Nýja dagblaðið - 07.03.1936, Side 3
N í 8 A DA6BLAÐ1D
8
NÝJA DAGBLAÐEÐ
Útgefandí: BlaQaútgáfan b.1.
Ritstjóri:
Síglús Halldórs frá Hötnum.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Sími 2323.
-í lausasölu 10 aura eint-
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
Prentsm. Acta.
Fiskiþmgið
Ólafur Björnsson
og' Morgunblaðið
Fiskiþingið hefir setið að
störfum hér í Reykjavík og er
þvl nú nýlokið. Á því eiga sæti
kjömir fulltrúar útgerðar-
inanna í öllum landsíjórðung-
um. Fiskiþingið er eina sam-
koman, sem telja má, að hafi
umboð fyrir útgerðarmanna-
stéttina í heild.
Morgunblaðið og dátar þess
t,4nosaskeggur“ o. fl.) hafa
eins og kunnugt er mjög hald-
ið að fólki þeirri kenningu, að
íhaldflokkurinn sé skjól og
skjöldur og einasti málsvari út-
gerðarinnar, en að núverandi
ríkisstjóm sé að sama skapi út-
gerðinni á allan hátt fjandsam-
leg og geri þær ráðstafanir ein-
ar, er útgerðinni megi til tjóns
verða.
En nú vill svo til, að Fiski-
þingið, sem nú er nýafstaðið,
hefir einmitt látið í ljós álit
sitt í nokkrum þeim atriðum,
er hér koma til greina.
Fiskiþingið hefir lýst yfir
því, að það télji stefnu stjóm-
arinnar viðvíkjandi fyrirkomu-
lagi landhelgisgæzlunnar alger-
lega rétta: Að nota aðallega
vopnaða vélbáta til gæzlunnar,
en hafa 1—2 stærri skip þeim
til aðstoðar. Þessa yfirlýsingu
samþykkti Fiskiþingið alveg
sömu dagana sem Mbl. jós úr
sér ókvæðisorðum út af sölu
óðins og hélt því fram, að vél-
bátar væru algerlega óhæfir til
gæzlu. Og Fiskiþingið undir-
strykar það jafnframt, að það
sé rétt stefna, að byggja báta,
sem annazt geti jöfnum hönd-
um landhelgisgæzlu og björg-
unarstarf. En einmitt þetta
hefir Morgunblaðið taiið frá-
leitast af öllu.
Fiskiþingið hefir samþykkt
að lýsa sérstakri ánægju yfir
röggsemi núverandi stjómar í
því að afhjúpa leynistarfsemi
landhelgisbr j ótanna,
Og Fiskiþingið hefir lýst
eindregnu fylgi við þá stefnu
núverandi stjómar, að leggja
megináherzlu á að koma á nýj-
um verkunaraðferðum sjávar-
afurða og afla markaða fyrir
nýjar tegundir framleiðslu.
Þessi afstaða Fiskiþingsins
hefir vitanlega komið auglýs-
ingaskrumurum og „sjálfstæð-
is“-herkörlum Morgunblaðsins
nokkuð á óvart. En mestum
vonbrigðum hefir Mbl.-liðið og
Kveldúlfur þó orðið fyrir, þegar
P’iskiþingið felldi tillögu um að
MerkUegt vísmdarit um
dýraríki Islands kemur
út á næstu árum
,,Zoolcgy of IcelandM
Fréttaritari Nýja Dagblaðsins í Kaupmannahöfn (B. S.),
hefir sent blaðinu fréttagi-ein þess efnis, að hópur þekktra
náttúrufræðinga á íslandi og f Danmörku hafi siðan 1931
undirbúið útgáfu mikils rits og merkilegs um dýraheim Is-
lands. — Rit þetta, sem alls verði um þrjú þúsund blað-
síður í stóru broti, verði gefið út á ensku með titlin-
um „Zoology of Iceland“. Ritið verði prentað hjá bákaút-
gáfu Ejnar Munksgaard og komi fyrsta heftið út næsta
haust og sé með því ofinn þáttur að stórmerkri vísindalegri
heimild, er auki hróður Islands og íslendinga.
Víðftal við mag. scíenft Árna Friðriksson
lýsa einskonar trausti á fram-
kvæmdastjórum Fiskisölusam-
bandsins og setja fisksöluna
undir eina stjóm (S. I. F.) Kom
þessi afstaða Fiskiþingsins sér
næsta illa fyrir íhaldið nú, þar
sem ólafur Thors er nýbúinn
að flytja frv. um leggja nið-
ur Fiskimálanefndina og fela
Fisksölusamlaginu starfsemi
hennar.
Traust útgerðarmanna á
framkvæmdastjórum Fisksölu-
sambandsins virðist sem sé
ekki vera alveg eins eindregið
og Mbl. og Kveldúlfur hafa
talið sjálfum sér og öðrum trú
um!
Einn af þeim fulltrúum á
Fiskiþinginu, sem ekki virðast
hafa álitið framkvæmdastjóra
S. í. F. svo óskeikula í fisksöl-
unni, að aðrir mættu þar ekki
næm koma, er ólafur Bjöms-
son útgerðarmaður á Akranesi.
Ólafur hefir verið einn af ein-
dregnustu stuðningsmönnum
Péturs Ottesen og Sjálfstæðis-
flokksins. En hann kann ber-
sýnilega ekki við að láta Kveld-
úlf segja sér fyrir verkum,
þegar framtíð sjávarútvegsins
er í húfi.
ólafur Bjömsson gerir í
stuttu máli grein fyrir afstöðu
sinni í Mbl. í gær. Hann segir
þar meðal annars:
„Það er skoðun mín, að það
væri enginn skaði skeður, þó
ein „samkunda“ í landinu“ (þ.
e. Fiskiþingið) ,Jiti á málin og
greiddi atkvæði um þau frá
málanna sjónarmiði einna og
mikilvægi þeirra fyrir þjóðar-
heildina.“
Því næst segir hann:
„Ég tel, að það sé ekki rétt,
að ein stjóm hafi með þessi
mál (þ. e. fisksöluna) að gera
í bili--------Meðan verið er
að breyta fiskframleiðslu lands-
ins úr aldagamalli einhæfri
framleiðslu, eftir óskum og
þörfum hinna f jarskyldustu
þjóða og „elta ólar* við að
selja hana svo að segja um
heim allan, tel ég því betur
borgið í tvennu lagi“.-------
Fyrir þessu áliti sínu færir
svo ó. B. ýmis rök. En Mbl.-
mennimir eru hinir úfnustu og
birta athugasemd við greinina,
þar sem þeir segja, að „fram-
koma þeirra fulltrúa á Fiski-
þinginu, sem felldu umrædda
tillögu sé óverjandi og þess-
vegna tilgangslaust fyrir ó. B.
B. að færa fram vamir 1 þessu
máli“!
En myndu þeir ekki vera
fleiri en ólafur Björnsson á
Akranesi Sjálfstæðismennimir
sem famir em að efast-------?
Venus skóyljál
setur háglans á skó
yðar, notið hann einungis.
Vegna þess að tíðindamaður
blaðsins hér fékk að vita að
mag. Ámi Friðriksson fiski-
fræðingur myndi vera þessari
starfsemi kunnugur, leitaði
hann til hans um nánari fregn-
ir af því, sem hér er að fram-
an sagt.
— Þetta er alveg rétt, segir
fiskifræðingurinn. Era tildrög-
in þau, að áður hefir ekki ver-
ið gefið út fullkomið heimildar-
rit um dýraheim Islands. Að
vísu hefir Grasasafnið í Kaup-
mannahöfn gefið út rit, sem
heitir „Botany of Iceland“ og
rituðu þeir í það próf. Þorvald-
ur Thoroddsen og dr. Helgi
Jónsson. Einnig hefir verið gef-
ið út fullkomið rit um dýralíf í
öll þau dýr, sem fundizt hafa
á íslandi og í sjónum umhverf-
is það, nema vitanlega einfrum-
unga. Verður verk þetta látið
heita „Zoology of Iceland“.
Að þessu hefir verið unnið
unnið síðan 1931, og er nú svo
langt komið, að fyrsta hefti
ritsins kemur væntanlega út 1
haust, en samt verða mörg ár
þangað til útgáfunni verður
lokið.
Innlendir og erlendit ví«-
indamenn.
— Hverjir annast fram-
framkvæmdir?
— Það er sex manna nefnd,
skipuð þremur Islendingum og
þremur Dönum. Við dr. Bjami
Sæmundsson og rektor Pálmi
Ilannesson erum fyrir hönd Is-
lendinga, en af Dana hálfu eru
í nefndinni: Prófessor Adolf S.
Jensen, dr. R. Spörck og dr. A.
Vedel Táning og eiga þeir all-
ir heima í Kaupmannahöfn.
Útgáfunefndin hefir leitað til
Færeyjum. Af þessu hefir
sprottið það, að Dýrasafnið í
Ivaupmannahöfn og íslenzkir ; ýmsra þekktra fræðimanna út
dýrafræðingar hafa tekið sam- j urn heim til að rita um mis-
an höndum um að ráða bót á j munandi flokka dýra. Auk þess
þessu og gefa út stórt vísinda- ! starfar vitanlega fjöldi ís-
rit — nokkurskonar yfirlit um ! Fi’amh. á 4. síðu.
Innilegar þakkir iyrir auðsýnda vináftftu
og samúð alla, á sextugs afmæli mínu.
Lárus Bjarnason.
Ledur og skixm
II úftsölu Gefjunnar, Laugaveg 10
eru til sölu margar tegundir af
LEÐRI, SKINNUM
og unnum vörum úr þessum efnum
Jakkar, Eápur, Húfur,
Bílstjórahanzkar o. fl.
firá sútunarverksmiðju S. í. S. á Akureyri.
Ennfremur ftekíð á móti pöntunum á:
LEÐRI til söðlasmída og aktýgfja, húsgagnagerð-
ar o.íl. - SKINNUM til fiatagerðar, hadzkagerðar o.fl.
Skoðið sýníshorn og athugíð verð.
Samband ísl. samvinnufélaga.