennari al-
menna teiknun og töfluteikn-
un.
Þar að auki munu ýmsir
kennarar Austurbæjarskóíans
leiðbeina um aðrar greinar
kennslu, eftir því sem við
verður komið.
j Fyrirlestrar verða fluttir
daglega kl. 5 '/■> e. h. Er for-
stöðumaður Statens pedago-
giske Musseum í Kaupmanna-
liöfn á vegum námskeiðsins og
flytur þar erindi, auk annara.
Námskeiðið stendur til 28-
þ. m.
17. júní verður farin kynn-
is- og' námsför um nágrenni
Reykjavíkur, undir leiðsögu
Jóhannesar Áskelssonar nátt-
úrufræðings og 23.—24. s. m.
; verður farinn leiðangur til
Þingvalla með Pálma Hannes-
syni, rektor sem leiðbeinanda.
Á meðan námskeiðið stendur
yfir, fá kennarar aðgang að
vorskólum þeim, sem hér eru
starfandi, sömuleiðis aðgang
að skólasýningunni, er annars
mun ekki opnuð almenningi fyr
en eftir 20. þ. m.
Rósturnar magnast
i Austurriki
Berlln kl. 8.00, 12/6. FÚ.
A síðasta sólarhríngi hafa
verið framin 30 sprengitilræði
í Austurríki, og standa yfir-
völdin varnarlaus gegn þess-
um ófögnuði, því augljóst er,
að um hættuleg samtök er að
ræða. Meðal ^nnars var járn-
brautarlínan til Triest sprengd
í loft upp í Semmering í gær,
og stöðvaðist umferð þar al-
gjörlega.
Kalundborg kl. 17, 12/6. FÚ.
í Austurríki er enn haldið á-
fram að sprengja ýms mann-
virki, og hefir stjórnin enn
reynt að auka varúðar- og
varnarráðstafanir, án þess þó
að fá rönd við reist. Margir
álíta, að kommúnistar séu
valdir að þessum verkum, en
stjórnin áleit upphaflega, að
það væru nazistar, sem að
þessu stæðu.
Sögulegur framboðsfundur
að Ljósavaini
Frambjóðendur fjögra sijórnmálaflokka fá í blíð-
skaparveðri einn mann á fund í fjölmennu héraði