Nýja dagblaðið - 22.12.1935, Síða 1

Nýja dagblaðið - 22.12.1935, Síða 1
Uppreistartilraun Bilstióraverkfallið íhalds og kommúnista Eitir Jónas Jónsson, alþm Um há'U;4 í gær ’ögðu bif- reiðastjórar í Reykjavík niður vinnu, og bvrjuðu að gera of- beldiskennda.* uilraunir til að stöðva flutnmga að og fra bsehum á landi. Þannig hafa verkfallsmenn að sögn skorðað stórar bifreiðar á austurveg- inum og sett varðmenn hjá, með það hlutverk að hindra bíla frá að komast um veg- inn. Þetta tiltæki er mjög ó- venjulegs eðlis. Það er ekki verkfall út af kaupi, kaup- greiðslum eða vinnutíma, held- ur er hér um að ræða uppreist móti lögum landsins og Al- þingi. Því að málavextir eru þeir, að Alþingi hefir löggjafarvald á íslandi. Ef Alþingi gerir lög, sem eru miður heppileg, breyt- ir þjóðin þeim, eftir breyttar kosningar. En þó að einhverir borgarar séu óánægðir með einhverja lagasmíð, og það eru sennilega engin lög, sem allir una vel, þá er ekki nema ein lögleg leið til að breyta þeim, og hún er að breyta þingvilj- anum. Að ætla að breyta lög- legum samþykktum Alþingis með valdboði eða kúgun ein- hvers félags eða stéttar, er uppreist. Og þar sem borgarar temja sér að taka völd á þann hátt, er skammt til þess að slíkar þjóðir tapi bæði fjár- hagslegu og pólitísku frelsi. Ekkert verk er hættulegra fiamtíð íslenzku þjóðarinnar heldur en það sem hér er hafið af mönnum þeim, sem standa að baki bifreiðastjórunum. Málavextir eru þeir, að hér þurfti að auka atvinnu vinn- andi manna og hér þurfti að bæta vegina. Benzínskattur- inn er hér lægri en í nokkru öðru landi, og vegirnir ófull- komnari en í þéttbygðum löndum. Ríkisstjórnin og meiri- hluti Alþingis tóku þá það ráð að hækka benzínskattinn og verja því fé, sem á þann hátt bætist í ríkissjóðinn, eingöngu i nýjar vegagerðir, þar með talin malbikun vega nærri Reykjavík, einmitt þeirra vega, sem bifreiðastjórar hér þurfa mest að nota. Þrátt fyrir hækkun þá, sem Alþingi samþykkti í fyrra- kvöld er benzínskatturinn enn lægri á íslandi en í nokkru öðru landi. : Félag bifreiðastjóranna er | ungt og reynslulítið. Það var | orðin deild í Alþýðusamband- inu og hafði fengið ýmsar rétt- mætar kröfur uppfylltar. — Margir bifreiðastjórar hafa átt erfiða æfi, afar langan og óreglulegan vinnutíma, lítinn og óvissan svefn og oft lítið kaup. - Félaginu hafði tekizt að bæta úr þessu að talsverðu leyti, og hafði til þess velvilj- aðan stuðning allra sann- gjarnra manna. Einhver fyrsta þrekraun fé- lagsins var út af Sogsflutning- unum í vor sem leið. Ihaldið sýndi þá hug sinn til bifreiða- stjóranna. Það studdi útlend- ingana í baráttunni um flutn- ingana, og Mbl. gerði allt, sem það gat til að svívirða bílstjór- ana, afflytja óskir þeirra og kröfur. I það sinn bjargaði rík- isstjórnin máli bílstjóranna með framsýni og sanngirni. Þegar mest reyndi á, höfðu bílstjór- arnir orðið fyrir svikum og ódrengskap af Mbl. og þess nánustu, en velvild og skilningi hjá ríkisstjóminni. Atvinna og vegamálaaðgerð- ir ríkisstjómarinnar voru meiri velgerð við bílstjóra í Reykjavík en nokkuð annað sem unnt var að gera fyrir þá eins og nú stóð á. Að auka vegina og bæta þá, var engum meiri hagur en bílstjórunum. Og hækkunin kom á aðra, hlaut að koma á aðra eins og allir vita af sögu benzínsskattsins hér á landi og erlendis. En til að skilja eðli þessarar deilu, verða menn að vita það, að félagið er ungt, og- það er þessvegna óþroskað. Hinir ein- stöku bifreiðarstjórar em yfir- leitt menn í vaskasta lagi. Gest- ir, sem koma til Islands dást að bifreiðastjórunum okkar fyrir dugnað og myndarskap í starfinu. En þessi lýsing á vitanlega ekki við alla. I hverjum stórum mannhóp eru misjafnir menn og svo er í þessu félagi. Komm- únistar og íhald hafa þar nokk- ur ítök. Og þessir menn hafa unnið saman að því að draga bílstjórafélagið út í verkfall, sem líkist uppreist móti lögum landsins. Félag bílmannanna var ungt og reynslulaust, og hinir duglegustu menn í hópn- um ekki jafnsnjallir að þræða milli stórgrýtis á félagsmála- brautinni, eins og þegar þeir Framh. á 3. sí&u. Þingslit verða á, morgnn Atkvæðagreiðslan um fjár- lögin stóð sem hæst þegar blað- ið fór í prentun. Var ætlunin að ljúka at- kvæðagreiðslunni i nótt og af- greiða fjárlagafrv. sem lög frá Alþingi. Þegar atkvæðagreiðslunni yrði lokið átti að taka fjár- aukalögin til afgreiðslu. Vestan- og norðanþingmenn fara heimleiðis í dag. Þingslit fara fram á morg- un. Skrifstofur ríkisspítalanna flnttar í Arnarhvol. Allar skrifstofur ríkisspítal- anna, Landsspítalans, Vífils- staðahælis, spítalanna á Kleppi, Laugarnesspítala, Reykjahælis og ríkisbúanna, hafa verið fluttar saman í eina skrifstofu og er hún í Amarhváli, neðstu hæð, þar sem lögreglan var áð- ur en hún flutti í gömlu síma- stöðina í Pósthússtræti. Skömmu eftir stjórnarskiptin á s. 1. ári, var samkv. 9. gr. laga nr. 30, frá 1933, skipuð 5 manna nefnd, er hafa skyldi á hendi yfirumsjón með rekstri Framh. á 4. síðu. sem íhaldsmenn og kommúnistar hafa undirbúið seinustu daga, var haflð um hádegi í gær Nokkrar bílastöðvar og sjálfseignaþílstjórar voru þess ófúsir að taka þátt í verkfall- inu, þar sem af því gæti ekki leitt nema vinnutap fyrir bíl- stjóra og truflun á atvinnu- og viðskiptalífi bæjarins, en þessir menn voru ofurliði bornir af samfylkingu íhaldsmanna og kommúnista, sem stöðvaði alla bíla, sem fóru um göturnar og framkvæmdu jafnvel hótanlí um að skemma bílana, ef þeir voru látnir vera í umferð. I þessari stöðvunarherferð bar fremur lítið á bílstjórun- um sjálfum, en ýmsir æfin- týramenn úr hópi íhaldsins og kommúnista létu þeim mun meira á sér bera. Verkfallsmenn settu strax í byrjun verkfallsins verði á alla vegi úr bænum og hrúguðu þar jafnframt upp ýmsum um- búnaði til þess að tefja um- ferðina. Viðbúnir að veita stjórnlnni viðtall Nýja dagblaðið átti í gær- kveldi símtal við skrifstofu verkfallsmanna, og nefndist sá Kristján Jóhannsson, sem mælti fyrir þeirra hönd. Sagði hann að kröfur verkfalls- manna væru þær að fá benzín- skattinn afnuminn. Ekki taldi hann sér kunnugt um það, að verkfallsmenn hefðu leitað samninga við ríkisstjórn- ina, en hins vegar væru þeir reiðubúnir að tala við hana, hvenær sem væri! Árangur fyrsta verkfallsdagsins Vegna stöðvunar á bílunum í gær féll niður vinna hjá verka- mönnum þeim, sem eru í at- vinnubótavinnunni. Um 450 fá- tækir verkamenn misstu þar af kaupgreiðslu, sem hefði komið sér vel fyrir heimili þeirra nú um jólin og þeir geta búizt við að missa af meiru, ef íhaldinu tekst að láta bílstjórana halda verkfallinu áfram. Vegna jólanna var óvenjuleg ös í búðum í gær, og hefðu bíl- ar því án efa verið notaðir með mesta móti. Hafa bílstjórarnir þar orðið illa úti, og lang harð- ast sjálfseignarbílstjórarnir. Hins vegar er ekki að neita því, að þetta tap bílstjóranna hefir orðið sparnaður fyrir marga, sem myndu hafa notað bílana. Og það er ekki fjarri lagi, að ætla, vari verkfallið lengi, að fólkið læri að spara bílana meira en það hefir gert, og mega bílstjóramir þá vera minnugírí .þess, að | vleAfallið hefir ekki orðið árangurslaust. Mjólkin og verk- fallið Verkfallsmenn munu ætla sér að stöðva alla mjólkur- flutninga á bílum til bæjarins, og stbðvuðu þeir einn mjólkur- bíl, sem kom austan yfir heiði í gær, inn við Elliðaárnar. Og er bílstjórinn sá sér ekki fært að koma henni í bæinn, sneri hann aftur austur. Blaðið átti í gærkveldi tal við Halldór Eiríksson, forstjóra Mjó.lkursamsölunnar og sagði hann að fengnir hefðu verið miklir kraftar, hestvagnar og menn, til að annast dreifingu mjólkurinnar hér í bænum og myndi hún geta gengið sæmi- lega greiðlega, þrátt fyrir verk- fallið. Ennfremur héldu þeir að- ilar, sem ættu að annast mjólk- urflutninga til bæjarins, að hægt yrði að sjá fyrir nægri mjólk og þyrfti því tæplega að óttast mjólkurskort í bænum. Fasistaráðið ósveigjanlegt London kl. 17 21./12. FO. I opinberri tilkynningu, sem gefin hefir verið út í Róm, að loknum fundi Fascistaráðsins, er aðeins vikið að sáttatillögun- um. Þar segir: „Fascistaráðið tók til íhugunar það ástand, sem við það hefir skapazt, að st.jórn Stóra-Bretlands hefir hafnað sáttatillögunum, sem gerðar voru að tilhlutun Frakka. Vegna þeirrar sundur- þykkju og óreiðu, sem greini- lega á sér stað i framkvæmd refsiaðgerðanna, ákveða Italir, að fara sínu fram, og beita sér sem áður gegn refsiaðgerð- unum". Fascistaráðið á næst að koma Framh. á 4. »ÍSu.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.