Nýja dagblaðið - 30.08.1935, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 30.08.1935, Blaðsíða 2
2 NÝJA DAGBLAÐIÐ braud Carborundum Brand Nia- gara Grinders hafa alla þá kosti og gæði til að bera, sem aðeins fást m'eð margra ára tilraunum og reynslu. Hver brýnsluvél er útbúin með hinum heimsfrægu, hreinu Car- borundum smergelskífum. Notið eingöngu Carbo- rundum brýnslutæki! FEDERATION OF ICELAND CO OPERATIVE SOCIETIES EN6LISE for ICELAND: The Book That Helpa by telling you what to look for in the Dictionary. Kr. 5,00. FOET7 8T0BIES: The Book That Gives you Practice from Easy to More Difficult Eitglish, Kr. 3,00. Both by HOWABD LITTLE. — Kept in all Bookshops. — fastar ferðir alla miðvikudaga og laugardaga Til Reykjavíkur alla þriðjudaga og föatudaga Afgreiðsla í Reykjavík: Nýju Bifreiðastöðinni, Kolasundi. — Sfmi 1216 Finnbogi Guðiaugsson, Borgarnesi simi io. Að marg gefnu tilefni, tilkynnist hér með, að mér með leyfisbréfi frá dóms- og klrkju- málaráðuneytinu, dagsettu 26. ágúst 1919, var veitt leyfi til að taka upp ættarnafnið Leyí, samkv. 10. gr. í lögum nr, 41, 10. nóv. 1913, um mannanöfn. Er því öllum og sérhverjum utan mins ætt- leggs óheimilt að nota það, hvort heldur er sem ættarnafn eða í sambandi við fyrirtæki hverrar tegundar sem er. Mun ég neyta réttar míns ef út af er brugðið. Reykjavík, 28. ágúst 1935. R. P. Iievi. A tveim dögum: Alla þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga A einum degi: (hraðferðir) um Borgaraes á þriðjudögum og ftístudögum. Frá Akureyri áframhaldandi ferðir til Austfjarða. Afgreiðsla í Reykjavík Bifreiðastöð íslands. Sími 1540. Bifreiðastöð Akureyrar. Kveðjusamsæti í Þingeyjarsýslu Sigurður S. Bjarklind lét af framkv.stj.starfi við Kaupfé- lag Þingeyinga og- fluttist ti.l Réykjavíkur 18. þ. m., til þess að gjörast gjaldkeri Búnaðar- banka íslands. Suður-Þingeying-ar héldu honum og fjölskyldu hans tvö kveðjusamsæti. Hið fyrra var að Laugum sunnudaginn 11. ágúst og mættu þar yfir 300 manna. Stýrði formaður Kaup- félags Þingeyinga, Sigurður Jónsson á Ai’narvatni, samsæt- inu og- flutti mjög tilkomumik- ið kvæði til frú Unnar Bjark- lind (skáldkonunnar Huldu). Aðalræður fluttu: Sigfús Björnsson í Múla fyrir minni Sigurðar S. Bjarklind, Karl Kristjánsson frá Eyvík fyrir minni barna Sigurðar S. Bjark- lind, Jón Gauti Pétursson, Gautlöndum, fyrir minni Bene- dikts Jónssonar frá Auðnum, tengdaföður Sigurðar S. Bjark- lind, Konráð Erlendsson kenn- ari á Laugum fyrir minni Guð- nýjar Halldórsdóttur, konu Benedikts frá Auðnum, Bene- dikt Björnsson skólastjóri í Ilúsavík fyrir minni Sigríðar Jónsdóttur, móður Sigurðar S. Bjarklind. Auk þessara manna töluðu: séra Friðrik Á. Friðrikssou, Húsavík, Steingrímur Bald- vinsson bóndi í Nesi, Baldvin Baldvinsson oddviti á Ófeigs- stöðum, Hallgrímur Þorbergs- son bóndi á Halldórsstöðum, Ketill Indriðason oddviti, Ytra- fjalli, Júlíus Havsteen sýslu- maður, Hildur Baldvinsdóttir húsfrú í Klömbrum, Bergþóra Magnúsdóttir húsfrú á Hall- dórsstöðum. Kvæði fluttu: Sigríður Stef- ánsdóttir húsfrú, Hveravöllum og Jón Haraldsson bóndi á Einarsstöðum. Einnig voru flutt kvæði frá Indriða Þor- kelssyni á Fjalli og Þórði JónSr syni í Brekknakoti, sem eigi gátu mætt sjálfir. Síðara samsætið fór fram í Húsavík 17. ágúst og mætti j?ar á annað hundrað manns. Samsætinu stýrði oddviti Húsavíkurhrepps, Benedikt Björnsson skólastjóri og mælti fyrir minni Sigurðar S. Bjark- lind. Séra Friðrik Á. Friðriks- son mæti fyrir minni frú Unn- ar Bjarklind, bæði sem hús- moður og skáldkonu. Júlíus Havsteen sýslumaður ávarpaði Bjarklindshjónin fyrir hönd héraðsins. Birgir Steingríms- son, aðalbókari K. Þ., ávarpaði Sigurð S. Bjarklind fyrir hönd starfsmanna K. Þ. Jóhann Havsteen stud. jur. mælti fyrir minni Jóns og Benedikts, sona Sigurðar S. Bjarklind. Bene- dikt Björnsson skólaistjóri mælti fyrir minni ungfrú Sig- ríðar Bjarklind. Karl Krist- jánsson frá Eyvík mælti fyrir minni Benedikts frá Auðnum1 og konu hans. Auk þess fluttu ræður: Bene- dikt S. Snædal bóndi, Húsavík, Björn Jósefsson læknir, Karl Kristjánsson núverandi fram- kvæmdastjóri K. Þ., Hjálmar Theodórsson verkamaður, Árni Jónsson fonnaður Verka- n annafélags Húsavíkur og ung- frú María. Vilhjálmsdóttir. í báðum samsætunum talaðí Sigurður S. Bjarklind fyrir hönd heiðursgestanna. Sigurður S. Bjarklind og frú Unnur Benediktsdóttir skáld- kona hafa að líkindum verið ástsælust allra núlifandi hjóna í Suður-Þingeyjarsýslu, enda hafa Suður-Þingeyingar kvatt þau með meixi viðhöfn en venjulegt er þar um slóðir, þó að ménn flytji úr héraðinu. Mundu þó samsætin hafa vexið enn fjölmennari, ef eigi hefði verið um háannatíma, þegar sumir einyrkjar og sjómenn geta alls ekki frá stöirfum' vik- ið, — og einnig ef kíkfóstafax- aldur hefði eigi hamlað ýmsum. Hlýrri kveðjur, en kveðjur Suður-Þingeyinga til Sigurðar S. Bjarklind og fjölsnyldu hans, munu fágætar. Þingeyingur. skilrindurnar eru ætíO þ»r beztu og sterkustu, sem fáanlegar eru Nýj- asta gerðin er með algerlega sjálfvirkri smurningu, og skálar og skilkarl úr ryðfríu efni. Samband i»l. ■amvinnuiélaga. Sttluskatturinn nýi og útgei’ðarmenn í Ála- sundi. FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS. Fyrir nokkru sendi félag út- gerðarmanna í Álasundi norslva dómsmálaráðuneytinu kröfu um það, að söluskattur- inn nýi yrði ekki látinn ná til þeiri’a skipa, sem stunda veið- ar við ísland. Dómmálai’áðuneytið hefir sent útgerðarmönnunum svar þess efnis, að ekki verði gerð- ax neinar tilslakanir urn þau skip, sem stundi veiðar við Is- land. Samkvæmt fregnum fi'á Ála- sundi, ei’U sjómenn og útg-ei’ð- ai’menn mjög óánægðir með svarið og virðist það vera m'j ög ósanngjarnt. Hefir félag útgerðarmanna í hyggju að höfða mál á hendur dóm's- málai’áðuneytinu og fá úr því skorið með dómi, hvort þessi ráðstöfun sé réttm'æt. Eitt vafaatriði, sem rnenn gera sér vonir um að dómui’- inn gefi úrskui’ð um, er það, livort beri að greiða söluskatt á þeirn tunnum, sem fluttar séu á skipi, sem fyi’st fæx’i með fiutning til ei’lendrar hafnar og síðan á fiskveiðar við ísland. Oft er flagð undir fðgru skinni Margir eiginménn, sem eiga fagrar konur, hafa, rekið sig á það, að fegurð og gott hjarta fylgjast ekki ætíg að. Hitt er líka staðreynd, að fagrar kon- ur eru ekki ósjaldan svakalega óvinveittar meðsystrum sínum, sem líka eru fagrar. Hefir á þessu fengizt góð sönnun, þegar átti að velja þessa árs fegurðardrottningu Egypta- lands. Um1 það bil sem valið skyldi hefjast, lenti tveimur keppinautunum saman í ákaft handalögmál. Fóru þannig, að önnur stúlkan missti annað augað, en hin fékk djúpar rispur, eftir hvassar neglur, um allt andlitið. Þær höfðu sagt hvor annarri að hin skyldi ekki verða kjörin fegurðardrottning Egyptalands 1935, og báðar höfðu þær á réttu að standa! Ingólfnr Jónsson cand. juris, fyrv. bæjarstjórí. Allskonar lögfræðisstörf, mál- færsla, innheimta, samninga- gerðir, kaup og sala fasteigna. Bankastræti 7 (næstu hæð yfir Hljóðf»ráh.) Sími 3656. Viðtalstími kl. 5—7 síðdegis. H.F. LAKKRÍSGERÐ REYKJAVÍKUR. Sími 2870.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.