Nýja dagblaðið - 21.09.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 21.09.1934, Blaðsíða 2
t N Ý J A DAdBLAÐIB Útvarpstæki • i Tækin fást með hag- stæðum greiðsluskil- málum í Viðtækja á markaðinn. Yerðið tölnvert lækkað. » útsölunni Tryggvagötu 28 Orðsending til húsmæðra Sökum þess að nú hefir með lögum verið tak- markaður vinnutími sendisveina, eru það vin- samleg tilmæli vor, að þeir, sem panta vörur sínar í síma, gæti þess fyrir helgar, að panta á föstudöguin eða fyrra hluta laugardags. Félag kjötverzland í Reykjavík Annaðkvöld 22. sept. kl. 7,30 i Gamla Bio Arnold Földe heimsfrægur celloleikari Emil Thoroddsen aðstoðar Aðgöngumiðar kr. 3,00 stúka, 2,50, og 2,00 hjá Katrínu Viðar og Bókaverzlun Eymundsens Fóðurbætir Bezti fóðurbætirinn er S.I.S. •fódurbiandan Reynið hana. Samband isl. samvínnuíélaga Til Borg'artiarðar og Borgarness eru fastar bílferðir alla miðvikudaga og laugardaga kl. 10 f. h. Afgr k Nýju Bitreiðastöðinni. sími 1216. Finnbogi Guðlaugsson Hvert er deiluefnið? Eftir frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur Niðurl. Ég verð víst að fara nokkr- um orðum um val skólanefnd- ar á söngkennaranum, sem augsýnilega er Sigurvin mikiU þyrnir í augum, enda þótt hann, að því er hann segir „ef- ist ekki neitt“ um ágæti mannsins; mér er spurn, er það þýðingarlaust atriði í málinu? Hann ber þennan þaulreynda söngstjóra og kennara saman við ungan pilt, óreyndan á því sviði, þó efnilegur sé, og telur þá standa jafnt að vígi, nema hvað pilturinn hafi kennara- prófið umfram, og hefði því átt að vera tekinn fram yfir eldri manninn, sem búinn er meðal annars að kenna 10 ár við bamaskólann hér í Reykjavík. Fyi'st Páll ísólfsson er í grein Sigurvins nefndur piltinum til stuðnings, þá vil ég geta þess, að Páll ísólfsson kom til mín í tilefni af umsókn Brynjúlfs Þorlákssonar og sagði mér, að barnaskólar Reykjavíkur mættu með engu móti hafna öðrum eins söngkennara og Brynj úlf- ur Þorláksson væri, fyrst þeir ættu völ á honum. Ég er því ekki í miklum vafa um, hvar atkvæði Páls -ísólfssonar hefði fallið í þessu máli. Dálítið er það einkennilegt, að bæði Nýja dagblaðið og Al- þýðublaðið leggja áherzlu á það, að kennaramir hafi borið fulan sigur úr býtum í þess- um málum. Deilan stóð um tvær stöður, söngkennslu og handavinnu. Söngkennarinn iiefir nú verið settur sam- kvæmt tillögum skólanefndar, en í handavinnuna kona, sem skólanefnd hafði mælt með, sem alménnum kennara. Fræðslumálastjómin hefir þvi ekki farið út fyrir méðmæli skólanefndar. Adeins það bezta er nógu gott þegar heilbrigði yðar á i hlut Epoka-dömubindi Epoka-belti Það langbezta en þó ekki dyrast. Fæst í Ingólísapoteki og Reykjavikurapoteki Nýkomið mikið úrval af allskonav vörum til tækilærisgjaía Haraldur Hagan Sími 3890. Austurstr. 3. Þá prentar Sigurvin það með feitu letri, að skólastjórar beggja bamaskólanna hafi leyft að hafa það eftir sér, að engan söngkennara vanti við skólana. Það hefði náttúrlega verið viðkunnanlegra, að þeir hefðu komið með þær mótbár- ur á skólanefndarfundinum, sem þeir voru báðir staddir á, þegar málið var rætt. Eða að minnsta kosti hefðu þeir átt að gera Sigurvin nánari grein fyrir því, hvað fyrir skólanefnd vekti, fyrst þeir ræddu málið við hann. Sú skoðun kom fram á skólanefndarfundinum, sér- staklega hjá þeim manninum, sem mest vit hefir á söng og söngkennslu, að söngkennsla skólanna væri ekki svo góð sem skyldi. Skólanefnd vildi þess vegna fela Brynjúlfi Þorlákssyni umsjón með allri söngkennslu skólanna og ætla honum ekki fulla tímaskrá. Þeir tímar sem honum voru ætlaðir áttu að skiftast á milli beggja skólanna, yrðu það þá sennilega ekki nema 7—8 st. á viku, sem kæmu á hvom skóla. Þeir söngkennarar, sem við skólana eru, hafa kennara- próf og geta því kennt aðrar námsgreinar en söng, enda fjölgar bömum alltaf í báðum skólunum, svo það væri undar- legt, ef ekki væri hægt að ráð- stafa þessu ósköp fyrirhafnar- lítið. Hitt er náttúrlega rétt, að ef ekki hefði verið um það að ræða, að tryggja sér starfs- krafta Brynjúlfs Þorlákssonar sérstaklega, þá hefði sennilega enginn söngkennari verið ráð- inn að skólunum í haust. Allt það, sem Sigurvin Ein- arsson telur upp, að kennar- amir vilji gera fyrir bömin, kemur þessu máli ekkert við. Mér hefir aldrei dottið í hug að efast um! velvild kennaranna til barnanna. Ég hefi aðeins sagt, að rödd kennaranna heimtaði eintóma kennarafróða menn að bamaskólunum, og að rödd aðstandenda bamanna segði, að þeir yrðu þá að vera færir um að taka að sér að kenna sérgreinamar á borð við sæmilega sérfróða menn. Hver efast um það, að bæði kennar- ar og aðstandendur hafi ótal margt fleira að segja; það mál er bara ekki til umræðu í þessu sambandi. Ég neita því að lokum af- dráttarlaust, að þessar greinar mínar séu skrifaðar af nokkr- um kala til kennarastéttarinn- ar, eða yfirleitt til nokkurs manns. Er það hart, að mega ekki ræða almenn velferðarmál þjóðarinnar, án þess að vera borið slíkt á brýn. Ég er mleira að segja sannfærð um, að ég er mikið sannari vinur kennar- anna en þeir menn, sem reyna að telja þeim trú um, að þeir geti kennt það, sem þeir hafa aldrei lært að neinu ráði. Aðalbjörg Sigurðairdóttir. Nýkomnar har- monikuplötur: Alex og Richard: Firkanset Slöjfe — Tre- kant — Alle Mand paa Dæk — Paa Kryds i Biskayen — Tvedbalbtis Polka — Fynsk Polka — Kvæservalsen — En gammeldags Mazurka. Gellin og Borgström: Familievalsen (Sólskina- valsinn) — Otte gun- ande Valse — Kok- Kuk-Vaise — Klinke- Valse — Sextur — Du er en Pokkers Tös — Melanie-Marzurka — Femöre-Valsen o. m. fl. Hljóðfærahtisið, Bankastræti 7 Sími 3656 Atlabdð, Laugavegi 38 Sími 3015 iVv: iii IVEGGMYNDIR, Rammar og mnramm- anir, bezt á Freyjugötu 11. Sími 2105. HILLING islenzkurTango eftir Þóri Jónsson, útsett af Roy Wat- ling — Fæst i Hljóðfærahúsi Reykja- vikur, Atlabúð og hjá K. Viðar. Jakob Möller í pílsi? Fyrir nokkru skrifaði „sjálf- stæðiskona“ í Vísi grein, sem hefir tvennskonar márkmið: í fyrsta lagi að koma inn óá- nægju bæjarbúa með kjötverð- ið. Það er talað um „hið gífur- lega verð á kjötinu", og kjöt- verðlagsnefnd kennt um. — „S j álf stæðiskonan" gleymir því, að áður en verðlagsnefnd- in kom til sögu var kjötverð í bænum kr. 1,80 pr. kíló, en lækkaði við ákvarðanir nefnd- arinnar strax um1 12 aura kg. Síðan hafa frekari lækkanir orðið, svo nú er heildsöluverð hér 1.25 kg. Hitt áhugamál „sjálfstæðis- konunnar" er, að spilla fyrir sölu á Flórasmjörlíki því, sem Kaupfélag Eyfirðinga fram- leiðir og býður nú með niiklu lægra verði en hægt var að fá aðrar smjörlíkistegundir fyrir. Og þetta er gert, að þvi er séð verður, af hreinni óvild við starfsemi samvinnumanna. — Það er rósmálaður atvinnuróg- ur. En þessi klausa í Vísi gefur sterkan grun um það, að höf- undurinn sé „kynvillingur". Að hann sé að vísu í karl- mannsmynd,en kjósi að feia blygðun sína í pilsi óákveð- innar trúarsystiu. Slík tilfelli eru svo tíð með þeim, sem! í Vísi rita. Allir kannast við greinar Páls og Jakobs með undirskriftinni „Gömul kona“ o. s. frv.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.