Nýja dagblaðið - 29.06.1934, Blaðsíða 1
2. ár.
Reykjavík, föstudaginn 29. júní 1934.
150. blað.
Alþingiskosningarnar
Framsóknavflokkuvinn vinnuv fjöguv fingsæíi og fæv auðsjá=
anlega 15 kjövdæmakosna þingmenn. Þessi nýju þingsæii evu
Slvandasýsla, 2. þingsæiið í Skagafivði, 2. sæli í Avnessýslu
og 2. í Novðuv*Þlúlasýslu.
Hermann Jónasson.
Hermann Jónasson, þing'm.
Strandamanna, náði þar kosn-
ingu með glæsilegum meiri-
hluta. Hann hefir ekki boðið
sig áður fram til þings, en er
einhver áhugamesti og þrótt-
mesti maður Framsóknarflokks-
ins. Séra Sigfús Jónsson, 2.
þingm. Skagfirðinga, er þjóð-
kunnur samvinnumaður og hef-
ir haft forystu þeirra mála á
hendi í Skagafirði um langt
undanfarið skeið. Bjarni
Bjamason 2. þ. Árnesinga er
einn með dugmestu mönnum í
Framsóknarflokknum og kunn-
ur einkum fyrir stórmyndar-
lega forstöðu hins fjölmenna
héraðsskóla að Laugarvatni.
Páll Zóphóníasson 2. þingm.
Norðmýlinga er ekki síður vel
Sigíús Jónsson.
Gísli Guðmundsson.
þekktur um allt land fyrir
áhuga, umbótahug og ýmis-
konar stórþarfar leiðbeiningar
Bjarni Bjarnason.
porbergur porleifsson.
á sviði landbúnaðarins.
Allir hafa þessir menn tekið
öflugan þátt í fjölmörgum um-
Páll Zóphoníasson.
bótamálum, sem Framsóknar-
flokkurinn hefir barizt fyrir og
hrundið í framkvæmd.
Þá eru þeir Gísli Guðmunds-
son þingm. í Norðurþingeyjar-
sýslu og Þorbergur Þorleifsson
þingm. Austur-Skaftfellinga
nýir fulltrúar þessara kjör-
dæma, þótt þar væru áður
Framsóknarmenn þingfulltrú-
ar. Er Gísli Guðmundsson
löngu kunnur fyrir ritstjórn
Tímans og vasklega baráttu
flokksins. Og þeir sem þekkja
Þorleif í Hólum og hans
langa og farsæla starf á
þingi og heima í héraði, gera
sér vísar vonir um giftusam-
legt starf Þorbergs sonar
hans, er hann tekur nú við
þingsætinu af föður sínum.
Atkvæðatalningiii
I gær báruat tréttir úr Barðaatrandaraýalu og
Eyjatjarðarsýslu.
Barðastrandarsýsla:
Kosinn var:
Bergur Jónsson F. 508
Aðrir fengu: /
Sigurður Einarsson A. 292
Jónas Magnússon S. 266
Hákon Kristófersson B. 140
Hallgr. Hallgrímsson K. 70
Ey jaf jarðarsýsla:
Kosnir voru:
Bernharð Stefánsson F. 1319
Einar Árnason F. 1251
Aðrir fengu:
Garðar Þorsteinsson S. 917
Einar Jónasson S. 905
Barði Guðmundsson A. 371
Halldór Friðjónsson A. 303
Stefán Stefánsson B. 348
Pétur Eggerz B. 301
Gunnar Jóhannsson K. 262
Þóroddur Guðmundsson K. 237
f tölunum eru innifalin land-
listaatkvæðin. — Talningu var
ekki lokið fyr en eftir mið-
nætti, sökum þess að Siglu-
f j arðaratkvæðin voru með
Gullfossi, er var á leið til Ak-
ureyrar og kom ekki þangað
fyr en í gærkvöldi.
Brezka stjórnin vill
auka ioftflotann
London kl. 17, 28/6. FÚ.
Möguleiki stofnunar alríkis
lofthers var ræddur í neðri
málstofu enska þingsins 1 gær,
í sambandi við aukningu
brezka loftflotans.
Flugmálaráðherra sagði, að
alríkislofther væri ekki sam-
ræmanlegur sjálfstæðri afstöðu
samveldislandanna, en hinsveg-
ar væri vel athugandi, hvort
ekki mætti koma á sambandi
milli flugflotans heima og í
sambandslöndunum. Ráðherr-
ann skýrði einnig frá því, að
áætlanir og ráðagerðir væru
nú ofarlega á baugi um það,
að auka flugflotann. Hann
sagði, að menn hefðu vænst
þess, að afvopnunarráðstefn-
urnar mundu gera óþarfar slík-
ai fyrirætlanir, en að aðrar
þjóðir hefðu nú ákveðið, ekki
einungis að halda í horfinu
sínum flugflota, heldur einnig
að auka hann, og þess vegna
væri England nú neytt til þess
af öðrum þjóðum, að hugsa
einnig um aukningu síns loft-
flota.
Mótmæli stjórnar-
andstæðinga.
Leiðtogi st j órnarandstæð-
inga mótmælti afstöðu stjórn-
arinnar og sagði, að aukning
loftflotans mundi hafa í för
með sér óbærileg útgjöld, og
verða til þess óhjákvæmilega
að til styrjaldar drægi. Hann
sagði, að England ætti að taka
að sér forystuna í þessum mál-
Framh. á 4. síðu.
Söngmót
8amb. ísl. karlakóra
Annað mót Sambands ísl.
karlakóra hófst í gærkvöldi kl.
7 í Gamla Bíó. Kórarnir, sem
mæta, eru 7: Geysir af Akur-
eyri, söngstj. Ingimundur
Árnason, Karlakór ísafjarðar,
söngstj. Jónas Tómasson,
Karlakór K. F. U. M., söng-
stjóri Jón Ilalldórsson, Karla-
kór Reykjavíkur, söngstjóri
Sigurður Þórðarson, Karlakór
iðnaðarmanna, söngstjóri Páll
Halldórsson, Vísir af Siglufirði,
söngstjóri ÞormÖður Eyjólfs-
son og Bragi af Seyðisfirði,
söngstj. Jón Vigfússon.
Mótið hófst á því, að Lands-
kórinn (allir kórarnir saman)
söng Ó, guð vors lands. Því-
næst sungu Geysir, Karlakór
Reykjavíkur og Vísir sín þrjú
lögin hver, og Landskórinn
síðast 7 lög, eitt undir stjórn
hvers söngstjóra.
Einsöng í lögum sungu
Gunnar Pálsson í Geysi, Daní-
el Þorkellsson í Karlakór
Reykjavíkur og Aage Schiödt
í Vísi. Tvísöng sungu Sveinn
Þorkellsson og Bjarni Egg-
ertsson í Karlakór Reykjavík-
ur.
Söngnum var mjög vel tekið
af áheyrendum.
Söngmótið verður að teljast
merkisviðburður á sviði söng-
mála vorra. Eiga kórarnir all-
ir og söngstjórar þeirra mikl-
ar þakkir skilið fyrir erfiði
sitt og áhuga. Ættu höfuð-
staðarbúar ekki að láta sitt
eftir liggja, að sækja söng-
skemmtanir þeirra á mótinu,
sér til óblandinnar ánægju og
kórunum til styrktar.
Því miður er ekki neitt sam-
komuhús hér nægilega stórt
fyrir söngflokk eins og Lands-
kórinn er. Er tæpast að hann
njóti sín í Gamla Bíó. Er illt
til þess að vita, að hið mynd-
arlegá Þjóðleikhús standi ó-
fullgert, þegar svo mikil þörf
er fyrir það sem nú.
Um hina einstöku kóra skal
ekki dæmt að sinni. Allir eru
þeir á margan hátt góðir, þó
eitthvað megi að þeim finna.
Af lögum þeim, sem Lands-
kórinn söng, var einna mest
um vert: Á Stiklastöðum, eft-
ir Otto Winter Hjelm. Er það
tvöfaldur kór.
Annars má ganga að því
vísu, að söngnum fari mjög
mikið fram, því æfing í Lands
kórinum hefir verið mjög lítil.
Reykvíkingar! Sækið söng-
skemmtanir karlakóranna.