Nýja dagblaðið - 28.12.1934, Page 1
NyJA DAGBIAÐIÐ
2. ár. Reykjavfk, föstudaginn 28. des. 1934. 306. blað
Nýtt blóðbað í Þýzkalandi ?
Eldurinn i Vatnajðkii
Likur benda til að hann eé á sama stað og sl. vor
Hítler ætlar að taka aftur
orð sln um að „Þýzkaland
verði að mylja Frakkland
mjölinu smærra“
Londoii kL 17, 27/12. FÚ.
Frá Þýzkalandi hafa ýmsar
óljósar freg'nir borizt í dag, og
jafnharðan bornar til baka eða
sagt frá þeim í öðru formi.
Hitler,
boöar .eyðileggingu Frakklands.
Iiin fyrsta er sú, að 230 leið-
togar Nazista hafi verið teknir
af lífi, og þar á meðal sé von
Briickner, áður landsstjóri í
Schlesíu. Ennfremur að teknir
hafi verið höndum allt að 4
þús. manns. Frá Berlín er það
opinberlega tilkynnt, að engar
aftökur hafi farið fram, og að
John Knox,
aðalumboðsmaður pjóðabanda-
lagsins í Saar.
þrátt fyrir það, þó að alimarg-
ir hafi verið handteknir, þá sé
tala þeirra mjög ýkt. Ennfrem-
ur, að þeir einir hafi verið
handteknir, sem brotlegir hafi
orðið við siðferðislög hins
þriðja ríkis.
Þá hefir enn komið fregn
um’ það, að Hitler muni halda
stóra ræðu þegar þjóðarat-
kvæðagreiðslunni í Saar er
lokið, og að hann muhi við það
tækifæri taka aftur eina eftir-
tektarverðustu setninguna úr
sjálfstæðissögu sinni, en hún
er á þessa leið: „Þýzkaland
verður að mola Frakkland mél-
inu smærra“. Hermir fregnin,
að hann muni láta það í ljósi,
að þessi orð hafi verið rituð í
beizkju, þegar hann sat í fang-
elsi eftir hina misheppnuðu
uppreisnartilraun 1923.
Blaðið, sem flytur þessa
fregn, segir, að þessi afturköll-
un hinna umgetnu orða sé
fyrsta skrefið til þess að hlé
mætti verða á vígbúnaðarsam-
keppni milli Frakklands og
Þýzkalands. Þessi fregn hefir
hvorki verið staðfest né borin
til baka. (
London kl. 17, 27/12. FÚ.
1 Saarbrticken hafa yfir-
völdin nú mælt svo fyrir, að
hér eftir skuli mönnum bannað
að vera á ferli úti eftir að
klukkan er orðin 8 að kvöldi,
og skuli þetta bann gilda þar
til þjóðaratkvæðagreiðslunni er
lokið. Eina undantekningin frá
þessu banni verður gerð á
gamlárskvöld. — Atkvæða-
greiðslan fer fram 13. jan.
Húsbrnni
á Isafirði i gær
fsalirSi 27/12.
Um kl. 10 í morgun kom upp
eldur í íbúðarhúsi Soffíú Jó-
hannesdóttur kaupkonu á ísa-
firði og brann húsið að innan á
örstuttum tíma, en slökkvilið-
inu tókst að ráða við eldinn áð-
ur en húsið félli inn, og nær-
liggjandi hús tókst að verja.
Húsið var tvílyft timburhús,
járnvarið. Eldurinn koni1 upp á
efri hæð hússins, og engu
bjargað af þeirri hæð nema
fólkinu, og einhverju af pen-
ingum. Sumt fólkið bjargaðist
með naumindum, og á nátt-
klæðunum. Af neðri hæð húss-
ins varð bjargað öllum innan-
stokksmunum.
Ókunnugt er um upptök elds-
ins.
1 húsinu bjó Soffía Jóhannes-
dóttir og systur hennar, Svava
og Brynhildur; ennfremur Jón
Sveinsson, fyrverandi bæjar-
stjóri á Akureyri og fjölskylda
hans. — FÚ.
U p p r e i s n
í franskri borg
á jólanóttina
London kL 17, 27/12. FÚ.
200 atvinnuleysingjar í borg
einni í Norður-Frakkl. eyddu
aðfangadagskvöldi sínu með
nokkuð óvenjulegum hætti.
Þeir réðust á ráðhús borgar-
innar á aðfangadagskvöld, og
náðu því á vald sitt. Var at-
förin gerð vegna þess, að borg-
arstjómin hafði neitað að
greiða þeim viðbótaratvinnu-
leysisstyrk um jólin, úr bæjar-
sjóði. Þeir höfðust við í ráð-
húsinu á aðfangadagskvöld og
fram eftir jóladeginum, kröfð-
ust matar og vína af vörðunum
og skemmtu sér hið bezta með
söng og galsa. Verðimir sáu
sér þann kost vænstan, að
verða við óskum þeirra, og
gerðu það svo rækilega, að þeir
voru allir reknir út úr húsinu
hálffullir á jóladag, og létu þá
hið bezta yfir jólum sínum.
Bílslys
i
á
Hafnttrfjarðarveginum
Kona stórslasast
1 fyrrakvöld kl. 9.15 varð bíl-
slys á Hafnarfjarðarveginum,
við afleggjarann, sem liggur
heim að hressingarhælinu í
Kópavogi.
Slysið vildi til með þeim
hætti, að bifreiðin R. E. 218
ók á eftir strætisvagni, sem
var á leið til Hafnarfjarðar.
Strætisvagninn stanzaði 6
vegamótunum eins og venju-
lega og ætlaði bíllinn að fara
framhjá honum á méðan. En
svo óheppilega vildi til að
kona, sem var í vagninum,
gekk yfir veginn í sömu and-
ránni og kastaðist hún niður á
veginn og undir bifreiðina milli
hjólanna. Meiddist hún all-
mikið, viðbeinsbrotnaði og leið
henni frekar illa í gær.
Konan heitir Sigríður Eyj-
ólfsdóttir og er kona Magnús-
ar Böðvarssonar kaupm. í
Hafnarfirði.
1 seinasta blaði var skýrt
frá því, að á Mælifelli í Skaga-
firði, Raufarhöfn, Grímsstöð-
um á Fjöllum, Þórunúpi í
Rangárvallasýslu og úr austan-
verðri Húnavatnssýslu hafi
menn séð síðdegis á Þorláks-
messudag eldbjarma og leiftur
í sömu átt, og eldamir frá
gosinu í Vatnajökli sáust sl.
vor.
Fregnir hafa borizt um það
síðan, að eldblossar hafi sézt
um líkt leyti á Kópaskeri,
Húsavík, Akureyri og í Dölum.
Virtust þeir frá þessum stöð-
um vera í sömu átt og eldam-
ir sl. vor, nema úr Dölum,
þaðan sýndust þeir vera lítið
eitt austar en þá.
1 næstu byggðum við eld-
stöðvarnar, í Fljótshverfi, ör-
æfum og á Síðu, urðu mehn
ekki varir við nein eldsumbrot.
Var líka mikið dimmviðri þar
þennan dag.
Síðan á Þorláksmessudag
hafa ekki borizt neinar fréttir
um það, að menn hafi orðið
varir við að eldur væri uppi.
Ekki verður sagt um það
méð neinni vissu, hvar eldsum-
brot þessi hafi verið, en allar
líkur benda til, að þau hafi ver-
ið á sama stað og sl. vor, ef tíl
vill þó nokkuð austar.
irlulli illlliyillr
í vikunni sem leíð
Morð og óeirðir
í Rússlandi
Morð Kirovs, rússneska kom-
múnistaforingjans, hefir leitt
til meiri tíðinda en búist var
við í fyrstu. Má telja nokkúm-
veginn upplýst, að það eigi
rót sína að rekja til samtaka,
sem hafa það markmið, að
steypa hinum núverandi vald-
höfum Rússlands af stóli.
Hafa tveir af helztu forvígis-
mönnum kommúnista verið
handsamaðir, grunaðir um
hluttöku í glæpnum. Era það
Kamenev og Sinoviev. Kame-
nev var einn af harðsnúnustu
fylgismönnum Lenins og tvö
seinustu árin fyrir byltinguna,
var hann fangi í Síberíu. Eftir
valdatöku kommúnista komst
hann fljótt til áhrifamikilla
starfa. Sinoviev var fyrst jafn-
aðarmaður, en síðar kommún-
isti. Vann mikið í þágu flokks-
ins fyrir byltinguna. 1919—26
var hann formaður fram-
kvæmdanefndar flokksins og
síðan 1928 forstjóri ríkisverzl-
unarinnar. Báðir vom þeir
reknir úr flokknum 1927, vegna
náins samstarfs við Trotsky, en
fljótlega teknir í sátt aftur.
Nú er því haldið fram, að þeir
hafi átt í launmakki við Trot-
sky og það sé flokkur stuðn-
ingsmánna hans. sem staðið
hafi að morði Kirovs.
Auk þessara tveggja hafa
margir aðrir lægra settir trún-
aðarmenn flokksins og ríkisins
verið handsamaðir af sömu á-
stæðu. En hversu margir þeir
eru, verður ekki sagt með
neinni vissu, því um það eru
fréttirnar harla ósamhljóða. Er
það ekki að undra, því and-
stæðingum kommúnista hefir
þessi atburður verið kærkomið
tilefni til þess að útbásúna hat-
ursæði og glæpafýsn Rússa-
bolsa, sem þeir hafa opt orðið
að gera tilefnislaust áður.
Það er líka víst. að Rússa-
stjórn mun ekki taka á and-
stæðingum sínum með neinum,
silkihönzkum. Það er háttemi
allra einræðisstjóma að út-
rýma gagnbyltingarstarfsemi
með þeim hætti, að það vekji
sem mestan hrylling og óhug,
og menn verði því ófúsir, að
byrja á nýjan leik.
Nýja stjórnin i
Jugoslavín
1 lok fyrri viku myndaði
Jevtitch nýja stjóm í Júgó-
slavíu. Eftir þeim fregnum,
sem hingað hafa borizt, virðist
orsök stjómarskiptanna sú, að
töluverð óánægja hafi verið hjá
Júgóslövum útaf þeim enda-
lokum, sem varð á deilumálum
þeirra og Ungverja í Genf.
Þessi óánægja varð til þess, að
Jevtitch, sem var utanríkisráð-
herra og fulltrúi þeiiraí Þjóða-
Framh. á l, tiðu.