Nýja dagblaðið - 23.10.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 23.10.1934, Blaðsíða 1
Kappflugið mikla til fflelbourne Englendingarnír Scott og Black setja Ægii tekur togara í annað sinn á hálfum mán. nýtt met svo munar hálfum fimmta sólarhring á flugtímanum millí Eng- lands og Astralíu London kL 17, 22./10. FÚ. C. W. A. Scott og Campell BlaCk komu til: Port Darvin á norðurströnd Ástralíu kl. 11 í morgun eftir brezkum tíma, eftir 2ja sólarhringa og 4Vá stundar flug. Fyrir hér um bil nákvæmlega ári, flaug Charles Ulm þessa sömu vegalengd og setti þá nýtt met með 6 sólar- hringum og rúml. 18 stundum. Nú hafa þeir Scott og Campell hnekkt þessu meti svo rösk- lega, að það munar 4 sólar- hringum og 13 stundum. Fyrst var flogið til Ástralíu frá Englandi 1919. Tók sú för 4 vikur og 2 sólarhringa. Nú virðist það nokkum veginn ör- uggt, að þeir Scott og Campell muni vinna hraðflugið, þar sem þöir einir eru komnir til Ástr- alíu að því vitað er. Þeir lögðu af stað frá Singapore 7 stund- um 4í5ur en næsta flugvél fór þaðan, það var hollenzka vélin, sem stýrt er af Parmentier og Moll. Þriðja vélin í röðinni er vél þeirra amerísku flugmann- anna, Roscoe Turner og Clyde Pangbom. Þegar að þeir Scott og Black komu til Port Darvin höfðu þeir flogið í 2Y2 stund með aðeins annan hreyfilinn í gangi. Þeir töfðust í 2 klst. meðan verið var að reyna að gera við hinn hreyfilinn. Kl. 1,30 e. h. (brezkur tími) lögðu þeir af stað aftur. Hin stóra hollenzka flugvél þeirra Parmentier og Moll hefir nokkra farþega inn- anborðs. Þeir lögðu af stað kl. 4 síðd. frá Rambang á Java, þaðan eru um 1000 enskar niíl- : ur til Port Darvin. Ilefir þeim einnig gengið allt að óskum. Roscoe Tumer og Clyde Pangbom villtust á leiðinni milli Karachi og Alahabad, en komust á rétta leið aftur með aðstoð leiðbeininga, sem þeir fengu í loftskeytum. Þeir fóru frá Singapore kl. 2,30 síðd. í dag, 6 stundum á eftir liinni stóru1 hollenzku flugvél. Fjórða vélin í röðinni er nú vél þeirra Carthcart og Wal- lers, sem fór fram úr vél Molli- son 1 Alahabad. Mollison-hjón- unum hefir gengið illa. Þau vom á undan til Karachi, en töfðust þar mikið og eru nú í Alahabad. Komast þau ekki þaðan sakir vélabílunar, og koma ekki lengur til mála. Kalundboro kL 17, 22./10. FÚ. Ensk vél, sem tók þátt í kappfluginu til Ástralíu, hrap- aði í dag í Ítalíu og kviknaði í henni. Báðir flugmennimir, sem í henni voru, fómst. Scott hefir orðið að snúa til Port Darwin eftir hálfrar stundar flug, vegna þess að vél- in var í ólagi. Við þetta óhapp hefir keppnin milli hans og Hollendingsins orðið ennþá meiri en áðru. Mollisons-hjónin hafa sagt sig úr þátttöku í kappfluginu, en ætla samt að fljúga áfram til Ástralíu. Fréttir af kappflug- inu frá Englandi kl. 10 1 gærkveldi. Frá Port Darwin til Mel- boum er flugleiðin um 2.300 enskar mflur og er talið víst að Scott muni ná þangað fyrstur, ef flugvélin heldur út, en hún er lítilsháttar biluð og vinnur ekki nema á 5 stimplum í stað sex. — Óvíst er talið, hvort hollenzka flugvélin verður á undan þeirri amerísku, því Hollendingamir þurfa að koma við á 2 stöðum, en amerísku flugmennimir ætluðu að reyna að fljúga beint til Port Darwin til að freista að ná þangað á undan Hollendingunum. Scott og Black hafa nú . sett nýtt met í þessu flugi og 1 ef þeir ná heilu og höldnu til j Melbourne á morgun vinna þeir verðlaunin, en þaú eru 10.000 sterlingspund. Mollison-hjónin eru enn í Allahabad og er því útilokað að þau nái fyrst til Melboume, en ekki er ólíklegt að þau geti enn fengið „handi-cap“ verð- launin, 2000 sterlp., sem veitt em fyrir fæstar flug-klst. Síðustu fréttir frá Engalndi í kvöld ld. 11 herma, að þeir Scott og Black hafi komið til Charwell í Qveensland kl. 9,40 (ísl. tími) og áttu þeir þá eftir 787 mílur til Melboume. Hol- lendingamir fóru1 frá Port Dar- win 91/2 klst. á eftir þeim Scott og Black. Ekkert hefir frétzt frá Ameríkönunum, sem ætluðu að fljúga viðstöðulaust beint frá Singapore. Þýzkur skoðana- bróðir Morgunbl. Julius Streicher. Morgunblaðið birtir langa grein á sunnudagixm, þar sem heraaðaræðið og nazistiskar kynþáttakenningar eru lofaðar með mörgum fögmm orðum. T. d. em Japanir taldir eftir- breytnisverð fyrirmynd, „þetta litla eyríki með 30 miljónir íbúa, sem á fáum áratugum! hefir vaxið í 90 miljóna þjóð, er veitir sér olbogarúm með hervaldi, þrátt fyrir þjóða- bandalag"! Fyrsti kostur og aðaldyggð norrænna manna er sá talinn, að þeir séu „hermenn góðir“! Gyðingar fá líka aðeins upp á pallborðið hjá Morgunblað- inu. Myndin hér að ofan er af einum æstasta skoðanabróður Morgunblaðsins í þessum mál- um, Þjóðverjanum JuliusStrei- cher, sem er talinn einn hat- ramasti Gyðingahatari Þýzka- lands og er þá langt jafnað. . Hann er útgefandi blaðsins ! „Der Stiirmer“ og hefir það haldið uppi þrálátum árásum á Gyðinga og myndi Valtýr ekki komast í hálfkvisti við það, þó hann legði sig allan fram. Uppreisnio á Spáni London. kL 17, 22./10. FÚ. Yfirvöldin á Spáni em nú að gera síðustu ráðstafanir sínar til þess að friða Asturiu. 1 dag var yfirvöldunum afhent þús- undir riffla og allmiklar birgð- ir af skotfærum. Er nú óðum verið að gera við skemmdir á vegum og ritsíma- og talsíma- slit. Framh. á 4 •ÍÖu. Ægir kom á laugardagskvöld- ið til Norðfjarðar með togara, sem hann hafði tekið að land- helgisveiðum á Þistilfirði. Togamn er enskur, Okini frá Grimsby. Skipstjórinn heitir Adelson. Áreiðanlegar fréttir herma, að um augljóst landhelgisbrot hafi verið að ræða. Viðtalstfmi ríkisstjðrnarinnar Ráðherramir hafa ákveðið, vegna mikilla anna við þing- störfin, að þeir verði til viðtals í stjórnarráðinu kl. 10—12 árd. á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum1, en ekki á öðr- um tímum. Gildir þessi ákvörðun fyrst um sinn a. m. k: meðan þing stendur yfir. Þeir sem leggja þurfa erindi sín fyrir stjómina, þurfa þvi að koma til viðtals við ráðherr- ana á þessum ákveðna tíma. Sú spuming, hvað verði um hinn aldraða, flokklausa for- sætisráðherra Bretlands, Mac Donald, er nú töluvert rædd í Englandi. Við síðustu kosningar náði hann með ítrustu hörkubrögð- Þetta er í annað sinn á hálf- um mánuði, sem Ægir tekur togara, síðan Einar M. Einars- son tók við skipstjóm. Bilslys Tyær kýr drepnar Hræðilegt bifreiðarslys vildi til á Hafnarfjarðarveginum kl. 9 á sunnudagskvöldið. Bifreiðin RE 847 var á leið að sunnan. Rétt við Hraun- holtsbrúna sá bifreiðarstjórinn tvo menn á veginum og gaf hann merki. Viku þeir strax til hliðar og lét bílstjórinn bif- reiðina halda áfram. Kom þá í ljós, að þeir höfðu teymt sína kúna hvor, en ekki verið nógu fljótir að koma þeim af vegin- um. Meiddust báðar kýmar stórkostlega og drapst önnur þegar í stað. Hin var skotin strax og því varð við komið. Málið er í lögreglurannsókn í Hafnarfirði. um kosningu í kjördæmi sínu Seaham. Hitt er talið von- laust, að hann nái þar endur- kosningu, þegar næst verður kosið til brezka þingsins. Mac Donald styðst nú ékki Framh á 4 slðu. Veröur BKacDonald landsstjóri í Canada?

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.