Nýja dagblaðið - 10.12.1935, Síða 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
IDAC
Sólíuupprás ld. 10.10.
Sólarlag kl. 2.30.
Flóð árdegis kl. 5.15.
Flóð síðdegis kl. 5.38.
Veðurspá: Allhvasst að sunnan og
rigning öðru hvoru.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl.
3,00—9,35.
Heimsóknartimi sjúkrahúsa:
I.andsspítalinn ............... 3-4
Kleppur ..................... 1-5
I.amlakotsspítalinn ........... 3-5
Vífilstaðahœlið . iZy2-íj/2 W2-W2
Lauganesspítali ............. 12%-2
F.lliheimilið ................. 1-4
Fæðingarh. Eiríksg. 37 .. 1-3 og 8-9
Sjúkrahús Hvítabandsins........ 2-4
Sjúkrasamlag Reykjavíkur ... 2-5
Nísturvörður í Ingólfs Apóteki og
Laugavegs Apóteki.
Næturlæknir: Gísli Pálsson, GarB-
ur, simi 2474.
Skemmtanir oy samkomur:
Gamla Bíó: Stúdentalíf, kl. 9.
Nýja Bíó: Hvíta fylkingin, kl. 9.
Dayskrá útvarpsins:
Kl. 8,00 Enskukennsla, 8,25Dönsku-
kennsla. 10,00 Veðurfregnir, 12,00
Hádegisútvarp. 13,00 10. dráttur í
happdrætti Háskólans. 15,00 Veður-
fregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20
pingfréttir. 19,40 Auglýsingar. 19,45
Fréttir. 20,15 Erindi: a) Bindindi
og skólar (Daníel Ágústsson kenn-
araskólanemi), b) 1. desemher og
1. febrúar (pórarinn pórarinsson
blaðam.). 20,40 Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur. 21,05 Erindi: Frá
Sviss (porsteinn Jósepsson rithöf.).
21,30 Skýrsla um vinninga í happ-
drætti Háskólans. Danslög.
Rangæingaiélag. í blaðinu á
sunnudag er auglýstur stofnfund-
ur Rangæingafélags fyrir Reykja-
vík, Hafnarfjörð og nágrenni.
Mörg.hundruð Rangæingar eru bú-
settir á þessu svæði. En Rangæ-
ingar eru í þessu sambandi kall-
aðir allir, konur og. karlar, sem
íæddir eru í Rangárveilasýslu eða
hafa dvalið þar svo lengi, að þeir
telji sig' nánar tengda því héraði,
en nokkru öðru utan dvalarhéraðs
síns. Tilgangurinn með stofnun
þessa félags er í fyrsta lagi áð
viðhalda og efla kynningu Ilangæ-
inga á félagssvæðinu og viðhalda
sambandi þeirra við heimahéraðið.
í öðru iagi að varðveita frá
gleymsku sögulegar minjar og
minningar, sem snerta Rangár-
þing. Og í þriðja lagi að styðja
þau mál, sem til hagsbóta eru
fvrir Rangárhérað og íbúa þess.
— Fyrir nokkrum árum var byrj-
að á að halda héraðamót í Reykja-
vík. þetta voru eingöngu skemmti-
samkomur. En hin mikla aðsókn
að þeim sýndi, hve gífurlega
sterk ítök heimahéraðið hefir í
liugum manna. Hún er „römm sú
taug, sem rekka dregur föður-
túna til“. Héraðafélögin eru fram-
hald af héraðamótunum. En hafa
víða verksvið. Sérstaklega munu
þau gera mikíð gagn með því að
varðveita frá gleymsku sögu og
sérvenjur héraðanna. Rangæingar
muna vel hérað sitt. þeir munu
því fjölmenna . á fimmtudags-
lcvöldið kl. 8i/2 í kaupþingssalinn
til að stofna Rangæingafélag.
R. Ó.
Síldarafli. þrír bátar komu hing-
:tð með síld í gær og munu hafa
aflað sæmilega.
m Gamla Bló H
sýnir kl. 9
Stúdentalíf
Fyrirtaks dönsk talmynd
um skemmtanir og raunir
stúdenta.
Aðalhlutverkin leika:
Lis Smed,
Ebbe Rode
og hinn vinsæli gamanleikari
Ib Schönberg,
sem í mynd þessari hefir
eitt af sínum allra beztu
hlutverkum.
Annáll
Skipafréttir. Gullfoss fór frá
Kaupmannahöfn í gær á leið til
Lcith. Goðafoss kom til Hull í gær.
Brúarfoss kom til ísafjarðar í gær.
Dettifoss er i Reykjavík. Lagarfoss
er á leið frá Fáskrúðsfirði til
Leith. Selfoss er á leið til Vest-
mannaeyja frá Leith.
Frá Alþingi. Á lcvöldfundi í gær-
kvöldi, er hófst kl. 9 og stóð fram
yfir miðnætti, voru þessi frv. til
umræðu: Frv. til breytinga á
kreppulánalögunum, afgreitt sem
lög; frv. um nýbýla- og samvinnu-
byggðir, 2. umr. lokið; frv. um
fóð.urtryggingu í sveitum, 1. um-
ræða; og frv. til breytinga á lax-
veiðilögunum.
Myndasýning. þeir sem ganga
um Bankastræti hljóta að taka
eftir myndum sem nú eru í sýn-
ingaglugga verzlunarinnar Jón
Björnsson & Co. þessar myndir
eru allar teknar af áhugamönnum
í ljósmyndagerð, e.n ljósmynda-
stofan í Lækjargötu 6B hefir fram-
kallað. Myndirnar eru alls 32 og
yfirleitt vel teknar. Sumar eru
mjög athyglisverðar eins og t. d.
kalkún og spóahreiður. þar eru
einnig fagrar myndir frá Mývatni,
úr Vatnsdal, ag Hellisheiði í vetr-
arbúningi, Dettifoss o. s. frv.
Bækur Kristmanns Guðmunds-
sonar cru nú til sýnis í skemmu-
glugga Haraldar Árnasonar. Eru
þar sýndar útgáfur af bókum
skáldsins á ýmsum tungumálum
og er verulega smekklega frá
sýningunni gengið.
Andri litli á vetraríerðalagi cr
nafn á bók, sem kom út í gær.
Bókin or þýdd úr sænsku af Isak
Jónssyni. Höfundurinn er L Gott-
fried Sjöholm, hinn víðkunni
kennari við kennaraskólann i
Gautaborg. í fonnála fyrir bókinni
segir liann: „Andri litli á vetrar-
forðalagi hefir það að markmiði
að leggja til lesefni um nokkur
atriði átthagafræðinnar", — —
„Allt efni þessarar bókar og fleira
svipað, hefi ég á undanförnum ár-
um sagt börnunum. Oft hefi ég
þá undrazt yfir því, hve slík við-
fangsefni hrífa þau og hve auð-
velt þeim reynist að tileinka sér
efnið. Ég hefi því haldið að les-
kaflar um svipað efni myndu
vekja . áhuga barna, veita þeim
þekkingu og verða þeim þroska-
meðal eins og allt lesefni á að
vera“. — Bókinni er skipt niður
í 19 kafla, og í henni eru margar
myndir. — Margir munu kannast
við Andra litla frá útvarpskvöld-
inu nýlega.
Norskt flutningaskip, Kóngs-
haug, kom hingað í gær.
Hjúskapur. Síðastl. laugardag
voru gefin saman hjá lögmanni
Guðríður Jónsdóttir og Bogi Jó-
liannésson sútaiá. Hoimili þeirra
er á Leifsgötu 19.
FJttrefnapráfun
matvæla
Innanríkismálaráðherra Dana
hefir lagt fram í danska þing-
inu frumvarp til laga um að
matvæli skuli vera fjörefna-
prófuð af „Statens Vitamin La-
boratorium“ og að það skuli
auglýst hvaða tegund fjörefna
og hvert magn varan inni-
haldi. — FÚ.
Loftárás á Áddis Abeba
Framh. af 1. síflu.
Þá koma fregnir um það, að
Italir hafi í dag kastað sprengj
-um yfir Ankober, sem er borg
um 125 km. norðan við Addis
Abeba. Óttast Abessiníumenn
nú mjög, að næst verði gerð
loftárás á sjálfa höfuðborgina,
og er verið að Ijúka við smíði
70 öryggisskýla, sem eiga að
vera trygg gegn sprengjum.
Þess er getið til, að tilgang-
ur Itala með þessum ítrekuðu
loftárásum síðustu daga sé sá,
að egna Abessiníumenn til á-
rásar. Er þetta almenningsálit-
ið í Abessiníu, en einn aðalfor-
ingi Abessiníumanna á að hafa
sagt í dag: „ítalir mega halda
áfram að kasta yfir okkur
sprengjum í hundrað ár. Þeir
fá okkur aldrei til þess, að ráð-
ast á sig tíl úrslitaorrustu á
þessum slóðum“.
þýzki sendikennarinn, dr. Iwan,
flytur í kvöld fyrirlestur*! háskól-
enum um „Deutsche Gebirge".
Fyirlesturinn hefst kl. 8.05 og er
lokið kl. 8.50.
U. M. F. Velvakandi heldur fé-
lagsfund í Kaupþingssalnum í
kvöld og hefst kl. 9. — Mætið
réttstundis.
Barnaskólinn i Hafnarfirði hefir
fcngið land til skógræktar og gróð-
ursettu nemendur' elztu deildar
þar 600 trjáplöntur í sumar.
Rauðir pennar heitir nýútkomið
safn af sögum, ljóðum og ritgerð-
um eftir innlenda og erlenda höf-
unda. Bókaútgáfan Heimskringla
hefir gefið bók þessa út og er
frágangur mjög smekklegur.
Allur saltíiskafli á landinu er á
þessu ári til 1. des. 49.926 tonn, en
61.564 tonn á sama tíma í fyrra.
Nýr vélbátur kom í gær til Akra-
ness frá Danmörku. Eigandi er
Sturlaugur Haraldsson Böðvars-
sonar. Skipshöfnin voru 3 menn af
Eyrarbakka. Skipstjóri Sigurjón P.
Jónsson. Báturinn hreppti vont
veður í hafi og var 18 sólarhringa
á leiðinni. Báturinn er fallegur og
reyndist ágætlega. Hann er smíð-
aður í Fredrikssund, gjörður úr
eik, 25,23 smálostir að stærð, með
100 hestafla 'June-Munktellvél. —
Skipstjóri verður þórður Sigurðs-
son. Báturinn heitir Ægir. <— FÚ.
Ejnar Munksgaard, bókaútgef-
andi i Kaupmannahöfn hedur á
miðvikudaginn kemur erindi í há-
skólanum í Lundi um íslénzk
fornhandrit og miðaldahandrit.
Sýnir hann skuggamyndir af
handritunum i sambandi við fyrir-
lesturinn. Sænsk ísl. félagið hefir
gongizt fyrir því, að Munksgaard
yrði boðið að halda, þenna fyrir-
lestuF í Lundi. — FÚ.
Gunnar Gunnarsson skáld hélt
fyrirlestur í gær í Wien. Heldur
liann fyrirlestra í austurrískum
borgum næstu daga, og er því-
AlþSngi
NeÖr! deild
Framh. af 1. síðu.
hina nýju tekjustofna í fyrra
og nú, væru tekjur ríkisins í
heild sízt hærri en þær hefðu
verið undanfarin ár. Hér væri
því ekki um það að ræða, að
auka álögin á landsfólkið.
Loks benti hann á þá eftir-
tektarverðu staðreynd,
að svo fr.aniarlega sem í-
haldsmenn vildu afnema 3
milljónir af nýjum tekju-
stofnum frá í fyrra og nú
og þar að auki útflutnings-
gjaldið af sjávarafurðum,
eins og þeir láta í veðri
vaka, þá yrðu þeir að vera
vrið því búnir að gera til-
lögur um allt að fimm
milljóna niðurskurð — ef
jöfnuður ætti að fást á
fjárlögum.
Sézt vel á þessu, hvílík fjar-
stæða allt hjal íhaldsmanna um
fjármálin raunverulega er.
Jakob Möller varð sér til
minnkunar fyrir að vita ekki,
að árið 1936 eru í gildi sér-
stök ákvæði um 10% viðauka
við tekjuskattinn — og byggja
árás á frumvarpið, sem fyrir
lá, á þessari vanþekkingu
sjálfs sín. — Frumvarpinu var
vísað til 2. umr. kl. rúml. 4
síðdegis.
Kl. 5—7 var fundur í sam-
einuðu þingi — um fjárlögin
— og var 2. umræðu eigi lok-
ið, en verður haldið áfram í
dag. Kl. 9 gærkvöldi var fundi
haldið áfram í neðri deild.
—iNYJÆ bíó mmm
Hvíta
fylkingin
(The White Parade).
Amerísk tal- og tónmynd,
er gerist meðal hjúkrunar-
nema á nýtízku sjúkrahúsi
í New York.
Aðalhlutverkin leika:
Lorette Joung og
John Boles.
Aukamynd:
TALMYNDAFRÉTTIR.
og sala
Nýslátrað hestakjöt, nýreykt
hestakjöt, nýsaltað hestakjöt.
Kjötbúðin, Njálsgötu 28.
Sími 3814.
Gefið vinum ykkar í jólagjöf
eigulega muni unna af íslenzk-
um höndum.
Jólabazarinn, Laugaveg 10,
Sími 3761.
Sel kökur. Ólafía Jónsdóttir
(frá Hafnarfirði), Baldursötu
6. Sími 2473.
Fasteignastofan Hafnarstr.
16. Annaat kaup, og sölu faat-
eigna í Reykjavfk og úti uxn
land. Viðtalstíini kl. 11—12 og
6—7 og ó öðruxn tíma eftir
samkomulagi. Sími 8827. Jónas.
Vekjaraklukkur góðar og
ódýrar fást t Kaupfélagi
Iieykjavíkur.
Afengisbruggnn
Framh. af 1. síðu.
þessa dags. Þriggja pela flösku
af brennivíni kvaðst hann hafa
selt fyrir 5—6 krónur gegn
peningum eða vörum.
Þá gerði löggæzlumaður síð-
astliðinn lauga$Iag húsrann-
sókn hjá Þórarni Helga Fjeld-
sted í Raknadal við Patreks-
fjörð. — Þar fundust í fjósi
tveir stampar samtals um 100
lítra, og á eldhúsgólfi einn
stampur 20 lítra — allir fullir
af áfengislegi í gerjun. Einnig
fannst í eldhúsi lítið eitt af
licimabrugguðu áfengi. — Loks
fundust bruggunartækin falin í
búrinu.
Sýnishorn voru tekin og af-
hent Efnarannsóknarstofu rík-
isins til rannsóknar.
Þórarinn meðgekk að hafa
byrjað að brugga í nóv.mánuði
1933 og gert það af og til fram
til þessa dags. — Flöskuna
kvaðst hann hafa selt fyrir
2 krónur til kr. 3,50, hverja,
gegn peningum eða vörum.
Sumt kvaðst hann þó hafa
lánað en aldrei fengið borgað.
Viðkom^ndi sýslumanni verða
sendar skýrslur um málin til
frekari rannsóknar.
Frásögn þessi er útdráttur úr
skýrslu löggæzlumanns. - FÚ.
næst ráðinn J nýja fyrirlestraferð
um þýzkaland. Hann gerir ráð
fyrir að vera kominn heim 22.
desember. — FÚ.
ísland var væntanlegt frá útlönd-
um kl. 7 í morgun.
Heiltunnur, hálftunnur og
kvartel af úrvals spaðkjöti allt-
af fyrirliggjandi. Samband íal.
samvinnufólaga. Sími 1080.
1 „SAMHLJÓMAR“ Músíkvinir! Munið eftirl að eignast nótnasafniðB „SAMHLJÓMAR*
Hárvötn. Hmvötn. — Kaup félag Reykjavíkur.
] fél Sfiflursuðuglöís fást í Kaup- agi Iieykjavílcur.
II Tilkymiiufar
Brynjólfur Þorláksson stillir piano. Eiríksgötu 15. Sími 4633.
Fritz Tarp
Framh. af 2. síðu.
ekki um að ná meiri fullkomn-
un“.
Og þegar Tarp er spurður
hvort ekki sé erfiðara að spila
37 ára en 17 ára, svarar hann:
„Nei, það er hægara. Nú
skilur maður leikinn mikið bet-
ur en þegar maður er ungur.
En ca. 500 kappleikir er góður
skóli fyrir leikmann“. '
Fritz Tarp segist hafa lært
mikið af hinum enska þjálfara,
sem stundum var með B 93,
David Steel (þekktur atvinnu-
leikari), en F. T. segir enn-
fremur, að hann hafi ekki hlot-
ið verðskuldaða virðingu í fé-
laginu og bætir við: „Hinir
ungu spilarar voru of vitrir,
og vissu í mörgum tilfellum
meira en hann, eða það héldu
þeir þá“I