Nýja dagblaðið - 01.08.1934, Blaðsíða 4
i
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
í DAG
Sólamppkoam kl. 8.40.
Sólarlag kl. 9.32.
Flóð úrdegis kl. 9.20.
Flóð síðdegis kl. 9.45.
\'eðurspá: Norðan og nprðaustan
gola. Víðast úrkomulaust.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 21.10
—1.55.
Söfn, skrifstofur o. fl.
Alþýðubókasafnið .. 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafnið ....... opið 1—4
Landsbankinn ................ 10-3
Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., Klapparst....... 2-7
Pósthúsið: Bréfapóststofan .. 10-6
Bögglapóststofan ........... 10-5
Skrifstofa útvarpsins 10-12 og 1-0
Landssíminn .................. 8-9
Búnaðarfélagið ...... 10-12 og 1-4
Fiskifélagið (Skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnuíél. 9 12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins .... 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið .............. 9-6
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Sölusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda ...... 10-12 og 1-6
Skrifst. bæjarins .... 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustjóra 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6
Skipaskoðunar og skráningarst.
ríkisins ............. 10-12 og 1-6
Hafmsóknartimi sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 2-4
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali .... kl kl. 12Vi-2
VífilstaðahæJið .. 12y2-2 og 3^-4 Ya
Kleppur kl. 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl.l-3og8-9
Siúficahús Hvítabandsins ..... 2-4
Sólheimar .............. opifl 3-5
Ellihsimilið ................. 1-4
NæturvörOur í Reykjavikuripéteki
og lyfjabúðinni IOunn.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Sími 2234.
Samgöngur og póstferðir:
Dettifoss til Akureyrar.
Dagskrá útvarpsfns:
Kl. 10.00 Veðurfregnir. 12.15 Há-
degisútvarp. 15.00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir. — Tilkynning-
ar. 19,25 Grammófóntónleikar.
19.50 Tónleikar. Auglýsingar. 20.00
Klukkusláttur. Beethoven-tónlist,
með skýringum (Jón Leifs). 21.00
Fréttir. 21.30 Grammófónn: Brahms
16 valsar og Finale, Op. 39 (fjói'-
lient píanó).
Réttvísin !
Þýzkalandí
Framh. af 1. síðu.
margir stjórnmálaandstæðing-
ar, Gyðingar og aðrir, sem á
einn eða annan hátt hafa
óvingast við nazistana hafa
verið sviftir frelsi, án nokk-
urra formlegra dómsuppkvaðn-
inga og settir í fangabúðir. Til
þessa tíma er vitað um 600
morð, sem ýmist hafa verið
framin í fangabúðunum eða
menn hafa verið „skotnir á ,
flótta“ eins og það er kallað.
Auk þess er vitað um mörg
sjálfsmorð, sem framin hafa
verið af þessum ástæðum.
(Úr dönsku blaði)
Annáll
Skipafréttir. Gullfoss fór í gær-
liveldi til Kaupmannahafnar. Goða
: l'oss l'ór frá Hull í fyiTadag á leið
! lil ILainliorgar. Dettifoss fer vest-
!
| iir og norðiir í kvöld. Brúarfoss
kom tii Leitli í fyrrakvöld. og fór
þaðan i gær áleiðis liingað. Selíoss
er á Akureyri. Lagarfoss fór í
gærkveldi til útlanda.
Skátafélagið „Ernir“. Tveggja
daga útilega um helgina. Talið
við foríngjana fyrir fimmtudags-
kvöld.
Jónas Sveinsson læknir verður
l.jarverandi um tíma.
Slysið á pingvöllum. Undanfarna
daga hefir lögreglan í Reykjavík
fengist við rannsókn út af slysinu,
scm varð á pingvöllum síðastlið-
inn sunnudag, þar sem hestur var
talinn hafa orðið fyrir bifreið og
heðið bana af og bifreiðinni hvolfdi.
það eru vinsamleg tilmæli lög-
reglunnar, að þeir, sem kunna að
. hafa \crið sjónarvottar að slysi
þessu og lögregian hefir ekki nú
þogar talað við, gefi sig fram við
hana til upplýsinga í þessu máli.
Skráning atvinnnlausra karla og
kvenna fer fram í dag, á morgun
og á föstudag í Goodtemplarahús-
inu við Vonarstræti frá k). 10 árd.
■ 11 8 siðd. alla dagana.
Heimdallur að veslast upp. Barna
hlað ílialdsins, Heimdallur, kom út
í gær. Er þar tilkynning frá ritstj.
aö blaðið komi ekki út næsta hálf-
an mánuð, en ekki er getið um
livað verða muni síðar. Undanfar-
ið hefir blaðið komið út þrisvar í
viku og er því ekki gott að segja
iivaða endi þetta kann að hafa.
En gætnari íhaldsmenn munu
óska þess, að blaðið komi ekki út
oftar.
Fagranes heitir mótorbátur, sem
Akurnesingar (Ármann Halldórs-
son og Leifur Böðvarsson) hafa
látið smíða í Noregi og kom þaðan
i gær eftir rúmlega fjögra daga
ferð. Báturinn er rúmlega 60 smál.
að stærð og hefir allmikið farþega-
rúm. Er honum ætlað að vera í
lörum milli Akraness og Reykja-
víkur, einkum til fólksflutninga.
Jónas porbergsson útvarpsstjóri
fór til Austfjarða með Súðinni í
fyrrakvöld og verður þar nokkra
daga.
Dráttarvextir á fyrsta hluta út-
svara þessa árs falla 3. þ. m., seg-
ir í auglýsingu frá bæjargjaid-
kera í gær.
Guðlaugur Rosinkranz, ritari nor
ræna félagsins hér, fór til útlanda
með Gullfossi í gærkveidi. Ætlar
hann að sitja fulltrúafund félagsins
sem haldinn verður að Hindsgavl
í Danmörku 15.—19. þ. m.
ísfisksala. Gullfoss seldi í Grims-
hy í fyrradag 1200 vættir fyrir 689
sterlingspund. í gær seidi Venus
1088 vættir en ekki hefir frétzt um
verðíð. í biaðinu í gær, þar sem
sagt var frá ísfisksölunni, áttl að
standa Karlsefni en ekki Bragi.
Síldarbræðslustöðin á Dagverðar-
eyri við Eyjafjörð er nú um það
leyti að taka til starfa. Verksmiðj-
an var seld í vor og keypti hana
hlutafélag á Akureyri. Hefir það
látið endurbæta hana mjög mikið.
Eru véiar að mestú nýjar og lýsis-
kerald, sem tekur 1500 smál., hef-
ir verið smíðað. Starfsmannahúsið
hefir verið endurbætt til muna.
Er verksmiðjan nú fær um að
vinna miklu meira en áður.
Mæðrastyrksnefnrlinni hefir verið
synjað af hæjarráði með 3 atkv.
gegn 2 um 400 kr. styrk.
Bæjarstjórnarfundur verður hald-
inn annað kvöld kl. 5 í Kaupþings
salnum. Sex mál erui þar á dag-
skrá.
artoigi 1 Sími 4250
Forstjóri: Jón ölaisson
Býður yður hagkvæmar líftryggingar. —
Spyrjist fyrir um ýmsar líftryggingar á
skrifstofu félagsins eða hjá tryggingamanni
þesí
Kristjáni Péturssyni
Vestnrgötu 67 Sími 216 0
íioíosososacca
FREYJU kaffibætisduftit
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Preyju kaffibætis-
duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffi-
bæti í stöngum.
Notið það bezta sem imiiið er í landinn
Virnct
Nokkur breið og þéttriðin vírnet til sölu.
Tækifserisverð.
Samband ísl. samvínnufélaga
Takið eftir!
Dvergasteinn, Smiðjustíg 10
tekur að sér viðgerðir á alls-
konar landvélum, gerir tilboð í
smíði á handriðum, grindum og
rörum.
Brúnsuða á stálmunum, svo
sem byssuhlaupum.
Munið að líkkistuhandföngin
eru framleidd í
Dvergasteini
Eími 2049. Pósthólf 3885
^ MV
Mynda og pammaverzl.
FREYJUG. 11 Sími 2105
ÍSLENZK MRLVERK
Verið vandlátir með vinnu
þá er þér kaupið. — Látið
mig framkalla, kopiera og
stækka myndir yðar og berið
það saman við það, sem þér
áður hafið reynt.
Ljósmyndastofa
SIG. GUÐMNUDSSONAR
Iiækjargötu 2 Sími 1980
Um alþing-lskosning-ar
Framh. af 3. síðu.
1 hagskýrslum 1932 (bls. 7
og 8) er kjörsókn við alþingis-
kosningamar 1931 talin minnst
í Reykjavík, 63,7% af kjósend-
um, en það er rangt. 1 Reykja-
vík var kjörsóknin þá 78,2%,
en minnst var hún í N.-Múla-
sýslu, 70,4%.
Með lögum 1928 var Gull-
bringu- og Kjósarsýsla gerð að
einmenniskjördæmi og Hafnai'-
fjörður að sérstöku, einmennis-
kjördæmi, en áður fylgdi ihann
sýslunni, sem var tvímennis-
kjördæmi.
1933.
Kjósendur alls á landinu 52465 eða 46,7% af landsm.
Af þeim neyttu kosningaréttar 36772 — 70,1% - kjós.
Flest atkv. á þm. (í Rvík) 5568 af 14504 á kjörskrá
Fæst atkv. á þm. (í A.Skaft.) 219 — 631 - —
Mest þátttaka (í Hafnarfirði) 1618 — 1742 - —
Minnst þátttaka (í Eyjarfj.) 1801 — 3498 - —
iÞátttakan í Reykjavík 9779 —14504 - —
Þá er komið að alþingiskosn-
ingunum 24. júní s.l. samkvæmt
stjómarskrárbreytingunni og
nýju*kosningalögunum er samþ.
voru á aukaþinginu í fyrra.
Framh.
@ Odýru @
»nglý8ingariiftr.
K»up og sala
Nýtt skrifborð til sölu strax
fyrir hálfvirði. Sími 4094.
Notað útvarpstæki fyrir raf-
hlöðu óskast til kaups strax.
Afgr. v. á.
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Austurstrseti 14,
þriðju hæð, opin kl. 11—12 og
5—7. Sími 4180 og 8518
(heima). Helgi Sveinsson.
Með tækifærisverði seljast
tveir klæðaskápar, tvísettur og
þrísettur úr birki. Uppl. í Mið-
stræti 5, niðri kl. 7—9 síðd.
Gúmmísvampar góðir til að
þvo glugga, glasaþurkur, gólf-
klútar og tausnúrur.
Kaupfélag Reykjavíkur.
Tilkynning.
Ég hefi ráð á úrvals töðu.
Ef þið kaupið, verð ég feginn.
Hún er iðgræn út úr hlöðu, eins
og þegar hún var slegin.
Jónas Jónsson, Grjótheimi.
Saltfiskbúðin er vel birg af
nýjum fiski. Sími 2098.
Fyrirliggjandi eru nokkrir
herraklæðnaðir, sem eiga að
seljast. Ennfremur 1 kven-
reiðdragt. Bankastræti 7. Leví.
Freðfiskur undan Jökli, og
glænýtt ísl. smjör, kömið í
verzlun Kristínar J. Hagbarð.
Nýkomið úrval af hanzka-
skinnum. Ljósir hanzkar allt-
af fyrirliggjandi. — Hanzka-
saumastofan, Þórsgötu 22. Sími
4705.__________
Tyggigúmmí, Disseto, Át-
súkkulaði 0. fl. ítalskt sælgæti
nýkomið.
Kaupfélag Reykjavíkur.
Tilkynningar
Til Stykkishólms
hvern mánudag og fimmtu-
dag.
___Aðalstöðin. — Sími 1383.
Maður, sem vildi lána 800 kr.
í tvo mánuði, gæti fengið al-
menna vinnu nú þegar. Tilboð
merkt 800, sendist afgr.
Beztu og ódýrustu sunnu-
dagaferðirnar verða nú eins og
áður frá Vörubílastöðinni í
Reykjavík. Sími 1471.
Átyinna
Atvinna. Hef verið beðinn að
útvega vikadreng 10—13 ára
á gott heimili í sveit í tvo mán.
Stefán Jónsson, sími 2317.
Húsnieði
Skemmtilegt herbergi með
nokkru af húsgögnum til leigu
strax. A. v. á.
1 B Ú Ð vantar mig frá 15.
sept. eða 1. okt. n. k. Leiga
greiðist mánaðarlega. Samning-
ar skriflegir. — Tilboð sendist
til afgr. Bamablaðsins Æskan,
Ilafnarstræti 10.
Friðrik Ásmundsson Brekkan