Nýja dagblaðið - 19.12.1934, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár.
Reykjavík, miðv.daginn 19. desbr. 1934.
300. blað
Vilja sfjórnarandstæðingar
gera ísl. ríkið gjaldþrota?
Greiðsluhalli á fjárlögum samkvæmt
tillögum Sjálfstæðis- og Bændaflokks-
manna myndi verða 4,870,000 kr.
900 þús. kr. utgjaldahækkun samkv.
tillögum þeirra við 3. umræðu
Eysteinn Jónsson fjármála-
ráðherra reiknaði út í eldhús-
dagsumræðunum, að samkvæmt
fjármálatillögum íhaldsins
(Sjálfstæðisfl. og Bændafl.),
sem þá var kunnugt um ættu
fjárlögin að verða með ca. 3^/2
milj. króna greiðsluhalla. Var
þá tekið til greina:
1. Yfirlýst stefna Sjálfstæð-
isflokksins í kosningunum í í
vor um niðurlagning arðgæfra
ríkisfyrirtækja.
2. Yfirlýst andstaða sama
flokks gegn tekjuaukafrum-
vörpum stjórnarinnar. .
3. Breytingartillögur Sjálf-
stæðismanna í fjárveitinga-
nefnd við fjárlagafrumvarpið.
4. Útgjaldatillögur Bænda-
flokksmanna, fram komnar í
þinginu.
Þessari niðurstöðu fjármála-
ráðherra var ekki mótmælt með
rökum af hálfu stjórnarand-
stæðinga, enda var það ekki
hægt, þar sem fyrir lágu
ákveðnar og óhrekjanlegar töl-
ur, sem ekki var hægt að mót-
mæla.
Ráðherrann gat þess þá enn-
fremur, að sér segði svo hugur
um, að fram myndú koma auk
þess ekki óverulegar tillögur til
hækkunar á útgjöldum ríkisins
frá einstökum þingmönnum
stjórnarandstöðuflokkanna við
2. og 3. umræðu fjárlaganna.
Sú hefir líka orðið raunin á,
og það svo að um munar.
Við 2. umræðu fluttu ein-
stakir þingmenn þessara flokka
tillögur um útgjaldahækkun,
sem samtals námu um 452 þús.
króna.
Og við þriðju umræðu, sem
nú þessa daga stendur yfir á
Alþingi hafa þeir flutt nýjar
hækkunartillögur, sem samtals
nema 922 þús. króna. Eru þá
ekki taldar hækkanir, sem
fluttar voru við 2. umræðu, og
nú eru teknar upp aftur lítið
eitt lækkaðar.
Samkvæmt þessu ætti þá
greiðsluhalli sarakvemt tiUög-
um og yfirlýstri stefnu stjóm-
arandstæðinga að verða:
Samkv. útreikningi
fjármálaráðherra 3.500 þús.
Hækkanir við 2. umr. 452 —
_ — 3. — 922 —
Samtals kr. 4.874 þús.
Auk þessa hafa stjórnarand-
stæðingar í þinginu lagt til, að
ríkið gangi í eftirtaldar
ábyrgðir:
fyrir Ákureyri .... 500 þús..
— Stykkishólm . . . 180 —
— Vestfjarðabátinn 90 —
— bryggju í Hnífsd. 40 —
— læknisbúst. í ögri 15 —
— Ísafj.rafveitu . . 700 —
auk a. m. k. tveggja ábyrgða
fyrir ótilteknum upphæðum.
Alls myndu þessar ábyrgðir
nema rúml. l/z miljón króna.
Slíkt er fárlegur vitnisburð-
ur um fjármálastefnu stjórnar-
andstöðuflokkanna. En hér
verður ekki um þráttað. Töl-
urnar tala.
Hvað veldur slíku framferði?
Eru slíkar tillögur frarn
bornar í eintómu meiningar-
leysi — til þess að fullnægja
flokksofstæki eða til að sýn-
ast fyrir kjósendum einstakra
héraða — í þeirri von að þær
verði ekki samþykktar af
þeim sem ábyrgðina hafa?
Eða eru þær bomar fram í
fullkomnu sinnuleysi og ábyrgð
arleysi um fjárhagslega af-
komu ríkisins?
Því mega stjómarandstæð-
ingar sjálfir svara og standa
reikningsskap á gagnvart þeini
mönnum, sem kunna að hafa
trúað þeim til alvarlegrar
framkomu og gætni í fjármál-
unum.
En tæplega mun almenningi
finnast, að formannsskiptin í
íhaldsflokknum hafi leitt til
aukinnar ábyrgðartilfinningar í
þesavun efmunl
Bkkert
hernaðarbandalag
milli
Frakka og Rússa
London kl. 17 18./12. FÚ.
Franska stjórnin og Sovét-
stjórnin hafa í dag algerlega
Stjórnmálayiðsjár
á Balkanskaganum
Yeytitcli ntanríkisráðli. Jugoslava segir af sér
Kommúnistar rísa gegn einræðisstjórninni
i Búlgarín
Lengst til hægri Jevtitch utanríkismálaráðherra Júgó-
slava, þá utanríkismálaráðherra Rúmena, Titulescu, utanríkis-
málaráðherra Tyrklands, Tevfik Rouchdy og utanríkismála-
ráðherra Grikklands, Maximos.
Flandin fcrsætisráðh. Frakka.
neitað því, að um nokkurt
hernaðarbandalag væri að ræða
milli stjórnanna.
1 yfirlýsingunni segir, að
ekkert samkomulag hafi verið
gert milli Frakka og Rússa
nema það, sem gert var í Genf
á dögunum og tilkynnt var þá
opinberlega, og var í því fólgið,
að hvorugt ríkið skyldi gera
samninga við þriðja ríki, án
vitundar hins og samþykkis,
meðan samningarnir um Aust-
urevrópubandalagið stæðú yfir.
Þingslít
Þingstörfin hafa gengið
óvenju greiðlega seinustu dag-
ana og valda því einkum hin
skipulegú vinnubrögð stjórnar-
flokkanna. •
Má fastlega gera ráð fyrir,
ef andstöðuflokkar stjórnarinn-
ar beita ekki óeðlilegum töfum,
að hægt verði að slíta þinginu
á föstudag eða laugardag.
En íhaldsmenn gerðu sitt til
að tefja tímann með því að
neita um afbrigði fyrir fjögur
mál í gær.
London kl. 17 18./12. FU.
Margar sögur ganga í dag
fum ástandið í Belgrad og ekki
gott að henda reiður á því öllu,
sem þaðan berst.
Þó virðist mega fulljrrða það,
að Yevtitch, utanríkismálaráð-
herra, hafi sagt af sér. Aðrar
fregnir segja, að búnaðarmála-
ráðherrann hafi einnig sagt af
sér og að Páll prins hafi hvatt
til þess ýmsa gamla stjórn-
málamenn, sem lengi hafa ekki
tekið þátt í stjómmálum, að
gegna ráðherraembættunum. —
Ein fregnin segir, að Yevtitch
hafi sagt af sér vegna óánægju
þeirrar, sem mjög hefir gert
vart við sig í Júgóslavíu út af
afstöðu hans á Þjóðabandalags-
fundinum í Genf. Stjórnin
virðist sitja enn að öðru leyti.
London kL 17 18./12. FÚ.
í Búlgaríu eru einnig marg-
ar sögur á sveimi um einræðis-
stjórnina. 1 vikunni sem leið
var sagt, að ýmsar ráðstafanir
hefðu verið. gerðar til þess að
bæla niður kommúnisma, en nú
er svo að sjá, að ráðstafanir
stjórnarinnar hafi verið ennþá
víðtækari, og að 700 manns hafi
verið teknir fastir, grunaðir um
uppreisnaráform. Það er sagt,
að kommúnistar hafi gert sér
von um liðsinni hersins.
Piltur og stúlka
lilð nýja lcikrit Emils Tlioroddsen
vorður sýnt annan í jólum
Leikfélag Reykjavíkur er nú
að undirbúa sýningu á Pilt 0g
stúlku, hinni vinsælu skáldsögu
Jóns Thoroddsen. Hefir Emil
Thoroddsen búið hana á leik-
svið.
Inn i leikritið hefir verið
komið mörgum af hinum þekkt
ústu kvæðum Jóns og hefir
Emil Thoroddsen samið við
þau ný lög. M. a. hefir hann
samið nýtt lag við „Ó, fögur
er vor fósturjörð" 0g láta þeir
vel af því, sem það hafa heyrt.
Söguhetjurnar í Pilti og
stúlku eru flestum gamalkunn-
ugar. Guðmund Bárðarfóstra
hinn annálaða aulabárð, leikur
Valur Gíslason, Bárð gamla
leikur Brynjólfur Jóhannesson,
Indriða leikur Kristján Krist-
jánsson söngvari og Sigríði
leikur Magnea Sigurðsson.
Annars er of langt mál, að
telja uppp alla leikendurna, því
þeir eru yfir tuttugu. En þeir
sem eru ótaldir eru flestir
gamalkunnugir eins og t. d.
Gunnþórunn Halldórsdóttir,
Soffía Guðlaugsdóttir, Gestur
Pálsson, Þorsteinn ö. Stephen-
sen, Martha Indriðadóttir, Þóra
Borg, Arndís Bjömsdóttir o. fl.
Indriði Waage hefir leik-
stjóraina á hendi.
Framh. á 4. aíðu.