Nýja dagblaðið - 02.05.1935, Page 3

Nýja dagblaðið - 02.05.1935, Page 3
U Ý J A DáSBiABlB 8 NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: „BlaÖaútgáfan h.f.“ Ritstjóri: Gísli Guðmundsson. Ritstjórnarskrifstofumar Laugv. 10. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa Austurstr. 12. Sími 2323. Áskriftargjald kr. 2,00 á mán. í lausasölu 10 aura eint. Prentsmiðjan Acta. Ragnhildur Ragnhildur í Háteigi er ein af þeim fáu konum hér í bæn- um, sem tekið hafa að sér þá þjónustu fyrir íhaldið, að ala á ófriði hér í bænum út af mjólkurmálinu. En lítið hefir henni orðið ágengt — ekki einu sinni tekizt að verða formaður í „húsmæðrafélaginu“ — og þó dauðlangað til þess. Afstaða Ragnhildar í þessu máli er líka býsna kátleg. Hún þykist koma fram eins og frels- ari og forsvarsmaður neytenda hér í bænum. En sjálf er hún mjólkurframleiðandi með marg- ar kýr. Og enginn þarf að ef- ast um, að henni sé miklu ann- ara um „fjósið sitt“ en verka- mannafjölskyldurnar í Rvík, sem þurfa að kaupa mjólk. Fyrir nokkru tók Ragnhild- ur sig til og skrifaði smágrein í Saurblaðið Vísi. Og það er mesta furða, hvað þessari göf- ugu íhaldsfrú tekst að koma fyrir mikilli illkvittni og fárán- legum barnaskap í ekki lengra máli. Ragnhildur í Háteigi veit það rétt eins og aðrir, að sögusagn- irnar um sótthættu í Klepps- mjólkinni voru bornar út í vet- ur gegn betri vitund. Hún veit að venzlamaður hennar á Nýja Kleppi hefir sjálfur notað þessa mjólk handa fjölskyldu sinni. Þessu getur frúin heldujr ekki mótmælt. Hún segir bara ósköp sakleysislega: „Þó heyið sé ekki talið saknæmt af læknum, þá er þó engin örugg sönnun fyrir því, en þó er óskandi og vonandi, að engin hætta stafi af því“! Myndi ekki einhverjum, sem þetta les, detta í hug orð Stef- áns G.: „Við sérhverja afsökun ásökuh var, sem eitri í kaleikinn bætt“. En þetta þykir víst bæði „kvenlegt" og „kristilegt" á „fínu“ heimilunum héma í bænum! Ragnhildur segist vera undr- andi yfir því, að strangar kröf- ur séu gerðar ujm aðbúnað í fjósum hjá þeim, sem selja beint til neytenda, en hinsveg- ar ekki hjá þeim!, sem selja gegnum Samsöluna. Skilur eða veit manneskjan ekki, að það er af því, að hjá Samsölunni er mjólkin gerilsneydd, en hina mjólkina, sem ekki er geril- sneydd, þarf að tryggja á ann- an hátt. En svo virðist Ragnhildur furða sig á því, að Samsalan skuli ekki vilja taka súra mjólk til sölu — og er það eftir öðni í þessari Vísisgrein. Þrjú tímarit --- Jarðarför föður okkar og tengdaföður, Þórð- ar Flóventssonar, er ákveðin að Odda á Rangár- völlum miðvikudaginn 8. þ. m. á hádegi. Kveðju- athöfn á heimili hans hér, Ingólfsstræti 21C, föstudaginn 3. þ. m. kl. 10 f. h. Björg Þórðardóttir Anna Bjarnadóttir Sigurður Jónsson Erlendur Þórðarson Tízkutídindi Etni nnnin úr islenzkri ull eru í tízku i ár Eimreiðin, 1. hefti 1935. Margt fróðlegt og læsilegt er í þessu hefti, en þó vill allt- af nokkur þröngsýni og ein- hæfni í skoðunum loða við Eimreiðina síðan hún flutti heim, — og þrátt fyrir „mottó- ið“ á kápu hennar, en það er tekifj úr hinu alkuhna og frjáls- lynda kvæði Þorst. Erlingsson- ar, „Brautin". „Við þjóðveginn“ hnýtur rit- stjórinn um sömu pólitísku ásteiningarsteinana; áður marg þvæld., sókt og varin atriði, s.vo sem fjárlagafrumvai’pið síðasta o. fl. Flestum lesendum mun nægja slagur dagblaðanna um þau efni. Af öðrum greinum í heftinu má nefna „Fiskveiðar og menn- ing“ og er það upphaf að grein þýddri úr dönsku, eftir Matt- hias Þórðarson. Er það fróðleg byrjun og víðar komið vig en fyrirsögn bendir til. Þá er grein eftir Pál Þorleifsson prest að Skinnastað, „Trúin á hamar og sigð“, löng grein og skörulega rituð, um efni, sem virðist sérstaklega vel fallið til rökfræðilegra skilminga. Upphaf þýðingar á ritverki um dulræn efni eftir Alex- ander Cannon hefst í þessu hefti. Cannon er enskur læknir og hafa ritverk hans vakið all- mikla eftirtekt, sérstaklega í enskumælandi löndum. Annars er það eftirtektarvert hve trú é dulspeki og dularöfl fer mjög vaxandi meðal þjóðanna á síð- ari árum, en svo vill oft verða þegar illa árar til langframá, og grundvöllur efnislegra verð- mæta gjörist fallvaltur. Áthyglisverð er smágrein eftir ritstjórann „Um bóklest- ur fyr og nú“; er það svo mleð bækur, eins og flestar aðrar vörur, að framleiðslan stjóm- ast löngum fremur af persónu- legum hag fárra einstaklinga en þörf almennings. Nokkrar sögur og kvæði eru í heftinu, hvorttveggja læsilegt, en kvæðin flest efnislítil. Gam'- en er þó að vísum eftir Sig- urjón Friðjónsson og K. N. Skinfaxi XXVI., 1. apr. 1935 Hefti þetta er fjölbreytt að efni og fremur skemmtilegt af- lestrar, en það hefir sama galla og flest önnur tímarit okkar: það skortir skipulag og formfestu. Ýmsar góðar og uthyglis- verðar greinar eru í þessu hefti, og má þar nefna „Sam vinnubyggðir og unga fólkið“ eftir Steingrím Steinþórsson. Er þar drepið á þann mikla vanda er fylgi framkvæmd samvinnubúskaparins; að í þann starfshóp megi veljasc fólk, er hafi nægan félags- þroska til að skilja hlutverk sitt og aðstöðu á þeim' nýja vettvangi. Steingrímur Steinþórsson ber mest traust til ungu kynslóð- arinnar í þessum efnum, og hann heitir á ungmennafélög og alþýðuskóla að veita undir- búningsfræðslu í alménnri sam. vinnu. Klemenz Kristjónsson ritar „Framleiðsla og starfserni æskunnar til sveita“ og Einar Kristjánsson „U.M.F. og sam- tíðin“. Báðar greinarnar hníga í svipaða átt og eru sérstak- lega hvatning til ungmenna- félaganna um að snúa sér meir að hinum raunverulegu vanda- málum sveitanna, framleiðslu- og búskaparmálum. Þá eru tvær smásögur, nokkr ar smágreinar ýmislegs efnis og fáein kvæði. Fyrst kvæð- anna er eftir Jóhannes úr Kötlum. Það er kröftugt í sín- um barnslega einfaldleik, en endirinn er vafasamur. Sama veilan er í lok smásögunnar eftir Stefán Jónsson, sem einn- ig birtist í þessu hefti. Hvor- ugur höfundanna virðist gæta þess, að það er óeðlilegt að lítil börn sjái meinsemdir þjóð- félagsins, sem þó kunna að birtast í þeirra hversdaglega sorgum. I báðum tilfellunum eru það höfundafnir sjálfir, en ekki persónur þeirra, sem tala. Samtíðin 2. hefti 1935. E. P. Briem, Reykjavík er nú eigandi og útgefandi þessa t.ímarits, og er þetta annað heftið frá hinni nýju ritstjórn. — Tímaritið flytur sögur og greinar ýmislegs efnis, en til- gangur þess mun þó aðallega vera sá, að kynna nýungar í bókaútgáfu hér og í nágranna- ’öndunum, og virðist þar þó fremur lausllega og óákveðið tekið á hlutunuml 1 þessu hefti er saga, sem týndist, en fannst aftur, eftir H. K. Laxness. Hún er um ungan mann og unga stúlku, og svo þriðja aðilan, sem H. K. L. tekst vanalega að gera svo ljóslifandi í sögum sínum, að lesandinn getur næstum bú- ist við að sjá hann koma labb- andi út úr bókum hans, — hundtíkina. Þá er í heftánu smlágrein FRÁ FRÉTTARITARA NÝJa DAGBLAÐSINS. Kaupm.höfn í apríl. Hr. Arboe forstjóri fyrir „Arboe“, sem er eitt stærsta vöruhúsið hér í borginni, segi). að hin nýja og komandi tízka kvenfólksins sé sniðin fyrir grannvaxnár konur. Eftir því að dæma ættu holdugar konur ekki að geta klætt sig eftir nýjustu tízku. Þær mundu líta illa út og kjóllinn þeirra mundi bókstaflega eyðileggjast, ef h,ann yrði að vera nr. 52 eða enn stærri. — Til þess að gleðja hinar holdugri konur, bætir hr. Ar- boe samt sem áður við, þá hafa komið hing-að ný efni, sem eru ágætlega til þess fall- in að klæða holdugu kvenfólki ágætlega vel. Bæði ullar. og silkiefnin nýju falla í mjúkum og þungum línum. Ennfremur er komið á markaðinn eitt efni enn, sem klæðir öllu! kvenfólki vel. — Er þar átt við efni sem unnið er úr íslenzkri ull í Eng- landi. Ég hefi aldrei þekkt um talmyndatæki, þar sem1 höf. stingur upp á því að Ríkisút- varpið eignist ein slík, svo hægt verði að geyma ábyggilegar minningar merkra atburða, og sem! einnig geti verið útvarps- efni. Mál þetta er vel vert at- hugunar. Prentun ritsins er smekk- leg, en óþarflega mikill handa- liófsblær er á litun kápunnar. 1 Etca. • eins mjúkt ullarefni. Það er ' mjög létt og þó yndislega hlýtt. Kjólar úr þessu íslenzka efni eru fullkomin trygging gegn hættulegum vorkuldum, jafnframt því sem þeir hafa þær verkanir, að holdugar kon- ur, sem klæðast þeim, sýnast hreint og beint vera grann- vaxnar. 1 öllu falli getur hver kvenmaður, með aðstoð góðs klæðskera, látið sauma sér kjól úr þessu efni og borið hann, án þess að brjóta 4 nokkurn hátt í bága við ver- andi tízku. Sökum þeirra yfir- burða, sem þetta íslenzka ull- arefni hefir til klæðagerðar. sér í lagi handa þrekvöxnu 1 kvenfólki, er gert ráð fyrir mikilli sölu á því hér í Dan- mörku á næstunni. Því verður sem sé ekki neitað, að kven- þjóðin okkar er yfirleitt frek- ar vel í skinn komin. Einhnepptir hanzkar. Samkvæmt nýjustu tízku eiga beltin og kragamir að ' era úr rúskinni. Hanzkarnir ciga að vera stuttir og ein- imepptir. Kvenfólkið í París er farið að nota þessa stuttu ein- hnepptu hanzka. Er ekki erfitt að geta sér til um það, að kyn- systuir þeirra í öðrum löndum munu brátt feta í fótspor þeirra í þessu efni. Ljósgrá göngnföt með síðum buxum. Kvenþjóðin í Englandi hefir nú tekið upp þann sið, að Framh. á 4. síðu. Stærsta íarþeéaskip heimsins Hér í blaðinu hefir áður verið sagt frá því, að Frakkar hefðu í smíðum stærsta far- þegaskip heimsins og á það að heita „Noi*mandie“. Er því ætlað að sigla milli Evrópu og Ameríku. Smíði skipsins er nú svo langt komið, að það á að fara í fyrstu ferð sína 29. þ. mán. — „Normandie“ ihefir rúm fyrir 2170 farþega og er búið öllum hugsanlegum þægind- um, hefir m. a. leiksal, bíó og sundlaug. Sérstakur salur er fyrir guðsþjónustur. — Starfs- menn á skipinu verða á annað þúsund og í eldhúsinu einu eiga að starfa um 200 manns.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.