Nýja dagblaðið - 20.03.1936, Blaðsíða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Danmork
©g Lífkanen
eíga að vera Soröa-
búr Þjóðverfa í óiriði
GörÍEig vill láta taka
{>essi lönd kerskyldi
strax í óiridarbyrjun
„Göteborgs Handels och Sjö-
fartstidning“ skýrir frá því ný-
lega eftir upplýsingum frá Ber-
lín, aö þýzka herstjómin hafi
haft það til athugunar um und-
anfarið skeið, hvernig Þýzka-
land gæti aflað sér nægilegra
matvæla, ef stríð bæri að hönd-
um. Landbúnaður Þýzkalands
er ekki einfær til þess að full-
nægja þörfum hersins og þjóð-
arinnar í heild, og Þjóðverjar
gætu því ekki án hjálpar ann-
arsstaðar frá háð styrjöld til
langframa.
Þykjast kunnugir menn nú
hafa orðið þess áskynja, að
herstjómin hafi orðið sammála
um áætlun til öflunar á mat-
vælum og sé Göring aðalhöf-
undur hennar. Er áætlunin sú í
stuttu máli, að leggja Lithauen
og Danmörku undir Þýzkaland
strax í byrjun ófriðarins, en
framleiðsla landbúnaðarafurða í
þessum löndum ætti að geta
fullnægt þörfum Þjóðverja,
þegar heimaframleiðslan er
meðtalin.
En innrásina í þessi lönd á að
rökstyðja með því, að þau ráði
yfir landshlutum, sem raun-
verulega tilheyra Þýzkalandi, en
það eru Memel og Norður-
Slésvig.
Hermir fréttin að þessi ráða-
gerð hafi hlotið samþykki bæði
þýzku herstjómarinnar og
Hitlers.
Fréftlr frá
Brelðafirði
Fornbýll
Ijláumgmr látmn
Við Breiðafjörð hefir veðr-
átta verið óvenjuleg í vetur,
næstum alltaf óslitin norðanátt
með nokkra frosti, en snjór
hefir ekki fallið á jörð svo telj-
andi sé, allt til febrúarloka. Tíð
hefir því verið mjög hagstæð
til sveita, beitijörð ágæt og veð-
ur alltaf hæg að undanteknu
áhlaupinu mikla 14. des. Isalög
era þau mestu, sem komið hafa
síðan 1920. Hafa innfirðir ver-
ið lagðir síðan fyrir jól og er
enn óbrotin ís á Hvammsfirði.
Komið hefir fyrir að bíll hefir
farið á ís frá Stykkishólmi inn
á Skógarströnd. — Afli hefir
verið mjög tregur í vetur. Þó
var nokkur flyðraafli í haust.
Á þessum tíma árs er ekkert
útræði frá Breiðafirði innan-
verðum; er því dauft athafna-
líf þar við sjóinn. Allmargir
menn, bæði frá sveitum og sjó-
þorpum, leita vinnu suður á
vetrum. Nokkrir þeirra verða
nú að hverfa vonsviknir heim ,
aftur. Tveir bátar frá Stykkis- |
hólmi eru gerðir út í vetur í
öðrum verstöðvum.
Nýlega er dáinn Einar Jóns-
son frá Bíldsey hátt á níræðis-
aldri. Hann var mörgum sjó-
farendum þar að góðu kunnur
fyrir framúrskarandi gestrisni,
sem mörgum kom vel á meðan
ferðir héldust á árabátum á
milli vestureyja og Stykkis-
hólms. Einar var góður dreng-
ur og svo hreinlyndur við
hvem, sem hann átti, að öll
tvímæli taldi hann fals. Hann
var svo fornbýll, að á jólum
einum í elli sinni tók hann upp
spil og vínflösku, sem hann
hafði keypt í Englandi í æsku,
en þangað fór hann sem verka-
maður á hestaflutningsskipi.
Greindur var Einar ágætlega og
svo snjall í tilsvörum, að þau
munu lengi uppi vera við
Breiðafjörð. J.
Aðalfundur
Dýravernduuarfélags
Islands.
„Eifrunar£rumvarpmu“
mótmælt
Föstudaginn 13. þ. m. var
aðalfundur Dýraverndunarfé-
lags íslands haldinn í Oddfé-
lagahúsinu í Reykjavík.
Á fundinum voru lagðir fram
endurskoðaðir reikningar fé-
landsins og sjóða þess, og voru
þeir samþykktir. Tekjur félags-
ins umfram gjöld á árinu voru
kr. 1121,98. „Tryggvasjóður“
nam í árslok kr. 81.706,12 og
„Minningarsjóður Guðlaugs
Tómassonar“ kr. 621,51. Félagið
má nota helming ársvaxta
„Tryggvasjóðs“ til starfrækslu
sinnar, en vexti af hinum
sjóðnum má það eigi nota fyrr
en hann er orðinn eitt þúsund
krónur.
Síðan skýrði formaður frá
framkvæmdum stjómarinnar á
starfsárinu.
Verður skýrsla formanns birt
í næsta hefti „Dýravemdar-
ans“.
f lok ræðu sinnar minntist
fórmaður aldarafmælis Tryggva
Gunnarssonar. Risu fundar-
menn úr sætum sínum til verð-
Frh. á 4. síðu.
R E Y K I Ð
NicolasSoussafréres
EGYPTSKAR
CIGARETTUR
20 sftk. pakkmn
á kr. 1.40.
Aukafundur
verður haldinn í Sölusambandi íslenzkra fiskframleið-
enda, föstudaginn 3. apríl næstkomandi, kl. 2 e. hád,
Á dagskrá verða eftirfarandi mál:
1. Gefin skýrsla um fisksöluna, reikningsyfirlit S. í, F.,
og söluhorfur.
2. Fisksalan til Norður-Ameríku.
3. Önnur mál, sem varða starfsemi S. í. F.
»
Fundarstaður verður auglýstur síðar.
Reykjavík, 19. marz, 1936.
Sölusamband ísL fískftramleíðenda
Maguús Sígurðsson
p.t. formaður.
SKEMMTIKVÖLD
Da*. hsmge Kocb
ii.
Þegar dr. Koch kom hingað
til lands til að undirbúa benn-
an leiðangur, þótti sumum
mönnum sem landi og þjóð
væri gerð minnkun með Iram-
taki hans. Var 'þessi mótstaða
frá tveim hliðum, sumpart frá
merkum mönnum, sem
vildu, að íslendingar gerðu
sjálfir allar rannsóknir á landi
sínu ogJeituðu ekki til útlanda,
hvorki um fé eða menn í þessu
sambandi. En helzt var þó mót-
staða frá þröngsýnum og fá-
kænum mönnum, sem eru gegn-
sýrðir af undirlægjutilfinningu
gagnvart Dönum, og halda að
ef Danir vinna einhver verk
með íslendingum, þá hljóti sú
framkvæmd jafnan að verða á
þann veg, að á íslendinga halli
í þessum skiptum. Þessi van-
máttartilfinning er leifar frá
þeim tíma, þegar Danir létu
íslendinga jafnan kenna afls-
munar í skiptum þjóðanna, og
þegar fslendingurínn varð að
beygja sig, af því að hann til-
heyrði veikari þjóð. Nú er al-
gerlega breytt aðstaða. Danir
og fslendingar standa jafnt að
vígi. Hið gamla ójafnræði í
skiptunum er horfið. En það er
hæðni örlaganna, að þeir menn,
sem 1 raun og veru eru mest
háðir Dönum andlega og hafa
eingöngu útþynnta danska
menningu, eru langsamlega
mest hræddir við að umgang-
ast þessa frændþjóð eins og
jafningja.
Vísindin eru alheimseign. Við
íslendingar komum seint til
leiks. Við höfum í síðustu tvær
aldimar átt allmarga stór-
merka náttúrafræðinga, og
vafalaust miklu fleiri efni í
náttúrufræðinga, sem aldrei
haía fengið skiJyrði til að
starfa. Við höfum átt Eggert
Ólafsson, Jónas Halgrímsson,
Þervald Thoroddsen, Bjarna
Sæmundsson og Helga Perars,
til að nefna aðeins hina þevkt-
ustu. Allir þessir menn hafa að
mestu leyti unnið að rannsókn-
um sínum með erlendu fjár-
framlagi. En þeim hefir öllum
staðið fyrir þrifum að vanta
fé og ytri skilyrði til starfsins.
En einmitt af því að vísindaleg-
ar rannsóknir eru alþjóðaeign,
mega framiög til þeirra vera
alþjóðleg.
Þetta eru svo augljós sann-
indi, að þau urðu þess valdandi,
að allur beigur fór úr mönnum
hér við hinar fyrirhug-
uðu rannsóknir, sem dr. Koch
vill koma af stað hér á landi.
Auk þess, sem hann starfar að,
er búist við tveim öðrum jarð-
fræðilegum rannsóknarferðum í
sumar hér á landi. Að öðrum
leiðöngrum mun starfa Jóhann-
es Áskelsson og dr. Nielsen
frá Danmörku, en að hinum
Jón Eyþórsson veðurfræðingur
og sænskur professor frá
Stokkhólmi. Verður með honum
íslenzkur nemandi hans, Sveinn
Þórarinsson, hinn mannvænleg-
asti maður. Ef allt fer eins og
við var búizt verða þannig þrír
vísindalegir leiðangrar starf-
andi hér á landi næsta sumar.
í þeim öllum munu starfa ís-
lenzkir vísindamenn og fræði-
mannaefni við hlið útlendra sér-
fræðinga. Má segja að þetta sé
gleðilegur vottur þess,að byrjað
sé að viðurkenna, að ísland er
í jarðfræðilegum efnum lang-
samlega merkilegasta land í Ev-
rópu, þar sem mest er að læra
fyrir vísindin af hinu volduga
samspili elds og ísa. — Hér
verður byrjað á réttri leið, að
Islendingar leggi fram orku
sína og mennt við þessar rann-
sóknir, en jafnframt viður-'
lcenna hin alþjóðlegu vísindi, að
þau eigi hingað mikið erindi.
Frh. J. J.
Framsóknarmanna
verður í Oddfellowkúsínu í kvöld Söstu-
dag 20. p. m. kl. 8,30.
Framsóknar-vb£sf. — D A M Z.
Aðgöngumiðar á afgreiðslu Nýja dagblaðsins
kosta 2,25 (veitingar innifaldar í verði).
SJAFNAR-NÆTURKREM
(COLDKREM)
hrelnsar háðliaa bezft,
nærlr bana og mýkir.
SJAFMAR-HÚÐSMYRSL
eru nú alvíðurkennd fyrir gæðí.
Allt með íslenskum skipum! f