Nýja dagblaðið - 02.09.1934, Side 4
DAQBLAÐIÐ
Vera Simíllon
Mjólkuríélag’Bhúsinu, Siœi 3371. HeimeaiiDÍ 3084
Ókeypis ráðleggingar á mánud. kl, 61/*—7V,.
<
ÍDAG
Sólaruppkoma kl. 5,13.
Sólarlag kl. 7,40.
Flóð árdlegis kl. 12,05.
Flóð síðdegis kl. 12,05.
Veðurspá: Suðaustan og austan
gola. Dálítil rigning öðru hvoru.
Ljósatimi hjóla og bifreiða kl.
8,10—4,40.
Söfn, skrifstofur o. fl.
þjóðminjasai'nið .............. 1-3
Náttúrugí'ipasaínið ........... 2-3
Listasafn Einars Jónssonar .. 1-3
I.andsbókasafnið . r.. opið kl. 1-7
Listasafn Einars Jónssonar .... 1-3
Pósthúsið...................10—11
Landssíminn ............. opinn 8-9
Lögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Messur:
í dómkirkjunni kl. 11 séra Frið-
rik Hallgrímsson.
í íríkirkjunni kl. 5 séra Árni Sig-
urðsson.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landspítalinn ...»......... kl. 2-4
Landa&otsspítalinn ........... 3-5
Laugamesspítali ............ 12%-2
Vífilstaðahœlið 12i/2-iy2 og 3i/2-4y2
Kleppur ...................... 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 1-3 og 8-9
Sólheimar .................... 3-5
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4
Farsóttahúsið ................ 3-5
Næturvörður í Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Næturlæknir: Valtýr Albertsson,
Túngötu 3, sími 3251.
Næturlæknir aðra nótt: Gísli Fr.
Petersen.
Skemmtanir og samkomur:
Drengjamótið ki. 10.
Knattspymumót III. fl. kl. lOogll.
Knattspyrnumót II. fl. kl. 5.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,40 Veðurfregnir. 11,00 Messa
í Dómkirkjunni (síra Friðrik Hall-
grímsson). 15,00 Miðdegisútvarp.
1S,45 Barnatími (síra Friðrik Hall-
grímssno). 19,10 Veðurfregnir. Til-
kynningar. 19,25 Grammófóntón-
leikar. 19,50 Tónleikar. Auglýsing-
ar 20,00 Klukkusláttur. Grammó-
fónn: Edv. Grieg: Cello-sónata í
A-moll. 20,30 Fréttir. 21,00 Erindi:
íslenzk ber (dr. Gunnlaugur Claes-
sen). 21,30 Danslög til kl. 24.
Á mánudag:
Kl. 10,00 Veðurfregnir 12,15 Há-
aegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Veðurfregnir. Tilkynningar.
19,25 Grammófóntónleikar. 19,50
Tónleikar. Auglýsingar. 20,00
Klukkusláttur. Tónleikar: Alþýðu-
lög (Útvarpshljómsveitin). 20,30
P'réttir. 21,00 Frá útlöndum:
„Drottins útvalda þjóð“ (Vilhj. ]).
Gíslason). 21,30 Tónleikar: a) Ein-
söngur (Daniel þorkelsson). b)
Grammófónn: Stravinsky: Eldfugl-
inn; sami: Suite.
Kjötverðið i bænum hefir nú
lækkað, bæði í heildsölu og smá-
sölu, samkv. ákvörðun kjötverð-
lagsnefndarinnar. þessi fyrsta
verðskráning gildir aðeins fyrst
um sinn og mun eins og venju-
lega um þetta leyti árs verða
meiri lækkun bráðlega á kjöti.
Smásöluverðið hefir lækkað um
12 aura kg. Kjötverðlagsnefndin
er nú búin að skipa eftirlitsnefnd-
ir á hinum ýmsu verðlagssvæð-
um.
N Ý J
Annáll
Skipafréttir. Gullfoss var í gær
á leið til Kaupmannahafnar. Goða-
foss fór frá Hamborg í gœr. Brú-
arfoss kom frá útlöndum í fyrra-
kvöld. Dettifoss var á Akureyri í
gœr. Lagarfoss fór kl. 10 í gær-
kvöldi til útlanda. Selfoss var á
Kópaskeri í gær.
Gestir í bænum. Gunnar þórðar-
son, bóndi, Grænumýrartungu,
Finnur Jónsson alþm. ísafirði.
Vilhjálmur JJór kaupfélagsstjóri
varð 35 ára í gær.
Séra Páll Sigruðsson, prestur í
Bolungavík, talar á Voraldarsam-
komu i Varðarhúsinu i kvöld kl.
kl. 8V2. Allir velkomnir.
Bara Oddurl Maðurinn hjá
Verzlunarráðinu þykist víst ekki
hafa vaxið að metorðum af skrif-
um sínum i Mbl. Áður birti hann
grein með undirskriftinni „dr.
Oddur Guðjónsson“. í gær heitir
liann bara Oddurl Og mun flest-
um finnast nóg, sem greinina
lesa.
Greinin „Á tunga vor að týn-
ast?“, er birtist hér í blaðinu fyr-
ii skömmu, undirrituð B. B. er
ekki eftir Björn Bjamarson í
Giafarholti.
Sólskin í Reykjaví. Um 160 klst.
sólskin var hér í bænum síðastl.
ágústmánuði, sagði Veðurstofan
blaðinu í gær. Meðaltalið er 170
klst.
Farþegar með Brúarfoss frá út-
löndum 31. ágúst síðastliðinn:
Guðlaugui' Rosinkranz ritstjóri,
Karl Jónsson læknir og frú,
Sveinn Ingvarsson foretjóri, Leif-
ur Asgeirsson skólastjóri og frú,
Guðmundur Ólafsson og frú, Sig-
urður Ólafsson kaupmaður og frú,
Andrés Andrésson, frú Valborg
Einárs.son o. fl.
Drengjamótið heldur áfram í
dag' kl. 10 f. h. verður þá keppt
í hástökki og stangarstökki og
vefðlaun afhent fyrir mótið. Kepp-
endúr og- starfsmenn áminntir að
mæt'á stundvislega.
Skátar (piltar og stúlkur), fund-
ui' verður haldinn í Varðarhús-
inu á mánudag kl. 8% e. h. Mál
sem varða öll íélögin verða rædd.
I jölmennið .
Bankamálið. Rannsókn í seðla-
hvarfsmálinu og ávísanasvikamál-
inu, sem upp komst í sambandi
við það er nu um það bi' lokið
og verður dómur kveðinn upp í
þessum mánu*i.
Rigning á ágústmánuði. í Rvík
var úrkoman 65 mm., sem er
nokkru meira en meðaltal, en
það er 52 mm. í ágúst mánuði
var hér alls 11 rigningarlausir
dagar.
Ameríski flugmaðurinn, dr.
Light kom hingað í fyrrakvöld
frá Angmagsalik eftir rúmlega
sjö klst. flug. Með honum er loft-
skeytamaður, Richard Wilson. í
gærmorgun tóku þeir bensín á
flugvélina og fara héðan áleiðis til
Bretlandseyja strax og veður
leyfir. Ekki er vitað í hvaða er-
indum þeir eru, en dr. Light segir
það vera skemmtiflug. Meðan þeir
eru hér í bænum dvelja þeir á
Hótél Borg.
Nýlega kom eldur upp í hlöðu
þorsteins Björnssonar kaupm. i
Ilafnarfirði og brunnu um 200
heyhestar.
Knattspyrnumót II. flokks. Mótið
stendur nú þannig: Fram hefir
unnið Val með 1 :0 og gert jafn-
tefli við Víking, en Valur hefir
unnið K. R. með 1 :0. í dag kl.
5 keppa I<. R. og Víkingur. Að-
gangur ókeyþis.
Knattspyrnumót III. fl. í dag kl.
10 keppa Fram og Víkingui- og
kl. 11 K. II. og Valur.
Fisktökuskipin. Hekla tekur hér
fisk og fer væntanlega annað kvöld
áleiðis tii Spánar, en kemur við i
Færeyjum og fullhleður þar. Katla
er væntanleg að vestan á morgun
og fer sennilega annað kvöld til
Italíu. Columbus tekur fisk á
Eyjafirði. Edda var í Stykkishólmi
1 gær.
Enn bjargar sundkunnátta
mannslífi. Nú í vikunni féll lít.ill
drengur fram af bryggjunni í
Húsavík. Sonur sýslumannsins
þar, Jóhann Havsteen var þai- rétt
lijá og fleygði sér eftir lionum og
lókst að b.jarga honum frá drukkn-
un.
Úr Norður-þingeyjarsýslu. Sí-
feldar rigningar og þurkleysur
nafa verið í Norður-þingeyjar-
sýslu, og eru mikil hey úti. 011
hey, að heita rnó, eru óhirt yzt
á Langanesi. þar er rnikið hey
skemmt, og næstum ónýtt. — Tog-
arinn Hafsteinn kom nýlega til
]>órshafnar, til þess að kaupa báta-
íisk. Afli þar hefir vei'ið sæmilega
góður undanfarna tvo mánuði.
Ekki ein báran stfik með sæ-
símann. Sæsíminn bilaði aftur í
fvrrakvöld og var viðgerð þá ný-
lokið á öðrum stað. Er þetta átt-
unda bilunin frá því í júli í fyrra.
Togurum er kennt um þessa bil-
un.
Sjávarhiti og ís
við Island 1933
Eftir frásögn Bjarna Sæ-
mundssonar í Ægi.
Bjami Sæmundsson fiski-
fræðingur skrifar í seinasta
hefti Ægis um ísrek við Græn-
land 'og Island á síðastl. ári.
Styðst hann að mestu við Nau-
tiskmeteorologisk Aarbog, frá
veðurstofunni í Kaupmánna-
höfn.
Um ísrek og sjávarhita við
Grænland segist honum á
þessa leið:
. „Við ísland var lítill . ís
þetta ár. Eftir ofsaveður af
VSV rak um miðjan febrúar
j töluvert af ís' upp að Vest-
j fjörðum frá Kögri að Bjarg-
töngum, en varð hvergi land-
fastur og stóð stutt við. Með
honum var sagt, að hefði kom-
ið mikil þorskganga, sem
hvarf svo með honum. í
apríl varð íss vart nokkura
daga út af Straumnesi og
Kögri. í júlí sást einn borgar-
ísjaki úti fyrir Húnaflóa, eins
og fyrirrennari ísbreiðunnar,
Einfalt rád
Árni Eylands harmar það í
Morgunblaðinu nýlega, að úti
verði á Hvanneyri mikið af
góðum engjum af því að hús-
rúm vanti þar fyrir hey og
skepnur. Skólastj órinn er að
kafna í heyi, og veit ekki
hvað hann á við þau að gera.
Hér er einfalt að ráða heilt.
Ekki er annað en byggja aftur
eitthvað af býlunum sem lögð
hafa verið undir Hvanneyri.
Hvítárós var síðast lagður
undir. Þar voru milli 10 og 20
nautgi’ipir, um 80 fjár og 10—
20 hross.
Staðarhóll hafði verið lagður
undir áður. Þar var minna bú,
en þó nokkurt.
Bæði þessi býli eru lögð und-
ir Hvanneyri af núverandi
skólastjóra, sem að því er
Árni segir, veit nú ekkert
hvað hann á að gera með
heyið sem heyjaðist í landi
þessara jarða.
Áður var lagt undir Hvann-
eyri: Ásgarður, Svíri, Tungu-
kot, Hamrakot, Kista og Skóg-
arkot.
Það er því einfalt ráð iað
fjölga aftur býlunum. Lofa aft-
ur fleiri fjölskyldum að fram-
leiða sjálfstætt, nógir vilja
verða til þess, ef möguleikam-
ir eru aftur skapaðir. x.
Yfir 130 tnenn
farastíGulafljótinu
London, 1./9. FÚ.
Manchuriskt gufuskip sökk í
dag í Gulafljótinu. Aðeins fá-
um mönnum varð bjargað.
Ekki er vitað með vissu, hve
margir farþegar voru með skip.
inu, en tala þeirra, sem fór-
ust, mun vera milli 130—160.
sem þá teygði sig yfir undir
ísland, eins og áður er minnst
á. Annars var íslaust hér.
Árið 1933 hefir verið líkt
fyrirrennurum sínum, hvað
þessar slóðir snertir, eitt ís-
leysisárið enn, hið 9. í röðinni.
Sjávarhitinn hér við land hef-
ir líkt og víðar í N-Atlanzhafi
og Norðurhafi verið hærri þetta
ár en að méðaltali, eins og hann
líka hefir verið við austanvert
landið (NA-, A. og SA-land)
og sumarið og haustið, enda
var síldin mjög stöðug við A-
land þetta ár og beinhákarlar
sáust við Austfirði norðan-
verða um sumarið (sbr. Ægi
XXVI, bls. 242) : Suðrænan
háfisk hér áður óséðan (Notid-
anus griseus), rak um haustið
á Kvískerjafjöru í Öræfum og
verá má, að hin mikla flyðru-
ganga, sem sagt er að hafi ver-
I ið við Grímsey þetta sumar,
j liafi verið að þakka óvenju
1 heitum sjó á þeim slóðum“.
# Odýrn $
auf;Jýsmg‘arD«.r.
Hásuæði
3 sólríkar stofur og eldhús
til leigu. Öll þægindi nema gas.
Sími 2185.
Námsstúlka óskar eftir her-
bergi (og- helzt fæði á sama
stað) nálægt kennaraskólanum.
A. v. á.
Lítið herbergi í Suðaustur-
bænum óskast 1. okt. A. v. á.
Til leigu þriggja herbergja
íbúð með öllum þægindum í
nýju húsi í Sogamýri. Leiguna
má greiða að einhverju leyti
með fæði og þjónustu. Avá.
Ibúð óskast 1. okt. 3—4 her-
bergi með öllum þægindum.
Upplýsingar í síma 2775.
Forstofustofa til leigu mán-
aðartíma. Gott tækifæri fyrir
íerðamann. A. v. á.
1—2 herbergi og eldhús með
þægindum óskast 1. okt. Uppl.
í síma 4259.
2 herbergi með aðgangi að
eldhúsi til leigu 1. okt. í húsi
mínu við Tjarnarbraut.
Ólafur Þ. Kristjánsson,
Hafnarfirði.
Gott herbergi óskast með
miðstöðvarhita. A. v. á.
Tilkyimiugar
Beztu og ódýrustu sunnu-
dagaferðirnar verða nú eins og
áður frá Vörubílastöðinni í
Reykjavík. Sími 1471.
Til Ólafsvíkur hvern mánu-
dag. Bifröst. Sími 1508.
Til Stykkishólms
hvern mánudag og fimmtu-
dag.
Aðalstöðin. — Simi 1383.
I
Veðráttan í ágúst
Framh. af 1. síðu.
stórrigningar, einkum á Aust-
fjörðum sunnanverðum.
Hér sunnan. og suðvestan-
lands má kalla, að verið hafi
sæmileg veðrátta fyrstu þrjár
vikumar, því þó þurkar hafi
ekki verið stöðugir, hafa kom-
ið góðir þurkdagar öðru
hvoru.
Síðan 20. mánaðarins má
heita, að verið hafi óþurkar
um allt land.
Hlýindi munu hafa verið vel
í meðallagi um allt land. —
Um fyrri helgi gerði kulda-
kast nyrðra og snjóaði þá
niður í miðjar hlíðar á Vest-
fjörðum og í Eyjafirði. Frosts
hefir ekki orðið vart í byggð,
svo vitað sé.
I ágústmánuði í fyrra gekk
heyskapurinn vel norðanlands,
en miklu ver hér syðra.