Nýja dagblaðið - 22.02.1935, Side 4
<
N Ý J A
DAGBLABIÐ
IDAG
Sólaruppkoma kl. 8,05.
Sólarlag kl. 5,20.
FJóð árdegis kl. 7,30.
Flóð siðdegis kl. 19,45.
Veðurspá: Allhvðss norðanátt. Úr-
komulaust.
Veðurspá: Stinningskaldi á norð-
austan og austan. Víðast, úr-
komulaust.
Söfn, skrifstofur o. fl.
Landsbókasafnið ...... 1-7 og 8-10
Alþýðubókasafnið ... 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafnið ............. 1-4
Landsbankinn ................ 10-3
Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn ...... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., Klapparst...... 2-7
Pósthúsið: Bréfapóststofan .. 10-6
Bögglapóststofan ......... 10-5
Slcrifstofa útvarpsins.. 10-12 og 1-6
Landssiminn .................. 8-9
Búnaðarfélagið ..... 10-12 og 1-4
Fiskifélagið (skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Skipaútgerð ríkisins .. 9-12 og 1-6
Eimskip ...................... 9-6
Stjómarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Samb. ísl. samv.fél. .. 9-12 og 1-6
Sölus.b. ísl. fiskfrl. .. 10-12 og 1-6
Skrifstofur bæjarins .. 9-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6
Skipa- og skrán.st. rík. 10-12 og 1-5
Tryggingarst. rikisins 10-12 og 1-5
Hæstiréttur kl. 10.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landspítalinn ................ 3-4
Landakotsspítalinn ........... 3-5
Vífilstaðahælið . 12y2-iy2 og 3y2-W2
Laugamesspítali . 12%-2
Kleppur ...................... 1-5
Elliheimilið ................. 1-4
Fæðingarh., Eiríksg. 37 — 1-3 og 8-9
Sjúkrahús Hvítabandsins ......2-4
Næturvörður í Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Næturlæknir: Jón Norland. Lauf-
ásvegi 17. Sími 4348.
Skemmtanir og samkomur:
Gamla Bíó: Enginn dagur án þín.
Nýja Bíó: Lögregluhetjan.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,10 Há-
degisútvarp. 12,50 þýzkukcnnsla.
15,00 Veðurfregnir. 18,45 Erindi
Búnaðarfélagsins: Um kornrækt
(Klemens Kristjánsson komyrkju-
maður). 19,10 Veðurfregnir. 19,20
þingfréttir. 19,50 Auglýsingar. 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Kvöld-
vaka: a) Jón Sigurðsson skrifstofu-
stjóri: Upplestur; b)Steingr. Matt-
híasson læknir: Endurminningar
um Gröndal, Steingrím og Matt-
hías (frá Akureyri); c) Jochum
Eggertsson: Gömul ferðasaga. —
Ennfremur íslenzk lög.
„Konan" Jakob Möllerl „Ég segi
fyrir mig, að ég kæri mig ekki
um að skipta við þá menn, sem
hafa hér á vegum sínum dóna-
stráka, sem em að spreyta sig á
því að uppnefna okkur konurnar".
Úr grein, sem Jakob Möller skrif-
ar undir dulnefni í Vísir í gær.
Farsóttartilfelli á öllu landinu í
janúarmánuði voru 2277 talsins,
þar af 1160 í Reykjavík, 409 á Suð-
urlandi, 139 á Vesturlandi, 356 á
Norðurlandi og 213 á Austurlandi.
Kvefsóttartilfelli voru flest, 947 og
þar næst kverkabólgutilfelli, 918.
ísfisksalan. Selt hafa í Grímsby:
Geir 1322 vættir fyrir 755 sterlings-
pund og Haukanes 1451 vætt fyr-
ir 777 sterlingspund.
©Gamla Bíó|
Engin dagur
án þín
Gullfalleg þýzk söngmynd.
Hinn nýi Caruso
Herbert Emst Grob,
leikur og syngur aðalhlut-
verkið.
Anná.11
Skipafréttir. Gullfoss kom til
Leith í gær. Goðafoss er á leið til
Vestmannaeyja frá Hull. Brúar-
foss var á Vopnafirði í gær.
Dettifoss er á leið til Hull frá
Vestmannaeyjum. Lagarfoss er í
Kaupm.höfn. Selfoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gær á leið til Ab-
crdeen.
Gestur Andrésson bóndi, Hálsi,
biður þess getið að hann hafi á-
kveðið að afsala sér sæti sínu i
stjórn Landssambands bænda til
varamanns, Bjönis Konráðssonar
ráðsmanns á Vífilsstöðum.
Skátarnir hér i Reykjavík halda
ársskemmtun sína í Iðnó í kvöld.
Er líklegt að þar verði fjölmenni
mikið, því skátar eru vinsælir.
Frá Akranesi. Iðnaðannannafé-
lag er nýstofnað á Akranesi með
um 50 félagsmönnum. Taka þátt í
félaginu menn frá öllum iðngrein-
um kauptúnsins: trésmiðir, járn-
smiðir, steinsmiðir, skósmiðir,mál-
arar, rafvirkjar o. s. frv. Stjómina
skipa: Jóhann Guðnason trésmið-
ur (formaður), Daníel Vigfússon
trésmiður og Jón Guðmundsson
skósmiður. Leikfélagið á Akra-
nesi er nú að æfa leikritið Lén-
harð fógeta, sem það býst við að
sýna bráðlega. Samkomuhús Ak-
umesinga hefir nú verið stækkað
og endurbætt stórlega, svo nú eru
góð skilyrði á Akranesi til funda-
halda og leiksýninga. — Gæftir
hafa verið mjög stirðar það sem
af er vertíðinni, en fiskaðist sæmi-
lega vel síðast þegar róið var.
Á bændafundinum kom taisvort
áberandi hrEpðsla í ljós hjá ýms-
um sem valdir höfðu verið á fund-
inn af búnaðarfélögum bænda og
samvinnufélögum bænda yfir því
að hættulegt væri að þessir aðilar
kysu fulltrúa á landsfundi bænda
framvegis. þetta sýnist benda á,
að Jón í Dal, Gísii Sveinsson og
aðrir, sem valdir voru af slíkum
félögum í þetta sinn, álíti, að val-
ið hafi ekki verið til eftirbreytni.
peir, sem verða fyrir vanskiluni
á blaðinu, eru beðnir að láta af-
greiðsluna tafarlaust vita um það.
pingið í Danzig kom saman í
gær. Búist er við, að fyrsta starf
þess verði að ákveða þingrof, með
því að National Socialistar vilja
losna við andstæðinga sína á
þingi, til þess að geta numið
stjórnarskrána úr gildi, en það
geta þeir ekki nema með tveim
þriðju hlutum allra greiddra at-
kvæða, en það atkvæðamagn hafa
þeir ekki á þingi. Ef þing verður
rofið nú, munu nýjar kosningar
fara fram 7. apríl. — FÚ.
Vikuna 20.—26. jan. síðast. voi’u
þrjú mannslát hér í bænum.
Es]a var á Flatey í gær. Er
væntanleg hingað á laugardaginn.
EP
þið viljið að auglýs-
ingar ykkar beri
árangur, þá auglýsið
helzt í Nýja dag-
blaðinu. 1 því er
bezt tekið eftir aug-
lýsingum.
Skíðahlaup
Fimmtíu km. skíðahlaup eft-
ir ókunnu landslagi, sem farið
er á 3V2 kl.st. Er hægt að
benda á noklcurt íþróttaafrek,
sem jafnist á við slíkt hlaup
og sem eingöngu er komið und-
ir skiðamanninum sjálfum?
Fyrir þá, sem ekki hafa al-
izt upp við skíðagöngur frá
blautu barnsbeini, er þvílík
skíðaför eitt það furðulegasta,
semi fyrir augu ber. Niður
brattar brekkur og dali, yfir
hæðir og hálsa, gegnum skóg-
lendi og eyðisléttur, yfir skurði
og hverskyns hindranir, þar
sem allur þróttur líkama og
sálar er lagður fram, ekki má
eyða andartaki í tafir né hvíld.
Framundan markmiðið, sig-
urinn, bak við geisandi keppi-
nautarnir eins og þjótandi úlf-
ar eftir bráð.
Þetta firna langa hlaup fór
fram ekki alls fyrir löngu, suð-
ur undir Alpafjöllum. Og það
voru Norðmenn, sem sigurinn
hlutu, eins og svo oft fyr.
Skíðagöngur og hlaup eru
margskonar. Eitt þeirra er hið
svonefnda Abfahrt. Orðið er
þýzkt og þýðir niður. Kepp-
endur velja sér stað frá háum
hálsi eða hlíð og markið er ein-
hversstaðar lengst niður í daln-
um. Þetta hlaup krefur geysi-
legrar æfinga, valds og leikni.
Sigurvegarinn í þessu hlaupi
varð einnig Norðmaður Birger
Ruud. Vegalengdin var 5 km.
og hann fór hana á 5 mínútum
og 17 sekúndum. Það svarar til
55 km. á klst. Ruud vann sig-
ur sinn með því að fara beinni
leið en keppinautamir, sem er
fyllilega leyfilegt, en um leið
stórum áhættumeira. Hann
hentist bókstaflega niður bratt-
ann, tók hvert stökkið á fætur
öðru og stökk síðast innað
markinu. Áhorfendumir stóðu
mállausir af undmn nokkur
andartök. Svo brutust fagnað-
arópin út.
* En skíðastökkin þykja þó
það aðdáunarverðasta af öllum
afrekum þessarar íþróttar. ,
Á Holmenkollen er skíða-
bakkixm ægilega hár. Við Olym.
piska skíðabakkann í Garmisch-
Partenkirkchin getur stökk-
lengdin orðið 80 metrar.
Hátt, hátt upp í hlíð fjalls-
ins byrjar atrennan. Það sér
móta fyrir litlum, döklcum
depli, sem kemur þjótandi nið-
ur brekkuna. Atrennubrautin er
70 m. löng og fram að sjálfri
brúninni hallar henni upp á við
á stuttum kafla. Frammi á
brúninni hniprar skíðamaður-
inn sig saman í kuðung. Svo
spymir hann sér út í loftið.
Eins og svífandi fugl, með út-
breidda arma þýtur hann gegn-
um loftið með um það bil 80
km. hraða á klst. Hann notar
mótstöðu loftsins i þarfir
hlaupsins, stýrir ferð sinni með
handleggjunum, eftir nokkrar
sekúndur nemur hann við hála,
skáhalla brekkuna á geisilegri
fleygiferð. Það krefur alveg
ótrúlegrar æfingar og leikni að
komast heill frá slíku heljar-
hlaupi. Hæðin er röskir 40
metrar.
Korpúlfsstaðir
eða þjóðin
Framh. af 3. síðu.
stjórn þess, verða teknar álíka
hátíðlega, eins og hótanir skap-
illra vesalmenna, sem ekkert
eru annað en munnurinn og
gífuryrðin. Það er alkunna að
ritstjórar þessir eru ekkert
annað en húðarjálkar íhalds-
flokksins, sem fá laun sín fyrir
baksæri og drápsklyfjar í aug-
lýsingum máttarstólpa flokks-
ins. Hótanir þessara manna eru
máttlausar og sýna einungis
eitt, — hver er vilji íhalds-
flokksins í mjólkurmálinu.
Fjölsóttur
bæjarstjórnarfuudur
Framh. af 1. síðu.
yrðu atvinnuleysingjar að rísa
gegn því. Kváðu þá við hróp
víða um salinn: „Við viljum
ekki meira kjaptæði um mjólk-
urmálið, við viljum fá atvinnu“.
„þegiðu, Jón“, „þið eruð búnir
að láta kerlingarnar rífast nóg
um þetta“ o. s. frv.
Þagði borgarstjóri þá góða
stund, horfði á áheyrendurna
og gekk til sætis síns. Að lít-
illi stundu reis 'hann upp aftur,
sagðist ekki geta talað hátt,
því hann væri lasinn og bað
menn hafa hljótt. Kyrrði þá
nokkuð, en þegar borgarstjórí
fór aftur að tala um mjólkur-
málið, byrjuðu köllin á ný.
„Ég verð að hætta. Ég sé að
þið hafið engan áhuga fyrir
þessu“, sagði borgarstjóri að
lokum, en fundarstjóri skar
niður frekari umræður og tók
málið af dagskrá.
Fundurinn fór vel fram að
öðru leyti, þrátt fyrir afarmik-
il þrengsli, svo að margir urðu
að standa allan tímann.
Tillðgar
í afurðasiSlumálum
Landsfundur bænda samþ. í
gær svofelldar till. um' afurða-
söluna:
1. Landsfundur íslenzkra bænda
1935 lítur svo á, að lög þau
um sölu landbúnaðarafurða,
er sett voru á síðasta Al-
þingi hafi verið tímabær og
stefna í rétta átt, en þar
sem reynslutími þeirra er
enn svo skammur, telur
fundurinn ekki rétt að kveða
upp fullnaðardóm um fram-
kvæmd þeirra.
2. Landsfundurinn skorar á Al-
þingi og ríkisstj órn:
a. að leggja áherzlu á að leita
markaða erlendis fyrir ís-
lenzkar landbúnaðarafurðir,
einkum kjöt, og verja þar til
fé úr ríkissjóði eftir því sem
nauðsyn krefur.
b. að styðja að því að úr hrá-
efnum íslenzkum, svo sem
skinnum og ull verði unnar
útgengilegar vörur til notk-
unar innan lands og utan.
c. að láta fram fara ná-
Nýja Bíó
Lðgregluhetjan
Amerísk tal- og tónmynd er
gerist meðal hinnar víð-
frægu lögreglu í norðurauðn-
um. — Aðalhlutv. leika:
Buck Jones, Greta Gran-
stedt 00 Mitchell Lewis.
Aukamynd:
Hvaladrápið í Fossvogi ’34
Kvikmynd tekin af Lofti
Guðmundssyni.
Böm fá ekki aðgang.
© Odýrn ©
a.aglýsingarnar
Tapað-Fundið
Tapast hefir nýtt armbands-
úr frá Stútentagarðinum suðúr
að Aðalbóli, Þormóðsstöðum.
Finnandi geri viðvart í síma
4537. Góð fundarlaun.
Hæg jörð við þjóðveg
austanfjalls til sölu. Laxveiði.
Sanngjarnt verð. Semjið við
Jón Ólafsson lögfr. Sími 4250.
Ný og notuð húsgögn til sölu.
Gömul, keypt upp í viðskipti.
Sími 2896.
Efni til útrýmingar
„Kakkalökkum"
fæst í Kaupfél. Reykjavikur.
Fermingin nálgast.
Þegar mæður fylgja bömum
sínum inn kirkjugólfið, klæðast
þær jafnan sínum skrautleg-
ustu fötum. Ekkert er fallegra
til fyrir konur á peysufötum,
í slifsi og svuntur, en Geor-
gette með flöjelisrósum, hvítt
eða mislitt. Sent gegn póst-
kröfu um allt land. Fæst ávalt
í úrvali í
________Verzlunin „DYNGJA**.
HILLUPAPPÍR fæst í
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Við erum eina verzlunin
á landinu, sem hugsar aðal-
lega um íslenzkan búning, og
hefir saumastofu eingöngu fyr-
ir hann. Höfum því fyrirliggj-
andi:
Silkiklæði, Ullarklæði, Peysu-
fatasilki, Upphlutasilki, Upp-
hlutsborða, Knipplinga, Gull-
leggingar, Peysufata- 0g úpp-
hlutafóður og allt tillegg, Kven-
brjóst, Hvítar Pívur, Svartar
Blúndur, Skotthúfur, flöjel og
prjónaðar, Skúfa, Skúfasilki,
Vetrarsjöl, Kasimirsjöl, Frönsk
Sjöl, Kögur á Sjö.l, Slifsi,
Slifsisborðar, Svuntuefni, Upp-
hlutaskyrtuefni. — Hvergi
betra úrval í þessum vörum.
Spegilflöjel og Prjónasilki í
peysuföt væntanlegt bráðlega.
Vörur sendar gegn póstkröfu
um allt land. w
Verzlunin „DYNGJA".
kvæma rannsókn á kostnaði
við framleiðslu landbúnaðar-
afurða í hinum ýmsu lands-
hlutum. Á rannsókn þessari
telur fundurinn að byggja
skuli meðal annars ráðstaf-
anir í þá átt að hver grein
framleiðslunnar sé stunduð
þar sem a. m. k. viðunanleg
skilyrði eru fyrir hendi.