Nýja dagblaðið - 22.01.1935, Page 1
s
Jónas Þorbergsson
íimmtagur
1 dag verður Jónas Þorbergs-
son, útvarpsstjóri, fimm.tugur,
og í kvöld minnast nokkrir vin-
ir hans úr Reykjavík og ná-
grenninu þess með samsæti að
Hótel Borg.
Jónas Þorbergsson er fæddur
og uppalinn í Suður-Þingeyjar-
sýslul Faðir hans var efnalítill
sm'ábóndi. Hann missti konu
sína frá þrem ungumj drengjum
og gekk þeim, eftir því semi
framast var unnt, í stað bæði
föður og móður. Allir þessir
bræður hafa niannast vel og
eru1 þjóðkunnir menn. Tveir
hinir eldri, Hallgrímur fjár-
læktarfræðingur og Jón bóndi
á Laxamýri, hafa lagt meiri
stund á að nema fræðilega um
fjárrækt, heldur en aðrir bænd-
ur á sarna tíma. Yngsti bróðir-
inn fór aðra leið. Þrátt fyrir
mikla fátækt og heilsuleysi á
æskuárunum, brauzt hann
gegnum skólanám í skólanumj á
Akureyri, þar sem mannast
hafa margir af helztu forgöngu
mönnum samvinnu- og lýðræð-
ishreyfinganna hér á landi. Það-
an fór hann til Ameríku og var
þar sex ár í hinum erfiða
skóla harðrar lífsbaráttu. Að
þeimj tíma kom Jónas heim og
var í næstu 10 árin ritstjóri að
blöðum samvinnumanna, Degi,
á Akureyri og Tímanum 1
Rvík. Um| áramótin 1930 tók
hann við forstöðu útvarpsins og
hefir gegnt henni síðan.
Þegar Jónas Þorbergsson
kom frá Ameríku og tók við
ritstjórn Dags, var hann ó-
venjulega fær til að stunda
blaðamennsku. Hann hafði að
eðlisfari mikla hneigð til rit-
starfa, var létt um að rita,
hafði margháttuð áhugamál,
bæði um efnislega og and-
lega hluti. Hann hafði þá þeg-
ar fjölbreytta lífsreynzlu og
hafði þroskast í hinum harða
skóla þess, sem verður fyrst og
fremst að treysta á mátt og
rnegin og ryðja sér og áhuga-
mál'U-m sínum braut með eigin
orku og ástundun.
Jónas Þorbergsson varð
strax áhrifamikill blaðamaður,
svo að hann þótti þá og síðar.
í allra fremstu röð þeirra, er
það starf hafa stundað hér á
landi. Hann var hugkvæmur um
áhugamál, djarfur og márkviss
í sókn, en varfærinn og gætinn
í vörn. Var Dagur lesinn með
mikilli eftirtekt af áhugasöm- •
um mönnum um allt land. Með- .
an Jónas var ritstjóri Dags á
Akureyri átti hann meginþátt í
að hrinda af stað og í fram-
kvæmd með mörgum öðrum
ágætum mönnum hinu míkla
verki, að koma upp berkla-
Framh. á 3. síðu.
Bíll frá Alþýðii'
brauðgerðinni
brennur
I gær um; tvöleytið var bíll
frá Alþýðubrauðgerðinni, RE
997, að taka benzín á af-
greiðslu B. P. í Tryggvagötu.
Var vélin í gangi meðan vei'ið
var að taka benzínið.
Allt í einu, án þess að menn
viti nokkrar sérstakar orsakir,
kviknaði í bifreiðinní og var
Slökkviliðið óðara kvatt á vet-
vang. Tókst því ekki að slökkva
eldinn fyr en bíllinn var brunn-
inn að mestu.
í bílnum var töluvert af
brauðum og munu þau öll hafa
eyðilagst.
lanbrotíFrfkirkJana
Aðfaranótt sunnudagsins s.l.
var brotist inn í Fríkirkjuna
með þeim hætti að brotin hafði
verið rúða í glugga á suður-
hlið kii-kjunnar og skriðið þar
inn.
Strax og uppvíst vai'ð um
innbrotið á sunudagsmorgun-
inn, var lögreglunni gert við-
vart. Blóðslettur voru á glugg-
anum, þar sem rúðan hafði
verið brotin. Varð það til þess,
að lögreglan athugaði alla þá
menn, sem hún hefir undir
eftirliti og fann hún einn
þeirra seint á sunnudagskvöld-
ið með skurð á hendi og- var
hann strax tekinn til yfir-
lieyrslu.
Játaði hann á sig, að vera
valdur að innbrotinu og hafi
það verið ætlun sín, að stela úr
samskotabauknuml En hann
hefir aldrei komið í Fríkirkj-
una áður og tókst honum því
ekki að finna baukinn, sem er
greyptur inn í stoð í fram-
kirkjúnni.
Kveðst hann því hafa farið
tómhentur aftur. En síðar upp-
lýstist, að tvær flöskur af
messuvíni hefðu verið teknar
úr altarinu. Neitar hann að
hafa tekið þær og styður það
frásögn hans, að engar blóð-
slettur fundust þama, sem hon-
um hefði átt að vera illt að
varna. Benda því nokkrar líkur
til þess, að fleiri en einn hafi
verið ag þessu verki.
En því neitar hann og sömu-
leiðis að vera valdur að inn-
brotinu í Landakotskirkju.
Maður þessi heitir Egill Jó-
hannesson og á heima í Soga-
mýri. Hann hefir áður verið
dæmdur þrisvar sinnum fyrir
þjófnað og hefir játað á sig
fleiri þjófnaði, m. a. að hafa
stolið allmiklu af þjölum frá
Fossberg og andareggjum af
kaffihúsinu „Aldan“,
Jónas Þorbergsson.
Verður Austurríki
aftur konungsríki?
Evgen hertoga boðið torseta*
embœttið í Austnrriki
London kl. 19.50, 20/1. FU. |
Ráðstefna hefir verið haldin |
í Vín þessa dagana, og er sagt, ■
Miklas,
íorseti Austurríkis.
að samþykkt hafi verið að
bjóða erkihertoga Evgen for-
setaembættið, þegar Miklas
lætur af því. Evgen hertogi og
Otto hertogi, sem kallar sig
„ríkiserfingja Austurríkis“ eru
systkinasynir, og er Evgen her-
togi fyrstur manna af Habs-
borgarættinni útlæg-u1, til þess
að fá aftur dvalarleyfi í Aust-
urríki. Sé þ’essi fregn sönn, er
þetta talið fyrsta sporið í átt-
ina til að gera Austurríki aft-.
ur að konung’sríki.
Hyggja þýzkir naz-
ístar á yfirráð
í Austurríki
London kl. 17, 21/1. FÚ.
í Austurríki er nokkur ugg-
i ur í mönnum þessa daga út af
I úrslitum atkvæðavreiðslunnar í
! Saar. Hinir gömlul andstæðing-
! ar sameiningarinnar við Þýzka-
i land, segjast óttast það, að
! Þjóðverjar muni nú beina at-
| hygli sinni að suðurlandamær-
I unum.
I dag er þjóðernisjafnaðar-
mönnum eignaður orðrómurinn
um það að bjóða, eigi Evgen
erkihertoga forsetatignina í
Austurríki, og vilja margir
rekja fréttina til von Papen
sérstaklega.
Stöðugur straumur flótta-
manna úr Saar vestur yfir
landamæri Frakklands
Berlin kl. 8, 21/1. FÚ.
Samkvæmt fregnum frá
Frakklandi er nú daglega
stöðugur straumur flótta-
manna yfir frönsku landamær-
in frá Saar. Á laugardaginn
múnu um 550 manns hafa far-
ið yfir landamærin. Margt af
þessu fólki hefir franskan rík-
isborgararétt, og er þeim, sem
ekki hafa neinn samastað,
komið fyrir til bráðabirgða á
ýmsum stöðum við landamær-
in. Erlendu flóttamennirnir
liafa flestir verið fluttir til
V estur-F rakklands.
Gaðm. Asbjðrnsson
segir sig úr Mjólkur-
söluuetndínni
Guðmundur Ásbjörnsson út-
gerðarmaður, sem kosinn var
af bæjarstjórninni í Mjólkur-
sölunefndina, sagði sig úr
henni á laugardaginn var.
Eysteinn Jónsson fjármála-
ráðherra, sem nú gegnir störf-
um landbúnaðarráðherra, hefir
skrifað bæjarstjóminni og gef-
ið henni frest til þess að til-
nefna annan mann í nefndina
fyrir kl. 1 á morgun, að öðrum
kosti m'un stjórnin skipa
mann í hans stað í nefndina
fyrst um sinn.
Fundur
i Sjómannatél. Reykja-
víkur hafnar tilboði út-
gerðarmanna
Fundur var haldinn í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur í
Iðnó í gærkvöldi um tilboð tog-
araeigenda. Tillaga kom framl
um að hafna tilboði útgerðar-
manna, en gefa stjóm Sjó-
mannafélagsins heimild til
samninga.
Atkvæðagreiðsla fór fram
skiúflega. Greiddu 325 atkvæði.
Var tillagan samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða.