Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 23.01.1935, Qupperneq 1

Nýja dagblaðið - 23.01.1935, Qupperneq 1
3. ár Reykjavík, miðv.daginn 23. janúar 1935. 18. blað Frá bæjarstjórnarfundi í gær Kuldar f Siðor- iðndum Tlu hermenn ienn- ir i kaf og írjósa 1 hel Skípulagning sí’darút- vegsins í Engiandi Skipuð síldarmálanetnd, sem hefir heim- ild til að ákveda stœrd sildveiðiflotans. Umræðnr utn mjölkurmálið Ihaldið kaus Jakob Möller í nijólkor' söluneínd og Maríu Maack íil vara! Erindi írá þremur kúaeigendum Aukafundur var haldinn í gær í bæjarstjórn Reykjavíkur. Til umræðu var erindi frá þremur kúaeigendum, þar sem farið var á leit við bæjarstjórn- ina, að reyna að knýja fram ýmsar breytingar á fram- kvæmd mjólkurlaganna. Borgarstjóri fylgdi erindinu úr hlaði. Kvaðst hann ekki vilja taka upp allar þessar ósk- ir kúaeigendanna þriggja að svo stöddu. Þó legði hann þá tillögu fyrir bæjarstjómina, að hún gæfi sér umboð til að ±’á frest hjá mjólkursöluiiefnd fyrir bændur hér í bænum1, til þess að þurfa ekki að breyta fjósum sínum strax í samræmi við hinanýjumjólkurreglugerð. Skemmd mjólk og óskemmd mjólk Annars talaði borgarstjóri á víð og dreif um mjólkurmálið, einkum dvaldi hann við geril sneyðinguna, taldi hana óþarfa og jafnvel hættulega. Minntist hann í því sambandi á „skrum- auglýsingu“, semi Eyjólfur Jó- hannsson hefði fyrir nokkrum árum sett í blöðin, um það, að bætiefni eyðilegðust ekki við „stassaniseringu“. Taldi borgar- stjóri það mestu fjarstæðu og skilgreindi hann jafnan geril- sneydda mjólk með því að kalla hana skemmda mjólk, en ógerilssneydda mjólk kallaði hann óskemmda mjólk. Engin rök færði borgarstjóri fyrir þessum sleggjudómum sínum, sem bentu til þess að hann styddist við élit lækna eða vísindamanna. Hagsmunir Kveldúlts Á eftir borgarstjóra talaði Stefán Jóh. Stefánsson. Sýndi hann fram á, að bak við árásir íhaldsins á skipulagningu mjólkursölunnar, væri ekki um. hyggja fyrir hag neytendanna í bænum, heldur væru það hagsmunir eins mjólkurselj- anda, Korpúlfsstaðabúsins, sem væri undirrót þess fjandskap- ar, sem íhaldið sýndi hinn nýja skipulagi. Ihaldið vill skuldaverzlun Bjarni Benediktsson talaði næstur og kom lítið við sjálft málefnið. Lagði hann fram til- lögu um það, að haldið yrði áfram sölu ógerilsneyddrar mjólkur, sem framleidd væri utan bæjarlandsins, ef hún væri sérstaklega vönduð (Korp- úlfsstaðamjólk), tekin væri upp lánsverzlun með mjólkina og flöskumjólk seld í öllum bak- arabúðum. „Menn á ettir tímanum“ Ólafur Friðriksson talaði á eftir Bjarna og kom víða við. Sagði hann m. a. að því hefði verið haldið fram í bæjar- stjórninni áður, að mjólkin ætti að vera gerilsneydd og kæmi sér því einkennilega fyrir sjón- ir, að heyra borgarstjóra tala þannig um gerilsneyðinguna. „Það var trúin fyrir 14 árum“, greip borgarstjóri fram í. „Þetta var fyrir 3—4 árum“, sagði Ólafur. „Það hafa þá verið menn, sem voru á eftir tímanum", sagði borgarstjóri. „Já, það voru bæjarfulltrúar íh,aldsins“, svaraði ólafur. Ur ræðu mjólkur- sölunefndarmanns Guðmundur Oddsson talaði næst. Sagði hann að sér væn nú orðið vel skiljanlegt, eftir að hafa heyrt borgarstjóra og Bj. Ben. tala vegna hvers Guð- mundur Ásbjörnsson var rek- inn úr mjólkursölunefndinni. Hann hefði samþ. margt af því í nefndinni, sem íhaldið væri nú að skammast út af, og það hefði ekki verið í mörgum til- fellum, sem hann hefði gert ágreining. M. a. hefði Guðmundur Ás- bjömsson verið með stað- greiðslunni, og hefði þá sýnt það, sem oftar að hann væri hygginn verzlunarmaður. Hann sagði, að sér þætti undarlegt að heyra borgar- stjóra tala um gerilsneydda mjólk sem „skemmda mjólk“ og óhæfa handa bömum, því sér væri ekki betur kunnugt, en að London kL 17 22./1. FÚ. Kuldar miklir ganga á Ítalía i dag. Norðaustan stormur er um mestan hluta landsins með mikilli fannkomu, og snjóar jafnvel suður á Sikiley. Hörku- frost er í Florens, og litlu minna í Róm. 1 Montenegro er sagt, að 10 hermenn hafi grafizt lifandi í snjó og helfrosið. 7 lík hafa fundizt, en sífelldar fannkom- ur valda því að erfitt er um leit hinna. Slystarir af völáam þoku í Eng- landi London kL 17 22./1. FÚ. Mjög mikil þoka hefir verið á Norður-Englandi í dag, og hefir hún valdið 3 slysum. Flugmaður úr enska hemum', sem var á skólaflugi, frá flug- skólanum í Cheshire, flug beint til jarðar í þokunni og brotn- aði vél hans algjörlega. Flug- maðurinn dó þegar í stað. Bifreiðarstjóri frá Derbys- hire slapp á merkilegan hátt við dauða, er bifreið hans fór í gegnum járnbrautarhlið sam- tímis því að lestin ók framhjá. Varð hastarlegur árekstur og mjölbrotnaði bifreiðin, en bif- reiðarstjórinn slapp með nokkr- ar skeinur. Á Viktoria stöðinni í Manch- ester rann eimlest á verka- mann og marði hann til dauða. mjólkin, sem borgarstjóri keypti handa fátækum börnum í barnaskólanum, og myndi vera um 600 1. á dag, væri gerilsneydd mjólk frá Mjólkur- félagi Reykjavíkur. Þá sagðist hann geta upp- lýst, að mjólkursölunefnd hefði ákveðið að veita undanþágur með fjósin, eins og gert væri ráð fyrir í tillögu borgar- stjóra, þó enn væri ekki ákveð- ið að fullu, hversu langan frest nefndin myndi gefa. Ennfremur upplýsti hann að fjölmargir mjólkurframleiðend- ur í Reykjavík ætluðu að selja mjólk sína til samsölunnar og myndu þeir fá útborgað fyrst um sinn 29 aura á lítra. Ameriski iræði- maðurinn Einar Olgeirsson og Ragn- hildur í Háteigi töluðu næst. Kom Einar með hina venjulegu verðlækkunartillögu1 kommún- Framh. á 4. síðu. London kl. 20,30 21./1. FÚ. Ráðstafanir brezku stjórnar- innar til hjálpar síldarútvegin- um voru birtar í dag. Eru þær gerðar að mestu leyti sam- kvæmt tillögum rannsólinar- nefndar. Skipa skal fasta nefnd, til þess að skipuleggja síldarút- | veginn. Nefndin fær 125 þús- I und sterlingspund til ráðstöf- unar, fyrstu þrjú árin, en heimilt er að veita henni þar að auk lán allt að 600 þúsund pundum. Nefndin lánar svo síldarútvegsmönnum af fé þessu til þess að bæta og end- urnýja skip sín og veiðarfæri, og veitir styrk til að auka út- flutning síldar. Nefndin ákveður hve möi'g skip megi vera í síldarflotanum og má hún fara fram á að ein- stök skip verði lögð niður, og greiða skaðabætur fyrir, eftir því sem þurfa þykir. 1 nefndinni eru 8 menn: óháður formaður og tveir aðr- ir óháðir menn, ásamt fimm mönnum, sem hafa verklega þekkingu á síldarútveginum. Þeir eru skipaðir til tveggja ára, en að þeim tímá liðnum má athuga, hvort ráðlegt sé að kjósa í nefndina. Frjáíslyndi fiokkurinn í Kanada heimfar nýjar kosningar Ihaldsmenn i Kanada haía snúið baki að þöirri stefmi, sem þeir hölðn við seinnstu kosningpar. London kl. 17 22./1. FÚ. Bennett forsætisráðh. Kan- ada tilkynnti nýlega, að hann hefði ýmsar fjármálaumbætur í undirbúningi. Þetta hefir haft þær afleiðingar, að fyrv. forsætisráðherra Mac Kensie King foringi frjálslynda flokks- ms, krafðist í dag almennra kosninga áður en Bennet gæf- ist kostur á að .framkvæma áætlanir sínar. Mac Kensie King sagði, að félagsmála- og fjármálastefnu- skrá sú, sem Bennet tæki nú upp væri svo algjör andstæða þeirrar, sem skilaði íhalds- flokknum til valda 1930, að það sýndi, að Bennet væri kunnugt i'.m, að flokkur hans hefði tap- að trausti þjóðarinnar, og væri nú í örvæntingu að reyna að krækja í það með einhverju móti. Hann sagðist vera tilbú- inn til að vinna með Bennet að félagslegum umbótum og að írjálslyndi flokkurinn hefði hvað eftir annað mælt með af- skiptum ríkisins af fj ármála- og atvinnulífi. Bennet svaraði á þá leið, að hann væri fús á að ganga til samvinnu við frjálslynda flokk- inn, ef samkomulag væri til jafnréttis á báðar hliðar. Utvarpsumræðurnar Olafur Thors ekki viðbúinn að ræða mjólkurmálíð Eins og skýrt hefir verið frá í blaðinu áður, var gert ráð fyrir, að útvarpsumræður færu fram um mjólkurmálið í kvöld og á morgun. En samkvæmt ósk frá formanni Sjálfstæðis- flokksins, Ólafi Thors, sem kvað floklc sinn eklci viðbúinn að ræða málið strax, ákvað út- varpsráð að láta umræðurnar fara fram á morgun og föstu- dag. Fram á það hafði verið far- ið, að aðeins þeir flokkar, sem eiga fulltrúa á Alþingi, tækju þátt í ursræðunum, en útvarps- ráðið samþykkt, að Kommún- istaflokknum væri leyft að taka þátt í umræðum. Ræðutími, sem hver floklcur hefir, er 40 mín. bæði kvöldin og verður honum tvískipt fyrra kvöldið, en þrískipt seinna j kvöldið. Flokkarnir ráða hvem- i ig þeir skipta ræðutímanum.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.