Nýja dagblaðið - 29.06.1934, Page 2
8
M Ý J A
ÐÁlBLilIB
Samband ísl kar.akóra
Söngmót
Samsöngur 1 Gamla Bíó laugardaginn
30. þ. m. kl. 5'/2 síðdegis.
Þar syngja allir þátttakendur mótsins:
Karlakórinn Geysir, Vísir, Bragi, Karlakór
Iðnaðarmanna, Karlakór Reykjavíkur, Karla-
kór ísafjarðar, Karlakór K.F.U.M. og Lands-
kórinn.
Söngstjórar: ingimundur Árnason, Sigurður
. Þórðarson, Þormóður Eyjólfsson, Páll Halldórs
son, Jónas Tómasson, Jón Vigfússon og Jón
Halldórsson.
Aðalsöngstjóri: Jón Halldórsson.
Aðgöngumiðar verða seldir í Hljóðfæraverzlun K. Viðar
og Bókaverzlun Sigf. Eymundsson og kosta: Stúkusæti
kr. 4,00, önnur sæti kr. 3,00.
Arður til hluthafa
Á aðalfundi Eimskipafélags íslands, sem
haldinn var þann 23. þ. m., var samþykkt
að greiða hluthöfum félagsins 4°/0 — fjóra
af hundraði í arð af hlutafénu fyrir árið
1933.
Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu
félagsins í Reykjavík svo og á afgreiðslum
félagsins um land allt.
H.f. Eimskipafélag íslánds
I O G. T. I. O G. T
Stór stúkuf un dur
í tilefni af komn Alþjóðahátemplars Oscars Olsson ríkisdags-
þingmanns, verður haldinn stórstúkufundur í Templarahúsinu í
kvöld kl. 8.
Um kl. 9 verður svo þeim fundi breytt í opinn móttöku-
fund, þar sem viðstödd verður ríkisstjórn landsins og fieiri gestir.
Fridrik A. Brekkan Jóhann Ögm Oddsson
st.t. st.r.
Ferðaskrifstofa Islands
Ingólfshvoli - Sími 2939
TILKYNNIR:
Sumarhótelin
að Arnbjargarlæk, Asólisstöönm, Hreða-
vatni, Langarvatni, Norðtungn, Reyk-
holti, Svignaskarði og Þrastarlundi, eru
nú tekin til starfa.
Daglegar ferðir að Laugarvatni og Þrasta-
lundi frá B. S. í.
Til Borgarfjarðar
eru ferðir miðvikudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga frá N. B. S. - Ennfremur fer E.s.
„Suðurland“ hvern þriðjudag, föstudag og
. laugardag til Borgarness, og strax eftir komu
þess fara áætlunarbilar upp um Borgarfjörðinn
Um Akureyri
Framh.
Rétt hjá listgarðinum stend-
ur menntaskóli Norðurlands,
sem til skamms tíma var veg-
legasta skólahús landsins. Ber
hann hátt yfir bæinn. Að baki
hans eru iðgræn tún, en fram-
undan útsýni yfir bæinn og
Eyjaíjörð. Gefur vart að líta
feguiTÍ útsýn en frá mennta-
skólanum inn'til dala og út til
hafs. Nokkru utar og neðar
stendur hinn nýi barnaskóli,
vegleg bygging og vönduð og
þar í grennd á kirkjan að
standa, sem nú er verið að
undirbúa byggingu á. Einnig
mun væntanlegri gagnfræða-
skólabyggingu vera hugsaður
staður ofan við bæinn. Fer vel
á því að þessar opinberu bygg-
ingar séu hafnar yfir göturyk-
ið og þrengslin. Þarna geta
þær notið sín og orðið bænum
til hinnar mestu prýði.
Upp á brekkunni, skammt
frá menntaskólanum, er hin
nýja sundlaug bæjarins. í hana
er leitt heitt vatn ofan úr
Glerárgili alllanga leið. Laug-
in er ekki yfirbyggð, en liggur
í ágætu skjóli fyrir hvaða átt
sem er. Hún er 35 rú. á lengd
og til beggja hliða eru hlaðin
grasigróin þrep, þar sem fjöldi
manns getur setið og horft á
sundið í lauginni. Þá er sól-
byrgi rétt hjá lauginni, þar
sem sundgestirnir fá sér sól-
bað. Við skulum hugsa okkur
að ýið komum þarna í glaða
sólskini að sunnudagsmorgni.
Á þrepunum situr fjöldi fólks
og horfir á sundið. I lauginni
er fullt af fólki. Böm, ungling-
ar og fullorðnir, piltar og
stúlkur, synda fram og aftur,
stinga sér af pöllum og veggja-
brúnum og hlátrar og köll
renna saman í sífelldan klið.
Enginn þarf að óttast kulda,
því vatnið í lauginni er 25—26
stiga heitt. í öðrum enda laug-
arinnar er þeim, sem lítið
kunna, ætlað að vera. Þar er
grunnt 'og hættulaust hverju
barni. Er strengdur kaðall yfir
liana, þar . sem hún dýpkar.
Við hinn endann eru upphitað-
ir klefar til þess að hafa fata-
skipti í, og af þaki þeirra geta
hinir meiri sundmenn þreytt
dýfingar í laugina. En leita
þarf lags, að ekki sé einhver
fyrir, þegar þeir stinga sér,
svo er margt af sundfólkinu.
Alla daga vikunnar eru
þarna tveir sundkennarar og
hafa nóg að starfa. Er kennsl-
an á kostnað bæjarins.
Allir, sem til Akureyrar
koma, ættu að ganga upp að
sundlauginni og horfa á æsku
bæjarins sækja sér þangað
hollustu og gleði. Er næstum
því eins og mánni finnist æfin-
týrið um endurfæðingarlaug-
ina vera orðið að veruleika,
þegar maður horfir á æsku-
menn og meyjar ganga úr kola-
og göturykinu úpp á brekkuna,
varpa' sér fagnandi í svalt
vatnið og rísa upp eins og nýir
menn, með rennvott hárið,
rjóðar kinnar og æskugleðina
glampandi í augunum. Ef til
Sttngmenn utan af landi
Látið taka rðdd yðar upp
á silfurplötu
Itil gaéns og gamans þegar
heim kemur.
Ptatan fullgerð kostar frð
kr. 3,75
Hljiilirakltll
Bankastræti[/7 — Símir3656
Iþróttahöll í Oslo
í ráði er hjá frændþjóð vorri, Norðmönnum, bygging
mikillar íþrótta. og leikhallar í Oslo. Hafa nokkrir norskir
og enskir efhaðir áhugamenn gengizt fyrir undirbúningi
málsins. — Mynd sú, sem hér er sýnd fyrir ofan, er af hinni
fyrirhuguðu byggingu, er á að rúma 5000 manns í sæti. — í
horninu til vinstri er enskur styrktarmaður þessa máls, Low
Burston, en til hægri er Charles Hoff, hinn gamalkunni
norski íþróttakappi, sem er einn höfuð forgöngumaður máls-
ins.
vill eru það ekki draumórar að
sundlaugarnar eigi eftir að
leggja drjúgan skerf til að
endurfæða þjóðina, til að aia
upp nýja kynslóð fegurri,
hraustari og glaðari en áður
þekktist.
Þeir umbótamenn á Akur-
eyri, sem barist hafa fyrir
vatnsveitunni úr Glerárgili,
hafa unnið bænum ómetanlegt
gagn. Hefir ungmennafélagið
lagt drjúgan skerf til þess
verks.
Akureyri er fagur bær.
Hann hefir margt það bezta að
bjóða, sem til þess þarf að ala
upp ágæta, nýta menn. Hann
hefir ágætan barnaskóla, gagn-
fræðaskóla og menntaskóla,
hina beztu aðstöðu til íþrótta-
iðkana og framúrskarandi
náttúrufegurð. Gróðrarilmur-
inn, sem mætir manni uppi á
brekkunni er boðskapur hinn-
ar nýju aldar, þar sem vaxtar-
möguleikinn fær að njóta sín
til fuilnustu, þar sem æskan
fær aðstöðu til að vaxa eins og
trén í görðunum.
Norðlendingur.
I