Nýja dagblaðið - 10.12.1935, Side 2

Nýja dagblaðið - 10.12.1935, Side 2
2 N t J A DAGBLAÐIÐ Notið eingðngn SVEA eldspýtnr Fást i öllnm verzlnnnm Hólsfjalia hangikjöt tökum við úr reyk daglega nú og framvegi*. Þetta verður langbezta jólakjötið og ómissandi á hverju heimili. — Munið að biðja kaupmann yðar um Hólslfalla hangikjöt Samband ísl. Simi 1080. Smjör og Ostar irá Mjölkursaml&ginu & Akureyri alltaf fyrirliggjandi í heildsölu hjá Sambandi isl. sam vínnuféla ga Simi1080 OSRAM Dekalumen (DLm.) Ijóskúlur eru 20% ljóssterkari en eldri gerdir. A háls hverr&r ljóskúlu er letraö 1 j ó s- magnlð (DLm.) oy rafstraums- notkunln (Watt). Andri litli Nýjasta baruabókin er hin ljóm- andi fallega saga um Andra litla á vetrar- ferðalagi tilLapplands ísak Jónsson hefir þýtt bókina, sem er eftir hinn ágæta sænska skólamann L. Gr. Sjöholm. Skemmtikvöld Framsóknarmanna í Oddfellow-höllinni fimmtudaginn 12. þ. m. kl. 8,30 stundvíslega, Framsóknar-whist, söng- ur, stuttar ræður og dans. Aðgöngumiðar á afgreiðslu Nýja Dagblaðsins kosta kr. 2,00 með kaffi. — Tapið ekki af verðlaununum. Þeir sem ekki eru komnir kl. 8,45, geta ekki tekið þátt í whistinni. Ný fagasetning í Noregi um sðls sjávarútvegsaforða Frá loðskinnanppboð* inú í Svíþjóð Blaðið hefir fengið eftirfar- andi upplýsingar af loðskinna- uppboðinu í Oslo. Kaupendur frá Englandi, Frakklandi, Þýzkalandi, Tékkó- slóvakíu, Hóllandi og Dan- mörku komu á uppboðiö auk norskra kaupanda. Verð á silfurrefaskinnum var sem hér segir: i/\ silfur- refir voru seldir á 175 kr., V4 á 165 kr., i/2 á 159 kr., % silfurrefir á 120 kr. og lakari tegundir silfurrefaskinna fyrir 104 kr. FRÁ FRÉTTARITARA NVJA DAGBLAÐSINS. Oslo í nóv. I Noregi er verið að undir- búa nýja löggjöf um fisksölu og síldar. Ríkisstjórnin hefir skipað nefnd manna til að semja lög um fisksöluna og er álit meirihlutans á þessa leið: 1) Að sett séu lög, sem ná til allra fiskimanna, sem taka þátt í hinum umfangsmiklu aðalvertíðum, og þessi skipu- lagning komi til framkvæmda, þegar talið er að nauðsyn beri til vegna fisksölu þjóðarinnar og til að halda verðinu í jafn- vægi. 2) Sett verði á stofn sölu- miðstöð, undir eftirliti ríkisins, sem hafi með höndum sölu á öllum lifandi þorski í Osló. Ennfremur verði að fá sérstök leyfi til sölu á nýjum útlend- um fiski. Minnihluti nefndarinnar er andstæður fyrri liðnum og álítur að ekki beri að láta slík líjg koma til framkvæmda nema áður sé leitað álits fiskimanna með atkvæðagreiðslu. Enn- fremur heldur minnihlutinn því fram að erfiðleikar norska sjávarútvegsins stafi af því, jafnframt kreppunni, að vold- ugustu keppinautar Norðmanna i fiskmarkaðinum hafi aukið og endurbætt veiðiskip sín og veiðiaðferðir. Þetta hafi gert Norðmönnum örðugra um sam- keppni. Búizt er við, að tillögur meiri hluta nefndarinnar nái fram að ganga í þinginu. Jafnframt þessu hefir norska ríkisstjórnin lagt fyrir þingið frumvarp til laga um útflutn- ing vetrarsíldar. Gert er ráð fyrir að lög þessi verði í gildi til 1. janúar 1943, og fara hér á eftir nokkrir liðir frumvarpsins: 1) Stofna skal síldarsamsölu og verður formaður sölustjórn- ar að hafa verzlunarþekkingu og skal verzlunarráðuneytið samþykkja val hans. 2) Sölukerfi þetta skal, ef það vill taka þátt í útflutningn- um, mynda sérstaka útflutn- ingsdeild undir sérstakri stjórn og aðgreindu reikningshaldi. 3) Verzlunarráðuneytið hefir rétt til að líta eftir rekstri sam- sölunnar. 4) Ekki er hægt að ráðstafa rekstrarhagnaði samsölunnar án samþykkis verzlunarráðu- neytisins. Gert er ráð fyrir að einnig þetta frumvarp nái fram að ganga. Þessar ráðstafanir bera vott um það, að Norðmenn telja mikilsvert að koma skipu- lagi á sölu fiskjar og síldar. Z. Fritz Tarp Þeir sem nokkuð hafa kynnt sér eða fylgzt með knattspyrnu Dana síðustu ár, hafa eflaust rekist á nafnið Fritz Tarp. Hann er meðlimur í B 93 og hefir leikið fyrir í 500 kapp- leikjum í fyrsta flokki. Auk B i ö : Hvfta avaitln Nýja Bíó sýnir nú ágæta mynd, sem heitir „hvíta sveit- in“. Það er í einu skemmtilegt ástaræfintýri og alvarleg lýs- ing af námi og starfi hjúkrun- arkvenna í nútíma sjúkrahús- um. Myndin sýnir inntöku hjúkrunarnema í sjúkrahúsin, hinn stranga aga og hinar miklu kröfur, sem gerðar eru til hjúkrunarliðsins. Jafnframt sýnir hún, hversu starfið göfg- ar þá, sem gera hjúkrun að ein- lægu æfistarfi. Inn í þetta er svo blandað ástamál ungrar hjúkrunarkonu, sem á kost á glæsilegu hjónabandi, og er hrifin af ástmanni sínum, en hafnar þó framtíðarvonum hjú- skapar og heimili og velur erf- iði og áhyggjur hjúkrunar- starfsins. Myndin er vel gerð og vel leikin. Það má segja, að hún sé lofsöngur um hið hljóða fórnfúsa starf í sjúkrahúsum. Stúdentalff Mynd með þessu nafni er nú sýnd á Gamla Bíó. Hefir Pal- ladium í Kaupmannahöfn tek- ið myndina og gert hana þann- ig úr garði, að sýningargest- um mun yfirleitt falla hún vel í geð. Efni hennar er um ung- an kaupmannsson frá friðsæl- um bæ á Jótlandi, sem eftir mikinn aga í heimahúsum er gagnstætt vilja sínum látinn stunda háskólanám. Hann elskar hljómlistina öllu fram- ar. Þegar faðir hans kemst að því, að hann hefir, án vitund- ar foreldra sinna, stofnað heimili með ástmey sinni, og sviptir hann námsstyrk, tekur hann til við hljómlistina og ryður sér braut. Þótt með myndinni sé gerð tilraun til að skilgreina átökin milli hinnar yngri og eldri kynslóðar, skortir á heildarsvip. Eins saknar maður þess hve lítið er sýnt úr baráttu hins unga listamanns, sem helgar sig frumhvöt sinni; áhorfand- inn á örðugt með að trúa sigr- um hans. þess hefir hann tekið þátt í fjölda landsliðskappleikja. Ilann hefir ákaflega mikla lýð- hylli í Danmörku, og er í allri framkomu sannur íþróttamað- ur. Nú er hann 37 ára að aldri og er búinn að vera nær 20 ár í fyrsta flokki. Við það tækifæri birtist í Itrottbladet viðtal við hann, og af því að ég tel að sumt af því eigi erindi til íslenzkra knatt- spyrnumanna birtist það hér. Meðal annars segir Tarp: „Það kemur ekki ósjaldan fyrir, að leikmaður, sem of snemma er settur í 1. fl. þylt- ist eiga þar heima, kunni nógu mikið og vilji þá bara „njóta lífsins“, en ekki leggja að sér áfram. Jafnsjótt og ungi mað- urinn finnur að hann er fastur í liðinu fer hann að slá slöku við „æfingarnar, og hugsar Framh. á 4. alQu.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.