Nýja dagblaðið - 23.01.1935, Page 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
IDAG
Sólaruppkoma kl. 9.41
Sólarlag kl. 3,42.
Flóð árdegis kl. 7,30.
Fióð síðdegis kl. 19,45.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl.
4.00—9.15.
Veðurspá: Allhvass norðvestan,
hríðarveður.
Söín, skriístofur o. fL:
l.andsbókasafnið ..... 1-7 og 8-10
Alþýðubókasaínið ... 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafnið .............. 1-4
Landsbankinn ................ 10-3
Búnaðarbankinn ...... 10 12 og 1-3
Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., Klapparst....... 2-7
Pósthúsið: Bréfapóststofan ... 10-6
Bögglapóststoían .........,v- 10-5
Skrifstofa útvarpsins . 10-12 og 1-6
Landssíminn ................ 8-9
Búnaðaríálagið ....... 10-12 og 1-4
Fiskiíélagiö (Skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Skipaútg. ríkisins .... 9-12 og 1-6
Eimskip ....................... 9-6
Stjómarráðsskrifst. ... 10-12 og 1-4
Samb. ísl. samv.fél. .. 9-12 og 1-6
Sölus.b. ísl. fiskfr.l. .. 10-12 og 1-6
Skrifst bæjarins ...... 9-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 14
Hafnarskrifstofan ..... 9-12 og 1-6
Skipa- og skrán.st. rík. 10-12 og 1-5
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hæstiréttur kl. 10.
Heimeóknartimf sjúkrahósa:
i.andspítalinn ................. 34
Landakotsspftalinn ............ 3-5
VifilstaðRhæ’iið . 12yrl% og 3%4V2
Laugamesspítali ............. 12^-2
Kleppur ....................... 1-5
Elliheimilið ................... 14
Fæðingarh., Eiriksg. 37.. 1-3og8-9
Sjúkrahús Hvítabandsins ....... 2-4
Næturvörður í Ingólfsapúteki og
Laupavegsapóteki.
Næturlæknir: Guðm. Karl Péturs-
son, sími 1774.
Skemmtanlr 03 samkomnr:
Nýja Bíó: „Salon Dora Green“.
Gamla Bíó: Nótt í Kairo kl. 9.
Samgöngur og póstferöir.
Brúarfoss frá ísafirði.
Ðagskrá útvarpsins:
K). 10,00 Veðurfregnir. 12,10 Há-
degisútvarp. 12,50 Dönskukennsla.
15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar.
19,05 Veðurfregnir. 19,15 Endur-
varp frá Kaupmannahöfn (islenzk-
ii tónleikar). 19,50 Auglýsingar.
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Erindi: Galdrabrennur, II (þór-
bergur þórðarson rithöf.). 21,00
Tónleikar: a) (Útvarpstríóið; b)
Grammófónn: Symphonia No. 2 í
D-dúr, eftir Schumann. Sálmur.
Endurvarp frá Kaupmannahöfn.
Danska útvarpið hefir íslenzka
tónleika á dagskrá sinni kl. 7,15 í
kvöld. Dagskráin er þannig:
Hljómsveit undir stjóm L. Grön-
dal leikur: Ó, guð vors lands og
ísland, ouvertúre ei'tir Jón Leifs
Elsa Sigfúss syngur: Vetur, lag
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, í
dag skein sól, lag eftir Pál ís-
ólfsson, Ave Maria, iag eftir þór-
arinn Jónsson. Nú er glatt í borg
og bæ, lag eftir Sigfús Einarsson
og Hátt ég kafla, lag eftir Sigfús
Eínarsson. Tónleikunum verður
endurvarpað af útvarpsstöðinni
liér og einnig nokkrum erlendum
útvarpsstöðvum eins og éður hefir
verið skýrt frá hér í blaðinu.
GAMLA BÍÓ
Nótt í Kaíro
Gullfalleg og bráðskemmti-
leg tal- og söngvamynd í
9 þáttum. Aðalhlutverk:
RAMON NOVARRO og
MYRNA LOY.
Jóhann Sæmundsson
læknir
heíir opuaö lsekaingastoiu í Kirkjustræti 8 B.
Viðtalstími kl. 4—6, sírni 2262, heimasími 3486
Frá bsjarstjðrnarfuRdi f gær.
Framh. af 1. síðu.
istanna, en ræða Ragnhildar
var hin skemmtilegasta. Ragn-
hildur sagði að hún hefði reynt
að halda „sínu fjósi“ sem hrein-
legustu og stundum hefði hún
haft fjósamenn, sem voru til
fyrirmyndar. Þó fannst henai
fjósið á Korpúlfsstöðumí fullt
eins gott, ef ekki betra. „Það
kom amerískur fræðimaður til
Korpúlfsstaða fyrir þremur ár-
um og hann lét svo ummælt:
„Við megum leita í Améríku '
að svona búi“,“ sagði Ragn- !
hildur.
„Sá hefir verið vitlaus",
sagði Ólafur Friðriksson, en
áheyrendur skellihlógu.
Þegar hér var komið hafði
fundurinn staðið í þrjá tíma 0g
var gefið fundarhlé til kl. 9V&.
Frá kvðldfundinum
Fundur í bæjarstjórn hófst
aftur kl. 91/2.
Stóðu umræðurnar til kl.
rúmlega 11 og tóku til máls:
borgarstjóri, Stefán Jóh. Stef-
ánsson, Ragnhildur í Háteigi,
Bjarni Benediktsson, Guðmund-
ur Oddsson og Einar Olgeirs-
son.
Atkvæðagreiðsla um tillög-
urnar féll þannig, að tillögur
Bjama Ben. voru' samþykktar
með atkvæðum íhaldsmanna
og sumar með atkvæði Einars
Olgeirssonar. Aðrir bæjarfull-
trúar sátu hjá eða greiddu at-
kvæði á móti.
Verðlækkunartillögu Einars
var vísað frá með dagskrá frá
Bjarna Ben. og fer vel á því,
að íhaldið sjálft drepi tillög-
urnar, sem samþykktar voru á
húsmæðrafundinum á dögun-
um.
Kosning: i mjólkur-
söluuefnd
Eins og kunnugt er, sagði
Guðm. Ásbjörnsson sig úr
Mjólkursölunefnd samkvæmt
kröfu íhaldsins. Kaus bæjar-
stjórn í gær mann í hans stað.
Kosningu hlaut Jako b Möller
og Maria Maaek var kosin til
vara.
Með þessari kosningu sinni
opinberar íhaldið greinilegar
en nokkuru sinni fyr fjandskap
sinn gegn hinu nýja skipulagi.
Fyrst og fremst með því að
velja þann mann til þessa
starfs, sem reyndur er að ó-
nytjungshætti og trassaskap,
sennilega meira en nokkur
maður, sem gegnt hefir opin-
beru starfi 1 seinni tíð. Og í
öðru lagi með því að velja þær
manneskjur í þessar stöður,
sem sýnt hafa hinu nýja skipu-
lagi hinn megnasta illvilja eins
og Jakob Möller hefir gert með
níðskrifum sínum í Yísi og
Maria Maack, með því að gang-
ast fyrir æsingafundum1, sem
haldnir eru í því skyni að
rægja samsöluna í augum hús-
j mæðra.
Annáll
Að geínu tilefni skal það tekið
fram, hð nefndin sem mjólkursölu-
nefndin kaus tii að athuga flösk-
urnar fró Korpúlfsstöðum, fann
þrjár flöskur, sem voru of litlar
og voru þær síðar sendar löggild-
ingastofu ríkisins, sern. mældi,
hversu mikið vantaði á það, að
þær gætu tekið það mjólkurmagn,
sem þeim var ætlað. Sjálf atliug-
aði nefndin það ekki, hversu mik-
ill sá munur mvndi vera.
Lyra fer héðan á morgun kl. 6
síðd. óleiðis til Bergen. Kemur við
í Vestmannaeyjum og Færeyjum á
útleið.
pvottakvennaiélayið Freyja held-
ur aðalfund sinn í K.R.-húsinu í
kvöld kl. 9.
ísfisksalan. Hávarður ísfirðingur
seldi í Englandi i fyrradag 1198
vættir fyrir 1431 sterl.pd.
Safnun heimilda að sögu Vestur-
íslendinga. Síðasta órsþing þjóð-
rækisfélags Islendinga i Vestur-
heimi ákvað að fela stjóm félags-
ins að hefja „söfnun söguiegra
skilríkja, prentaðra sem ritaðra, er
snerta sögu íslendinga vestan
liafs, til þess að slíkar heimildir
séu varðveittar frá glötun". Hefir
stjómin falið Richard Beck að
vinna að þessu starfi og skrifar
hann ávarp til landa sinna vestan
hafs og austan, að senda sér slík
gögn, sem þeir hefðu handa á
milli, þó ekki væri nema t. d.
sendibréf.
Nýlátinn er Guðmundur þórar-
insson ættaður frá Kjartansstöðum
í Biiskupstungum, en hefir dvalið
allan síðari hluta æfinnar í Mos-
feilssveit; lengst af á Lágafelli og
Álafossi. Við Álafoss byggði hann
sér bæ á landspildu, sem hann
fékk og bjó þar lengi. Bæinn
byggði hann í ígripavinnu frá öðr-
um störfum og þótti sveitungum
hans sú bygging gerð af svo mikl-
um dugnaði og áræði að þeir
nefndu bæinn Drift og festist
það heiti við hann. Guðmundur
var mikill verkmaður og ótrauður
til allra athafna, lífsglaður og
mjög samgróinn íslenzku sveita-
lífi. Hann var óvenjulega frjáls-
lyndur maður í skoðunum, miðað
við kynslóð samtíma hans. Og
unni engu meira en eigin sjálf-
stæði og umbótum ó æfikjörum
þeirra, sem miður megasín. G. p.
Glimufélagið Ármann. Glímu
æfing verður í kvöld kl. 8—9 í
fimleikasól menntaskólans. Glímu-
menn, fjölmennið og mætið rétt-
stundis.
Á bæjarráðsfundi var nýlega
lögð fram beiðni frá Jóni Nor-
mann Jónassyni barnakennara um
ókevpis far með strætisvögnun-
um, sem ganga inn í Sogamýri!
Úr Loðmundarfirði. í bréfi dags.
27. d.es. s. 1. úr Loðmundarfirði
segir m. a. sem dæmi um veður-
blíðuna þar: „í blómgarðinum
lifna belfísar, kongaljós, gullfíflar
og sóleyjar. Ein sóley hefir sprung-
ið út þar og önnur í túninu“.
Almennur stúdentafundur, sem
var haldinn s. 1. föstudagskvöld,
samþykkti að skora á bæjarstjóm-
ina að skerða ekki væntanlega
háskólalóð með umferðargötu né
á annan hátt. Er áskomn þessi í j
samræmi við þingályktunartillögu j
Jónasar Jónssonar og Jóns Bald-
vinssonar, sem samþykkt var á
seinasta þingi, og er sprottin nf
þeirri tilraun Jóns þorlákssonar j
borgarstjóra og bæjarverld'ræðings,
að byggja breiðan akveg suður í
Skerjafjörð í gegnum háskólafóð-
ina.
Frá Laugarvatni. Á Laugarvatni
hefir tjald verið notað til gufu-
baða þangað til í haust, að reist-
ur var timburskúr yfir hverinn og
hefir það reynzt til mikilla bóta.
Hafa nemendur að jafnaði í vetur
fengið sér guíubað eftir leikfimis-
æfingar. Líkar þeim það svo vel, að
þeir myndu fyrir enga muni vilja
missa af þeim þægindum. Mó geta
þess. í samhandi við þetta, að As-
geir Ásgeirsson fræðslumálastjóri
fékk því komið til leiðar ó sein-
.asta þingi, að nokkur fjárhæð var
veitt á þessa árs fjárlögum til að
koma upp gufubaðstofu í finnsk-
um stíl við alþýðuskólann á Núpi.
Bendir reynslan af gufubaðinu á
Laugarvatni til þess, að góðs
árangurs megi vænta af þeirri
framkvæmd.
Munurinn. Ragnhildur frá Há-
teigi hafði' mikið á móti gerii-
sneyðingunni á bæjarstjórnar-
fundinum i gær. Talaði um þving-
un og kúganir stjórnarliða í því
sambandi. Ólafur Thors hafði að j
I vísu, sagði hún, flutt frv. áður,
j þar sem gert var ráð fyrir geril-
sneyðingu, „en munurinn er sá“,
bætti hún við, „að nú er það
stjórnarfrumvarp og nú er þetta
pólitískt". þetta þótti áheyrendum
óvenju rétt hjá Ragnhildi og fékk
hún góðar undirtektir.
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra komi til Kaupmannahafnar
í gær.
Messufall í ‘„Fjalakettinum’1.
Einar Olgeirsson boðaði til hús-
mæðrafundar í Bröttugötusalnum í
gærkvöldi og átti þar að ræða
mjólkurmálið og undirbúa mjólk-
urvei-kfall 1. febr. En engin kona
kom á fundinn og varð Einar því
að aflýsa honum. Virðist þetta því
benda til, að íhaldið verði að
smala vel, ef það á að fá aðsókn,
að „samfylkingarfundinum“ í dag.
Togarastöðvunin. Á bæjarstjórn-
arfundi í gær, þegar lokið var um-
ræðum um mjólkurmálið og kosn-
ingu i mjólkursölunefnd, var sam-
þykkt að taka togarastöðvunina
til umræðu. Stóðu þær umræður
vfir, þegar blaðið fór i prentun.
Áshjónin og Einar. Ástvaldur í
Ási fékk 1 atkv. í bæjarstjóm í
gær sem fulltrúi bæjarins 1 mjólk-
ursölunefnd og Guðrún Lárusdótt-
ir fékk 1 atkv. sem varaskeifa.
Mun Einar Olgeirsson hafa þannig
aitlað að launa Áshjónunum sam-
1 fylkinguna í mjólkurmálinu.
Nýja Bíó
Saloon Dora Green
Efnismikil og vel leikin
þýzk tal- og tónmynd, er
sýnir spennandi njósnara-
æfintýri, sem gerist í Berlín
og víðar.
Aðalhlutverkin leika:
Mady Christians,
Paul Hartmaun o. fl.
AUKAMYND:
Abe Lyhman og Okchostra
spila og syngja víðfræga
jazzmúsik.
Börn fá ekbi aðgang.
@ Odýrii ®
aug’lýgingarnar.
IL
Kanp og sala
Bækur til sölu. Islendinga-
sögurnar með þáttum og Edd-
um, Menn og menntir, Ein-
okunarsaga Jóns Aðils, Morg-
unn I—XI, Fylkir allur, Þús-
und og ein nótt, Sögur her-
læknisins, Nýall, Þjóðsögur
Sigfúsar Sigfússonar, Spegill-
inn og Fálkinn fyrstu árang-
arnir, talsvert af skáldsögum,
dönskum ritum 0. fl. Uppl. í
síma 2218.
Hinir ágætu sjálfblekungar,
Orthos, fást í Kaupfélagi
Reykjavíkur.
Fasteignastofan Hafnarstr.
15. Annast kaup og sölu fast-
eigna í Reykjavílt og úti um
land. Viðtalstími kl. 11—12 og
5—7 og á öðnim tíma eftir
samkomulagi. Sími 3327. Jónas
H. Jónsson.
Hásaaeði
Trésmiður, reglusamur, skil-
vís, óskar eftir 1 lítilli stofu til
íbúðar og .kjallaraplássi til
smíða. Tilboð merkt: „Smiður“
leggist inn á afgreiðslu Nýja
dagblaðsins._______________ _____
Vinnupláss. 2 samliggjandi
stofur óskast til kyrláts iðn-
reksturs á góðum stað í bæn-
um 1. eða 14. maí n. k. Tilboð
merkt Vinnupláss leggist í lok-
uðu umslagi á afgreiðslu blaðs
þessa fyrir 1. febrúar.
Goðafoss
fer á fimmtndagskvöld i
hraðferð vestur og norður.
Farseðlar óskast sóttir
fyrir hádegi sama dag.
Brúarfoss
fer á föstudögskvöld (25.
janúar) um Vestmannaeyj-
ar til Grimsby og Kaup-
mannahafnar.