Nýja dagblaðið - 31.12.1935, Side 1

Nýja dagblaðið - 31.12.1935, Side 1
Bílsfjóraverkfallinu lokið Sjaldeyrisnefnd leyflr Innflntning á pólsku benzfni - 1 • ' - • ' ' ' " ' N ' ’ ’ '■ . : ' .. Á fundi bifreiðastjóra í nótt var samþykkt í einu hljóði að aflýsa bifreiðastjóraverkfallinu kl. 6 í morgun. Eru tildrög til þessarar á- kvörðunar svo sem hér greinir: Nokkrum dögum eftir að bíl- stjóramir hófu uppreisn sína, sótti Nafta h.f. um innflutn- ingsleyfi á efni í benzíngeymi fyrir 22 þús. kr. og benzíni fyr- ir 166 þús. kr. Benzínið átti að vera keypt frá Póllandi, en efn- ið í benzíngeymirinn frá Þýzka- latidi. Jafnframt mun Nafta h.f. hafa sent tilboð til bílstjóranna um að. selja þeim benzín fyrir 29 aura pr. líterinn, ef þetta innflutningsleyfi fengist. Þetta tilboð kom degi fyrir fúnd bílstjóra á annanj jólum, og . samþykkti fundurinn að leggja verkfallið niður, ef inn- flutningsleyfið fengist. Höfðu uppreisnarmenn þá strax séð, að öll mótspyrna gegn benzín- skattinum var þýðingarlaus, og því kosið að halda inn á þá braut, að gera kröfur um þá hluti, sem hefði náð fram að ganga án nokkurs verkfalls, til þess að geta hrósað sér af ein- hverjum vinningi síðar meir. Gjaldeyrisnefnd hélt fund í gær og . tók þar ákvörðun um að veita innflutningsbeiðni þá, sem fyr, greinir, þó með þeirri breytingu, að veita nú inn- flutningsleyfi fyrir i/3 af því sem um var beðið til ársins og er það magn veitt fyrir 4 fyrstu mánuði ársins. Þegar Nafta h.f. hafði fengið Framh. á 4. síðu. Þrír menn -- Þriár framkvæmdir Þeir menn sem voru fulltíða i byrjun heimsstyrjaldarinn- ar og muna bæjarbraginn eins og. hann var hér í Reykjavík síðasta áratuginn fyrir strið. Jón porsteinsson. tvö leikfimishús í öllum bæn- um og baðtæki aðeins í öðru þeirra. En á þessum árum var reistur sundskáli, byggður í- þróttavöllur og unnið að skíða- íþróttaiðkana, þar til nú, að heita má að þrjár stórfram- kvæmdir séu að koma að kalla jafnsnemma í gagnið. Það er Skíðaskálinn, íþrótta- íþróttaskóli Jóns porsteinssonar. hljóta að minnast þeirrar ung- menna- og íþróttahreyfingar, sem þá átti svo mikinn þátt i að setja svip á unga fólkið og bæjarlifið vfirleitt. Aðstaðan var að vísu erfið, braut, og fyrst og fremst af unga fólkinu sjálfu. Síðan þetta var, hefir fólk- inu í Reykjavík fjölgað miklu meira en svarar til umbóta á aðstöðunni til hollra leika og hús Jóns Þorsteinssonar og Sundhöllin. Sérhver kynslóð er að ein- hverju leyti ný, með nýjar skoðanir, nýjan svip, ný áhuga- mál. Frh. á 4. síðu. I Sundhöliln. Hræðilegasíi eldsvoði í manna minnum Samkomuhúsið i Keflavik brennur. - Manntjón Rétt þegar blaðið var að fara í prentun í gærkveldi barst því fregn um hræðilegan eldsvoða frá Keflavík. Blaðið náði þegar sambandi þangað suður og hafði tal af símastöðvarverði, ungfrú Ingi- björgu Ólafsdóttur, og Ingi- mundi Jónssyni, kaupmanni, en síðar af Helga Guðmundssyni lækni. Fer frásögn þeirra hér á eftir. Húslð alelda i einu vetfangi Jólatrésskemmtun var haldin í Keflavík í gærkveldi í sam- komuhúsi þorpsins. Um 10- leytið datt bréfpoki ofan á eitt kertið og kviknaði í honum. Og sem hendi væri veifað stóð jólatréð þegar í björtu báli, með svo miklum ofsa, að eldur- inn læsti sig þegar í húsið, sem var gamalt og byggt sem verst má verða, þegar slíkt óhapp ber að höndum, eftir því, sem blaðinu hefir verið tjáð annarstaðar að. En húsið var svo byggt, að utan á trégrind var neglt bárujárni, en innan á grindina rimlum, yfir þá strengdur strigi, en aðeins pappír límdur á hann. Enda fuðraði húsið þegar upp, svo að alelda mátti heita á augna- bliki. HuFðln lokast Þarna voru inni 170—180 böm og auk þess fullorðnir, svo að alls er talið, að yfir 200 hafi verið í húsinu. Þeim ógnum, sem nú dundu yfir, er erfiðara að lýsa en að gera sér í hugarlund, og skynjar þó enginn, sem ekki ratar í slíkt. Auðvitað þustu allir til dyra og giugga, eða í kjallara til út- göngu. En svo ógæfulega virð- ist hafa til tekizt, að því er sumir álíta, að útidyrahurð hafi lokazt, um stund, er ruðzt var á dyr, og slysið því orðið ægilegra en annars hefði kann- ske mátt verða. Þrátt fyrir þetta virðast litlar eða engar limlestingar hafa orðið af sjálfum troðningnum, en einn ^ drengur a. m. k., hafði skorizt töluvert af rúðubrotum. Sex manna saknað Samkvæmt fyrstu fregnum var álitið, að allt að 30 manns hefði brennzt, en 5 var saknað, tveggja gamalla kvenna og þriggja barna. Síðar í nótt, kl. rúml. 4, er blaðið náði tali af Helga lækni Guðmundssyni, reyndust þessar fregnir bæði betri og verri. Var þá talið, að um 20 hefðu brennzt, en þá var líka eins bams saknað í við- bót, eða alls sex, sem lfldega flestir telja, því miður, að brunnið hafi inni. Til Reykjaviku? Sjúkrahús er ekki í Keflavik, svo að þá, sem hættulegast voru brenndir, var farið með til Reykjavíkur í nótt, um tólf, að því er H. G. læknir taldi, og flesta á Landakot. Margt af þessu fólki er stórlega skaddað. Þeir, sem brenndust umfram þessa tólf, eru ekki verr famir en það, að álitið var óhætt að þeir lægju heima. Meðal þeirra er sóknarpresturinn, séra Ei- ríkur Brynjólfsson frá Utskál- um, sem brenndist á höndum og andliti og stöðvarstjórinn Sverrir Júlíusson, sem brennd- ist á Ijöndum — báðir við að bjarga. * * * Til aðstoðar Helga lækni Guðmundssyni og Sigvalda Kaldalóns héraðslækni, náðist til tveggja lækna úr Reykjavflc, Ólafs Helgasonar og Þórðar Þórðarsonar. — Samkomuhúsið brann til kaldra kola á svipstundu, en ekki brunnu önnur hús. Það mun hafa verið vátryggt, en ekki hátt. Það var eign ung- mennafélagsins í Keflavík, sem af góðum hug efndi til skemmtunarinnar, sem endaði svo átakanlega. — Þetta er vafalaust hörmuleg- asti eldsvoði, sem hér á landi hefir orðið í manna minnum. Fmmh. á 4. rfUo.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.