Nýja dagblaðið - 07.12.1934, Blaðsíða 1
fllit skipolagsnefndar í atvinnvmálttm,
Búnaðarfélagsins og
Menntamálanefnd efri deildar
hefir haft til athugunar frv.
um stofnun atvinnudeildar við
háskólann. Hefir hún í sam-
bandi við það leitað álits
skipulagsnefndarinnar í at-
vinnumálum, Búnaðarfélagsin3
og Fiskifélagsins.
Þar sem hér ræðir um mál,
sem er mjög þýðingarmikið
fyrir atvinnuvegi landsmanna,
þykir blaðinu hlýða, að lesend-
ur þess fái tækifæri til tvð
kynnast áliti þessara stofnana.
Ur áliti
skipulagsnefcdar
„Nefndin lítur svo á, að
mjög mikils sé um það vert, að
hlutazt sé til um, að atvinnu-
vegir landsmanna fái allan
þann stuðning af vísindalegii,
innlendri starfsemi, sem frek-
ast er unnt að veita þeim, og
jafnframt mjög mikilvægt, að
starfsemi Háskóla Islands veröí
fjölbreyttari en hún er nú, en
nefndinni virðist, sem með
frumvarpinu séu ekki gerðar
nægilegar ráðstafanir til þess,
að séð verði fyrir þessum efn-
um á viðunandi hátt.
Um síðara atriðið er það
að segja, að enda þótt það sé
vafalaust rétt, sem bent er á
í greinargerð frumvarpsins, „að
markmið æðsta skóla landsins
á ekki eingöngu að vera það,
að útskrifa embættismenn,
heldur væri ekki minna um hitt
vert, ef þessi menntastofnun
gæti orðið miðstöð fyrir hag-
nýta þekkingu" o. s.' frv., þá
lítur nefndin svo á, að naum-
ast sé æskilegt að tengja við
háskólann starfsemi, sem ekki
stendur í neinu sambandi við
kennslu. Það er alkunnugt, að
mikil þörf er á því, að stúdent-
um verði gefinn kostur á fjöl-
breyttara námi við háskólann
en þeir eiga nú kost á. En þetta
frumvarp bætir á engan hátt
úr þeim skorti. Á frumvarpinu
verður ekki séð, að prófessorum
og aðstoðarmönnum hinnar
fyrirhuguðu deildar sé ætlað að
hafa neina stúdentafræðslu
með höndum. Og bersýnilegt
Fiskifélags Islands
er, að hún ætti þess heldur ekki
neinn kost, þar sem meðal ann-
ars er ekki gert ráð fyrir nein-
um sérfræðingi í stærðfræði og
eðlisfræði. En þær vísinda-
greinar eru, eins og almennt er
vitað, imdirstöðugreinar alis
verklegs vísindanáms.
Atvlcnudeildm
óíullnsegjandi
En þótt ekki sé höfð nein
hliðsjón af fræðslu stúdent-
anna, þá verður ennfremur á
það að benda, að sem rann-
sóknarstofnun til viðreisnar og
eflingar atvinnuvegum lands-
manna nær þessi fyrirhugaða
atvinnudeild háskólans svo
skammt, að naumast verður
sagt, að atvinnuvegirnir séu
mikið betur settir hennar
vegna en þeir eru nú. í því
sambandi má t. d. benda á, að
ekki er gert ráð fyrir, að hér
verði f jallað um þau efni, sem
heyra undir almenna jarðfræði,
grasafræði, plöntusjúkdóma-
fræði, jarðaræktarfræði og ým-
islegt annað, er að landbúnað-
arfræðum lýtur.
Þá lítur nefndin ennfremur
svo á, að með stofnun atvinnu-
deildar við háskólann með því
fyrirkomulagi, sem gert er ráð
fyrir í frumvarpinu, sé á engan
hátt séð fyrir þeirri samvinnu
við ríkisstjórnina og atvinnu-
Iífið í landinu, eins og það er
á hverjum tíma, sem nauðsyn-
leg er til þess að stofnunin
komi að haldi.
Og að lokum skal á það bent,
að með 7. gr. frumvarpsins eru
úr gildi numin ýms þörf
ákvæði úr lögum nr. 17 14.
júní 1929, um rannsóknir í
þarfir atvinnuveganna, án þess
að aðrar ráðstafanir séu gerð-
ar, er komið geti í þeirra stað.
Að þessu athuguðu þykir
skipulagsnefnd atvinnumála
| sýnt, að málið sé ekki nægi-
lega undirbúið, og leyfir sér því
að leggja það til, að málinu
verði vísað til ríkisstjómarinn-
ar með tilmælum um, að hún
láti fara fram nýja athugun á
þessu mikilvsega rn41i og leggi
það, að þessum nauðsjmlega
undirbúningi loknum, fyrir
næsta Alþingi.
Skipualgnefnd atvinnumála
Héðinn Valdimarsson.
Steingr. Steinþórson“.
Umsögn
Bún&ðarfélagsins
I áliti Búnaðarfélagsins segir
m. a.:
Af frumvarpinu verður eigi
séð, að neinum búfróðum manni
sé ætlað að starfa þar. Vér
teljum það þó nauðsynlegt, að
prófessor búnaðardeildarinar
hafi fullkomna búnaðarmennt-
un, og helzt sérþekkingu í ein-
hverri fræðigrein búnaðarins.
Þetta á að vera aðalmaður, sem
á að hafa forgöngu í öllum til-
raunum og rannsóknum bún-
aðardeildarinnar. Þarf því að
hafa víðtæka þekkingu á bún-
aði, bæði utan lands og innan.
Að öðru er oss eigi ljóst af
i frumvarpinu, hvernig sam-
bandi milli atvinnudeildarinn-
ar og búnaðarins, fiskiveiðanna
og iðnaðarins á að vera fyrir
komið, eða hvernig atvinnu-
deildinni er ætlað að vinna með
stofnunum þeim, sem nú starfa
á þessum sviðum, Fiskifélagi,
Búnaðarfélagi og Iðnsambandi.
Vér höfum svo lítið fé til um-
ráða, að allir starfskraftar
þurfa að notast sem bezt. Að
koma upp sérstökum stofnun-
um, sem hver vinni út af fyrir
sig og sem svo eigi standa í
sambandi hver við aðra, mun
eigi heillavænlegt.
Af framangreindum ástæðum
hyggjum vér nauðsynlegt, að
frumvarp þetta sé betur athug-
að, bæði af háskólaráðinu cg
aðalmönnum þeirra stofnana,
sem atvinnudeildinni er ætlað
að vinna fyrir. Nauðsynlegt er
og að kynna sér fyrirkomulag
líkra stofnana erlendis og sam-
ræma við vora staðhætti.
Virðingarfylst
S. Sigurðsson“.
Skoðnn
Fiskiíélagsins
i I áliti Fiskifélagsins er vikið
að því, að tveir menn (Árni
Friðriksson' og Þórður Þor-
' björnsson), sem ætlað er að
i
j starfa við þessa atvinnudeild,
Framh. ó 4. síðu.
Þrír lítrar! - Heil Hitler!
Adolt Hitler,
sem þegnar hans vilja hliðra sér
hjá að neína.
Nýlega birtist í Hamborgar-
blöðunum tilkynning frá póst-
málaráðherra Þýzkalands, þar
sem embættismönnum póstmál-
anna er gert að skyldu, að nota
kveðjuna: Heil Hitl-
er“, ekki einungis alltaf í em-
bættisstarftíma sínum, heldur
og utan hans. Og þar er sam-
timis lögð rík áhersla á það,
að þeir skuli segja „Heil ,Hitl-
er“ greinilega.
Ástæðan til þessarar áminn-
ingar yfirvaldanna er talin að
vera sú, að margir embættis-
menn hafi hummað þessa
skyldu fram af sér með því
móti að tauta orðin: Drei
Liter í staðinn fyrir Heil
Ilitler.
Deilur Jugoslava
og’ Ungverja harðna
London kl. 17 6./12. FÚ.
Orðsending Ungverja til
Þjóðabandalagsins var fengin í
hendur ritara þess í dag. Orð-
sendingin er allharðorð og neit-
ar afdrátarlaust ásökunum
stjórnarinar í Jugóslavíu.
Júgóslavneska stjórnin hefir
hinsvegar hafizt handa gegn
Ungverjum í Júgóslavíu. Rúm-
lega 1000 Ungverjum hefir ver-
ið vísað úr landi, sumum að-
eins með 24 stunda fyrirvara,
og eru margir komnir til landa-
mæraborga í Ungverjalandi, og
hefir þar verið tekið á móti
þeim af fulltrúum ungversku
stjórnarinnar. Aðrir 1000 menn
bíða þess í Júgóvlavíu að fá
járnbrautarlest heim fyrir
landamærin.
Þar að auld hefir júgóslav-
neska stjórnin gert landreka
300 menn, sem afsalað höfðu
sér ungverskum borgararétti
og sótt um júgóslavneskan.
Ungverjaland hefir neitað að
taka á móti þessu fólki, svo að
þeir eru nú strandaglópar og
einskis lands borgarar.
Ungversku blöðin eru afar
reið yfir þessu og mótmæla
harðlega aðförum Júgóslava, og
krefjast þess að ungverska
stjórnin stefni máli þessu fyrir
Þjóðabandalagið.
slík auglýsingaspjöld, til þess
að hræra menn til að gefa fé
hinu örbjarga fólki til líknar.
Jarðarför
Kirovs
neyð, sem nú ríkir víða
Þýzkalandi um það bil að ve
urinn er genginn í garð. Na
istastjórrún hefir látið útbi
LonJon kl. 17 6./12. FÚ.
Jarðarför Kirovs, sem var
myrtur í Leningrad á laugar-
dag, fór fram í Moskva í dag.
Stalin og aðrir fastir leiðtogar
kommúnistaflokksins voru við-
staddir.
Það var tilkynnt í Moskva í
dag, að síðan Kirov var myrt-
ur, hafi verið teknir af lífi 66
menn vegna ofbeldis og gagn-
byltingarstarfsemi. Síðan á
laugardag hefir 71 maður verið
yfirheyrður í Leningrad og
Moskva út af þessum málum,
og fimm þeirra, sem ekki hafa
verið teknir af lífi, verða yfir-
heyrðir aftur.