Nýja dagblaðið - 04.08.1934, Qupperneq 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Odýrt sallkjöt
í heilum tunnim
S i m i 4 2 4 1
1 DAG
Sólaruppkoma kl. 3.45.
Sólarlag kl. 9.20.
Flóð árdegis kl. 12.00
Flóð síðdegis kl. 12.40.
Veðurspá: Norðan gola léttskýjað.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 21.10
—1.55.
Sttfn, skrifstofur o. fL
Landsbókasafnið .... opið kl. 1-7
Alþýðubókasafnið .. 10-12 og 1-10
Höggmyndas. Ásm. Sveinss. 1—7
Landsbankinn.............opinn 10-1
Búnaðarbankinn .. .. opinn 10-1
Útvegsbankinn............opinn 10-1
Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-4
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 3-4
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið ......... opið 10-12
Fiskifélagið ..... Skrifst.t. 10-12
Samband isl. samvinnufélaga 9-1
Skipaútgerð ríkisins .... opin 9-1
Bimskipafélagið ........ opið 9-1
Stjómarráðsskrifst. .. opnar 10-12
Skrifst. bæjarins .... opnar 10-12
Skrifst lögreglustj....opin 10-12
Sltrifst. lögmanns .... opin 10-12
Skrifst. tollstjóra .... opin 10-12
Tryggingarst. rikisins ...... 10-12
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-3
Rikisféhirðir ........... opiS 10-2
Lögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Hftimsóknartimi sjúkrahúsn:
Landsspítalinn ........... kl. 2-4
Landakotsspítalinn ........ kl. 3-5
Laugamesspítali .... kl kl. 12Vi-2
Vífilstaðahælið .. 12%-2 og Sft-AV4
Kleppur ................. kl. 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sjúkrahús Hvítabandsins ...... 2-4
Sólheimar .............. opið 3-5
Blliiioimilið ................ 1-4
Nnturvörður i Reykjavikurapótftki
og lyíjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Sími 2234.
Skemmtanir og samkomur:
Skemmtiför ungra Framsóknar-
manna til Hreðavatns kl. 5 frá
Sambandshúsinu.
Samgttngur og póstferttir:
Suðurland til Borgarness kl. 6.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10.00 Veðurfregnir. 12.15 Há-
degisútvarp. 15.00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir. — Tilkynning-
ar 19.25 Tónleikar (Útvarpstríóið).
19.50 Tónleikar Auglýsingar. 20.00
Klukkusláttur. — Beethoventónlist
með skýringum (Jón Leifs. 20.30
Upplestur (Brynjólfur Jóhannes-
son). 21.00 Fréttir. 21.30 Grammó-
fónkórsöngur (rússneskir kórar).
Danslög tii kl. 24.
Kaupendur blaðsins í Reykjavík
og grennd eru beðnir að borga
l)laðið við hver mánaðamót, en
menn lengra úti á landi ársfjórð-
ungslega.
Ingvari Sigurðssyni hefir hlotn-
ast mikill heiður fyrir bók sína,
Alríkisstefnan. Bókin ehefir verið
þýdd á þýzku, en efni hennar,
sem fjallar um frið og bræðralag,
hefir ekki fallið í geð ribbalda-
stjómarinanr þýzku og hefir hún
bannað sölu bókarinnar i þýzka-
landi.
Sólskinslítill júní. í júní sl. var
sólskin í Reykjavik 156,6 stundir
eða 29,0% af þvi sem það getur
verið mest. Meðaltal 11 undanfar-
inna ára er 202,1 stundir.
ítttlsku Grænlandsfaramir. Vél-
skipið Njáll fór 1. þ. m. frá fsa-
firði með ítölsku leiðangursmenn-
ina áleiðis til Grænlands.
Annáll
Skipaíréttir. Gullfoss er á leið t.il
Kaupmannahafnar. Goðafoss er í
Hamborg, Biúarfoss kom frá útl.
í gærkveldi. Dettifoss kom til Ak-
ureyrar i gærkveldi. Lagarfoss er á
leið til Leith. Selfoss fór í gær-
kveldi frá Fáskrúðsfirði beint til
Kaupmannahafnar.
Atvinnuleysisskráningu lauk hér
| gærkveldi og höfðu þá verið alls
skráðir 390 atvinnuleysingjar.
Um 400 lömbum var slátrað hjá
Sláturfélagi Suðurlands í gær og
eru það fyrstu lömbin, sem slátr-
<",ð er hjá því á þessu sumri.
Nýja dagblaðið kemur ekki út á
þriðjudaginn kemur vegna þess að
á mnnudaginn er frídagur hjá
prnnturum. Tíminn, sem venjulega
kemur út á mánudögum, kemur
nkki fyr en á þriðjudag.
Skemmtiför Félags ungra Fram-
sóknarmanna. þátttalca sé tilkynnt
fyrir hádegi í dag á afgreiðslu
Nýja dagblaðsins. Aliar upplýs-
ingar gefnar þar. Lagt verður af
stað frá Sambandshúsinu kl, 5,
stundvíslega. peir sem geta, ættu
að hafa með sér tjöld og teppi.
Á mótorhjóli frá Reykjavík til
F.skifjarðar fór Gissur Erasmussor
ásamt öðrum manni og komu þeir
þangað síðastl. þriðjudag eftir 7
daga ferð norður um land og höfðu
þeir þá keyrt. alls um 1000 km og
fnngið rigningu og þreytandi ferð.
Er þetta í fyrsta sinn sem farið
er á mótorhjóli milli Reykjavíkur
og Eskifjarðar. þeir félagar gera
ráð fyrir að fara sjóleiðis heim
aftur.
Sölubúðir eru lokaðar frá kl. 4
i dag til þriðjudagsmorguns. Frí-
dagur verziunarmanna er á mánud.
Sundnámsskeiði, sem stóð í mán
aðartíma, er nýlokið á Reykjanesi
við ísafjarðardjúp. Fór fram sund-
próf síðastl. sunnudag og gengu
40 menn undir prófið.
Skemmtigarðurinn Hellisgerði í
Hafnarfirði er að flestra dómi ein
hver einkennilegasti og fegursti
taður hér á landi og þó víðar sé
leitað. Hann er opinn fyrir almenn
ing á sunnudögum kl. 10—12 f.h.
og kl. 1%—7 síðd. Veitingar eru á
staðnum. Hafnfirðingar, sem ekki
hafa tækifæri til þess að fara út
úr bænum á sunnudögum, ættu
að nota sér þá hressingu sem það
veitir að dvelja dagstund á svo
fögrum stað. Reykvíkingar og aðr-
ir utanbæjarmenn eru jafn vel-
komnir í garðinn og Hafnfirðingar
sjálfir.
Síldveiðamar eru nú að glæðast
nyrðra og er góð veiði bæði á Eyja
firði og Skagafirði. Hafa sum skip
in komið til Siglufjarðar tvisvar
sama sólarliringinn frá veiðum á
Eyjafirði,
Bæjarskrá Reykjavíkur 1934—35
er komin út. Eru þar tvær skrár
yfir nöfn allra fullorðinna bæjar-
manna, önnur eftir stafrófsröðun
en hin eftir götunöfnum og húsa-
röð. Er þetta hið þarfasta verk og
getur oft verið til mikilla þæg-
inda. Aftan við skrána er lögreglu
samþykkt Reykjavíkur. Pétur G.
Guðmundsson fjölritari kostar ÚF
gáfuna og hefir séð um hana. Er
]?að mikið starf og ekki ósennilegt
að útgáfan beri sig ekki fjárhags-
lega. Mun hann hafa sótt um styrk
111 bæjarstjórnar til útgáfunnar en
var synjað, eins og búast mátti við
af henni. En þakkir á Pétur skild-
ar fyrir að hafa hrint þessu verki
í fi'amkvæmd á eigin spýtur og
ættu bæjarbúar að sýna að þeir
meti það að verðleikum og kaupi
l)ókina.
Vestur-fftlendingar
halda sextíu ára minn-
ingarhátíð fyrstu Is-
lendingasamkomu í Vest-
ur-heimi.
Eftir því sem ameríska viku-
blaðið „The Minnesota Mas-
cot“ skýrir frá, hefir íslend-
ingafélagið „Vísir“ í Chicago
undirbúið Islendingamót, er
halda á í borginni Milwaukee í
Wiscomsin 5. þ. m.
Verður það einskonar minn-
ingarhátíð í tilefni af fyrsta
íslendingamóti, er haldið var í
Ameríku 2. ág. 1874.
Þá kom fremur fámennur
hópur íslendinga saman á
þessum sama stað," undir for-
ystu sr. Jóns Bjarnasonar.
Var hátíð sú haldin^með
þátttöku frændþjóðar okkar,
Norðmanna, og predikaði séra
Jón yfir fólkinu í norskri
lcirkju.
Sú samkoma var einskonar
þakkarhátíð hinna nýkomnu
landnema, samfara því að það
var minningarhátíð um 1000
ára byggð íslands.
Samkoma sú, er nú á að
fara fram í Milwaukee og
vænst er að verði fjölmenn,
nýtur hjálpar og aðstoðar „The
Scandinavian Society of Mil-
waukee“.
Mun allt verða til þess gert
af landa hálfu, að hún fari sem
myndarlegast úr garði.
Hcríoringj aráðsmælingunum lok-
ið. I mánuöinum sem leið luku
landmælingamenn herforingjaráðs-
ins danska hringferð sinni til
mælinga um byggðir íslands. Árið
1902 byrjuðu þeir landmælingar
við Almannaskarð fyrir norðan
Homafjörð eða Skarðsfjörð og
héldu þá suður og vestur um land-
ið. Oberstlautinant Jensen var þá
einn af fyrirliðum landmælinga-
mannanna, og nú var hann
aftur foringi þess flokks, er fer
á undan og mælir frá hæstu
fjallatindum til útskerja. Hefir
honum því auðnast að ljúka þess-
ari hringferð og leiða til lykta
hið mikla starf. Landmælinga-
mennirnir dvöldu um tíma í
Ilornafirði og endurnýjuðu aust-
ustu merkin frá fyrri tíð. Síðan
dvöldu þeir lengi á Stafafelli við
mælingar í Lóni, og eru þeir nú
komnir austur í Múlasýslu.
Hafrannsóknaskipið franska,
Pourquois pas? kom með vísinda-
leiðangur Dr. Charcot, til Akur-
eyrar 31. f. m. og dvelur þar fram
undir helgina. þá fer það vest-
ur til Grænlánds, og norður með
ströndinni allt tii Scoresbysund.
Sex enskir stúdentar frá Cam-
brigde eru um þessar mundir
uppi við Hagavatn, og ætla að
kortleggja vatnið og umhverfi
þess.
Á Fljótsdalshéraði hefir verið ó-
þúrkasamt og liggja töður víða und
ir skemmdum.
Frá Austurríki
Dæmdur til dauða en náð-
aður á siðustu stundu.
Verður v. Papen sendi-
herra?
London ,3./8. FÚ.
í Vínarborg er allt líf borg-
arinnar nú loksins komið í samt
lag aftur, eftir að Dollfuss
kanslari var myrtur fyrir hálf-
um mánuði. Veitingahús og leik
liús voru opnuð' aftur í dag.
Margir útlendingar, sem frest-
að 'höfðu för sinni til Vínar,
eru nú komnir til borgarinnar,
og í Salzburg er tónlistarhá-
tíðaihöldunum haldið áfram,
aftur, eins og ekkert hefði í-
skorizt.
Hen-étturinn í Austurríki
dæmdi í dag til dauða einn naz_
ista fyrir það, að sprengiefni
f'undust í fórum hans. Ekkert
benti á það, að hann hefði ætl-
að að nota sprengiefnið í upp-
reisnarskyni. Aftaka mannsins
átti að fara fram 3 stundum
eftir að dómurinn var kveðinn
upp, en verjandi hans har fram
fyrir Miklas forseta beiðni um
náðun og á síðustu stundu, rétt
áður en taka átti manninn af
lífi, kom náðun forsetans og
hreytti hann dauðadómnum í
æfilanga þrælkunarvinnu.
Verjandi Panetta hefir verið
tekinn fastur vegna þess,
hversu samúð hans með þjóð-
ernisjafnaðarmönnum þykir
hafa komið berlega fram í rétt
arhöldunum.
Það er ennþá óútkljáð, hvort
austurríkska stjórnin vill taka
við von Papen sem sendiherra
Þjóðverja í Vín. Stjórnin mun
ræða málið á fundi, sem lík-
lega verður haldinn í næstu
viku. Málið hefir einnig verið
rætt á sérstökum fundi kat-
ólsku biskupanna í Austurríki
og samþykktu þeir að beita ekki
áhrifum sínum til stuðnings
útnefningu hans.
Fréttastofa Havas flytur þá
fregn frá Róm, að þangað sé
von á Schusnigg, kanslara Aust-
urríkis og Stahremberg fursta,
í septembermánuði til viðtals
við Mussolini.
Skemmtiíerðaskipin. Foucauld,
frakkneskt skemmtiferðaskip kom
hingað í gærmorgun og fór aftur
í gærkveldi. Er það seinasta skipið
sem kemur hingað í sumar og það
14. í röðinni. það fyrsta kom 3.
júlí. I-Iéðan hafa þau ýmist farið
til Noregs eða Spitsbergen. Hér við
land hafa þau ekki komið annars-
staðar en í Reykjavík, nema ,eitt,
sem kom til Akureyrar og annað
sem kom við í Vestmannaeyjum.
Flestir farþeganna hafa komið frá
Bandaríkjunum. þarnæst koma
þjóðverjar, Englendingar, Frakkar,
Hollendingar og Pólverjar. Með
einu skipinu voru farþegar frá 17
löndum.
Úr júníyíirliti Veðurstofunnar.
Túnahreinsun byrjaði frá 26. mai
tii 21. júní, meðaltal 29. maí. Kar-
# Odýni #
augiýsiag's.FnaF.
1 Kaup og uaia j|
5 manna bifreið sérlega rúmgóð, til sölu með góðum kjörum. Minni bifreið gæti ef til vill orðið tekið í skiptum. Afgr. v. á.
Hús og aðrar fasteignir til sölu. Hús tekin í umboðssölu. Ski’ifstofan í Austurstræti 14, þriðju hæð, opin kl. 11—12 og 5—7. Sími 4180 og 8518 (heima). Helgi Sveinason.
Nýr lundi í dag á fisksölutorginu við Tryggvagötu. Sími 2266. Jóhann og Haraldur.
Nýtt hvalrengi af ungum hvölum fæst hjá Hafliða Bald- vinssyni, Hverfisgötu 123, sími 1456 og á planinu við höfnina, sírni 44022.
llmvötn, hárvötn og hrein- lætisvörur fjölbreytt úrval hjá iiaupfélagi Reykjavikur.
Margar húseignir með lausum íbúðum 1. október hefi ég til sölu. Að telja þær allar upp hér yrði of langt mál, gjörið því svo vel að leita upplýsinga hjá mér. Jón Magnússon, Njálsgötu 13 B, heima eftir
Saltfiskbúðin er vel birg af nýjum íiski. Sími 2098.
Freðfiskur undan Jökli, og glænýtt, ísl. smjör, komið í verzlun Kristínar J. Hagbarð.
Freyju kaffibætir er beztur. Ef þið .hafið ekki notað hann áður, þá reynið hann nú um helgina, því ekki er sízt þörf að fá gott kaffi á sunnudögum.
I nestið: Sælgæti, tóbak, öl ávextir, nýjir og niðursoðnir. Niðursoðið kjöt, fiskur og sar- dínur. Einnig góður harðfisk- ur, riklingur o. m. fl. Kaupfélag Reykjavíkur. Sími 1245.
Beztu og ódýrustu sunnu- dagaferðirnar verða nú eins og áður frá Vörubílastöðinni í Reykjavík. Sími 1471.
Með tækifærisverði seljast tveir klæðaskápar, tvísettur og þrísettur úr birki. Uppl. í Mið- stræti 5, niðri kl. 7—9 síðd.
Reiðhjólin Hamlet og Þór eru þau beztu segja allir, sem reynt hafa. Fást hvergi landinu nema hjá SIGURÞÓR.
Fyrirliggjandi eru nokkrir herraklæðnaðir, sem eiga að seljast. Ennfremur 1 kven- reiðdragt. Bankastræti 7. Leví.
Ágæt svið fynrliggjandi. S. í. S. Sími 1080.
| Tilkynningar |
Til Stykkishólms hvern mánudag og fimmtu- dag. Aðalstöðin. — Sími 1383.
töflur settar niður frá 17. maí til
26. júní, meðaltal 13. júní. Kartöflu
gras kom upp frá 4. júní til 26.
júní, meðaltal 13. júní og kýr látn-
ar út frá 22. maí til 14. júní, með-
altal 3. júni
4