Nýja dagblaðið - 03.07.1934, Síða 2
2
M Ý J A
DASBbABIB
Hóiel Borg
Ný danshljómsveit frá kl. 9 á kvöldin undir stjórn
Mp. flpfhur Rosebeppy
eins hins bezta og vinsælasta hljómlistarstjóra
Lundúnaborgar.
Hefir spilað á Kit Kat, Savoy og Romanos
í Lundúnum.
Hljómleíkap, söngup, sfeppdanz og gpín.
Komið á Bong
Búið á Bopg - Bonðið á Bopg
Karföflumyglan
Hvernig á að verjast kartöflumyglunni?
1. Með því að velja heppilegt garðstæði.
2. Með því að rækta garðana vel, ræsa þá vel,
vinna þá vel og bæta þá með heppilegum
áburði, og með því að hirda þá vel.
3. Með því að nota útsæði af þeim tegundum,
sem reynast hraustastar gegn myglunni.
4. Með því að kaupa og nota þau tæki og efni,
sem geta orðið til að hindra eða draga úr
skemmdum af v 1 dum myglunnar.
5. Með því að geyma útsæðið vandlega frá
hausti til vors.
Vér urðum fyrstir til þess að flytja inn og útbreiða
svo um munaði þær tegundir af útsæði sem hraustastar
eru gegn myglunni. Vér urðum einnig íyrstir til þess
að hafa á boðstólum tækí og efni til þess að verjast
árásum kartöflumyglunnar.
Höfum ávalt til:
Sprautur til að dreita vökva — Bordeauxvökva og
Burgundervökva. Verð kr 52.00—85.00
A.K.I. kopareódamjöl til að blanda Burgundervökva
Fýsibelgi tíl að dreifa dufti. Verð: litlir kr. 4,50,
stærri kr. 15,00.
A.K.I. kopareódaduft.
ATV. Tilraunastöð danska ríkisins mælir eindregið með
A.K.I. koparsódadufti til varnar gegn kartöflumyglunni
Látið ekki skeika að sköpuðu með kartöfluræktina
Hafið tæki og efni við hendina til þess að verjast
myglunni. Biðið ekki þangað til það er um seinan.
Samband ísi. samvinnufélaga
Slmi 1080.
Frá Mahatma
Gandhi
Hinn indverski vitr-
ingur er að ferðast um
meðal þjóðar sinnar
og vekja hana til
mannúðar og skilnings
gagnvart lífskjörum
þeirra „óhreinu“, sem
eru um 60 miljónir.
Mathama Gandhi, hinn frægi
indverski stjómmálaspekingur
og mannvinur, hefir verið und-
anfarinn vetur og vor á ferða-
lagi um þvert og endilangt
Indland. Hann hefir farið
þorp úr þorpi og borg úr borg
og predikað fyrir fólkinu. Hann
hefir talað við háskóla og
margskonar menntastofnanir,
og alstaðar hefir hann sama
boðskapinn að flytja.
„Farið þið til „Harijanna"
— þeirra óhreinu — sópið göt-
ur þeirra, farið þið inn í hús-
in og þvoið böm þeirra“. ,
Þetta mætti segja að væri
inntakið í predikun Gandhis.
Hann er að reyna að vekja 180
miljónir mánna til meðvitund-
ar um þann órétt, sem 60 mil-
jónir manna — hinir óhreinu
— hafa orðið að þola af félög-
um sínum — sem eru hreinir
— um aldaraðir og allt fram &
þennan dag.
Hann er að reyna að opna
augu meirihlutans fyrir því,
að þeim óhreinu hafi of lengi
verið þjakað, og að einnig
þeir séu salt jarðar. Og á því
velti endanleg velferð ind-
versku þjóðarinnar að þessum
60 miljónum verði lyft upp úr
saumum og gert jafnt undir
höfði og öðrumi gagnvart þjóð-
félagslegum réttindum.
Þessu fólki hefir um alda-
raðir verið meinaður mannleg-
ur tilveruréttur. Þetta fólk
hefir engan aðgang að brunn-
unum eða vatnsbólinu, og því
er meinað að ganga í guðshús,
— og þegar það ferðast eftir
strætum og vegum, þá verður
það að æpa og kalla, til þess
að vara menn við þeirri stétt-
arsaurgun, sem átt gæti sér
stað, ef hreinn Indverji kæmi
of nálægt óhreinum landa sín-
um.
I blaði, sem Gandhi hefir
gefið út málefni þessu til
stuðnings, er skýrt frá því, að
upp á síðkastið hafi óhreinu
stéttinni í sumímn héröðum
Indlands * verið forðað frá því
að lifa á hræjum, eins og hún
hafi orðið að gera hingað til,
og ýmislegt fleira er þar til
tínt, sem1 bendir til þess að í
stöku tilfellum hafi þetta fólk
mætt hjálp og skilningi, sem
áður hefir ekki viðgengist
gagnvart því.
Nú um langt skeið hefir
Gandhi verið talinn merkasti
umbótamaður þjóðar sinnar,
samfara því, að hann hefir
verið mikill m'einlætamaður.
Þessum farandpredikunum
hans hefir verið veitt mikil
eftirtekt meðal fjöldans. Er
það sumpart vegna þess að líta
á hann eins og helgan mann
Frh. á 4. síðu.
íþróttamót
v. he. s. B.
Hið árlega héraðsmót Borgfirðinga verður háð n.
k. sunnudag 8. júlí og hefst kl. 1 e. h.
Mótið verður háð á Hvítárbökkum skamt frá Ferju-
koti eins og að undanfórnu.
„Suðurlandið;‘ fer til Borgarness kl. 8V* f. h. á
sunnudag og til baka aftur að kvöldinu.
Nánari upplýsingar hjá
FerðaBkritstofn Islnndi
Ingólfshvoli, sími 2 9 3 9.
Auglýsiné
nn
skoSun á bifreiðum og bifhjólum
í iðgsagnarumdæmi Reykjavfkur.
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hérmeð bif-
reiða- og bifhjólaeigendum, að skoðun fer fram, sem
hér segir:
Miðvikudaginn 4. júlí þ.á. á bifreiðum og bifhjólum RE 1— 50
Fimtudaginn 5. — — • — — — RE 51— 100
Föstudaginn 6. — — — — RE 101— 150
Laugardaginn 7. — — — — RE 151— 200
Mánudaginn 9. — — - — — — RE 201— 250
Þriðjudaginn 10. — — — — RE 251 — 300
Miðvikudaginn 11. — — - — — — RE 301— 350
Fimtudaginn 12. — — — — RE 351 — 400
Föstudaginn 13. — — — — RE 401 — 450
Laugardaginn 14. — — — . — RE 451— 500
Mánudaginn 16. — — — — RE 501— 550
Þriðjudaginn 17. — — — RE 551— 600
Miðvikudaginn 18. — — — RE 601— 650
Fimtudaginn 19. — — - — — — RE 651— 700
Föstudaginn 20. — — — — RE 701— 750
Laugardaginn 21. — — — — RE 751— 800
Mánudaginn 23. — — — — RE 801— 850
Þrtðjudaginn 24. — — - — — RE 851— 900
Miðvikudaginn 25. — — — — RE 901— 950
Fimtudaginn 26. — — — — RE 951 — 1000
Föstudaginn 27. — — — — RE1001— 1020
Ber bifreiða og bifhjólaeigendum að koma með
bifreiðar sínar og bifhjól að Arnarhváli við Ingólfs-
stræti, og verður skoðunin framkvæmd þar daglega frá
kl, 10—12 fyrir hádegi og frá kl. 1—6 eftir hádegi. Á
laugardögum frá kl. 10—12 fyrir hádegi og frá kl. 1—4
eftir hádegi.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni ©ða bifhjóli
til skoðunar, verður hann látinn sæta ábyrgð samkv.
bifreiðalögunum.
Bifreiðaskattur, sem féll í gjalddaga 1. júlí þ. á.,
skoðunargjald og iðgjald fyrir vátrygging ökumanns
verður innheimt um leið og skoðunin fer fram.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging
fyrir hverja bifreið sé í lagi.
Þetta tilkynnist hérmeð öllum, sem hlut eiga að
máli, til eftirbreyttni.
Tollstjórinn og lögreglustjórinn í Reykjavík, 30. júní 1934
Jón HermannBBon.
Hermann JónaBson.