Nýja dagblaðið - 29.06.1934, Blaðsíða 4
4
N Ý J A
DAGBLABIÐ
í DAG
Sólaruppkoma kl. 2.06.
Sólarlag kl. 10.55.
Flóð árdegis kl. 7.00.
Flóð siðdegis kl. 7.20.
Veðurspá: Suðaustan eða sunnan-
kaldi. Rigning öðru livoru.
Stiín, akrllstolor o. 1L:
Landsbókasafnið .... opið kl. 1-7
Alþýðubókasa. opið 10—12 og 1—10
þjóðskjalasafnið ....... opið 1-3
Landsbankinn .......... opinn 10-3
Búnaðarbankirm opinn 10-12 og 13
ÚtvejjsbanHnn opinn 10—12 og 1—•!
Útbú Landab., Klapparet. opið 2-7
Póstliúsið: Bréfapóstst. ,. opin 10-6
Bögglapóststofan ..... opin 10-5
Landssiminn ........... opinn 8-9
Skrifstoía útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og Í4
Fiskifól.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Bimskipafélagið .......... opið Ö-6
Stjómarráðeskrifst. .. 10-12 og 1-4
Sölusamb. ísl. fiskíramlaiðenda
opið 10—12 og 1—6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögvianns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Skipaskoðunar og skráningast.
ríkisins 10-12 og 1-G
Am&áll
DF'Vk'in
Hæstiréttur kl. 10.
Helmatiknartiinl ijiknhÓM!
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ......... kL 3-5
Laugarncsspítali ...... kl. 12%-2
Vííilstaðahadið 12V4-1VÍ off
Kleppur .................. kl. 1-8
Fæöingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar...................kl. 3-6
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4
Farsóttahúsið ................ 2-4
Næturvörður í Laugavega Apóteki
og Ingölfsapóteki.
Næturlæknir: Valtýr^ Albertsson,
Túngötu 3, sími 3251.
Skemmtanir og samkomur:
Gamla Bíó kl. 7: Samband ísl.
karlákóra, söngmót.
Skólasýningin opin 2—7 og 8—10.
Samgöngur og póstíaröir:
Suðui-land til Borgarness og frá.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Vedurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
Tilkynningar. 19,25 Grammófónn:
Lög eftir Thomas. 19,50 Tónleikar.
Auglýsingar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Synoduserindi í dóm-
kirkjunni: Kirkjan og vorir tímar
(síra Benjamín Kristjánsson). 21,15
Grammófóntónleikar: Brahms:
Symphonia no. 4 í E-moll, Op. 98.
í Ólafsvík fór fram kosning á
tveim mönnum í hreppsnefnd á
laugardaginn var. ihaldið hefir
ráðið þar lögum og lofum fram
að þessu. En við þessar kosning-
ar beið það ósigur. Jáfnaðar-
menn fengu meirihluta atkvæða
og komu að einum manni. Mun-
aði minnstu að þeir fengju béöa
kosna.
Norski kórinn: Stjerneguttene,
fór héðan í gærkvöldi heimleið-
is með Lyru. Kórinu söng að síð-
ustu á tröppum menntaskólans,
m. a. uorska og íslenzka þjóð-
sönginn. Söngstjóranum var af-
hentur íslenzkur fóni að gjöf, til
minningar um korauna.
Nýtt fyrirtæki hefir Hljóðfæra-
húsið (Bankastræti 7) stofnað,
þar sem menn geta fengið að
tala, syngja og spila á grammó-
fónplötur. Flutti útvarpið i gær-
kvöldi sýnishorn af því, hve vel
lekst að taka rödd manna á
plotu, sem kölluð er silfurplata.
Skipafréttir. Gullfoss var á
Siglufirði i gær. Goðafoss fór frá
Vestmannaeyjum í gær á leið til
Hull. Bmarfoss er í Kaupmanna-
liöfn. Dettifoss er á ieið til Vest-
mannaeyja frá Hull. Selfoss var
í Færeyjum í gær. Lagarfoss er
á leið til Kaupmannuhafnar frá
Austfjörðum.
U. M. F. Velvakandi íer næsta
sunnudag ef veður ieyfir göngu-
ferð upp á Esju. Verður farið
upp í Kollafjörð og gengið það-
an. Förinni til Hreðavatns er
frestað.
Oscar Olsson, æðsti maður Al-
þjóðareglu Góðtemplara og sænsk-
»ur Ríkisþingsmaður, kom hingað
með „Dronning Alexandrine" í
gær og dvelur hér rúman hálfan
mónuð. Hann lieimsækir Góð-
templarregluna og mun almenn-
ingi gefast tækifæri að heyra
liann tala á vegum hennar og ef
til vill annara félaga. þetta er í
íyrsta skipti sem Hátemplar
heirnsækir ísland.
pýzk heimsókn. Með „Dronning
Alexandrine" kom sendinefnd
hingað frá landbúnaðarráðuneyt-
iiiu þýzka í oinbera heimsókn, og
eru í henni ýmsir kunnir fræði-
menn í landhúnaðarvísindum. í
sendinefndinni eru dr. Rechen-
bach, dr. Wolff, dr. Gauch og
lierra Netzner, og ætla þeir að
lialda hér opinbera fyririestra um
fræði sín og ýmislegt, sem að
þýzkurn búnaðarháttum lýtur.
Mun sendinefndin, sem dvelur
hér til 3. júlí, að nokkru leyti
verða á vegum Búnaðarfélagsins.
Verða fyrirlestrarnir 4 talsins, og
verða þeir, að undanteknum
fyrsta fyrirlestrinum, fluttir í
Kaupþingssalnum, en hann verð-
ur fluttur í Nýja Bíó. Einn fyrir-
lesturinn niun að nokkru vera um
fiskveiðar og flytur hann dr.
Wollff. í dag kl. 5 verður fluttur
fyrsti fyrirlesturinn af herra
Netzner í Nýja Bíó. Verður hann
um óðalsrétt o. fl. Kvikmyndir
verða sýndar á eftir fyrirlestrin-
um. í kvöld kl. 8.30 flytur dr.
Wolff fyrirlestur í Kaupþings-
saJnum. , Fyrirlesturinn heitir:
Bóndinn bjargvættur þjóðanna.
4. landsfundur íslenzkra kvenna
verður haldinn hér í Reykjavík
fyrstu (lag'aná i júlí. Hafa fulltrú-
ar úr flestum sýslum landsins til-
kynnt komu sína. Er svo til ætl-
ast, að fulltrúar, bæði utan
Reykjavíkur og innan gefi sig
irfwn á Vinnumiðstöð kvenna,
þingholtsstr. 18, laugardaginn 30.
júní á milli kl. 2—6, sæki þangað
iundarskírteini sitt og borgi inn-
ritunargjald sitt. Á sunnudags-
kvöldið verður kynningarsamkoma
fyrir fulltrúana í leikfimissal
miðbæjarskólans kl. 8%. þær kon-
ur, sem þá hafa ekki fengið fund-
nrmerki sitt, geta fengið það af-
hent í miðbæjarskólanum á
sunnudagskvöldið eftir kl. 7. Á
mánudagskvöldið er gert róð
íyrir að fundurinn verði settur í
Iðnó. En sjálfur fundurinn verður
haldinn í Varðarhúsinu, sam-
kvæml uánari auglýsingum. Er
hann opinn fyrir allar konur og
vorða mörg merkileg mól á dag-
skrá, þau er konur láta sig sér-
staklega varða. Er þvi líklegt að
konur hæjarins setji sig ekki úr
Odýru
aug'IýaingarBar.
TYRKNESKAR
CIGARETTUR
d(DSTK-
PAKKINN
KOSTAR
Kaup og sala
FAST
OLLUM VERZLUNUM
færi ineð að fylgjast ineð því, sem
á fundinum gerist.
Knattspyrna á Akranesi. Um
íyrri helgi fór knattspyrnuflokkur
úr félaginu „Haukur“ Hafnarfirði,
til Akraness og kepptu þar við
Akurnesinga. Uimu Akurnesingar
með 6:2.
Markarfljótsbru verður vígð
næstkomanda .sunnudag. I-Iefst
vígslan kl. i e. h. Verður byrjað
með guðsþjónustu. þá verða
fluttar ræður, Lúðrasveit Reykja-
vikur spilar og að lokum verður ,
stiginn dans. Allur ágóðinn af !
skemmtuninni rennur til hjálpar !
I
fólkinu ó landsskjálftasvæðinu.
Verður án efa margt um mann-
inn við vígsluhótíð þessa.
í Norður-ísafjarðarsýslu verður
talið i dag. Talningin fer fram á
MeJgraseyri, en þar er enginn
sími. Til þess að hægt verði að
útvarpa tölunum öðru hvoru,
\ erður bótur með talstöð á vík-
i
iimi hjá Melgraseyri og sendir
liann tölurnar til báts með sams- 1
konar tækjum, sem liggur á ísa- ■
f'jarðarhöfn. þaðan verður tölun- '
um komið á landsímastöðina. Vil- '
mundur verður sjálfur við taln- j
inguna, en ekki hefir heyrst að i
Jón Auðun ætli sér að vera þar. I
Á morgun verður talið í Suður- '
þingeyjarsýslu.
Kennaraþingið var sett í gær-
kvöldi kl. 8 í Iðnó. Óvenju
margir kennarar viðsvegar að af [
landinu eru mættir á þinginu.
Norski söngkórinn „Stjernegut-
tene“, heimsótti sjúklingana í
Reykjahæli i fyrradag í sömu
ferðinni og þeir skoðuðu Grýlu.
Sungu þeir 5 lög fyrir dvalargesti
bælisins við ógætar undirtektir.
Hafa sjúklingarnir heðið Nýja
dagblaðið að fiytja kórnum og
söngstjóranum sínar beztu þakkir
fyrir komuna.
Borgarritarastaðan var veitt
Tómasi Jónssyni lögfræðing á
bæjarstjórnarfundi í fyrradag.
þetta er nýtt embætti og algerlega
óþarft, svo framarlega, sem borg-
arstjóranum er ætlað að gera
eitthvað. Bendir þessi embættis-
stofnun til þess, að Jón þorláks-
son vilji ekki frekar láta íhalds-
flokkinn „þræla sér út“ við
þæjarmálin, en landsmálin.
11 mannslát voru hér í Reykja-
vik í vikunni 10.—16. júní.
Nýlega hafa verið grafin upp
bein morðingja Natans Ketilsson-
ar, þeirra Friðriks og Agnesar, sem
voru liólshöggvin og jörðuð í
Vatnsdalshólum fyrir rúmlega 100
árum síðan. Beinin voru flutt til
Tjamarkirkju á Vatnsnesi og
jarðsungin þar af sóknai-prestin-
um, sr. Sigurði Jóhannssyni fyrra
sunnudag.
Bruni á Súðavík
ísafirði 27/6. FÚ.
I gærmorgun brann til
kaldra kola á skammri stundu
'hús Gríms Jónssonar kaupm.
í Súðavík. Húsið var úr tré.
Nokkuð bjargaðist af innan-
stokksmunum á neðri hæð og
úr kjallara, en ekkert af efstu
hæð. Mikið brann af fatnaði.
Logn var og hlífði það næstu
húsum. Annars eru taldar lík-
ur til, að þau hefðu brunnið,
því engin slökkvitæki eru í
þorpinu. Ókunnugt er um elds-
upptök
Sjóræningjar
að verkí
Berlin kl. 8.00 28/6. FÚ.
Frá Shanghai kemur sú
fregn, að kínverskir sjóræn-
ingjar hafi náð á sitt vald
japönsku skipi í Gula hafinu.
Skipverjar vörðust ræningjun-
um hraustlega, og féllu margir
í viðureigninni, en þeir skip- ,
verjar, sem eftir lifðu, voru '
settir í fjötra, og skipið síðan '
sett til drifs. Farþegana, sem |
voru allt Japanar og Hindúar j
og voru um 40 talsins, höfðu [
ræningjarnir á brott með sér. i
Óveður skall á nokkru síðar,
og fannst skipið ekki fyr en
eftir nokkra daga, og var þá
ekki annað en flak, og aðeins
þrír lifandi af áhöfninni, mjög
aðfram komnir.
Friðvænlegra
á Spáni
Berlin kl. 8.00 28/6. FÚ.
Búizt er við, að hemaðar-
ástandið á Spáni verði afnum-
ið einhvern næstu daga, þar
sem víðast hvar er kominn á
friður í landinu, og stjórnin
telur ekki hættu á því, að ó-
eirðirnar blossi upp aftur.
Mjög margir stjórnarandstæð-
ingar hafa verið hnepptir í
varðhald síðustu daga, og mun
nú þegar hefjast vinna við að
koma upp fangabúðum þeim,
sem þingið hefir samþykkt.
Forsætisráðherra Spánar,
Samper, hefir lýst yfir því,
að stjórnin ætlaði sér ekki að
láta undan Katalóníu, þar sem
það hefði nú verið staðfest
með dómi, að lög sem Kata-
lóníuþingið hefir samþykkt,
gangi í bága við stjórnar-
skrána.
Nýkomið . — Ódýrt.
Matarstell og kaffistell, 72 st.
í stellinu. Verð 65 kr., o. fn.
fleira. Af sérstökum ástæðum
verða npkkrar kápur og kjólar
seldar með hálfvirði
.. . . á Laugaveg 19.........
Skúr til sölu. Uppl. í síma 2506
og 1471. Arndal.
Freknukrem, Niveakrem,
Igemokrem og Sportskrem fæst
hjá Kaupfélagi Reykjavíkur.
I Sími 1245.
D I V A N A R
(og viðgerðir) með góðu stoppi
og mörgum fjöðrum, verða
beztir og sterkastir, ódýrastir
og fallegastir. — Húsgagna-
vinnustofan Skólabrú 2 (hús
Ól. Þorsteinssonar læknis).
Gúmmísvampar mjög hent-
ugir að þvo með glugga, fást
hjá Kaupfélagi Rvíkur.
Reiðhjólin Hamlet og Þór
eru þau beztu segja allir, sem
reynt hafa. Fást hvergi landinu
nema hjá SIGURÞÓR.
1
Tapað-Fundið
!
Fyrir nokkrum dögum tapað-
ist kvenúr á svæðinu frá Ing-
ólísstyttunni að kálgörðunum
fyrir vestan fþróttavöllinn.
Óskast skilað á Framnesveg
16 B.
Brezkastjórninvill
auka loftliotann
Framh. af 1. síðu.
um, eins og það hefði oft gert,
þegar um það hefði verið að
ræða, að taka heilbrigða
stefnu í stað þess að fylgja
öðrum í blindni út í ófæruna.
Fregnin um fyrirætlanir
Breta um það, að auka loft-
flota sinn, hafa þegar í stað
haft áhrif í Þýzkalandi, og
þýzku blöðin í dag segja með
stórum fyrirsögnum, að Eng-
land vilji verða öflugasta flug-
flotalandið.
Parísarblöðin nota fregnina
hinsvegar til þess að undir-
strika nauðsyn þess, að al-
menning'i verði kennd notkun
á gasgrímum, og í þeim birt-
ast stórar auglýsingar um
nýjustu gerðir á slíkum grím-
um, og leiðbeiningar ud notk-
un þeirra.
Kjötsölumál
brezká veldísins
London kl. 17, 28/6. FÚ.
Mr. Runciman sat í dag á
ráðstefnu með umboðsmönnum
ýmsra brezku landanna, og
ræddi við þá um kjötsölumál
brezka veldisins. Umræður
þessar fara fram vegna Ott-
awasamninganna, sem falla úr
gildi næstalaugaráag. Mr.
Rumciman sagði, að hann teldi
rétt að gefa samveldislöndun-
um tækifæri til þess, að at-
huga þær ráðstafanir, sem
brezka stjómin kynni að vilja
gera til vemdar heimamark-
aði sínum.