Nýja dagblaðið - 28.05.1935, Page 3
N Ý J A
D A G BLAÐIÐ
8
„Vertn með íhaldinn"
er vigord „bændaflokksinsu
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „BlaBaútgáfan h.f.“
Ritstjórar:
Gísli Guðmundsson,
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ritstjómarskrifstofumar
Laugv. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Sími 2323.
Áskriftnrgjald kr. 2,00 á mán.
f lausasölu 10 aura eint
I ‘rentsmiðjan Acta.
Illl^^—lll■I^HI>lll II IIIIIIIII I IIIIIIIIIII I il I
Smámennin
í fjðluvarpannm
Burt úr lilaði Rógur reið
Rangsleitnin og Illgirnin
Lýgi og Þvaður skelltu’ á skeið
Skárri er það nú fytkingin!
Svo kvað nú Páll Ólafsson
einu sinni um' ferðalag- þessara
hjúa um sveitina. Páll hefir
sennilega verið ókvæðaskáld og
gert þessi hjú sveitræk. Þá
munu þau hafa lifað á snöpum
langa hríð, unz farið var að
gefa moðið á Morgunblaðsgarð-
ann. Þar hefir þetta fólk síðan
dvalið, þrifizt og bústnað og
jafnaðarlega verið úmsvifamik-
ið.> Tíðræddast hefir því orðið
um Jónas Jónsson og miklu
afkastamest, þegar hann hefir
farið úr landi, ihvort heldur sem
fulltrúi flokks síns eða þjóðar
sinnar, eða þá aðeins sem ein-
staklingur. Uni þessi afköst
kemst Laxness, sem jafn-
vel Mbl. þorir ekki að neita um
stílsnilld, svo að orði, að það
séu „ólistrænustu ritsmiðar á
Islandi“.
Undanfama daga hefir þessi
lýður Morgunblaðsins brugðið á
fjörugan leik, eins og jafnan
er J. J. fer utan, og kálfast
nú um Morgunbl.-túnið. Hann
vinnur það jafnvel til, að veita
Jóni Þórðarsyni prentara, sem
það þó sjálfsagt ekki elskar,
öndvegissess meðal íslenzkra
rithöfunda, með því að þakka
honum öll ritstörf Jónasar
Jónssonar, af því að Jónas
Jónsson m. a. nýlega vottaði
honum opinberlega viðurkenn-
ingu sína fyrir langt og gott
samstarf. Af því að Jónas
Jónsson sagði þar frá því sem
allir rithöfundar vita, að þeir
eiga mikið undir glöggum og
góðum prentara, þá ætlar þetta
sómafólk Mbl. nú að reyna
að taka af Jónasi Jónssyni það
réttmæta lof, er Laxness segir
um hann, sem ritsnilling, er
hann, meðal annarra lofsorða,
segir: „Honum er jafn lagið
viðkvæmni og háð, góðlátleg
kýmni og naprasta ádeila.
Og hann hefir vald á því
upprunalega í íslenzku tungu-
taki, betra en flestir þeir
höfundar samtímis honum1,
sem annars leggja stund á
fagrar bókmenntir".
Hún fer nú satt að segja
því broslegar, þessi tilraun í
blaði fjóluræktunarfélagsins,
sem hún er oftar endurtekin.
Hún er enn innihald eins
sunnudagsguðspjallsins hjá
þeim.
Framh. af 2. síðu.
Þingmennslcan.
Ég kem þá að því, hvort mér
beri að segja af mér þing-
mennsku. Ég get verið fáorður
um það. Ég myndi undir eins
hafa lagt niður þingm'ennsku,
ef ég hefði brotið skyldur mín-
ar við „Bændaflokkinn". Það
væri siðferðilég skylda. En ég
lít svo á að ég sé sami
„bændafl.maðurinn“ og áður
og hafi engar skyldúr brotið.
Og sé litið til yfirlýsinga minna
og formanns „Bændaflokksins“
hér í sýslu fyrir kosningarnar,
þá i'innst mér, að það sé ég,
sem á að vera kærandinn, en
það séu hinir, sem hafi brotið
af sér og rekið erindi íhaldsins.
Mér fyndist það vera
skyldubrot við kjósendur mína,
ef ég legði niður þingmennsku
og ég segi þvx að lokurn: Þú
verður að þreyja og þrauka,
Moggi minn, því enn líða nokk-
ur ár þangað til þú getur sagt:
Góða nótt, Mangi (Dynjandi
lófaklapp).
Hinir skuldugu þjónar.
Eftir x-æðu Magnúsar var
tímanum skift milli flokka, en
þó fékk „Bændaflokkurinn“
alltaf lengstan tíma. Talaði
fyrst Jón í Dal og svo Eysteinn
Jónsson fjármálaráðherra.
Eysteinn rakti fyrst sögu
„Bændaflokksins", stofnendur
hans hefðu sagt sig úr Fram-
sóknarflokknum með þeim for-
sendum, að flokkurinn gerði þá
kröfu til þingmanna sinna, að
brjóta ekki stefnuskrá flokks-
ins. „Bændaflokkurinn“ hefði
talið það sitt helzta og feg-
ursta boðorð, að þingmaður-
inn væri engu öðru háður en
sannfæringu sinni.
En svo komu kosningarnar.
íhaldið ‘hjálpaði Hannesi á
Hvammstanga á þing og
lengdi líf „Bændaflokksins“
iiokkra stund. En á þann hátt
urðú „bændaflokksmennimir“
hinir skuldugu þjónar.
En heimskan ríður ekki við
einteyming. Því að um leið og
menn hlæja að tilhugsuninní
uni1 samanburð á ritlist J. J. og
Mbl., þá kemur því gleggra í
ljós, sem eigendur þess halda
lengur áfram, hin sjúka lítil-
magnakennd þeirra. Mikilhæf-
ur maður er aldrei hræddur við
að viðurkenna og þakka opin-
berlega hverja gagnlega bend-
ingu, er hann fær, en smá-
mennin lítilfjörlegu eru alltaf
á steikjandi glóðum um að það
kunni að vitnast, að einhver
hafi rétt þeim hjálparhönd.
Þess vegna viðurkenna þau
aldrei opinberlega þá hjálp
sem þeim er veitt, og þess
vegna neita þau oftast í
heimsku sinni þeirri aðstoð,
sem einmitt þeim væri öllum.
hlutum naúðsynlegri.
Og þess vegna er fjólugróð-
urinn allt af jafn blómlegur í
Morgunblaðsvarpanum.
Skuldarinnar krafið.
íhaldið náði strax tangar-
haldi á Briem og Hannesi. En
Magnús Torfason lét sig ekki.
Þá var það, sem Ólafur Thors
krafði skuldarinnar. 1 nýjárs-
boðskapnum lagði Ólafur fram
skuldakröfuna. — Annaðhvort
varð að „handjárna" Magnús
Torfason eða reka hann úr
flokknum.
Hinir skuldugu þjónar
hlýddu, sti-ykuðu yfir öll hin
stóru orð og yfirlýsingar. Það
var eltki lengur brottfararsök,
að gera flokkssamþykkt. Það
var ekki framar stjórnarskrár-
brot að beita „handjái*num“.
Það var skuldakrafa, sem skil-
yrðislaust varð að hlýða.
Fyrir Framsóknarflokkinn'
væri það sönn ánægja, að sjá
„Bændaflokkinn" ganga þann-
ig á bak allra sinna gífuryrða
og sanna þann málflutning
Framsóknai-manna, að til burt-
fararinnar úr Framsóknar-
flokknum lágu raunverulega
allt aðrar ástæður.
Ræðu Eysteins var fagnað
með dynjandi lófaklappi og
fékk enginn ræðumanna jafn
góðar undirtektir og hann.
Svafar sleppir sér og
fær tilsögn í fundar-
sköpum.
Fyrir „Bændaflokkinn“ töl-
uðu auk Jóns, Þorvaldur í Arn-
arbæli og Svafar Guðmundsson.
Þorvaldur talaði skikkanlega.
Hélt hann því fram, að mjólk-
urverðið í Reykjavík ætti að
lækka niður í 35 aura, en rétt
áður hélt Jón í Dal langa
skammaræðu út af því, að
mjólkin hafði verið lækkuð úm
2 aura!
Svafar Guðmundsson sagði
fátt af viti, enda var hann
reiður mjög. Þegar hann
hélt seinni ræðuna, ætluðu þeir
að skipta með sér tímanum,
Þorvaldur og hann. En Svafar
talaði allan sinn tíma, allan
tíma Þorvaldar líka og góða
stund til viðbótar. Hafði hann
áminningar fundarstjóra að
engu. Var þá Magnúsi Torfa-
syni gefið orðið, en Svafar
hélt áfram. Tóku þá fundar-
menn ráðin og klöppuðu hann
niður. Hætti þá Svafar, en
Jón í Dal tók hann undir hend-
ina og leiddi hann afsíðis. —
Verður Svafari þessi tilsögn í
fundarsköpum vonandi lengi
minnisstæð.
Fóru „Bændaflokksmenn"
mjög halloka í umræðunum,
enda stóðu efni þar til.
Fyrir íhaldið talaði Sigurð-
ur Kristjánsson og einhver
Gunnar, semt var fullur og
gátu fundarmenn illa greint á
milli, hvor var meiri strákur.
Þó sagðist Sigurði vel í ræðú-
lokin. Hann sagðist ekki vilja
þreyta menn lengúr og skyldi
hann því hætta!
Fundinum lauk á tíunda tím-
anum.
ftllt með islenskmn gkipum! »jfll
Ráöningarstofa Reykjavikurbæjar
Lsakjartorgi 1 (1. lofti)
Karlmannadeildm opin kl. 10—12 og 1—2.
Kvennadeildin opin kl. 2—5 e. h.
Simi 4966.
Atvinnurekendur! Munið að þér sparið yður tíma og .pen-
inga með því að láta ráðningarstofuna aðstoða yður við
ráðninguna. Þér skapið einnig hinum atvinnulausu hagræði
með því. Úrvals karlmenn og kvenmenn eru jafnan á tak-
teinum til þeirrar vinnu er þér þurfið að láta leysaaf hendi
í rekstri yðar eða við heimilið. Hringið, sendið eða komið á
ráðningarstofuna í hvert sinn, sem yður vantar fólk um
skemmri eða lengri tíma í virmu. öll aðstoð við ráðningu
er veitt án nokkurs endurgjalds.
Ráðningarstofa Reykjavíkurbsjar
Lækjartorg' 1 (1. lotti) — Simi 4966.
Borgarfíardar I
og Borg-arness I
fastar ferðir alla miðvikudaga og laugardaga
Til Reykjavíkur alla þriðjudaga og föstudaga
Afgreiðsla í Reykjavík:
Nýju Bifreiðastöðinni, Kolasundi. — Slmi 1216
Finnbogi Guðlaugsson, Bo^arnesi
oiml 18.
Skemmfiferð
til Akraness fyrir Reykvíkinga
öllum bæjarbúum gefst kostur á meðan skiprúm
leyfir, að fara skemmtiferð með K. R. fimmtudaginn 30.
þ, m. (Uppstigningardag). Lagt verður af stað með e.s.
Súðinni kl. 9 árd. frá Hafnarbakkanum Lúðraav.eit.
Reykjavíkur spilar á leiðinni, Dagskrá á Akranesi er
þessi: Kl. 1—2 Lúðrasveitin leikur valin lög. Kl. 2
fimleikasýning. Kl. 3 knattspyrnukeppni. Kl. 4 sund.
Kl. 41/,—8 dans. Lagt á stað heimleiðis kl. 8V« stund-
víslega. Aðgöngumiðar kosta kr. 4 fyrir fullorðna og
kr. 2,50 fyrir börn að fermingaraldri. Verða þeir seldir
í dag og á morgun í verzlun Haraldar Árnasonar.
hjá Guðm. Ólafssyni Vesturgötu 24 og 1 verzl. Drífandi
Laugavegi. Er vissara að tryggja sér þá í tírna.
Dynjandi Musik, dans á staðnum og báðar leiðir.
,Fallegasti badstadur Norðurlandah Komið öll meö
Virðingarfyllst
Stjórn Knattspyrnufélags Beykjavikur.
Kottueitrun.
Kvörtunum um rottugang í húsum er veitt móttaka
á skrifstofu minni við Vegamótastíg 4 alla yirka .daga
frá 28. maí til 5. júní kl. 10—12 og 2—7. Sími 3210-.
Munið að kvarta á tilsettum tíma.
Heilbrlgðisfulltrúinn.