Nýja dagblaðið - 21.09.1934, Blaðsíða 1
Storfelíd breyting á fræðslulðggjöfinni
Samkvæmt tillögum kennaranefndarinnar á að sameina
hreppa í skólahverfi, leggja farkennsluna niður, og færa
skólaskyldualdur niður í 7 ár.
Það á að fækka barnakennurutn um 60 og lengja starfs-
tíma þeirra upp í 9 mánuði. - Þeir eru nú um 400.
Viðtal víð Snorra Sigfússon
Samkvæmt ósk skólaráðs
barnaskólanna skipaði ríkis-
stjórnin á síðastl. vori þriggja
manna nefnd til að endurskoða
fræðslulögin frá 1926. 1 nefnd-
inni eru Snorri Sigf ússon skóla-
stjóri á Akureyri (formaður),
Sigurður Thorlacius skóla-
stjóri í Reykjavík og Pálmi
Jósefsson kennari í Reykjavík
— og varamaður Bjöm H.
Jónsson skólastjóri á Isafirði.
Nefndin lauk störfum í gær,
og ákvað að senda ráðuneyt-
inu tillögur sínar eftir helgina.
Nýja dagblaðið náði í gær-
kveldi tah af formanni nefnd-
arinnar, og spurði hann, hver
væru aðalatriðin í tillögum
nefndarixmar.
— Tillögur nefndarinnar eru
aðallega þessar:
Skólaskyldualdur bama verði
færður niður í 7 ár. Þó má
veita undanþágu til 8 ára ald-
urs í einstökum fræðsluhverf-
um.
Starfstími barnakennara
verði lengdur upp í 9 mánuði
á ári og þannig færður til
samræmis við það sem tíðkast
í öðrum löndum. Með þessu
móti áætlar nefndin, að fækka
megi barnakennurunum í land-
inu um 60 a. m. k. og jafn-
framt bæta kjör þeirra nokk-
uð, þar sem þeir þá leysa
meira starf af hendi en nú.
Núverandi skipting landsins
í fræðsluhéröð eftir hreppum
falli niður.
Frœðsluhéröð og- skóla-
hverfi
Hver sýsla eða kaupstaður
sé eitt fræðsluhérað. I hverju
fræðsluhéraði sé fræðsluráð,
sem fer með fjármál fræðslu-
héraðsins og veitir viðtöku frá
hreppunúm því fé, sem þeim
samkvæmt nánari reglum ber
að leggja fram til skólahalds-
ins.
Hvert fræðsluhérað skiptist
í skólahverfi. I hverju skóla-
hverfi sé skólanefnd. Stærð
skólahverfanna sé ekki bundin
við hreppa. Ætlazt er til, að
þau séu yfirleitt stærri en
hrepparnir, þannig, að hrepp-
amir saméinist um þann
kostriað, sem skólabyggingar
og kennsla hefir í för með sér.
1 Öll íarkennsla í landinu sé
i lögð niður, svo fljótt sem unnt
I er. í stað farkennslunnar komi
! heimavistarskólar í sveitum
í eða heimangönguskólar, þar
j sem nægilegt þéttbýli er.
Hv&r á &ö byggja
skól&ua?
Öllu landinu sé skipt í sex
eftirlitssvæði. Á hverju svæði
sé eftirlitsmaður, sem hafi
yfirumsjón með allri bama-
fræðslu á eftirlitssvæðinu.
Nefndin gerir ráð fyrir, að á
næstu árum verði allt landið
skipulagt með tilliti til skipt-
ingar í skólahverfi og bygg-
ingar heimavistar og heiman-
gönguskóla. Með því móti á að
komri í veg fyrir, að meira
verði lagt í kostnað við skóla-
byggingar en óhjákvæmilegt
er, svo að kostnaðurinn verði
sem minnstur.
Gert er ráð fyrir, að kostn-
aðurinn bæði við skólabygg-
ingar og kennslu, skiptist á
milli ríkis og hreppa í sömu
hlutföllum og nú gilda.
80,o ólœs
Það sem nefndin hefir sér-
staklega haft fyrir augum,
segir Snorri Sigfússon, er að
marka höfuðdrættina í
fræðsluskipulagi framtíðar-
innar.
Von nefndarinnar er fyrst
og fremst sú, að með þessu
verði undirstaða fræðslunnar
betur tryggð en nú. Ég skal
í þessu sambandi nefna lestr-
arkennsluna, sem dæmi. Árið
1930 kom það í ljós við ítar-
legt landspróf, að 8% af böm-
um, sem það ár luku fullnað-
arprófi, voru lítt læs og að
40% af 9 ára bömum, voru
langt undir því lágmarki um
lestrarkunnáttu, sem núgild-
andi fræðslulög gera ráð fyrir.
Sparnaðurinn
Annar höfuðárangur breyt-
ingarinnar væri sá, segir
Snorri Sigfússon, að hægt
yrði að fækka kennurum og
Snorri Sigfússon.
verja minna fé til skólabygg-
ir.ga jafnframt því, að barna-
fræðslan þó yrði gerð miklu
tryggari en nú.
í þessu sambandi hefir það
meginþýðingu, að nám yngstu
barnanna sé fært yfir á
haustið og vorið og gert með
því notadrýgra og hollara.
Kennslumálaráðherra gerir
ráð fyrir, að frumvarpið verði
lagt fyrir menntamálanefndir
á þinginu í haust, og þá senni-
legt að þær flytji það í þing-
inu.
Maður varð úti
í Húnavatnssfsiu
í fyrrinótt
Með birtingu í fyrramorgun
fóru þeir Guðmundur Magnús-
son bóndi í Koti í Vatnsdal
og Ingvar Steingrímsson, 12
ára gamall drengur, með
stóðrekstur úr Auðkúlurétt og
ætluðu vestur í Vatnsdal, yfir
framanvert Vatnsdalsfjall. —
Bleytuhríð var og norðan stór-
viðri,, en frosthríð á fjöllum.
Þegar á fjallið kom viltust
þeir og héldu áfram allan
daginn, án þess að vita með
vissu hvert þeir fóru. Um
kvöldið komu þeir að á og
varð Guðmundur að leggjast
þar fyrir, að menn ætla vegna
kulda. Bað hann drenginn að
vera hjá sér. Töluðust þeir við
öðru hvoru um nóttina. Um
birtingu hætti að heyrast til
Framh. á 4. síðu.
Bítsr tastir i sijí i Reykjahiili
Líkur til að fé hafi fennt
Bryggja brotnaði á Húsavík
I fyrradag var á Húsavík
norðaustan stormur, með mikl-
um sjógangi, en snjókoma til
fjalla. Nokkrir bátar löskuð-
ust vegna samsláttar á höfn-
inni, og bryggja Guðjohnsens
verzlunarinnar brotnaði og ó-
nýttist. Stendur bryggjuhaus-
inn einn eftir.
Tveir fólksbílai- frá Bifreiða-
stöð Akureyrar lögðu upp á
Reykjaheiði í fyrradag, með 8
íarþega. Þeir komust austur-
fyrir Grjótháls, en þar urðu
farþegar að yfirgefa bílana
\egna snjókomu, og koiriust
aftur til Húsavíkur seint í
fyrrakvöld, þrekaðir og blaut-
ir.
Þriðji bíllinn fór frá Fjöllum
í Kelduhverfi kl. 4 í fyrradag
Fjárhagsvandræði enn
Bæjarstjórnarfundur var
haldinn í gær og hófst kl. 5
í Kaupþingssalnum.
Fyrstu málin á dagskránni
voru fundargerðir frá nefnd-
um og bæjarráði. Urðu nokkr-
ar umræður um fundargerð
skólanefndar.
Kosning fór fram á einum
manni í skólanefnd Gagnfræða-
skóla Reykjavíkur, í stað Gust-
afs A. Sveinssonar, sem beðist
hafði lausnar. Kosinn var
Guðni Jónsson magister.
Atvinnubótavinnan.
Sjötti liðurinn á dagskránni
hét framlög til atvirmubóta.
Var það tilkynning frá
borgarstjóra, þess efnis, að
bærinn væri það fjárhagslega
illa stæður, að fengist ekki
framlag frá ríkinu umfram;
íjárhagsáætlun eða ábyrgð á
láni, þá væri ekki hægt að
halda áfram eins mikilli at-
vinnubótavinnu og fyrirhuguð
hefir verið.
Er þetta ömurleg játning
frá forráðamanni þess flokks,
sem gumað hefir af, að Rvík
væri betur stjómað, en flest-
um bæjarfélögum öðrum á
Norðurlöndum.
1 Nokkrar umræður urðu um
þessa yfirlýsingu borgarstjóra,
og sérstaklega var það harð-
lega vítt, að bærinn hefði
notað atvinnubótafé til ýmsra
óhjákvæmilegra framkvæmda
bæjarins, og þess vegna ekki
orðið til verulegrar atvinnu-
Frarnh. á 4. síðu.
, og ætlaði til Húsavíkur. I
: l>eim bíl voru auk bílstjóra,
; Páll Stefánsson frá Þverá og
I Steingrímur Jónsson fyrver-
| andi bæjarfógeti á Akureyri.
| Þeir komust loks inn að Hösk-
uldsvatni, og urðu þar að láta
í'yrirberast yfir nóttina, sök-
um snjóa og náttmyrkurs.
Þeir komu svo gangandi til
Húsavíkur kl. hálf ellefu í
gærmorgun.
Fjórði bíllinn var sendur til
að leita þeirra, í fyrrakvöld,
en fann þá ekki og festist í
ófærðinni. Þessir bílar sitja nú
í fönn á Reykjaheiði, og er
talinn um metersdjúpur snjór
á heiðinni.
Hætt er við að fé hafi fennt,
því að göngur áttu ekki að
byrja fyr en í fyrradag. F.U.
samkvæmt símfregn frá Húsa-
vík.
I gær var bjartviðri um
Norðurland, en kalt.
Mentaskðlinn
settur í gær kl. I
Pálmi Hannesson rektor.
Menntaskólinn var settur kl.
1 í gær. Er það 10 dögum fyr
en vant er. Er áfonriað að
breyta skólatímanum framveg-
is, þannig, að kennsla hefjist
fyr að haustinu en áður og
hætti fyr að vorinu. En venjan
hefir verið sú, að setja skól-
ann 1. október og slíta honum
30. júní.
Frá sjónarmiði nemenda er
breytingin talin til bóta með
tilliti til atvinnu þeirra að
sumrinu.
I skólasetningarræðu sinni
talaði Pálmi Hannesson rektor
um nokkur nýmæli viðkom-
andi skólanum.
Framh. á 4. síðu.