Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 28.12.1934, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 28.12.1934, Qupperneq 2
a H ♦ 3 A Ð&QBLAÐIS Jólatrésskemmtun Framsóknarmanna Séð og heyrt í 99 rikínu“. verður haldin í K.-R.-húsinu í kvöld og hefst kl. 5 síðd. Væntanlegir þátttakendur vitji aðgöngumiða á afgr. Nýja dagblaðsins, Austurstr.12 og í Kaupfélag Reykja-víkur, Bankastr. 2, sem fyrst í dag. Aðgöngumiðar kosta kr. 2,50 fyrir börn (þar í innifaldar veitingar) og kr. 2,00 fyrir fullorðna (án veitinga). Móðir hverjum heimilishóp barna og án veitinga. eða ein kona má fylgja fær ókeypis aðgöngumiða Fullorðíð fólk fær aðgang kl. 10, 6 manna hljómsveit skemmtir. Framkvæmdanetndin. Jólatrésskemtun verður haldin fyrir gamalt fólk í Bæjarþingsalnum í dag Jólatré og margt til skemmtunar. Netnd verkalýðsíélaganna í Hafnarfirði. Framkvænidar- stjórastaðan við Verzlunarfélag Hrútfirðinga á Borðeyri er laus. Umsóknir sendist til Sambands islenzkra samvinnu. félaga fyrir 20. janúar n. k. Hér í blaðinu hefir áður ver- ið nokkuð drepið á kirkju- deiluna í Þýzkalandi, sem hef- ir orðið svo hvöss undanfama mánuði. En ef til vill þykir lesendum blaðsins fróðlegt að heyra, hvað norski læknirinn Dr. Kristian Schjelderup segir, eft- ir nokkurra mánaða dvöl í „Þriðja ríkinu:“. Var hann þar til að kynna sér hina nýju strauma í trúar- og kirkjulífi. 1 blaðinu ,,Aftenposten“ skýrir Dr. Schjelderup aðallega frá þeirri trúarstefnu, sem kallast „Deutsche Glaubensbe- wegung“ (h. u. b. „Þýzka trúarhreyfingin“. Hún hefir nú þegar hálfa miljón áhangenda og fjölgar þeim óðum. Dregst unga fólkið mjög að þessari hreyfingu, og fyrst og fremst „Hitlersjugend", þ. e. sports- menn og íþróttavinir meðal Hitlerssinna. Þessi trúarstefna er að vísu ekki opinberlega við- urkennd jafn rétthá hinum tveim öðrum kirkjulegu trúar- stefnum í landinu, en Dr. Schjelderup álítur hana þó hættulega fyrir evangeliska kristni í Þýzkalandi, svo fram- arlega að „Þriðja ríkið“ yerði varanlegt. Stefnan hefir marga fylgjendur meðal hinna á- hrifameiri nazista og einnig marga, sem áður hafa talizt meðal fremstu manna innan kirkjunnar. Meginþáttur hreyf- ingarinnar, eins og nú standa sakir, er uppreisn hennar gegn kristninni, sem er talin ókarl- mannleg, hebresk aðkomutrú, og á óeðlilegan hátt þving- andi fyrir Þjóðverja. Þúsund ára saga kristninnar í Þýzka- landi ætti að falla í gleymsku svo sem auðið er. Þeir, sem vilja verða með- limir þessarar stefnu, verða við inntöku að votta með eiði, að þeir tilheyri ekki annari trúarstefnu, séu ekki Gyðinga- ættar eða kynblendingar. For- ingi stefnunnar er hinn vel- þekkti trúarbragðafræðingur, prófessor Wilhelm Hauer, sem er í miklu áliti hjá öllum stétt>- um þjóðfélagsins. Dr. Schjelderup var staddur á mörgurn samkomum hreyf- ingarinnar og talaði við marga af leiðandi mönnum hennar. Dr. Jöckel sagði honum, sem dæmi, að eftir fyrirlestur, sem haldinn var um þessi efni í fé- lagi ungra nazista, hefðu 60 ungir menn sagt sig (næsta dag) úr kirkjufélaginu. Dr. Sch. segir, að það hafi gert sig mest undrandi, eða réttara sagt óttasleginn, að sjá hvem sess Hitler skipar í þessari nýju trúarbragðahreyfingu. — j Þann dag, þegar eitt ár var liðið frá því, að hún var opin- berlega skipulögð, var hann sjónar- og heymarvottur að guðsþjónustu, þar sem Hitler var guðinn. A opnu svæði hafði altari verið reist og á því stóð mynd af Hitler um- kringd logandi vaxkertum. Fólkið gekk í skrúðgöngu framhjá altarinu og beygði sig í lotningu fyrir því. Þetta virð- ist ef til vill líkjast afguða- dýrkun, en það sýnir hið ríkj- andi álit og trú fólksins á Hit- ler. Trúarjátningin gekk þó sýnu lengra. Eins og siður er við vorar guðsþjónustur, var, trúarjátningin, lesin upp, og söfnuðurinn hlýddi á stand- andi. Trúarjátningin hljóðar svo: 1. grein. Vér trúum á hina heilögu Þjóðverja, innan og utan landamæra Þýzkalands. 2. gr. Vér trúum á Adolf Hit- ler, guðanna útvalda, sem var sendur oss til að gefa þjóð vorri trúna á sjálfa sig að nýju. 3. gr. Vér trúum á Wil- helm Hauer, hertoga vora. — Hér er ekki að ræða um stemningu, sem skapast hefir við sérstakt tækifæri, heldur þrautprófaða sannfæringu með ákveðið takmark framundan. Dr. Sch. hitnaði í hamsi, er hann heyrði þetta upplesið, og ætlaði varla að trúa sínum eig- in eyrum. Hinum fagra jóla- sálmi: „Heims um ból“, og sálminum: „Lofið herrann", hafði verið snúið upp á Hitler á álíka heiðinn hátt. Við sjáum af þessu, að Hitlersdýrkunin á sér dýpri rætur í Þýzkalandi en við í fljótu bragði hefðum trúað. Þýtt af J. J. J. reykjapipur með hálmsíum í munnstykkinu verndar heilsuna frá hinum skaðlegu áhrifum reykinganna. Sjöpunkt pípan er gerð sam- kvæmt 7 kröfum vísindanna um fullkomna pípu. Hentug og kærkomin jóla- gjöf. — Fæst víða. 35 kronur kosta nýir dívanar og madressur á 35—45 kr. Dívanskúffur 7 kr. Notaður dívan með sér- stöku tækifærisverðL Uppl. Laugaveg 49 A. (gula timburhúsið). Erlendir yiðbnrðir í vikunni sem leið Framh. af 1. síðu. bandalagsráðinu, baðst lausnai', en það leiddi af sér fráför allr- ar stjómarinnar. Þrátt fyrir þetta tilefni stjómarskiptanna féll það í hlut Jevtitch að mynda nýja stj.óm. Hann hefir notið mik- illa vinsælda sem stjómmála- maður og reynzt farsæll og slyngur í utanríkismálunum. Með því að fela honum þetta vandamikla starf hefir ríkis- ráðið, sem er skipað nánustu ættingj um og trúnaðarvinum Alexanders konungs, sýnt hon- um mikið traust og játað sig fylgjandi stefnu hans í Genf. Aðeins þrír af gömlu ráð- herrunum eiga sæti í nýju stjórninni. Margir nýju ráð- herramir eru utanflokkamenn. Jevtitch er bæði forsætis- og utanríkismálaráðherra. Því hefir verið hreyft, að Jevtitch muni afnema þær hömlur, sem settar hafa verið á málfrelsið. Haim hefir áður látið þær skoðanir í ljósi, að hann væri hlynntur málfrelsi bæði í ræðu og riti. Ennfrem- ur hefir verið haft á orði, að hann muni beita sér fyrir end- urskoðun á kosningalöggjöf- inni og auka frelsi kjósenda frá því, sem nú er. Fyrir friðinn í álfunni virð- ist það æskilegt, að Jevtitch vai- fahn stjórnarforystan. Iiann er þekktasti og mest- metni maðurinn, sem Júgóslav- ar eiga á sviði utanríkismál- anna. Fyrir Þjóðabandalagið er það nýr styrkur, að ríkisráð Júgóslava hefir á áberandi hátt játað sig samþykkan gerðum hans í Genf. Nazistar reka höfund stetnu- skrár sinnar úr embætti. Nazistastjómin þýzka hefir nýlega vikið háttsettum manni í atvinnumálaráðuneytinu þýzka frá störfum. Nafn hans er Gottfried Feder. Þykir þessi burtvikning merkileg vegna þess, að hann samdi stefnu- skrá nazista í atvinnumálum, sem þeir notuðu í baráttunni meðan Hitler var að komast til valda. Haim var líka ráð- gjafi Hitlers í atvinnumálum fram til byltingarinnar. Það er ekki vitanlegt, að Feder hafi í neinu brotið af sér við flokkinn. En hitt er vitanlegt, að stefna flokksins, einkum í atvinnumálum), var að ýmsu leyti róttæk, á meðan flokkurinn var að komast til valda. En hann hefir gersam- lega brugðizt þeirri stefnu. Hann hefir fylgt leiðum hins afturhaldssama og kyrstæða í- halds til hins ítrasta. Því er talið, að nazistar hafi með brottrekstri Feders ekki aðeins varpað fyrir borð höfundi stefnuskrár þeirra í atvinnu- málum, heldur sínum fyrri lof- orðum og fyrirætlunum í þeim málum.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.