Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 08.01.1936, Qupperneq 1

Nýja dagblaðið - 08.01.1936, Qupperneq 1
NYJA DAGBIAÐIÐ 4. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 8. janúar 1936. 5. blað Italir senda nýjar her- sveitir til Afríkn Italskar öugvélar ráðast í ógáti á kynflokk, sem lftur Bretum London kl. 17, 7/1. FÚ. Landslagi er nú svo háttað, á vígstöðvunum í Abessiníu, að chjákvæmilegt er fyrir ítali að bæta við her sinn nýjum liðs- sveitum. Hafa nú liðssveitir úr Alpahéruðum Italíu verið sendar af stað til Afríku til viðbótar við her þann, sem fyrir er. Þrálátur orðrómur hefir gerigið um það undanfarið, að Ras Guksa, hafi verið tekinn höndum af Itölum fyrir njósn- ir, og jafnvel líflátinn. Þessu hefir nú verið opinberlega mót- mælt af Itölum. Er í mótmæla- tilkynningunni fullyrt, að hann sé á vígstöðvunum ásamt liðs- mönnum sínum. Hin opinbera tilkynning Ba- doglio marskálks í dag hljóðar á þá leið, að ekkert sé tíðinda, en frá Berbera í Brezka Somali- landi segir, að 2 ítalskar flug- vélar hafi kastað sprengjum á innfædda menn, sem tilheyra kynflokki, sem stendur undir brezkri vernd. Sprengjur þess- ar ollu þó engu tjóni. Augljóst þykir, að hér sé um misgáning að ræða, með því að abessinsk varðsveit var stödd í nágrenni við staðinn, þar sem árásin var gerð. A 1 b a n í a býr sig nndir ankna olíusölu til Italíu London kl. 17, 7/1. FÚ. I dag var opnuð til notkunar 64 kilometra löng pípuleiðsla fyrir olíu frá olíulindum inni í Albaníu til hafnarborgarinnar Valona. Var þegar í dag dælt olíu í ítalskt olíuflutningaskip, sem óðar hélt af stað með farminn. — Rétturinn til olíu- vinnslu í þessum námum, og umráðarétturinn yfir hinni nýju leiðslu, er í höndum ít- alsks félags. Síðdegis í dag gaf Italíukon- ungur út konunglega tilskipun um það, að heimilt skuli vera að vinna og hreinsa á Italíu aðflutta olíu frá Albaníu. Mussolini kveður fleiri menn til vopna LRP 7/1. FÚ. ítalska stjómin hefir enn kvatt fleiri menn til vopna. Er ákveðið að koma upp nýrri her- deild til viðbótar við sex nýjar herdeildir, sem komið var upp á síðastliðnu ári, og eiga þær að koma í stað þess liðs heima- fyrir, sem sent hefir verið til Afríku. I sömu tilskipun er einnig mælt svo fyrir, að koma skuli upp nýjum stórskotaliðsdeild- um. Er álitið, að þær muni eiga að koma í stað Alpa-her- sveitanna, sem nú er verið að senda til Afríku. I kvöld leggur nokkur hluti Alpa-hersveitanna af stað frá Neapel, en sumar lögðu af stað í gærkvöldi. Ern landkðnnuður Kalundborg kl. 17, 7/1. FÚ. Sænski landkönnuðurinn, Sven Hedin, er nú 71 árs að aldri. Hann kom í gær síðdegis til Kaupmannahafnar, ásamt ritara sínum, og flutti þá um kvöldið erindi um rannsóknar- Stúdentaóeirðirnar i Kairo London kl. 17, 7/1. FÚ. Dálítill hópur stúdenta 4 Ca- iro gekk mótmælagöngu um götur borgarinnar í dag, og hélt því fram, að egypskur borgari hefði verið skotinn til bana af brezkum liðsforingja í gærkvöldi. Skýring brezku yfir- valdanna er á þá leið, að enskan liðsforingja hafi borið þar að, sem innfæddur maður var að fikta við bíl á grunsam- legan hátt. Egyptinn réðist þá á liðsforingjann, og dróg hann upp slcammbyssu sína í vam- arskyni. Reyndi Egyptinn þá að slá hana úr höndum hans, en við það hljóp skotið af byss- unni, og fór í verkamann, sem var þar nærstaddur, og særð- ist hann, en þó ekki alvarlega. Hópur stúdenta gekk í dag heim að bústað Sir Miles Lampson, brezka stjómarfull- trúans í Egyptalandi, og baðst viðtals við hann. Var tveim úr stúdentahópnum leyfð inn- ganga í húsið. Skýrðu þeir Sir Miles Lampson svo frá, að þeir væru fúsir til þess að taka upp aftur nám sitt, en væri meinað það af háskólayfirvöldunum. Verður hæstaréttardómurinn um UudbúnaðarlOg Roosevelts mesta hitamálið I næstu forsetakosningum ? Sven Hedin. farir sínar í Asíu. Láta blöð svo um mælt, að erindi hans hafi verið stórmerkilegt og fróðlegt, og gefið lifandi hug- mynd um líf og háttu manna Framh. á 4. síðu. London kl. 17, 7/1. FÚ. Bandaríkjastjóm hefir ekki gefið út neina opinbera til- kynningu um afstöðu sína til jhæstaréttarúrskurðarins, sem í felldur var í gær, en samkvæmt [þeirn úrskurði eru viðreisnar- lögin til aðstoðar landbúnaðin- um dæmd ólögleg, samkvæmt stjórnarskránni. Stjórnin hefir aðeins tilkynnt að fyrst um sinn verði engar frekari greiðslur inntar af hendi til bænda, né heldur skattar inn- heimtir, vegna viðreisnarlög- gjafarinnar. Blöð í Bandaríkjunum ræða úrskurð Hæstaréttar í dag, og fara dómar þeirra eftir flokks- afstöðu. Almennt er gert ráð fyrir, að forsetinn muni neyð- ast til þess að gera það að að- alkosningamálinu í næstu kosn- ingum, hvort stjómarskránni skuli breytt, til þess að hægt sé að samræma viðreisnarlög- gjöfina og stjórnarskrána. En í því myndi felast, að svifta hin einstöku ríki meðferð vissra mála, svo sem atvinnumála, og leggja þau undir vald sam- bandsst j órnarinnar. Fleiri greinar viðreisnarlög- gjafarinnar eru nú taldar hafa hlotið sinn dóm, með dóminum um viðreisnarlögin til aðstoðar landbúnaðinum. Þar á meðal eru hin nýju lög um félags- legt öryggi, sem gera ráð fyrir ellistyrk, atvinnuleysisstyrk, al- þýðutryggingum o. fl. Þá er og álitið, að þeir, sem hafa greitt skatta og gjöld til stjórnarinn- ar samkvæmt ákvæðum við- reisnarlaganna, geti krafizt þess, að fá fé sitt endurgreitt. I t I Séra Sig. Gunnarsson fyrv, prófastur Sigurður Gunnarsson, fyrr- verandi prófastur, lézt að heimili sínu í gær. Sr. Sigurður var fæddur að Desjarmýri eystra 25. maí 1848, sonur þeirra hjónanna Gunnars. Gunnarssonar, síðar bónda á Brekku, og Guðrúnar Iiallgrímsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1870 og útskrifaðist úr Presta- skólanum þrem árum síðar. Næstu árin fékkst hann við kennslu, fyrst í Reykjavík og síðar á Isafirði. Árið 1878 réðist hann prestur að Ási í Fellum og fjórum árum síðar að Valþjófsstað. Helgafells- prestakall var honum veitt 1894 og fluttist hann þá til Framh. á 2. síðu. Ras Tafari fœr nýjan ráðunant í millirikjamálum Kalundborg kl. 17, 7/1. FÚ. Amerískur þjóðréttarfræð- ingur, Mr. Spencer að nafni, er nú í þann veginn að leggja af stað til Abessiníu, og hefir hann verið ráðinn til þess að verða aðalráðunautur og leið- beinandi Abessiníukeisara um fjármál og milliríkjamál.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.