Nýja dagblaðið - 01.02.1935, Qupperneq 1
Stjómin fær traust
r
A verði við vélbyssurnar
á fundi á Egilsstöðum
Fundur var haldinn á Egils-
stöðum s. 1. þriðjudag. Mun
hafa mætt á fundinum um 150
manns, Sunnmýlingar og Norð-
mýlingar úr nærsveitum.
Fyrsta mál á dagskrá voru
f jármál, og stóðu umræður um!
þau samfleytt sex klukku-
.stundir. 1 sambandi við umræð-
umar komu fram tvær tillög-
ur, önnur frá Gísla í Skógar-
gerði og fól í sér vantraust á
múverandi ríkisstjóm, en hin
frá Þorsteini kaupfélagsstjóra
á Reyðarfirði, um að lýsa
trausti á stjóminni.
Fór atkvæðagreiðsla svo, að
vantrauststillaga Gísla var
.íelld. En tillaga Þorsteins um
að lýsa trausti á stjóminni var
síðan samþykkt.
Þegar búið var að slíta um-
ræðum kom fram frá Sveini á
JEgilsstöðum önnur tillaga uni
að lýsa vantrausti á stjóminni.
Sú tillaga var ekki rædd. Var
því mótmælt á fundinum, að
þessi tillaga væri borin fram,
þar sem búið væri tvívegis að
ganga úr skugga um vilja
fundarmanna í þessu efni. Þó
mun hafa farið fram einhvers-
konar atkvæðagreiðsla um
þessa tillögu, en í því leystist
fundurinn upp. En stjómar-
andstæðingar þóttust hafa
meirahluta þeirra, sem eftir
voru, og af því stafar flugu-
fregn í Mbl. í gær.
4 íhaldsmenn og „einkafyrir-
tækið" héldu svo einhverskon-
ar sameiginlega flokkssam-
komu, eftir að fundurinn var
hættur og fundarstjórinn
(Bjöm Hallsson bóndiáRangá)
farinn.
Er sagt, að Benedikt í Hof-
teigi hafi aðallega staðið fyrir
þeirri samkomu.
Skjaldarglíma Armanns
í kvöld
Skjaldarglíma Ármanns verð-
.ur háð í kvöld.
Keppendumir eru óvenjulega
margir í þetta sinn eða 11 tals-
ins. Er langt síðan að svo
margir keppendur hafa tekið
þátt í Skjaldarglímunni.
Eins og kunnugt er gilda
þær reglur um skjöldinn, að sá
maður, sem vinnur hann þrisvar
í röð eða fimm sinnum alls,
vinnur hans til fullrar eignar.
Hefir skjöldurinn verið unninn
til eignar fjórum sinnum áður
og er það 5. skjöldurinn, sem
keppt er um nú og hefir ekki
verið keppt um hann óður.
Þeir, sem unnið hafa skild-
ina til eignar, eru Sigurjón Pét-
ursson tvisvar, Sigurður Thor-
arensen og Lárus Salomonsson.
Þeir af keppendunum, sem
talið er að hafi mestar líkur til
að bera sigur af hólmi í kvöld,
eru1 Ágúst Kristjánsson og
Georg Þorsteinsson. Ágúst hef-
ir oft verið kominn nálægt því
áður að vinna skjöldinn, og
hann vann Stefnuhomið síðastl.
sumar. Georg er líka þekktur
sem1 snjall glímumaður.
Margir af keppendunum hafa
ekki tekið þátt í kappglímum
áður og yfirleitt eru keppend-
ur af léttari þyngdarflokkum.
Slíkir glímumenn leggja venju-
lega meiri áherzluj á lipurð en
krafta og ýtir það nokkuð und-
ir þær vonir, að glímurnar, sem
þreyttar verða í Iðnó í kvöld,
verði fallegar og drengilegar,
en á það hefir stundum þótt
skorta í keppni glímumannanna
seinustu árin.
Dómarar verða: Þorsteinn
Ivristjánsson, Sigurjón Péturs-
son og Helgi Hjörvar. Fegurð-
arglímudómarar verða Eyjólfur
Jóhannsson, Guðm. Kr. Guð-
mundsson og Jörgen Þorbergs-
son. Glímustjóri verður Jón
Þorsteinsson.
Japanar reka
Mongólíumenn
á flótta
London kl. 17 31./1. FÚ.
Bai’dagar héldu enn áfram í
gærkvöldi á landamærum Mon-
gólíu og Manschuko. Þegar her-
sveitir Japana og Manschkuo-
manna höfðu tekið borg, sem
Mongólíumenn höfðu á valdi
sínu, gerðu þeir enn þrjár hríð-
ir að Mongólíumönnum1, til þess
eins og þeir sögðu, að reka þá
'Jíir landmærin til sinna eigin
heimkynna. Þegar barizt hafði
verið í 2 klst. tvístruðust her-
sveitir Mongólíumanna gjör-
samlega, og er sagt, að mikið
mannfall hafði orðið í liði
þeirra, að þeir skildu eftir á
vígvöllunum særða menn sína
og deyjandi. Þeir fóru suður á
bóginn.
Morð rússneska kommúnistaforingjans, Kirov, hefir orðið einhver afdrifaríkasti at-
burður í réttarfarsmálum Ráðstjómarríkjanna. Fregnir herma, að á annað hundrað manns
hafi verið af lífi teknir út af þeim atburði. Og enn er ekkifyrir endann séð á þeim eftir-
leik. I Moskva og Leningrad var eftir morðig settur afarsterkur hermannavörður um allar
stjórnarbyggingar. — Á myndinni sjást tveir hermenn á verði við vélbyssurnar fyrir fram-
an eina ríkisbygginguna.
»Húsmæðrafé!aéið«
Viðtal við Maríu Marc
Sjónyarp
Marg-ar sjónvarpsBtööv-
ar verð . reistar í Eng-
landi
London kl. 17 31./1. FÚ.
Álit nefndar þeirrar, sem
skipuð hefir verið í Englandi
til þess að rannsaka möguleika
á framkvæmd sjónvarps var
birt í dag. Nefndin hefir rann-
sakað margar sjónvarpsaðferð-
ir í mörgum löndum, og komizt
að þeirri niðurstöðu, að hin svo
nefnda háskýrleika aðferð til
sjónvarps sé komin á svo hátt
stig, að rétt sé að byrja á því
að framkvæma hana, Nefndin
leggur til að sjónvarpið verði
rekið í sambandi við útvarpið.
Nefndin leggur til að skipuð
verði sérstök nefnd til þess að
hafa umsjón með sjónvaiiiinu
fyrst í stað, og vill láta skipa
nefndina fulltrúum frá póst,-
stjórninni, útvarpinu og vís-
indalegu ráði til rannsókna.
Nefndin var skipuð í kvöld.
Hún á að ákveða tölu stöðv-
annav og staði þeirra og dag-
skrártímann, sem1 helgaður
verði þessum parti útvarps-
staríseminnar.
Útvarpað verður á örstutt-
um bylgjum og stöðvarnar
þurfa að vera hátt uppi með
eins háum stöngum! og unnt er.
Stengur þær, sem nú erú not-
aðar í Berlín eru 430 feta háar
og eru nú gerðar ráðstafanir
til þess að setja Þar nýjar og
Stofnfundur húsmæðrafélags- j
ins, sem þau Ragnhildur í Há-
teigi og Páll frá Þverá hafa
verið að gangast fyrir að yrði
stofnað, var haldinn í Nýja Lió
um miðjan dag í fyrradag.
Sótti hann töluverður hreyting-
ur af íhaldskonum og eitthvað !
af kommúnistum. Ræðukonur
voru flestar þær sömu og á
fundinum í Gamla bíó.
enn hærri stengur. Slík stöð
með 10 kw. orku mundi geta
aregið út cirka 50 km. á sæmi-
legu sléttlendi, en nokkuru
skemra í mjög hæðóttu lands-
lagi og sumstaðar er gert ráð
fyrir því, að sjónvarpið yrði
svo að segja óframkvæmanlegt.
Þessvegna mundi þurfa margar
stöðvar til þess að sjónvarpið
næði yfir allt England, og er
búizt við því, að frá 10 stöðv-
um geti um helmingur íbúanna
í Englandi notið sjónvarpsins.
Fyrst um sinn er gert ráð
fyrir því, að notuð verði tvö
sjónvarpskerfi samhliða, en á
víxl, frá einni sendistöð í
London. Kerfin sem nota á eru
Baird og Marconi. Áætlað er
að kostnaður við uppsetningu
og rekstur slíkrar stöðvar til
ársloka 1936 muni verða 180
þús. sterl.pd.
Ragnhildur Pétursdóttir hafði
framsögu og sagði hún, að fé-
lagið ætti að vera ópólitískt og
vinna ' að hagsmunamálum
kvenna. Að fráskildum þeim
örfáu orðum talaði Ragnhildur
um mjólkurmálið og sama
gerðu aðrar ræðukonur. Voru
það hinar venjulegu íhaldsum-
ræður um „samsullið“, óhæfni
ný j a m j ólkursöluskipulagsin3,
kryddað venjulegum ósannind-
um og óhróðurssögum eins og á
hinum fyrri bíófundum, en ekk-
ert af þessu rógshjali þorðu
íhaldsmenn að hafa yfir í út-
varpsumræðunum eins og frægt
er orðið.
Ein fundarkona hafði orð á
því, að hún kynni illa við, að
verið væri að prédika mjólkur-
bindindi og nota peninga, sem
kynnu að sparast á mjólk, til
,
að kaupa brennivín fyrir. En
henni skildist að þetta ætti nú
að bera upp á sama daginn!
Morgunblaðið og Vísir skýra
frá því í gær, að aðeins tvær
tillögur hafi verið bornar upp
til samþykktar. Þetta er rangt.
Tillagan um mjólkurlækkunina
og mjólkurverkfallið var borin
upp á fundinum og að því bezt
er vitað samþykkt.
Framh, 6 4. síðu.