Nýja dagblaðið - 08.01.1936, Page 4

Nýja dagblaðið - 08.01.1936, Page 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Nýia þvottahúsið, Orettisgötn 46, tekur & móti taui til þvotta. Vill semja um allan heimilisþvott. GamlaBíó Krottfarariir Stórkostl2g mynd sögu- legs' efnis eftir Cecil B. de Mille, um krossferð Ríkarðs Ljónshjarta til Landsins helga. Aðalhlutverkin leika: Loretta Young og Henry Wileoxon. Böm fá ekki aðgang. Annáll » Veðurspá fyrir Reykjavík og ná- grenni: Norðan eða norðaustan kaidi. Urkomulaust. Næturlæknlr í nótt er Guðmund- ur Karl Pétursson, Landsspítalan- um, sími 1774. Næturvörður er þessa vikuna í Laugavegs apoteki og Ingólfs apo- teki. Útvarpið í dag: Ki. 8,00 íslenzku kennsla. 8,25 fýzkukennsla. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðuríregnir. 19,10 Veður- fregnir. 19,20 Hljómplötur: Létt lög. 19,40 Auglýsingar. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi: Búnaðarfélag Islands við áramðtin, I (Magnús porláksson bóndi). 20,45 Sónata fvrir fiðlu og píanó, eftir Veracini (Hallgrímur Helgason og Margrét Eiríksdóttir). 21,10 Erindi: Um sementsgerð (Jóhannes Áskelsson náttúrui'ræðingur). 21,35 Hlj'óm- sveit útvarpsins (dr. Mixa): Strok- kvartett í G-dúr, eftir Mozart. 22,00 Hljómplötur: a) Kórsöngvar; b) Danslög (til kl. 22,30). Skipafréttir. Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. Goðafoss er á leið frá l estin.eyjum til Hull. Brúarfoss er , Kaupmannahöfn. Dettifoss er í Hamborg. Lagarfoss er í Kaupm.- liöfii. Selfoss er í Reykjavík. Norðanátt var um allt land í gær, víðast bæg. Norðanlands var dálítil snjókoma, en bjartviðri sunnanlands. Frost var um allt iand íi'á 2—10 stig. ísfisksalan. Karlsefni seldi í gær 975 vættir fyrir 1522 sterlings- pund. Fantoft fór héðan í fyrrakvöld áleiðis til Ítalíu með 1100 tonn af fiski. prír togarar, Kári, pórólfur og Gyllir, sém legið hafa hér inni siðan fyrir jól, fóru á veiðar í gær. Max Pemberton var v§entanlegur hingað í gærkveldi frá Englandi. Hjónaband. Á gamlársdag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Hanna Jensen og Hann.es Gama- lielsson fulltrúi. Heimili ungu hjónanna er á Sjafnargötu 10. ,1 annað sinn' Eftir SIR JAMES BARRIE Sýning á morgun kl. 8 í Iðnó. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag kl. 4—7 og eftir kl. 1 é morgun. Sími 3191. Afmælisfagnaður Armanns Glímufélagið Ármann hélt þrjátíu ára afmæli sitt hátíð- legt í gærkvöldi í samkomu- húsinu Iðnó. Samsætið hófst með kaffi- drykkju og var skemmt undir borðum. Föst dagskrá hafði verið á- kveðin fyrir kvöldið, en ekki leið á löngu áður en aukalið — og honum óvæntum — var bætt inn í. Var það Lúðrasveit Reykjavíkur, sem kom í heim- sókn til félagsins og lék nokk- ur lög undir stjórn Páls Is- ólfssonar og kvaddi síðan með ferföldu húrra fyrir Glímufé- laginu Ármanni. Annars voru þessi skemmti- atriði helzt: Helgi Hjörvar flutti erindi um félagið og ís- lenzka glímu, í Ríkisútvarpið, Iíermann Jónasson forsætisráð- herra flutti ræðu fyrir minni félagsins, tvöfaldur kvartett úr Karlakór K. F. U. M. söng nokkur lög, 8 manna glímu- flokkur úr Glímufélaginu Ár- mann sýndi íslenzka glímu, Sigurjón Pétursson flutti ræðu, Marinó Kristjánsson söng ein- söng, með undirleik Gunnars Sigurgeirssonar, níu manna leikfimisflokkur úr Glímufélag- inu Ármann sýndi leikfimi und- ir stjórn Jóns Þorsteinssonar íþróttakennara. Auk þessa fíuttu ræður Jens Guðbjörns- son, formaður félagsins, fyrir minni fyrsta formanns Ár- manns, Guðm. Guðmundssonar, sem í gær átti sextugsafmæli, og afhenti syni hans að gjöf til Guðmundar frá félaginu, fána félagsins, með áletrun, Hallgrímur Benediktsson, og færði hann um leið félaginu að gjöf fánaskjöld úr silfri frá gömlum Ármenningum sem þama voru staddir, Ben. G. Wáge, og færði félaginu að gjöf útskorna hillu frá I. S. I., — og fleiri menn fluttu þama ræður. Flokkur Ármenninga, sem iðkar frjálsar íþróttir, sendi fé- laginu skrautritað kvæði, sem birtist hér á eftir, en Marino Kristjánsson söng það. Við dáum þig „Ármann“ þitt vaxandi veldi, som viðsýnið stjórnaði’ í þrjátíu Ar. því útsýnis-tindurinn þinn í áhugans eldi því víðsýnis-fjallhringur þinn er svo hár „Ánnann", er bömunum sjálfdæmið seldi: Að sigra með drengskap — en verðá’ eigi smár. Með frariísæknu brosi, þú biður oss reyna að blómgva þinn veginn á föðurlands grund. pú vilt ekki urð* eða óþarfa steina á æskunnar hrautum, sem sækja þinn fund, því stjómkrafta þína hafðurðu hreina og hefur þá ennþá á liðandi stund. Vort líf hefur drukkið af lindinni þinni sem lífsþránni svalar og eykur vorn mátt. Við munum halda heilagt þitt minni þú hamingjuóskir í þúsundum átt. Aldrei þitt starf og atorka linni, til eilífðar rísi merki þitt hátt. Að lokum var stiginn dans fram eftir nóttu. Skemmtun þessi fór vel fram i og mun hrifning gestanna hafa náð hámarki sínu, þegar leik- i fimisflokkurinn sýndi. \ Allir formenn félagsins á undanförnum þrjátíu árum, að hinum fyrsta undanskildum, i sátu hóf þetta. Skemmtun þessi mun verða endurtekin bráðlega, því fáir einir komust að af öllum þeim, , sem vildu. Það hygg ég að þeir, sem , þarna voru, muni minnast i þessa samsætis lengi. ! M. s. Sænsku háskólafyrirlestrarnlr. Sænski sendikennarinn við háskól- ann, fil. lic. Áke Ohlmarks, mun í kveld tala aðallega um sagnabálk- inn „Karolinerna”, eftir Verner v. Ileidenstam. þetta er 4. fyrlrlest- iirinn í fyrirlestraflokknum um þjóðernisskáldskap v. Heidenstams og lýsir fyllstu þroskaárum skáldsins. Um aldamótin gætir ættjarðarhljómanna mest í hörpu skáldsins; sagnabálkur hans, „Karplinerna", bregður upp átak- anlegri mynd af þjóð, sem berst fvrii' lífi sínu, en verður að láta undan síga fyrir ofureflinu, af íiiiklum mönnum og dapurlegum atburðum um það bil, sem stór- veldisskeið Svíþjóðar var að líða. Fyrirlesturinn hefst í kveld kl. 8,15. Skugga-Sveinn var sýndur á Ak- ureyri á sunnudagskvöldið í ní- unda og síðasta sinn. Að þessu sinni var leikurinn sýndur ó- keypis fátækara fólki bæjarins, sem ekki hafði séð hann áður. Ilvert sæti var skipað í leikhús- inu og margir stóðu. — FÚ. Akureyrarpoll hefir í undan- förnum frostum lagt, landa á milli og út að tanga, eggsléttum ís. Slíkt skautasvell hefir varla komið síðan árið 1918. Fjölmenni rnikið er á skautum á hverju kvöldi. — FÚ. Af veiðum komu til Hafnarfjarð- ai í fyrrinótt og gær: Maí, Hauka- nes og Rán. — Afli skipanna var frá 2300 tii 2700 körfur. Skipin eru farin áleiðis til Englands. — FÚ. Smábátar úr Eyrarsveit hafa fóið nokkrum sinnum undanfarið og fiskað sæmilega. Mikið af afla er hert. Einnig er nýr fiskur seld- ur til Reykjavikur, þegar bílfært er. Snjólétt er um byggðir og fjöll og ijilar hafa farið öðruhvoru yfir Kerlingaskarð til Borgarness með fólk og flutning. — FÚ. 18—20 bátar róa nú daglega frá Akranesi, en afli er heldur treg- Flódin i Frakklandi London kl. 17, 7/1. FÚ. I Frakklandi færast flóðin livarvetna í aukana. Vatnsborð Signu hefir enn hækkað um 6 þumlunga. Á vatnasvæði fljót- anna Mayenne og Loire nemur tjónið af völdum flóðanna milljónum franka. Brýr hafa skolazt burtu og vegir skemmst, og margar fjölskyld- ur hafa neyðst til að flýja heimili sín. 1 suðurhluta Frakk- lands er ástandið mjög alvar- legt. Kosning’ar á Spáni London kl. 17, 7/1. FÚ. Forseti spánska lýðveldisins ákvað í gærkvöldi að rjúfa spánska þingið, og var þegar í stað birt tilskipun þar að lút- andi. Almennar kosningar á Spáni munu því fara fram í næsta mánuði. Tvennar kosn- ingar eiga að fara fram áður en þingið er endanlega skipað, og er gert ráð fyrir að hinar síðari fari fram 1. marz. Aftðkn Haiptmiis frestað Kalundborg kl. 17, 7/1. FÚ. Fjöldi manna í Bandaríkj- unum berst nú fyrir því, síðan um áramót, að fá aftöku Bruno Hauptmanns frestað, í von um að einhverjar þær ráðstafanir sé unnt að gera, sem leiði til þess, að hann verði náðaður. Ríkisstjórinn í New Jersey hef- ir tekið vel í þessa viðleitni, og í dag kemur fregn um það, að vísu óstaðfest, að þegar sé á- kveðið að fresta aftökunni nokkra daga. iir, 500—3000 kíló á bát í róöri. Fiskurinn er að mestu seldur í helgiskan togara. — FÚ. Nýlega er lokið á Akranesi nám- skeiði í esperantó. Nemendur voru 18 að tölu. Kennari var þórbergur jiórðarson. — FÚ. Norskt flutningaskip, s. s. „Var- haug“, kom til Akureyrar í fyrra- dag með tæpar 1500 srnálestir enskra kola til Kaupfélags Eyfirð- inga. Er verið að losa það þessa daga. — FÚ. Ráðleggingarstöð iyrir barnshaf- andi konur Templarasundi 3, er opin fyrsta þiiðjudag í hverjum mánuði, frá 3—4. Ungbarnavernd Líknar, Templ- arasundi 3, er opin hvern fimmtu- dag og föstudag, frá 3—4. Síðan um helgina hafa geysað stormai' við Englandsstrendur og lmfa 20 menn farizt á sjó. Óttast, er um nokkur skip og báta. Brak fannst. úr skipi í gær. Ef talið að með lmfi farizt 10 menn. — FÚ. —mmvia bíó msam Rauða akurliljan Ensk stórmynd tekin af London film eftir hinni heimsfrægu sögu með sama nafni eftif baróns- frú Orczy. Aðalhlutverkin leika: Merle Oberon og Leslie Howard. Perfídí í ritdómum Frli. af 2. síðu. vægari í orðbragði og öfgum um blæ ritdómsins yfirleitt. Á hinn bóginn vill hr. H. K. L. mæla nefnd rithöfunda- deildar B. I. L. undan sérstakri ásökun í garð N. Dbl. um ó- v andaða ritdóma. En eins og á- skorun nefndarinnar til N. Dbl. var fram sett, virtist hún einmitt sérlega perfid, — eða lævísleg — og var því tekin óstinnt upp. En sjálfsagt er að taka til greina það sem háttv. greinarhöf, segir frá eigin brjósti og viðurkenna vilja hans um það að láta N. Dbl. njóta þess sannmælis í þessu efni, sem það hefir átt skilið frá því að það hóf göngu sína. Ern landkönnuður Framh. af 1. síðu. í ýmsum hlutum Kínaveldis, sem áður eru lítt kunnir. Hann flytur einnig erindi í kvöld og annað kvöld. Auk þess talaði hann í 20 mín. í danska út- varpið kl. 17,30 til 17,50 í dag (ísl. tími). n Fisklmála- fréttir Kaupm.höfn 7/1. Einkaskeyti FÚ. Samanlagður fiskafli Dana árið 1935 er talinn vera 5% meiri en 1934, en verðlag á fískinum til jafnaðar 10% hærra. Vegna ósamkomulags um verð á síld til söltunar hefir allmikið af stórsíld, sem komið hefir á land í Bergen, verið selt til bræðslu. Saltsíldarút- fjytjendur hóta að hætta við að kaupa síld, ef ekki næst samkomulag um verð. Er búizt við að verzlunarráðuneytið norska láti málið til sín taka og reyni að koma á sættum. Síldarvinnustúlkur í Hauga- sundi hafa ákveðið að gera verkfall.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.