Nýja dagblaðið - 11.10.1934, Síða 2

Nýja dagblaðið - 11.10.1934, Síða 2
2 N Ý J A DAOBLAÐIÐ Bifreiðastjórafélagið Hreifill. Fnndnr verður haldinn föstudagskvöld 12. þ. m. kl. 12 á miðnætti að Hótel Borg (inngangur um suðurdyr). Dagskrá: 1. Félágsmál (inntaka nýrra félaga). 2. Rætt um launakjör og hvíldartíma bifreiðastjóra. 3. Ýms mál, sem upp kunna að verða borin. Skorað er á alla bifreiðastj óra, sem aka leigubifreiðum til mannflutninga, að mæta. StJ órnin. Lækningastofu hefi ég opnað í Austurstræti 7, II. bæð, herbergi nr. 23 (Reykjavíkur Apótek). Yiðtalstími 5—7. — Sími 4838. Heima Ingólfsstræti 21 C. Sími 2474. Gísli Pálsson. Spaðkfötið er komið Eins og að undanförnu seljum vér valið og metið spað- saltað dilkakjöt úr beztu sauðfjárhéruðum landsins. Kjötið er flutt heim til kaupenda, þeim að kostnaðarlausu Samband ísl. samvínnufélaga Simi 1080. FREYJU kaffibætisduftið — nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætis- duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffi- bæti í stöngum. Notið þuð bezta, sem nnnið er í landinn Egypiian ClGARETTES fSO’LED'ITKIPIFIEIID VIÐTÆKI margar n ý j a r g e r ð i r eru komnar í útsölur vorar: Viðtækjaútsöluna Tryggvagötu 28 og Verzlunina Fálkaun Laugavegi 24. Kynnið yður verð og gæði tækjanna. VIÐTÆKJ AVERZL. RIKISINS Hækkun skattstigans Ýmsir menn hafa beint til Nýja dagblaðsins fyrirspurn um það, hvernig á því standi, að hækkun skattstigans, sam- kv. stjómarfrumvarpinu, frá því sem áður var, sé hlutfalls- lega minni eftir að komið er upp fyrir 8000—10000 kr. hreinar tekjur, en hún er á 7000—10000 kr. hreinum tekj- um. Blaðið hefir fengið þær upp- lýsingar, að þetta stafi af því, að hækkunin sé gerð með hlið- sjón af þeim útsvarsstiga, sem niðurjöfnunarnefndir hafi far- ið eftir nú síðustu árin. En við niðurjöfnun útsvara var stig- hækkunin orðin miklu meiri þegar komið er yfir nefnda tekjuupphæð, en hún var í gildandi lögum um skatt til ríkisins. Það mun ekki hafa þótt rétt, að ákveða stighækkunina á skattinum til ríkisins þannig, að niðurjöfnunarnefndir hefðu ástæðu til að breyta þeirri stighækkun, sem þær nú fara eftir, heldur er frumvarpið, eins og áður er fram tekið, samið með það fyrir augum, að álagning ríkis og bæjar- og sveitafélaga sé skoðuð sem ein heild. En eins og kunnugt er, er útsvarsstigi niðurjöfnunar- nefndanna einmitt ákveðinn með atbeina þeirra flokka, sem að stjórnarfrumvarpinu standa, og hafði í för með sér meiri stighækkun á hæstu tekjum (samtals hjá ríki og bæjar- eða sveitafélögum) en áður hafði verið. Það skal tekið fram, að með „hreinum tekjum“ er átt við nettotekjur, eins og þær verða, þegar búið er að draga frá þeim útsvar og skatt greiddan á fyrra ári. En til þess að finna út „skattskyldar tekjur“ er þar að auki dreginn frá „per- sónufrádátturinn" fyrir skatt- greiðanda og þá sem hann kann að hafa á framfæri. Ef hjón með 3 börn í Reykja- vík hafa t. d. haft 4000 kr. laun og hafa greitt 50 kr. í skatt og útsvar á fyrra ári, ber að draga frá skattinn og útsvarið 50 kr. + 1500 kr. persónufrá- drætti ’njóna + 1500 kr. per- sónufrádrætti þriggja barna. Alls 3050 kr. Skattskyldar tekj- ur 950 kr. Skattur 9 krónur og 50 aurar. Á þessu sést, hversu mikill munur er á að miða við „skattskyldar tekjur“ eða nettótekjur. Er því hækk- un „pei'sónufrádráttarins" í stjórnarfrumvarpinu til veru- legi'a hagsbóta fyrir alla þá, sem lágar tekjur hafa. Loftskeytatakin vanta Eins og flestum er víst kunn- ugt, þá hafa verið keypt hing- að til landsins ekki alls fyrir löngu fjögur stór og frekar vönduð fraktskip, sem hafa þó öll farþegarúm að meira eða minna leyti. Þessi skip eru 1500—2100 smálestir að stærð hvert. Flestum er víst ókunnugt um öryggisútbúnað þessara skipa, sem er mjög af skorn- um skammti, þar sem aðeins eitt af þeim hefir tæki til radiomiðana, en ekkert þeirra loftskeytatæki. Þetta er mikið menningar- leysi og getur verið mjög skað- legt, að þeim skipum, sem sigla lengst af öllum ísl. skipum, skuli I vera leyft að hafa jafnlítinn öryggisútbúnað. I Alþýðublaðinu s. 1. vor var birt grein með undirskrift J. J., þar sem þessu máli er lýst mjög rækilega. Meðal annars skorar höfund- ur greinarinnar á Sjómannafé- lagið, að koma þessu í lag; þannig að öll þessi skip, sem sigla svona langa leið og flytja árlega vörur sem skipta mil- jónum króna og hafa stöðugt öll til samans um 100 manns- líf innanborðs og jafnvel far- þega að einhverju leyti, yrðu skylduð til þess að hafa loft- skeytaútbúnað. Ekki hefir heyrzt, að Sjó- mannafélagið sé farið að sinna þessu máli á neinn hátt. Gluggatjöld Dyratjöld Storiesefni Divanteppi Hannyrða verzl Þuríðar Sigurjónsdóttur Bankastr. 6 Simi 4082. Islendingar syngja í útvarpið í Canada Samkvæmt frásögn nýkom- inna vestanblaða hefir Karla- kór íslendinga í Winnipeg sungið þar í útvarpið þriðjudag- inn 18. f. m. að tilhlutun kan- adiska útvarpsráðsins. Útvarps, stöðin þar er mjög sterk og heyrist greinilega í henni frá hafi til hafs. Söngskrá karlakórsins var á þessa leið: Fjallkonan, Fósturlandsins freyja, Skammdegisvísur, GamL anvísur, Tárið, Enginn grætur Islending, Nú tjaldar foldin fríða, Grænlandsvísur, Töfrandi tónar, Ólafur reið með björg- um fram, Þótt þú langförull legðir eftir S. K. Hall og Sofðu unga ástin mín eftir Björgvin Guðmundsson. — Sólsetursljóð séra Bjama Þorsteinssonar. Sennilega verður þetta að umræðuefni núna á Alþingi og vonandi má þá vænta þess, að enginn þingmaður livaða flokki sem hann tilheyr- ir, hafi á móti slíku réttlætis- máli. Bezt væri þó, að þess þyrfti ekki með, heldur að eig- endur þessara skipa sæju sóma sinn í þessu máli, og létu setja í þau strax beztu öryggistæki nútímans á sjónum — loft- skeytatækin. X,

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.