Nýja dagblaðið - 15.05.1935, Blaðsíða 1
1 \ | ?
Wmsp,'. &suSi. lifl
I gærdag var Litlabeltisbrú-
in danska vígð með mikilli
viðhöfn. Er þetta stórkostleg-
asta brúarmannvirki, sem enn
hefir verið byggt í Evrópu og
hafa danskir verkfræðingar
séð um byggingu brúarinnar.
Brúin liggur yfir Litlabelti
og tengir saman Fjón og Jót-
land í Danmörku.
Litlabeltisbrúin er alls
1177,80 metrar á lengd. Fyrstu
stöplar brúarinnar eru 137,5
m. frá landi, en frá þeim eru
165 m. að miðstöplunum tveim-
ur. Milli miðstöplanna eru 220
metrar. Brúarstöplarnir rísa
32 m. úr sjó, en ná allt að því
40 m. undir yfirborð sjávar.
Frá grunni er brúin því ámóta
há og Ráðhús Kaupmanna-
hafnar. Þungi sá, sem hvílir á
I stöplunum er 13 þús. tonn og
er brúin þannig helmingi
J^yngri en hin fræga Brooklyn-
brú í New York.
Litlabeltisbrúin verður jöfn-
v.m höndum notuð fyrir umferð
járnbrautalesta, bifreiða og
gangandi manna.
Samkvæmt bréfi frá frétta-
ritara Nýja dagblaðsins og
fregnum í gærkvöldi.
Laval í Rússlandi
Flugufregnir um hernaðarbaitdalag
m lli Frakka og Rússa
London kl. 16, 14/5. F.Ú.
Laval átti nokkra viðræðu
við Stalin í morgun, og síðar
við nokkra aðra æðstu embætt-
ismenn Sovét-stjórnarinnar. í
gærkveldi var honum haldin
mikil veizla. Litvinoff sagði í
skálaræðu, sem1 hann hélt fyrir
heiðui'sgestinum, að sáttmál-
inn milli Frakklands og Rúss-
iands nyti óskiftrar samúðar
og trausts allrar rússnesku
þjóðarinnar og allra þeirra
manna, hvar sem væri, sem
vildu frið í stað ófriðar.
1 fylgd með Laval til Varsjá
og Moskva, eru þau skrif-
stofustjóri kennslumálaráðu-
neytisins Alex Legére, einka-
ritari hans Rochat og dóttir
hans José Laval. Samkvæmt
áður útgefinni áætlun uni
ferðalagið, verður Laval og
föruneyti hans haldin veizla í
sendisveitarhöllinni í Moskva
að kvöldi þess 14. maí, en mið-
vikudaginn 15. maí er ráðgert
að hann haldi af stað heirn-
leiðis.
Ýmsar flugufregnir gengu
um erindi Lavals um' það leyti
sem hann var að leggja af
stað, meðal annars, að samið
mundi verða um 4 miljarða
franka lán handa Rússlandi.
Það fylgdi fregninni, að láninu
skyldi verja til þess að koma
lagi á rússneskar járnbrautir.
Ennfremur gengu ýmsar
íregnir um það, að svo fremi
að hinn nýi samningur milii
Rússlands og Frakklands væri
á nokkurn hátt víðtækari, en
samningar þeir er fyrir voru,
þá hlyti það að vera af því að
jafnframf hefði verið samið
um hei-naðarbandalag.
Þessu hefir hvorutveggju
verið opinberlega neitað af
hlutaðeigandi frönskum yfir-
voldum.
Vertíðin
1 Vestmaunaeyjum
Vetrarvertíðinni í Vestm-
eyjum lauk almennt síðastl.
laugardag. Alls stunduðu þar
veiðar 84 vélbátar og 8 trillu-
bátar. Afli var samtals 45 þús.
skippund, miðað við fullverk-
nðan fisk, auk 740 smál., er
sendar voru ísaðar til útlanda.
Lifrarafli varð 1.612.704 kg.,
sem unnið var úr 4178 föt af
lýsi, eða 835.6 smál.
Þrír aflahæstu bátarnir
voru:
1. Frigg, 21 smál., skipstjóri
Sigurður Bjarnason, með 129
þús. þorska í 65 róðrum, há-
setahlutur kr. 1712.94.
2. Leó, 38 smál., skipstjóri
Þorvaldur Guðjónsson, afli 123.
500 þorskar í 57 róðrum, há-
setahlutur kr. 1511.00.
3. Hilmir, 38 smál., skip-
stjóri Haraldur Einarsson, afli
115 þús. þorskar í 58 róðrum,
hásetahlutur kr. 1522.58.
Vidauki vid eldri reglugerð um sölu og meðterð
mjólkur var gefínn út í gær
1 umræðum, sem fóru fram
um mjólkurmálið á Alþingi í
vetur, lýsti landbúnaðarráð-
herra því yfir, að hann teldi
sölu ógerilsneyddrar mjólkur ,
lieimila samkvæmt mjólkurlög- I
um og myndi hann vinna að
því, sökum ítrekaðra óska
margra neytenda, að hægt yrði
að fá holla, ógerilsneydda
mjólk hér í bænum.
Álit sérfróðra manna, m. a.
lækna á þessu máli, er þó vit-
anlega það, að gerilsneydd
mjólk sé langtum öruggari frá
heilbrigðislegu sjónarmiði og
sýkingarhætta geti jafnan
stafað af ógerilsneyddri mjólk,
jafnvel þó hún sé undir
ströngu heilbrigðiseftirliti. —
Kemur þetta m. a. mjög skýrt *
fram í bréfi, sem Vilmundur"
Jónsson landlæknir hefir skrif-
að Mjólkursölunefnd, en hún
hafði óskað eftir áliti hans.
En þar sem allmargir mjólk-
urkaupendur hafa ekki viljað
taka álit þessara manna til
greina og eindregið óskað eft-
ir ógerilsneyddri mjólk, hefir
verið talið rétt, að gefa
þeim1 kost á þeirri vöru, sem
þeir óska eftir, enda verður
hún hér eftir undir strangara
heilbrigðiseftirliti en áður hef-
ir verið.
Fól landbúnaðarráðherra
Mj ólkursölunefnd fyrir nokkru
að undirbúa þær breytingar,
sem gera þyrfti, til að hrinda
þessu í framkvæmd. Samþ.
Mjólkursölunefnd á fundi í
fyrrakvöld, að leggja til að
gefinn yrði út viðauki við eldri
reglugerð. Bárust ráðh. til-
lögur nefndarinnar í gær og
brá hann strax við og gaf út
samhljóða tillögum nefndar-
innar eftirfarandi reglugfrð
um viðauka við reglugerð frá
, 15. marz 1935 um framleiðsiu,
I meðferð og sölu mjólkur og
rjóma:
Aftan við „Ákvæði um
stundarsakir“ komi ný máls-
grein svohljóðandi:
-Meðan ekki er kostur á nægj-
legri mjólk, sem framleidd er
samkvæmt ákvæðum VII. kafla
þessarar reglugerðar, til þess
að seljast ógerilsneydd, skal
Mjólkursamsölunni í Reykja-
\ík heimilt að selja ógeri!-
sneydda þá mjólk, sem fram-
leidd er samkvæmt ákvæðum
VI. kafla, enda sé til þess
• ■ valin 1. flokks mjólk frá semj
fæstum mjólkurframleiðendum
i Reykjavík og grennd, er að
dómi héraðslæknis og dýra-
læknis komast næst því að
íullnægja ákvæðum VII. kafla
við framleiðslu mjólkurinnar.
Siík mjólk skal síuð gegnum
þrýstisíu, fyllt á flöskur og
merkt ógerilsneydd mjólk B.
Reglugerð þessi er hérmeð
sett samkvæmt lögum nr. 1, 7.
janúar 1935 til þess að öðlast
gildi þegar í stað og birtist til
eftirbreytni öllum þeim, sem
hlut eiga að máli.
Atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytið, 14. maí 1935.
Hermann Jónasson.
/Vigfús Einarsson.
Verður heimild sú, sem gef-
in er í þessari reglugerð, þeg-
ar hagnýtt, og kemur ógenl-
sneydda mjólkin á markaðinn
innan fárra daga.
Bilieilsrslys
Um kl. 3 í fyrrinótt ók
vörubifreiðin RE 395 út af
veginum rétt fyrir ofan Árbæ.
Var hraðinn mjög mikill á bif-
reiðinni og valt hún margar
veltur, stýrishúsið mölbrotnaði
og einnig skemmdist hún mik-
ið að öðru leyti.
í bifreiðinni voru tveir
menn, bifreiðarstjórinn, Karl
P. Símonarson frá Vatnskoti
og eigandi bifreiðarinnar, Sig-
urður Jónsson frá Laug. Sig-
urður meiddist töluvert á höfði
og höndum, en bifreiðarstjór-
inn slapp ómeiddur. Liggur
Sigurður á Landsspítalanum.
Italskar hersveitir
kvaddar til vopna
London kL 16, 14/5. F.Ú.
Enn er verið að kveðja ít-
alskar hersveitir til vopna.
Fjölda manna úr árgöngunum
1910 og 1912 hefir verið gert
aðvart um að vera viðbúnir að
grípa til vopna hvenær sem er.
Opinberlega er það þó tilkynnt
að ekki sé ætlunin að bjóða út
öllúm þessum árgöngum í
heild, en aðeins nokkrúm sér-
fræðingum.