Nýja dagblaðið - 22.02.1935, Síða 1
3. ár. Reykjavík, föstudaginn 22. febrúar 1935. 43. blað
Hneykslaníegt alvöruleysi
Italir takmarka innflutning ~ “ "
Landsfundur
sinn og Morgunbl. hlakkar bænda
yfir ótiðíndunum
Fjölsóttur
bæj arstjórnarfundur
Ihaldið gngnnr í vinnumiðlunarmálinu.
Borgarstjóri gefst upp yið að ræða mjólkur-
málið, því fundarmenn „hafa engan áhuga
fyrir því“
Ríkisstjóminni bárust í
fyrakvöld frá utanríkisráðu-
neytinu danska alvarleg og í-
skyggileg tíðindi.
Þau eru á þá leið, að Italir,
sem hafa keypt mikið af salt-
fisksframleiðslu okkar, hafi á-
kveðig stórfelldar innflutnings-
takmarkanir.
Með tilskipun, sem ítalska
stjórnin gaf út 18. þ. m., er
innflutningur á öllum helztu
vörutegundum hér eftir háður
opinberu eftirliti. Fyrir hverja
vörutegund verður ákveðið sér-
stakt innflutningshámark, sem
er miðað við vissan hundraðs-
hluta af innflutningi ársins
1934. Má flytja inn þennan
hundraðshluta án þess, að út-
flutningur komi á móti. Um_
fram þetta innflutningshámark
má því aðeins flytja inn, að
jafnmikill útflutningur komi á
móti. En tilgangur innflutn-
ingshaftanna er m. a. sá, að
reyna að ná hagkvæmari við-
skiptasamningum við aðrar
þjóðir.
Nánari ákvæði um fram-
kvæmd innflutningshaftanna
verða birt innan skamms og
hafa verið gefnar út bráða-
birgðareglur fyrir tímabilið 19.
febr. til 31. marz.
Vitneskja mun þegar fengin
um það að á tímabilinu frá 19.
febr. til 31. marz muni salt-
fisksinnflutningur ekki vera
leyfður meiri en 20% af inn-
flutningi þeim, sem var á samá
tíma í fyrra. Hvað þá tekur
við, er enn ekki ákveðið. Virð-
ist mikil hætta á því, að inn-
flutningur frá Islandi sæti
verulegum takmörkunum, en
hann mun hafa numið á síðasta
ári 6—7 milj. kr. En útflutn-
ingur Itala hingað aðeins 1%
milj. kr.
Morgunblaðið hefir í gær
fengið lausafréttir um þennan
lcvíðvænlega atburð, og endar
það frásögn sína um hann á
þessa leið:
„Mætti ef til vill ætla, að
rauðálfar þeir, er hér sitja við
völd nú, kynnu við þessi tíðindi
að fá önnur umhugsunarefni,
en að hækka í sífellu álögur og
skatta, til þess að fylla eyðslu-
hítir sínar."
Það má fullyrða, að í þessum
orðum komi fram hámark
þeirrai- spillingar og illvilja,
sem einkennt hefir ofstækis-
fyllsta íhaldið í landinui. Það er
ekki uggur yfir afleiðingunum,
sem verður efst í huga Morg-
unblaðsritstjóranna við þessi
tíðindi. Það er ekki nein ósk
eða hvatning til þjóðarinnar um
að standa sameinuð til að af-
stýra örðugleikunum, sem af
þessu kunna að hljótast. Það er
hinn villimannlegi og siðlausi
hugsunarháttur alvöruleysingj-
ans, sem fagnar yfir því, að nú
fái pólitískir andstæðingar erf-
itt viðfangsefni, auk þeirra,
sem fyrir eru, og nota megi
vaxandi örðugleika þjóðarinn-
ar til að ala á ríg og tortryggni
gegn núverandi valdhöfum.
Ótrúlegt mætti það vera, ef
þessi tilhlökkun Morgunblaðs-
ins gæti ekki orðið því nokkuð
dýr hjá öllum þeim, sem skilja
erfiðleikana og hættuna, er af
þessum tíðindum hlýtur að
leiða.
Rússar fylgja
Frökkum og Bret-
um að málum
London kl. 17, 21/2. FÚ.
Sovétstjómin hefir í dag sent
orðsendingu til brezku og
frönsku stjómanna, út af
Lundúnatillögunum, og tjáð sig
fylgjandi þeim. í orðsending-
unni er sagt, að Sovétstjómin
leggi ríka áherslu á samninga
milli einstakra þjóða, til trygg-
ingar friðnum á ýmsum svið-
um, og að hún telji nauðsyn.
bera til að Austur-Evrópusátt-
málinn nái fram' að ganga.
Frönsk blöð gera sér tíðrætt
um þessa orðsendingu í dag, og
láta svo um mælt, að hún beri
vott um það, að Rússland,
Frakkland, Italía og Bretland
hafi nú tekið höndum saman
um að starfa eindregið að
tryggingu friðarins.
Ef að úr því skyldi verða, að
Sir John Simon, eða einhver
annar erindreki brezku stjórn-
arinnar, færi til Berlínar, er
talið líklegt að hann færi þá
einnig til Moskva, og er vitað,
að Sovétstjórnin myndi vera
mjög ánægð með þá ráðagerð.
I stjórn hins nýstofnaða
Landssambands islenzkra
bænda voru á landsfundinum í
gær kosnir þessir fimm menn:
Ólafur Bjarnason bóndi í
Brautarholti, formaður.
Jón Hannesson bóndi í Deild-
artungu.
Hafsteinn Pétursson bóndi
Gu'nnsteinsstöðum.
Gestur Andrésson, bóndi
Hálsi.
Sigurgrímur Jónsson, bóndi
Holti.
Og til vara:
Guðmundur Jónsson bóndi,
Iivítárbakka.
Bjöm Konráðsson ráðsmáð-
ur, Vífilsstöðum.
í fulltrúaráð Landssambands-
ins vora á sama fundi kosnir
þessir menn:
Kolbeinn, Högnason bóndi,
Kollafirði.
Guðmundur Jónsson bóndi,
Hvítárbakka.
Sverrir Gíslason bóndi,
Hvammi.
Hallur Kristjánsson bóndi,
Gríshóli.
Þorsteinn Þorsteinsson sýslu-
maður, Búðardal.
Guðmundur Jónsson kaupfé-
lagsstjóri, Sveinseyri.
Jóhannes Davíðsson bóndi,
Hjarðardal.
Páll Pálsson bóndi, Þúfumi
Gunnar Þórðarson bóndi,
Grænumýrartungu.
Eggert Levy bóndi, Ósum.
Runólfur Bjömsson bóndi,
Korasá.
Sigurður Þórðarson bóndi,
Nautabúi.
Garðar Sigurjónsson bóndi,
Öngulsstöðum1.
Amór Sigurjónsson bóndi,
Hjalla.
Pétur Siggeirsson bóndi,
Oddsstöðum.
Björn Hallsson bóndi, Rangá.
Benedikt Blöndal bóndi,
Hallormsstað.
Sigurður Jónsson bóndi,
Stafafelli.
Eyjólfur Guðmundsson bóndi,
Hvoli.
Guðjón Jónsson bóndi, Ási.
Gísli Jónsson bóndi, Stóru-
Reykjum.
Auk þessara 22 aðalmanna í
fulltrúaráði, vorú kjömir jafn-
margir varamenn.
Bændafundinum var slitið í
gærkvöldi kl. 7V2. Ýmsra
merkilegra ályktana frá fund-
inum verður síðar getið.
Bæjarstjóraarfundur var
haldinn í Kaupþingssalnum í
gær og hófst hann kl. rúmlega
5, eins og venjulega.
Aðalmálin á dagskrá voru:
Bréf frá atvinnumálaráðherra
um stofnun vinnumiðlunar-
skrifstofu og kosningar í stjórn
hennar og atvinnuleysismáhð.
Vinnumiðlunin.
Borgarstjóri skýrði frá bréfi
ráðherra, sem var svar við
þeirri samþykkt meirahluta
bæjarstjómarinnar „ag bærinn.
hefði nýtízku ráðningarskrif-
stofu“, teldi því nýja skrif-
stofu óþarfa, en væri hinsvegar
fús til samninga um málið.
Var bent á það í bréfi ráð-
herrans, að þetta fengi á eng-
an hátt staðizt og bæjarstjórn-
inni bæri lagaleg skylda til þess
að kjósa menn í stjóm vinnu-
miðlunarskrifstofunnar.
Taldi borgarstjóri, að ekki
myndi þýða að þrózkast meira
í máli þessu og lagði til að
mennimir yrðu kosnir.
Var það samþykkt. Kosnir
vom Jón Back sjómaður og
Ragnar Lárusson fátækrafull-
trúi.
Auk þeirra koma til með að
vera í stjóm vinnumiðlunarinn-
ar einn maður frá atvinnurek-
endum, einn maður kosinn af
verkamannafélaginu og fimmti
maður er stjómskipaður.
Mikil fundarsókn.
Þegar hér var komið, var
fundarsalurinn orðinn þétt-
skipaður, ekki aðeins áheyr-
endasvæðið, heldur einnig sá
hlutinn, sem ætlaður er bæjar-
fulltrúum eingöngu. Komst ekki
fleira fólk í salinn og náði
þröngin um allan ganginn og
niður í stiga.
Höfðu Sjómannafélagið og
Dagsbrún boðað til atvinnuleys-
ingjafundar í Iðnó og komu
menn þaðan á bæjarstjómar-
fundinn.
Umræður um atvinnu-
leysismálið.
Að lokinni kosningunni í
stjórn vinnumiðlunarinnar, var
atvinnuleysismálið tekið tilum-
ræðu. Voru fyrst lesnar af
fundarstjóra tillögur frá at-
vinnuleysingjafundinum í Iðnó
og voru þær um það, að’fjölga
nú þegar upp í 400 manns í
atvinnubótavinnunni og að bæj-
arstjómin uppfyllti það skil-
yrði, að leggja 2/3 hluta gegn
ríkissjóðsframlaginu og tryggði
sér þannig sem mest fé til at-
vinnubóta.
Urðu um tillögur þessar mikl-
ar umræður og tóku margir til
máls. Bjarni Benediktsson bar
fram tiilögu um það, að tala
manna í atvinnubótavinnunni
yrði sú sama og áður hefði
verið ákveðin. Var tillaga
hans samþykkt og fjölgun í at-
vinnubótavinnuna þar með
sjálffallin.
Borgarstjóri vill ekki at-
vinnubætur heldur öl-
musu.
Ræður borgarstjóra. voru
langar og loðnar að vanda.
Hann sagðist hafa heyrt flð
ríkisstjórnin hefði enn talsvert
óráðstafað af atvinnubótafé
þessa árs. Hefði hann komið
fram með þá tillögu, að þetta
fé færi ekki til venjulegra at-
vinnubóta, en þó til atvinnu-
leysingja. Væri á þann hátt
hægt að komast hjá skilyrðinu
um' 2/3 hluta framlag bæjar-
sjóðs. Ætti að verja þessu fé
þannig, að greiða þeim mönn-
um, sem ekki væru í atvinnu-
bótavinnu, en væru þó atvinnu-
lausir, 25 kr. fyrir hverja viku,
sem þeir ekki ynnu.
Þetta væri miklu hagfelldari
leið, sagði borgarstjóri, en að
vera að hrekja mennina til
vinnu á morgnana út í vond
veður. (Varð þá hlátur um
allan salinn).
Ihaldinu og kommúnist-
um varnað að ræða
mjólkurmálið.
Næsta mál á dagskránni var
mjólkurmálið, flutt af fulltrúa
kommúnistanna. Bar hann
fram hina þekktu lækkunartil-
lögu kommúnistanna.
Þegar Björn hafði lokið máli
sínu ætlaði borgarstjóri að
tala. Komst hann ekki lengra
en það, að segja að ríkisstjórn-
in væri að leggja einn atvinnu-
veg Reykvíkinga í rústir og
Framh. á 4. síðu.