Nýja dagblaðið - 06.02.1936, Page 3

Nýja dagblaðið - 06.02.1936, Page 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 6 Hvernig hefir málum sjó- manna verið sinnt af núver- sndi ríkisstjórn P IV. lireyting á Sölusambandi ís- lenzkra i'iskframleiðenda. Á árinu 1931 var fiskimálun- um svo komið, að allir fiskút- flytjendur voru gugnaðir á að kaupa fisk til útflutnings. Þeir buðust aðeins til að taka hann í umboðssölu. Varð úr þessu hin aumasta afkoma, sem nokkru sinni hefir til spurzt; töluvert af stórfiskinum suður með sjó, var t. d. afreiknað með 45 kr. verði fyrir skippundið, fullverkað. — Að nokkru leyti má segja að þetta væri að kenna almennu markaðsástandi, en að mjög miklu leyti var or- sökin hóflaus samkeppni, eins og sést bezt á því, að markaðs- ástæður breyttust raunverulega ekkert 1932. Þegar iangt er komið að selja fiskbirgðirnar sáu bank- arnir, að svo búið mátti ekki lengur standa, og beittu sér fyrir því, að hin brjálæðis- kennda samkeppni stöðvaðist. Var þá sölusambandið (S. í. F.) stofnað á árinu 1932. Út- flytjendurnir voru óánægðir, að þurfa nokkuð að hnika frá lög- máli hinnar ýtrustu samkeppni, þótt einmitt hún hefði komið svo hag þeirra, að þeir urðu að | sætta sig við varúðarráðstafan- ; ir bankanna. Samvinnumenn tóku því vel, að hér hafði nokkuð áunnizt til stefnubreytingar, þótt þeir bentu á, í blöðum sínum, að fisksölusambandið eins og það var stofnað, væri mesti van- | skapningur frá sjónanniði sam- I vinnustefnunnar. Þrír stærstu útflytjendurnir bundust sam- tökum og lögðu fram einn fi'amkvæmdarstjóra hver. Tveir bankastjórar (frá Landsb. og Útvegsb.) skyldu vera eftirlits- menn með starfseminni. Síðan var fiskframleiðendum út um land boðið að gerast þátttak- endur, þó ekki með skyldum og réttindum félagslegs eðlis, heldur eiginlega aðeins til þess að fela stórfyrirtækjum framkvæmdastjóranna fisk sinn í umboðssölu. Um áramótin 1933—34 kunn- gerðu frkvstjórar S. f. F., að i framleiðendur skyldu tilkynna, j hvort þeir ætluðu að taka þátt : í starfseminni á næsta ári, (S. ! í. F. starfaði því aðeins frá ári | til árs). Þá ritaði Jón Árnason, NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: Blaðaútgáfan h.L .. .. Ritstjóri: .. Sigfús Halldóxs frá Höfnnm Ritstjómarskrifstofnr: Laugav. 10. Simar 4373 og 2353 Afgr. og auglýsingaskrlfstofa Austurstr. 12. Siml 2323 .. í lausasölu 10 aura oint. Áskriftargjald kr. 2 á mán. Prentsm. Acta. Njósnír og óleyiílegur fréttaburður Það hefir vakið sorglega eftirtekt, að allmargir íslenzk- ir menn hafa gerzt njósnarar fyrir erlendar þjóðir, svikið trúnað við þjóð sína fyrir fé, og brotið lög lands síns. Allir þeir menn, sem upp hefir kom- izt um, eru fylgismenn Mbl. og sumir hátt settir í þeim flokki. En þó að þetta sé rétt og sannanlegt, þá væri hitt jafn- rangt að segja, að flokkur Mbl. bæri beinlínis ábyrgð á njósn- unum. Langsamlega flestir af stuðningsmönnum þess flokks eru vitanlega saklausir af þess- um glæp, og hafa áreiðanlega fullkomna óbeit á þessari svik- semi eins og aðrir landsmenn. En jafnframt verður að geta þess, að allmargir af leiðtogum flokksins og þar á meðal rit- stjórar íhaldsblaðanna hér í Reykjavík, bera þunga ábyrgð, nærri því að segja þyngri á- byrgð, á þessu gífurlega hneykslismáli, heldur en þeir ólánssömu menn, sem lögregl- an hefir nú milli handa út af landhelgissvikunum. Þegar Ágúst heitinn Flygen- ling lýsti því yfir á Alþingi, að rangt væri að hegna skipstjór- um togaranna persónulega fyr- ir landhelgisveiðar, af því að eigendur togaranna skipuðu þeim að fremja lögbrotin, þá var fengin full vissa um svik- serrp íslenzkra manna. Flygen- ring var sjálfur togaraeigandi. Ilann vissi um allt þeirra at- ferli. Hann mun sjálfur hafa verið tiltölulega laus við þess- ar yfirtroðslur sjálfur. En hann játaði sekt stéttar sinnar, að útgerðarm. stýrðu togurunum inn í landhelgi með loftskeyt- unum. Hér átti að stemma á að ósi. Magnús Guðmundsson var dómsmálaráðherra þegar Flyg- enring gaf þessa vitneskju. Það var skýlaus skylda hans að koma með löggjöf um eftirlit gegn notkun loftskeyta. En hann gerði það ekki. Hinir brot- legu útgerðarmenn voru mátt- arstólpar í flokki hans. Vegna þeirra hefir hann væntanlega þagað. Þegar ég tók við starfi af M. G. haustið 1927 tók ég loftskeytamálið fyrir. Ég byggði á sögusögn Flygenrings, að allir eða nálega allir íslenzku togararnir væru sekir, að þeir væru reknir inn í landhelgina af eigendum í landi. Á þessum vitnisburði og á öðrum rökum í sömu átt byggði ég frv. það, sem var barizt um á öllum þing- um frá 1928—32. Á öllum þess- um þingum beittust togaraeig- endur undir forustu Kveldúlfs- bræðra og Mbl. gegn eftirliti með loftskeytum. Og þeir drógu allan þingflokkinn með sér, öll blöð flokksins í lið með sér. Þessir menn beittu málþófi, brigslyrðum, og öllum tegund- um af ofsafenginni mótstöðu gegn eftirliti með ólöglegum skeytasendingum. Allir núver- andi Framsóknarmenn og allir Alþýðuflokksmenn studdu mig í baráttunni við þessa spillingu. Þar var ekkert hik á neinum manni. En íhaldið hafði þá þeg- ar ráð á mönnum í útjöðrum Framsóknarflokksins, fáum að vísu, en nógu mörgum til að hjálpa íhaldinu til að tefja og eyða málinu. íhaldsflokkurinn á þingi, varalið hans og fylgi- blöð Mbl. bera ábyrgð á því miljónatjóni, sem njósnarar innlendra og útlendra veiði- þjófa gerðu með sviksamleg- um landhelgisveiðum frá 1928 og fram í janúar 1936, að Hermann Jónasson gaf út bráðabirgðalög um málið. Forráðamenn íhaldsflokksins eru alsekir um að hafa undir- búið jarðveginn fyrir þessi svik. Hinir brotlegu menn, að dómi Ágústs heitins Flygen- ring, eru flestir ákafir flokks- menn þeirra. Og njósnarar hafa getað skeikað í því hróksvaldi, að Mbl.-flokkurinn vildi alls okki eftirlit með sviksemi af þessu tægi. Leiðtogar flokks- ins hafa með baráttu sinni gegn eftirliti með loftskeytum til veiðiskipa gefið njósnar- starfseminni einskonar „frí- bréf“ til þess athæfis, sem nú er fordæmt af öllum. En ofan á þetta bætist síðan það, að einn af starfs- mönnum Mbl. símar til út- lendra blaða dylgjur og róg- mælgi um það, að annar stjóm- arflokkurinn vilji af flokks- ástæðum hilma yfir ættjarðar- svik njósnaranna. Árni Óla starfsmaður við Mbl. hefir hér brotið stórlega af sér við land sitt. Hann er starfsmaður við það blað, sem öðrum fremur hefir átt þátt í að gera þessa sviksemi fram- kvæmanlega. Flokksbræður hans hver af öðrum verða fyr- ir rétti sannir að hlutdeild í njósnunum. Alþýðuflokkurinn, þingmenn hans, blöð hans, hafa frá byrjun beitt sér einhuga gegn því böli sem Flygenring fletti fyrstur ofan af. Á þess- um grundvelli leyfir starfsmað- ur Mbl. sér að síma til annars lands dylgjur um pólitíska and- stæðinga sína. Nóg er komið áður. Nóg var að senda skipin í landhelgina, berjast í 5 ár gegn verndarlög- gjöf gegn svikum, hafa í sín- um flokki fjölda manna, sem leigir sig útlendingum til skað- semdarverka móti þjóðinni, þó að Mbl. léti hjá líða að bæta gráu ofan á svart, með- því að ætla að byrja á erlendum vett- vangi baráttuna við landa sína. Það væri æskilegt, að málpíp- ur Mbl. lærðu að takmarka á- róðurinn á landa sína við það, sem hægt er að gera í landinu sjálfu. Ilitt er ekki mönnum sæmandi. J. J. framkvæmdastjóri, ýtarlega grein í Tímann, um nauðsyn- ina að byggja S. I. F. upp að nýju á félagslegum grundvellí og tryggja með því að allir framleiðendur í S. í .F. hefðu íhlutunarrétt um stjórn þess og starf og að salan gengi noklc- urnveginn jafnt yfir. Telur hann nauðsynlegt, að skipulag S. I. F. komizt í það fast horf, að því er snertir þátttöku og líka verðskiptingu, sölu o. s. frv., að í meginatriðum verði það sem hér segir: Um þátttöku: 1) Félagsmenn í S. í. F. geti orðið: a) Skrásett samvinnufélög og samlög fiskframleiðenda. b) Einstakir útgerðarmenn og útgerðarfélög, sem framleiði a. m. k. um 3000 skp. af verk- uðum fiski á ári. 2) Á árlegan aðalíund S. í. F. hafi hver þáttt'akandi rétt til að senda 1 fulltrúa. Að auki hafi samvinnufélög og samlög fiskframleiðenda rétt til 1 full- trúa fyrir tiltekna félagatölu (t. d. 30) og útgerðarmenn og útgerðarfélög rétt til 1 fulltrúa fyrir tiltekið magn (t. d. 3000 skpd.) af verkuðum fiski um- fram það magn, sem gefur þeim rétt til þátttöku í S. í. F. 3) Fulltrúafundur úrskurði reikninga, kjósi stjórn og end- urskoðendur og hafi æðsta úr- skurðarvald í öllum málum. Einfaldur meirihluti ráði úr- slitum, nema um slit Sölusam- bandsins. Ef til þess komi þurfi samþykkt mikils meiri hluta. Um verðskiptingu, sölu, o. fl. gildi þetta: 1) Framkvæmdastjórnin ann- ist sölu á öllum fiski félags- manna, sem út er fluttur. Hver íélagsmaður beri ábyrgð á sín- um fiski. 2) Fiskurinn sé seldur fyrir sameiginlegan reikning félags- manna. Framkvæmdastjóm sé skylt að greiða sama verð fyrir, allan fisk jafnan að gæðum, sem tilbúinn er til útflutnings á sama tíma. 3) Til þess að geta jafnað verðið og gert öllum rétt til, skal framkvæmdastjórn jafnan halda eftir einhverju (5—10%) af söluverði fiskjarins, til verð- jöfnunar eftir á. Þrátt fyrir þessa ýtarlegu grein J. Á. rumskuðust ekki stjórnendur S. I. F. fyrsta kastið. Á aukafundi Sambands- félaga S. I. S. í marz og á aðal- fundi þeirra í júní 1934, voru svo afgreiddar tillögur um að gera S. F. 1. að skipulegu fé- lagi. Og þegar á árið leið, fór að bóla á megnri óánægju með starfsemi framkvæmdastjóra S. í. F., enda var t. d. ekki búið að selja nema 30—40% af ársaflanum norðanlands og austan þegar búið var að selja 65% af aflanum á Suðvestur- landi. Loks, seint á árinu 1934, ákváðu þó framkvæmdastjórar S. í. F. að boða til fulltrúa- fundar. En reglurnar um kosn- ingu fulltrúanna munu hafa verið nokkuð óákveðnar; a. m. k. var aldrei svarað fyrirspurn- um Nýja Dagblaðsins og Tím- ans um það, hvernig fulltrúar hefðu verið kosnir. En á þess- Framh. á 4. síðu. Útlönd Framsókn ítala á Suðurvígstödvunum • Eins og kunnug-t er, hefir ítölum seinustu vikurnar veitt betur á suðuz'vígstöðvunum og náð þar talsvert áleiðis. A- bessiníumenn hafa hörfað und- an á hinum hrjóstrugu sléttum og meginhluti liðs þeirra hefir tekið sér bólfestu uppi í há- lendinu og bíður ítala þar. Er þar bæði betra um fæðisöflun og meira um varnir gegn loft- árásum. Svarf hungrið orðið mjög að hermönnum Ras Desta meðan hafst var við á slétt- lendinu. Urðu hermennirnir að aíla sér fæðunnar sjálfir og hafa erlendir fréttamenn gefið hörmulegar lýsingar á aðbúnaði þeirra. Er jafnvel sú saga höfð í flimtingum, að Ras Desta hafi sagt við hóp liðsmanna sinna, sem ætluðu að strjúka til ítala: Farið, fáið ykkur metta og komið svo aftur. Auk fæðuskortsins, sem hex- ir þjakað Abessiníumönnum, hefir hernaðarlegur útbúnaður þeirra verið mjög af vanefnum. Ilafa Abessiníumenn fram að þessu lagt miklu meiri áherzlu á það, að vanda lið og herbún- að á norðurvígstöðvunum. Þó Itölum hafi heppnazt að flæma Abessiníumenn nokkuð á undan sér á suðurvígstöðv- unum, er það talið hafa litla hernaðarlega þýðingu. Hitinn á þessum slóðum er Itölum illþol- anlegur og allir aðflutningar verða örðugri, því lengra sem dregur inn í landið. Auk þess verða Abessiníumenn torsóttari í vígum sínum í f jöllum,en með- an þeir voru sóttir á sléttunni og ítalir gátu komið við bæði flugvélum og bryndrekum. Ef pér eínu sínni notið VENUS-skógljáa, pá kaupið pér aldrei — annan skóáburð. —

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.